Ferill 563. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 952  —  563. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um stöðu og framtíð útboðsverkefnis Náttúrufræðistofnunar um loftmyndatöku af Íslandi.

Frá Ingvari Þóroddssyni.


     1.      Hefur verið gerð úttekt á framgangi mála nú þegar yfir tvö ár eru liðin síðan verktaki hóf störf við útboðsverkefni Náttúrufræðistofnunar um loftmyndatöku af Íslandi?
     2.      Hefur árangur verktakans sem samið var við verið borinn saman við þann árangur sem innlendir einkaaðilar sem sérhæfa sig í loftmyndatökum hafa náð á sama tímabili?
     3.      Hefur verið gert kostnaðarmat á viðhaldi og uppfærslu kortagagnagrunnsins eftir að upphaflegu verkefni lýkur? Ef svo er, hver var niðurstaða kostnaðarmatsins?
     4.      Hyggst ráðherra halda verkefninu áfram þegar gildandi samningi lýkur eða kemur til greina að endurskoða umfang þess eða leggja verkefnið alfarið af?


Skriflegt svar óskast.