Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 940  —  559. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um örorkubætur.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hver voru útgjöld ríkissjóðs vegna örorkubóta á fjárlögum sl. 20 ár, sundurgreint eftir árum, upphæð og sem hlutfall af fjárlögum hvers árs?
     2.      Hver var fjöldi bótaþega á tímabilinu, sundurgreint eftir árum?
     3.      Hefur bótaþegum fjölgað? Ef svo er, hver er ástæðan fyrir fjölguninni?
     4.      Hvernig er eftirliti með málaflokknum háttað?


Skriflegt svar óskast.