Ferill 572. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 971 — 572. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna starfa í heilbrigðisþjónustu úti á landi.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir á grundvelli tillagna starfshóps um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar sem snúa að beitingu 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna? Ef svo er, um hvers konar ívilnun við endurgreiðslu námslána er að ræða og hverjum mun hún standa til boða?
2. Hver er áætlaður árlegur heildarkostnaður ríkissjóðs við að beita heimildum 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna um ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna starfa í heilbrigðisþjónustu úti á landi?
Skriflegt svar óskast.