Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 936  —  79. mál.
Flutningsmenn.

2. umræða.


Nefndarálit með frávísunartillögu


um frumvarp til laga um vegabréfsáritanir.

Frá minni hluta utanríkismálanefndar.


    Með frumvarpinu er öll framkvæmd vegabréfsáritana inn á Schengen-svæðið færð frá dómsmálaráðuneyti til utanríkisráðuneytis í því skyni að fjölga megi áritunum og afla ríkissjóði meiri tekna. Minni hlutinn bendir á að efni frumvarpsins fer gegn verkaskiptingu ráðherra samkvæmt forsetaúrskurði, en dómsmálaráðherra fer með stjórn landamæra, Schengen-mál og málefni útlendinga. Fyrirsvar Schengen-samstarfsins hefur frá upphafi verið í höndum dómsmálaráðherra. Þetta er áréttað í umsögn dómsmálaráðuneytis sem bendir á að vegabréfsáritanir séu „órjúfanlegur hluti af málefnum útlendinga og landamæra“. Samkvæmt frumvarpinu verður Schengen-kerfið á ábyrgð tveggja ráðherra sem virðast togast á um þau sjónarmið sem mikilvægast er að séu ofan á við vörslu landamæranna. Það getur teflt megintilgangi Schengen-samstarfsins, um öflug ytri landamæri og öruggt innra svæði, í hættu. Í umsögninni áréttar dómsmálaráðuneytið sömuleiðis að mikilvægt sé að Ísland „skeri sig ekki frá öðrum Schengen-ríkjum“ við útgáfu áritana.
    Þá telur minni hlutinn að tilfærslan sé á skjön við þær meginreglur sem almennt gilda um útgáfu slíkra áritana. Í nágrannalöndum okkar er þvert á móti hávær umræða um vandann sem skapast af mikilli ásókn yfir landamæri og um að herða landamæravörslu. Um það er m.a. vísað til ábyrgðar Íslands sem þátttakanda í Schengen-samstarfinu, þar sem áritun inn á Schengen-svæðið veitir heimild til ferðalaga um það allt. Mikil áhersla hefur verið lögð á að auka öryggi á ytri landamærum Schengen-ríkjanna og markmið frumvarpsins um að auka útgáfu vegabréfsáritana til að afla tekna er á skjön við þá áherslu og ábyrgð sem samstarfinu fylgir.
    Í umsögn ríkislögreglustjóra kemur fram að ekki hafi verið haft samráð við embættið við undirbúning frumvarpsins og tekið er undir fyrri umsögn lögreglunnar á Suðurnesjum þar sem varað er við hættunni á misnotkun vegabréfaáritanakerfisins „ef of auðvelt er að fá áritun frá einu aðildarríki Schengen samstarfsins umfram önnur.“ Embættið leggur áherslu á að öryggishagsmunir séu hafðir í fyrirrúmi við fyrirkomulag vegabréfsáritana til Íslands, en eins og áður segir er markmið frumvarps þessa fjárhagslegs eðlis. Embættið gerir því athugasemd við markmið frumvarpsins þar sem ekki sé augljóst að það „standi í fullum tengslum við þau sjónarmið sem liggja að baki áritanakerfinu eins og það er byggt upp í dag“ og telur „mikilvægt að einnig sé hugað að öðrum þáttum á borð við öryggi ytri og innri landamæra“.
    Minni hlutinn tekur undir þessar athugasemdir og áhyggjur ríkislögreglustjóra.
    Eins og fram kemur í umsögn dómsmálaráðuneytis standa nú yfir viðamiklar breytingar á tæknilegum innviðum Schengen-svæðisins og regluverkið þróað til að auka öryggi ytri landamæra og skilvirkni stjórnvalda. Meðal þeirra breytinga er innleiðing á evrópsku landamærakerfunum (e. European Travel Information and Authorisation System) og EES-kerfinu (e. Entry/Exit System). Stefnt er að því að kerfin taki gildi síðar á þessu ári og myndi saman stafrænan ramma um öryggi og för fólks yfir ytri landamæri Schengen-svæðisins. Innleiðing þessara breytinga heyrir undir dómsmálaráðuneyti og undirstofnanir þess. Í umsögn ríkislögreglustjóra er varað við því að ekki sé tekið tillit til innleiðingar þessara kerfa í frumvarpinu. Þar sem Ísland er skuldbundið til að tryggja örugga framkvæmd og innleiðingu kerfanna og hnökralausa samvinnu stjórnvalda telur minni hlutinn að í það minnsta hefði átt að hinkra með fyrirætlanir um uppskiptingu málaflokksins þar til breytingar þessar væru yfirstaðnar.
    Þá gerði minni hlutinn athugasemd við afgreiðslu málsins með bókun á fundi utanríkismálanefndar þann 2. mars 2026 um að málið væri ótækt til afgreiðslu þar sem eðlilegum beiðnum um umsagnir hefði verið hafnað af meiri hluta nefndarinnar. Mikilvægt er að öryggishagsmunir ráði för í málefnum landamæra og hefur minni hlutinn áhyggjur af vinnubrögðum og asa á málinu í því tilliti.
    Í ljósi þeirra öryggishagsmuna sem undir eru í málinu, og varnaðarorða og athugasemda sem birtast í umsögnum um málið og í máli gesta sem komu fyrir nefndina, er það mat minni hlutans að ótækt sé að frumvarpið verði að lögum óbreytt.
    Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 17. mars 2026.

Diljá Mist Einarsdóttir,
frsm.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Jóhann Friðrik Friðriksson.