Ferill 356. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 945  —  356. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.


     1.      Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
    Heildarfjárhæðir sem heilbrigðisráðuneytið og undirstofnanir þess hafa greitt til loftslagsmála á tímabilinu 2017 til 2025 má sjá í neðangreindri töflu. Hjá heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða kostnað aðalskrifstofu vegna greiðslu samgöngustyrkja til starfsfólks og er einnig til heilsueflingar. Hjá Landspítala eru 544,9 millj. kr. vegna samgöngusamninga og 77,4 millj. kr. vegna keyptra árskorta hjá Strætó bs. Heilbrigðisstofnun Austurlands svaraði ekki fyrirspurninni en aðrar stofnanir þar sem ekki eru uppgefnar fjárhæðir svöruðu því að engu fé hefði verið varið í loftslagsmál á tímabilinu.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir: a) skattstyrkjum, b) aðgerðum í samgöngum, c) aðgerðum í landbúnaði, d) öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.

    Í neðangreindri töflu má sjá hvernig fjárhæðir skiptast niður eftir umbeðnum flokkum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
















    Landspítali nefndi í þessu samhengi að þeim starfsmönnum sem eru með fastan ráðningasamning sé boðið upp á að gera samgöngusamning. Starfsmaður sem skuldbindur sig til að nota vistvæna samgöngumáta í að lágmarki 80% ferða til og frá vinnu fær samgöngustyrk og afslátt af árskorti hjá Strætó. Starfsmaður sem skuldbindur sig til að nota vistvæna samgöngumáta í að lágmarki 40% ferða til og frá vinnu fær afslátt af árskorti hjá Strætó. Þessi aðgerð er liður í Grænum skrefum ríksstofnana og er ætlað að hvetja til vistvænni samgöngumáta.

     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
    Svör bárust frá Landspítala, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
    Landspítali byggir árangursmat sitt á grænu bókhaldi ríkisstofnana og skilgreindum loftslagsmarkmiðum 2023–2025. Markmiðin fela m.a. í sér 59% samdrátt í losun umfanga 1 og 2 og 50% samdrátt umfanga 1, 2 og 3 miðað við árið 2020. Á tímabilinu 2017–2023 náðist umtalsverður samdráttur, einkum vegna uppsetningar eyðingarbúnaðar fyrir glaðloft og fyrstu áfanga orkuskipta í bílaflota. Endanleg gögn fyrir 2024 og 2025 liggja ekki fyrir og kostnaðarmat aðgerða er ekki tiltækt að svo stöddu. Árleg niðurstaða er birt í ársskýrslu græns bókhalds.
    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur m.a. fjárfest í rafmagnsbifreiðum vegna heimahjúkrunar. Akstursgreiðslur til starfsfólks lækkuðu úr 22,8 millj. kr. árið 2021 og 18,3 millj. kr. árið 2022 niður í 0,3 millj. kr. árið 2025. Þrátt fyrir rekstrarkostnað bifreiða hefur heildarniðurstaðan verið fjárhagslega hagkvæm og jafnframt hefur dregið úr losun vegna aksturs.
    Heilbrigðisstofnun Norðurlands skráir árlega niðurstöður í grænt bókhald, m.a. vegna rafmagns, heitavatns, samgangna og úrgangs. Framvinda er metin gagnvart skilgreindum markmiðum með hliðsjón af eðli starfsemi og fyrir liggur mat á kostnaði og árangri.

     4.      Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
    Landspítali greiddi samgöngustyrki til starfsmanna og niðurgreiðslu strætókorta til Strætó bs. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja greiddi 45.076.350 kr. fyrir 11 rafmagnsbíla (Nissan Leaf) frá B&L ehf., 5.168.769 kr. til Ríkiskaupa fyrir einn Kia Niro og 1.274.503 kr. til Klappa fyrir aðgang að bókhaldskerfi fyrir grænt bókhald. Kaupin á rafmagnsbílunum voru ekki tiltekin sem kostnaður í 1. tölul. fyrirspurnarinnar.