Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 935  —  353. mál.
Viðbót.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.


    Fyrirspurn var send á undirstofnanir ráðuneytisins og eru upplýsingar í töflunum byggð á svörum frá þeim. Allar upphæðir í töflunum eru í milljónum króna.

     1.      Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?

Stofnun 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 0,9 0,2 0,3 0,4 0,8
Sýslumaðurinn á Austurlandi 0,2 0,4 0,6 0,5
Sýslum. á höfuðborgarsvæðinu 0,1 0,1 0,2 0,3 0,4 0,3 0,6 0,8 1
Lögreglustjórinn á Vesturlandi 0,5 1,4 1,3 1
Héraðssaksóknari 0,5 0,9 1,4 1
Ríkislögreglustjóri 1,5 1,8 3,1 2,2 2,3 2,3 2,9 5,3 4,2
Útlendingastofnun 0,1 0,3 0,2 0,3 0,4 0,9 0,7 0,6
Kærunefnd Útlendingamála 0,3 0,4 0,5 0,9 0,9
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum 0,3 0,7 0,7
Dómsmálaráðuneytið 0,6 0,7 1,2 2 2,2 2,3 2,3

     2.      Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
                  a.      skattstyrkjum,
                  b.      aðgerðum í samgöngum,
                  c.      aðgerðum í landbúnaði,
                  d.      öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.

    Svar við a- og c-lið er það sama, engir styrkir hafa verið veittir, hvorki í formi skattstyrkja né vegna aðgerða í landbúnaði en styrkir hafa verið veittir til aðgerða í samgöngum og beinir styrkir.

     b. Aðgerðir í samgöngum – samgöngustyrkir til starfsfólks.
Stofnun 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 0,9 0,2 0,3 0,3 0,6
Sýslumaðurinn á Austurlandi 0,2 0,4 0,6 0,6
Sýslum. á höfuðborgarsvæðinu 0,1 0,1 0,2 0,3 0,4 0,3 0,6 0,8 1
Héraðssaksóknari 0,5 0,8 1,3 1
Ríkislögreglustjóri 1,5 1,8 2,7 2,2 2,3 1,8 1,9 2,8 3,2
Útlendingastofnun 0,1 0,3 0,3 0,3 0,4 0,9 0,7 0,6
Kærunefnd útlendingamála 0,3 0,4 0,5 0,9 0,9
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum 0,3 0,7 0,7
Dómsmálaráðuneytið 0,6 0,7 1,2 2 2,2 2,3 2,3

     d.    Aðrar beinar aðgerðir, svo sem styrkveitingar og kaup á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
Stofnun 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 0,1 0,2
Ríkislögreglustjóri 0,3 0,4 0,9 2,5 0,9
Lögreglustjórinn á Vesturlandi 0,5 1,4 1,3 1
Héraðssaksóknari 0,1 0,1

     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið heldur utan um árangur af loftslagsaðgerðum og svarar þessum hluta fyrirspurnarinnar fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins.

     4.      Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
    Enginn hefur fengið greiðslu yfir 500 þús. kr.