Ferill 560. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 941 — 560. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um fullgildingu samþykktar
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir
gegn ofbeldi og áreitni.
Frá Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur.
Hvernig stendur vinna stjórnvalda við fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190, um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, sem afgreidd var á 108. Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf í júní 2019? Hvenær má búast við að samþykktin verði fullgild?
Skriflegt svar óskast.