Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1000 — 296. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009 (framkvæmd).
(Eftir 2. umræðu, 26. mars.)
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
a. Í stað orðsins „tveggja“ í 3. málsl. kemur: þriggja.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur verkefni þar sem áætlaður árlegur kostnaður er ekki umfram 125 millj. kr. fengið staðfestingu sem gildir í tvö ár. Með umsókn skal fylgja verk- og kostnaðaráætlun, sbr. 2. mgr. 4. gr., fyrir bæði árin. Skilyrði er að um lítið fyrirtæki sé að ræða, sbr. 1. tölul. 3. gr. Fyrirtæki sem fá slíka heimild skulu að loknu fyrra ári skila framvinduskýrslu á því formi sem Rannís óskar.
6. gr.
a. Orðin „þar af skal heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 20 hundraðshluta vegna aðkeyptrar rannsóknar- og/eða þróunarvinnu skv. 6. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
b. 5. mgr. orðast svo:
Kostnaður við aðkeypta þjónustu í formi rannsóknar- eða þróunarvinnu er aðeins styrkhæfur þegar þjónustan er hluti af staðfestu rannsóknar- og/eða þróunarverkefni og keypt af ótengdum fyrirtækjum, háskólum eða stofnunum á Evrópska efnahagssvæðinu eða í ríkjum sem Ísland hefur gert tvísköttunar- eða upplýsingaskiptasamning við. Heildarupphæð styrkhæfs kostnaðar nýsköpunarfyrirtækis samkvæmt þessari málsgrein getur aldrei verið umfram 20% af hámarkskostnaði skv. 1. mgr.
7. gr.
8. gr.