Ferill 561. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 950  —  561. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um meðalverð á landaðri loðnu til frystingar.

Frá Eydísi Ásbjörnsdóttur.


     1.      Hvert er meðalverð á landaðri loðnu til frystingar á Íslandi annars vegar og í Færeyjum hins vegar fiskveiðiárið 2025/2026?
     2.      Hver er sundurliðun meðalverðs átta stærstu sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi á heildarmagni loðnu til frystingar fiskveiðiárið 2025/2026?


Skriflegt svar óskast.