Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1001 — 265. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
(Eftir 2. umræðu, 26. mars.)
I. KAFLI
Breyting á orkulögum, nr. 58/1967.
1. gr.
Í stað orðsins „Ráðherra“ í 1. málsl. 30. gr., 1. mgr. 31. gr. og 2. mgr. 32. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
2. gr.
II. KAFLI
Breyting á lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996.
3. gr.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að taka gjald fyrir:
1. Vinnslu og útgáfu leyfa, sem og endurskoðun, breytingu eða afturköllun leyfa, sbr. 5., 11., 16., 19. og 22. gr.
2. Endurgreiðslu alls kostnaðar sem fellur til við sérstakar rannsóknir, úttektir eða kynningar enda hafi verið haft samráð við umsækjanda um fyrirhugaðar rannsóknir, úttektir eða kynningar og honum gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en til slíks kostnaðar er stofnað.
3. Eftirlit, sbr. ákvæði þessa kafla.
4. Eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. IX. kafla.
Ráðherra setur, að fengnum tillögum Umhverfis- og orkustofnunar, gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, eftirlit, beitingu þvingunarúrræða og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér samkvæmt lögum þessum. Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
III. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé mengandi starfsemi sem er starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka IV jafnframt starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka I og/eða viðauka II skal Umhverfis- og orkustofnun gefa starfsleyfið út sem eitt leyfi og þarf þá ekki sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar.
b. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. er útgefanda starfsleyfis heimilt að veita frest í eina viku til að gera athugasemdir við tillögu að starfsleyfi þegar sótt er um nýtt leyfi vegna starfsemi sem áður hefur haft gilt starfsleyfi, enda sé ekki um að ræða efnislegar breytingar á starfseminni eða starfsleyfisskilyrðum frá því sem áður gilti og umsókn hefur borist innan 12 mánaða frá því að fyrra starfsleyfi féll úr gildi.
7. gr.
a. Á eftir orðinu „viðauka“ í 1. mgr. kemur: II og.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skráningarskylda og almennar bindandi reglur.
8. gr.
Tilkynningarskylda vegna færanlegrar starfsemi.
Umhverfis- og orkustofnun skal halda skrá yfir tilkynntar framkvæmdir og tryggja að upplýsingar séu aðgengilegar eftirlitsaðilum.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um form og efni tilkynningar, þar á meðal um tilkynningarfrest og rafræn skil gagna.
9. gr.
Afturköllun.
Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.
10. gr.
11. gr.
15. Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
16. Jarðbor.
12. gr.
a. 55. tölul. fellur brott.
b. Á eftir 76. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Osteópati.
c. 115. tölul. orðast svo: Brennsluver þar sem nafnvarmaafl er jafnt og eða meira en 1 MW og minna en 50 MW.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.
13. gr.
a. Í stað orðanna „vatnsafli til raforkuframleiðslu“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: orkulindum til undirbúnings raforkuvinnslu, sbr. 40. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, á íslensku forráðasvæði innan sem utan netlaga.
b. Á eftir orðinu „skipulagslög“ í 3. mgr. kemur: lög um skipulag haf- og strandsvæða.
14. gr.
a. Við 4. mgr. bætist: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
b. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er þó heimilt að falla frá öflun umsagna enda hafi umsækjandi haft gilt rannsóknarleyfi fyrir sömu auðlind á sama svæði og:
a. umsókn berst innan 12 mánaða frá því að fyrra rannsóknarleyfi umsækjanda féll úr gildi,
b. fyrirhuguð rannsókn er í meginatriðum óbreytt að umfangi og eðli frá því sem var samkvæmt fyrra leyfi,
c. rannsóknir á grundvelli fyrra leyfis hafa verið án verulegra athugasemda að mati stofnunarinnar.
c. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Umhverfis- og orkustofnun skal ávallt leita umsagna að nýju ef nýjar og marktækar upplýsingar liggja fyrir sem varða þau atriði sem umsagnir skulu taka til eða ef ætla má að forsendur hafi breyst verulega frá því að fyrri umsagnir voru veittar.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, að fenginni skriflegri og rökstuddri umsókn leyfishafa, að framlengja rannsóknarleyfi til allt að þriggja ára í senn. Skilyrði fyrir framlengingu er að leyfishafi uppfylli skilyrði gildandi leyfis og sýni fram á að framlenging sé nauðsynleg til að ljúka markmiðum rannsóknaráætlunar eða til að rannsaka nánar atriði sem fram hafa komið við rannsóknir á leyfistímanum. Heildargildistími rannsóknarleyfis, að meðtöldum framlengingum, skal þó að jafnaði ekki vera lengri en tíu ár. Umsókn um framlengingu skal berast stofnuninni eigi síðar en 30 dögum áður en gildistími leyfis rennur út.
15. gr.
a. Við 1. málsl. 3. mgr. bætist: Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu Íslands.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, að fenginni skriflegri og rökstuddri umsókn leyfishafa, að framlengja nýtingarleyfi. Skal tímalengd framlengingar taka mið af eðli og umfangi auðlindarinnar, þeim fjárfestingum sem liggja í nýtingu hennar og þjóðhagslegri hagkvæmni. Við ákvörðun um framlengingu skal meta hvort leyfishafi uppfylli skilyrði gildandi leyfis, þar á meðal um umhverfissjónarmið og skynsamlega nýtingu auðlindarinnar, og hvort forsendur fyrir nýtingu séu enn fyrir hendi. Umsókn um framlengingu skal berast stofnuninni eigi síðar en 30 dögum áður en gildistími leyfis rennur út.
16. gr.
a. Í stað „60“ í 2. málsl. kemur: 90.
b. Á eftir 3. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu nýtingarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.
V. KAFLI
Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.
17. gr.
18. gr.
a. 4. mgr. fellur brott.
b. Orðin „eða leyfi Raforkueftirlitsins er veitt skv. 4. mgr.“ í 5. mgr. falla brott.
19. gr.
Leyfisveitanda er jafnframt heimilt að afturkalla leyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
20. gr.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.
21. gr.
a. Á eftir orðunum „skv. 1. málsl. 1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: eða veitingu bindandi umsagnar skv. 5. mgr.
b. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ef umsókn um heimild til mannvirkjagerðar í veiðivötnum varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt leyfi til mannvirkjagerðar í veiðivötnum að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1.–4. mgr.
Úrræði Fiskistofu skv. 33. gr. a eiga jafnframt við um eftirlit með framkvæmdum sem hlotið hafa leyfi Umhverfis- og orkustofnunar skv. 5. mgr. Heimild til afturköllunar leyfis skv. 3. mgr. 33. gr. a tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
VIII. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
22. gr.
23. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Starfsleyfisskyldur atvinnurekstur sem Umhverfis- og orkustofnun gefur út leyfi fyrir á grundvelli 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, sbr. viðauka I og II. Einnig starfsleyfisskyldur atvinnurekstur um meðhöndlun úrgangs, sbr. 5. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
b. 3. tölul. orðast svo: Framleiðsla efna og efnablandna sem flokkast sem hættuleg efni, eiturefni, plöntuverndarvörur eða sæfivörur, sbr. efnalög, notkun þeirra, geymsla, vinnsla, urðun, losun og flutningur.
c. Orðin „nr. 50/1987“ í 4. tölul. falla brott.
IX. KAFLI
Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.
24. gr.
Ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt slíka undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um skilyrði og málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1. og 2. mgr.
Eftirlit Náttúruverndarstofnunar samkvæmt lögum þessum tekur jafnframt til eftirlits með skilyrðum undanþágu sem Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt skv. 3. mgr. Heimild til breytingar eða afturköllunar leyfis skv. 89. gr. tekur einnig til afturköllunar á bindandi umsögn.
25. gr.
X. KAFLI
Breyting á efnalögum, nr. 61/2013.
26. gr.
27. gr.
Notkun tannsilfurs til viðgerða á tönnum er óheimil nema tannlæknir telji slíka notkun nauðsynlega á læknisfræðilegum grundvelli.
28. gr.
XI. KAFLI
Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
29. gr.
Við 12. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra stafliða samkvæmt því:
a. gerð matslýsingar fyrir umhverfismat áætlunar.
30. gr.
a. Við 2. málsl. 2. mgr. bætist: m.a. um hvort framkvæmd er líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 20. gr. er Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun heimilt, að fenginni tilkynningu framkvæmdaraðila skv. 2. mgr., að ákveða án frekari málsmeðferðar að breyting eða viðbót við framkvæmd samkvæmt tölul. 13.02 í 1. viðauka eða framkvæmd að umfangi undir viðmiðunarmörkum í flokki B í 1. viðauka sem fyrirhuguð er á verndarsvæði sé ekki háð umhverfismati. Skilyrði er að á grundvelli fyrirliggjandi gagna megi telja augljóst, með tilliti til viðmiða 2. viðauka, að breytingin eða viðbótin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, ein sér eða í samspili við áhrif annarra framkvæmda. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skal gera hlutaðeigandi grein fyrir niðurstöðu sinni og birta á vef sínum.
31. gr.
a. Á eftir d-lið kemur nýr stafliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra stafliða samkvæmt því: upplýsingar um áhrif framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.
b. Í stað tilvísunarinnar „a–d-lið“ í e-lið kemur: a–e-lið.
32. gr.
a. Í stað tölunnar „200“ í tölul. 1.04 kemur: 100.
b. Tölul. 1.10 fellur brott.
c. Í stað tölunnar „50“ í 2. málsl. tölul. 3.02 kemur: 83.
d. Í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 kemur: eða.
e. Á eftir orðunum „flokk A“ í tölul. 3.19 kemur: að frátöldum jarðvarmavirkjunum.
f. Tölul. 7.02 orðast svo: Pökkun og niðursuða á dýraafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 75 tonnum á dag. Pökkun og niðursuða á jurtaafurðum þar sem framleiðslugeta er yfir 300 tonn á dag.
g. Tölul. 7.03 orðast svo: Framleiðsla á mjólkurvörum þar sem tekið er á móti meira en 200 tonnum af mjólk á dag.
h. Orðin „3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falla brott.
i. Í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 kemur: 220.
j. Í stað orðanna „500 tonn af úrgangi á ári“ í tölul. 11.02 kemur: 100 tonn af úrgangi á dag.
k. Í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 kemur: eða.
l. Við tölulið 11.12 bætist: að undanskildum jarðvegi.
m. Við tölul. 12.02 bætist: að því undanskildu þegar komið er upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.
33. gr.
XII. KAFLI
Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
34. gr.
a. (6. gr. a.)
Málsmeðferð og sameinuð leyfisveiting.
Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, óski umsækjandi þess, að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé það heimilt samkvæmt viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds. Breyting eða afturköllun stjórnvalds á bindandi umsögn skal tilkynnt Umhverfis- og orkustofnun sem skal þá eftir atvikum breyta leyfinu eða afturkalla það.
Leyfi, ákvarðanir, tilkynningar og annað sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skal birt á vef stofnunarinnar og telst það til opinberrar birtingar.
b. (6. gr. b.)
Forgangsmeðferð.
35. gr.