Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 927  —  549. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stafrænt fullveldi Íslands.

Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.


     1.      Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
     2.      Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
     3.      Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
     4.      Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
     5.      Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?


Skriflegt svar óskast.