Ferill 575. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 974 — 575. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um styrki til félagasamtaka til að efla umræðu um Evrópumál.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
Hvernig uppfylltu styrkir samkvæmt heimild í fjáraukalögum III fyrir árið 2025 að upphæð 25 millj. kr. til tveggja félagasamtaka til að „efla umræðu um Evrópumál“ skilyrði reglugerðar um styrkveitingar ráðherra, nr. 642/2018? Óskað er sérstaklega upplýsinga um hvernig skilyrði eftirfarandi greina voru uppfyllt:
a. 3. gr. um að gæta beri jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun styrkja.
b. 5. gr. um að skriflegar úthlutunarreglur þurfi að liggja til grundvallar úthlutun styrkja.
c. 6. gr. um skyldu ráðherra til að auglýsa fyrirhugaða styrki þegar um er að ræða tiltekna flokka styrkja eða framlaga á grundvelli 42. gr. laga um opinber fjármál.
d. 7. gr. um skriflega úthlutunarskilmála og úthlutunarsamninga.
Skriflegt svar óskast.