Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1014 — 80. mál.
Frumvarp til sóttvarnalaga.
(Eftir 2. umræðu, 27. mars.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið.
2. gr.
Gildissvið.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Afkvíun: Takmarkanir á för milli byggðarlaga, landshluta eða til eða frá landinu. Afkvíun tekur almennt til svæða eða er beint að stórum hópi fólks.
2. Alvarlegur sjúkdómur: Smitsjúkdómur sem getur valdið einstaklingum alvarlegum eða varanlegum skaða eða valdið aukinni dánartíðni innan samfélags.
3. Einangrun: Aðskilnaður einstaklinga sem eru smitaðir frá öðrum eða öðru á einhvern þann hátt sem kemur í veg fyrir útbreiðslu sýkingar eða mengunar; getur einnig tekið til farangurs, gáma, farartækja, vara eða póstböggla sem eru sýktir eða mengaðir eða bera með sér sýkingar- eða mengunaruppsprettur og skapa því hættu fyrir lýðheilsu.
4. Farsótt: Tilkynningarskyldur smitsjúkdómur sem breiðist hratt út, leggst á tiltölulega marga einstaklinga og ógnað getur almannaheill.
5. Ferðamaður: Einstaklingur á ferð milli landa.
6. Heilbrigðisskoðun: Mat á einstaklingi sem heilbrigðisstarfsmaður, eða annar aðili sem er til þess bær, gerir til þess að ákvarða heilbrigði viðkomandi og mat á því hvort hann skapi hugsanlega hættu fyrir heilbrigði annars fólks. Skoðunin getur einnig náð yfir athugun heilbrigðisskjala sem og líkamsskoðun eftir því sem réttlætanlegt er miðað við aðstæður í hverju tilviki.
7. Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða töku hjartalínurits.
8. Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfi einstaklings til að koma í veg fyrir smitsjúkdóm og að smitsjúkdómur dreifist í samfélaginu eða til að halda smitsjúkdómi í skefjum, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefnis.
9. Samfélagslega hættulegur sjúkdómur: Alvarlegur sjúkdómur sem veldur eða getur valdið alvarlegri röskun á mikilvægum störfum og innviðum samfélagsins og/eða getur leitt til verulega aukins álags á heilbrigðiskerfið verði hann útbreiddur í samfélaginu.
10. Samkomubann: Ráðstöfun til að koma í veg fyrir eða hægja á útbreiðslu smits í samfélaginu sem getur falið í sér reglur um bann við samkomum eða takmarkanir á samkomum, t.d. um að ekki megi fleiri en tiltekinn fjöldi koma saman á sama stað eða í sama rými, að tryggja skuli tiltekna fjarlægð milli manna og/eða að loka skuli tiltekinni starfsemi þar sem sérstök smithætta er fyrir hendi.
11. Skimun: Kerfisbundin söfnun, samantekt og greining á gögnum í þágu lýðheilsu og tímanleg miðlun lýðheilsuupplýsinga til að unnt sé að meta þær og bregðast við með aðgerðum á sviði lýðheilsu, eftir því sem þörf krefur, svo sem með sýnatöku, raðgreiningu erfðaefnis sýkingarvalda eða mótefnamælingu.
12. Smitrakning: Rakning smita milli einstaklinga með ítarlegu samtali við þá sem eru smitaðir til að komast að því hvar viðkomandi smitaðist og hverja hann gæti hafa smitað og önnur upplýsingaöflun í því skyni að finna þá sem kunna að hafa verið útsettir fyrir smiti.
13. Smitsjúkdómur: Sjúkdómur eða ástand sem orsakast af sjúkdómsvöldum, svo sem smitefni, örveru eða sníkjudýri, og smitast frá, til eða milli einstaklinga.
14. Sótthreinsun: Heilbrigðisráðstafanir til að óvirkja eða drepa flestar örverur, hvort sem það er gert með efnafræðilegum eða eðlisfræðilegum aðferðum. Þær ráðstafanir geta átt við um húð, yfirborð flata eða í eða á farangri, farmi, gámum, farartækjum, vörum eða póstbögglum.
15. Sóttkví: Takmörkun á athafnafrelsi og/eða aðskilnaður einstaklinga sem eru ekki veikir frá öðrum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu sýkingar og einnig aðskilnaður grunsamlegs farangurs, gáma, farartækja, vara o.fl. frá öðru vegna sýkingar eða mengunar.
16. Sóttvarnahús: Staður þar sem einstaklingur, sem ekki á samastað á Íslandi eða getur af öðrum sökum ekki eða vill ekki einangra sig í húsnæði á eigin vegum, getur verið í sóttkví eða einangrun vegna gruns um að hann sé smitaður af farsótt eða ef staðfest er að svo sé.
4. gr.
Tilkynningarskyldir sjúkdómar.
Ráðherra ákveður með reglugerð, að fengnum tillögum sóttvarnalæknis, hvaða smitsjúkdómar teljast alvarlegir. Slíkir sjúkdómar eru tilkynningarskyldir til sóttvarnalæknis.
Ráðherra er heimilt að ákveða með reglugerð, að fenginni tillögu farsóttanefndar, hvaða smitsjúkdómar teljast samfélagslega hættulegir sjúkdómar. Slíkir sjúkdómar eru tilkynningarskyldir til sóttvarnalæknis. Endurskoða skal slíka ákvörðun á minnst sex mánaða fresti.
II. KAFLI
Stjórnsýsla sóttvarna.
5. gr.
Yfirstjórn sóttvarna.
Ráðuneyti er innlent yfirvald í samræmi við ákvæði alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
Sóttvarnalæknir skal starfa innan embættis landlæknis og bera ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn ráðherra. Ráðherra setur sóttvarnalækni erindisbréf þar sem tilgreind eru helstu verkefni hans. Sóttvarnalæknir ræður starfsfólk á svið sóttvarnalæknis í samráði við landlækni.
Landinu skal skipt í sóttvarnaumdæmi sem afmörkuð eru eins og heilbrigðisumdæmi samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Ráðherra tilnefnir umdæmislækna sóttvarna úr hópi lækna þeirra heilsugæslustöðva sem ríkið rekur í hverju sóttvarnaumdæmi samkvæmt tillögu sóttvarnalæknis. Umdæmislæknar sóttvarna skulu vera ábyrgir fyrir sóttvörnum í sínu umdæmi undir faglegri stjórn sóttvarnalæknis. Tilnefna má fleiri en einn lækni í hverju sóttvarnaumdæmi sem umdæmislækna sóttvarna.
6. gr.
Hlutverk sóttvarnalæknis.
1. Skipuleggja og samræma sóttvarnir og ónæmisaðgerðir um land allt, m.a. með útgáfu leiðbeininga um viðbrögð við farsóttum.
2. Halda farsóttaskrá til að fylgjast með útbreiðslu smitsjúkdóma með öflun nákvæmra upplýsinga um greiningu þeirra frá rannsóknastofum, sjúkrahúsum og læknum.
3. Halda skrá um notkun fólks á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum, stuðla að skynsamlegri notkun sýklalyfja og sinna aðgerðum gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
4. Koma upplýsingum um útbreiðslu smitsjúkdóma, innan lands sem utan, reglubundið og eftir þörfum, til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.
5. Vera læknum og öðrum sem fást við sóttvarnir til ráðgjafar.
6. Hafa umsjón með forvörnum gegn smitsjúkdómum, m.a. upplýsingagjöf og fræðslu til almennings um þessi efni.
7. Vera tengiliður Íslands við samsvarandi tengilið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í samræmi við ákvæði alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
8. Gera faraldsfræðilega rannsókn á uppruna smits, og eftir atvikum hefja smitrakningu, þegar brotist hefur út hópsýking eða farsótt sem ógnað getur heilsu manna.
9. Gera tillögur til ráðherra um hvort gripið skuli til sóttvarnaráðstafana skv. IV. kafla.
10. Taka ákvörðun í tilefni af hættu á útbreiðslu smits frá tilteknum einstaklingi, svo sem um heilbrigðisskoðun, sóttkví, einangrun eða aðrar nauðsynlegar ráðstafanir, og eftir atvikum fara með mál fyrir dóm, sbr. IV. kafla.
11. Opna sóttvarnahús á vegum stjórnvalda, eftir því sem þörf þykir, vegna farsótta.
12. Hafa umsjón með öryggisbirgðahaldi, sbr. 38. gr.
13. Ákveða hvaða ónæmisaðgerðir skulu vera í boði hverju sinni.
Sóttvarnalækni er heimilt að fela tilteknum aðilum eða stofnunum að rekja smit, t.d. þegar farsótt geisar á landinu. Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á smitrakningu í þessum tilvikum.
Sóttvarnalækni er heimilt að kveðja sér til ráðgjafar sérfræðinga vegna þeirra verkefna sem falla undir hlutverk hans samkvæmt lögum þessum.
Sóttvarnalækni er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar og lyfjanotkun einstaklinga, í þeim tilgangi að verjast alvarlegum heilsufarsógnum og til að sinna lögbundnu hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Sóttvarnalækni er enn fremur heimilt að miðla upplýsingum, þ.m.t. persónuupplýsingum, að því marki sem nauðsynlegt er vegna sóttvarna, til annarra stofnana.
7. gr.
Samstarfsnefnd um sóttvarnir.
Samstarfsnefndinni er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar einstaklinga, til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Í nefndinni sitja sóttvarnalæknir, sem jafnframt er formaður, tveir fulltrúar tilnefndir af Matvælastofnun og skal annar vera sérfróður um matvælaöryggi en hinn um smitsjúkdóma í dýrum, einn frá Geislavörnum ríkisins og tveir frá Umhverfis- og orkustofnun og skal annar vera sérfróður um matvælaöryggi en hinn um eiturefni. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Nefndin hefur aðsetur hjá embætti landlæknis.
Nefndinni er heimill aðgangur að nauðsynlegum gögnum og öllum stöðum sem hún telur nauðsynlegt að skoða og getur fengið til þess aðstoð lögreglu ef með þarf. Nefndin skal gefa öllum þeim sem hafa eftirlit með dýrum, matvælum og umhverfi fyrirmæli um að grípa án tafar til allra nauðsynlegra aðgerða til að uppræta hættu af völdum smits, eiturefna eða geislavirkra efna. Að öðru leyti skal framkvæmd vera í samræmi við lög þessi og, eftir því sem við á, sérlög um einstaka eftirlitsaðila.
8. gr.
Farsóttanefnd.
Farsóttanefnd er heimilt að kveðja til tvo til fjóra menn til viðbótar til að sitja í nefndinni telji hún tilefni til. Skulu þeir hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum en ekki atkvæðisrétt.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um störf farsóttanefndar, þ.m.t. um heimild nefndarinnar til að bjóða fleiri aðilum að taka þátt í fundum nefndarinnar.
9. gr.
Hlutverk farsóttanefndar.
Farsóttanefnd skal vera öðrum sóttvarnayfirvöldum til ráðgjafar og aðstoðar um viðbrögð við samfélagslega hættulegum sjúkdómum. Þegar farsóttanefnd fjallar um mál sem tengjast starfssviði Umhverfis- og orkustofnunar, Geislavarna ríkisins eða Matvælastofnunar skulu fulltrúar þeirra stofnana sitja fundi nefndarinnar, eftir því sem við á, með málfrelsi og tillögurétt.
Farsóttanefnd skal vera vettvangur fyrir samhæfingu aðgerða innan heilbrigðiskerfisins og almannavarnakerfisins gegn samfélagslega hættulegum sjúkdómum og skal funda reglulega ef samfélagslega hættulegur sjúkdómur er útbreiddur í samfélaginu.
Ef tilkynningar til sóttvarnalæknis um smitsjúkdóma benda til að alvarlegur sjúkdómur breiðist út skal hann þegar í stað gera ráðherra og farsóttanefnd viðvart. Ráðherra skal svo fljótt sem verða má óska eftir afstöðu farsóttanefndar um hvort skilgreina skuli alvarlegan sjúkdóm sem samfélagslega hættulegan. Farsóttanefnd er jafnframt heimilt að eigin frumkvæði að leggja til við ráðherra að skilgreina skuli sjúkdóm sem samfélagslega hættulegan.
Verði ágreiningur innan farsóttanefndar ræður afl atkvæða úrslitum. Verði atkvæði jöfn við afgreiðslu mála ræður atkvæði formanns.
10. gr.
Samvinna stofnana.
Umdæmislæknar sóttvarna og sóttvarnalæknir skulu hafa samstarf um framkvæmd nauðsynlegra sóttvarna og njóta aðstoðar lögregluyfirvalda ef með þarf.
Heilbrigðisfulltrúar, samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dýralæknar og starfsmenn Matvælastofnunar, Umhverfis- og orkustofnunar og Geislavarna ríkisins skulu tilkynna viðkomandi umdæmislækni sóttvarna eða sóttvarnalækni jafnskjótt og þeir hafa orðið varir við hugsanlega smithættu eða hættu vegna eiturefna eða geislavirkra efna. Umdæmislæknir sóttvarna eða sóttvarnalæknir skal á sama hátt tilkynna viðkomandi heilbrigðisnefnd, dýralækni, Matvælastofnun, Umhverfis- og orkustofnun eða Geislavörnum ríkisins, eftir því sem við á, strax og honum verður kunnugt um smithættu eða hættu af völdum eiturefna eða geislavirkra efna. Sóttvarnalæknir skal gefa heilbrigðisnefndum nauðsynlegar upplýsingar og ráð og hafa eftirlit með því að til viðeigandi ráðstafana sé gripið.
11. gr.
Farsóttaskrá o.fl.
Sóttvarnalæknir skal fá afhentar upplýsingar úr lyfjagagnagrunni landlæknis og frá heilbrigðisstofnunum til að halda skrá um sýklalyfjanotkun. Upplýsingarnar skulu vera ópersónugreinanlegar.
Heilbrigðisstofnunum og öðrum þeim sem veita heilbrigðisþjónustu er skylt að verða við beiðni sóttvarnalæknis um afhendingu tölfræðiupplýsinga um smitsjúkdóma sem meðhöndlaðir hafa verið á heilbrigðisstofnun eða hjá öðrum þeim sem veita heilbrigðisþjónustu.
III. KAFLI
Almennar sóttvarnaráðstafanir.
12. gr.
Skyldur einstaklinga og lögaðila.
Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að hann hafi smitast af alvarlegum eða samfélagslega hættulegum sjúkdómi er skylt að leita til læknis án tafar. Leiði heilbrigðisskoðun í ljós að um slíkan sjúkdóm sé að ræða er viðkomandi skylt að fylgja fyrirmælum læknis um ráðstafanir til að fyrirbyggja smit. Gruni lækni að einstaklingur sé haldinn smitsjúkdómi, eða ef smitrakning vekur upp slíkan grun, er viðkomandi einstaklingi skylt að fylgja fyrirmælum um ráðstafanir, þ.m.t. reglugerðum sem settar eru á grundvelli laga þessara, til að fyrirbyggja smit.
Ef heilbrigðisstarfsmaður telur mikilvægt að rekja smit til að hefta frekari útbreiðslu þess ber sjúklingi skylda til að veita nauðsynlegar upplýsingar um það af hverjum hann gæti hafa smitast svo og hverja hann kann að hafa smitað. Komi heilbrigðisstarfsmaður því ekki við ber honum að vísa sjúklingi til göngudeildar, stofnunar eða annars aðila sem hefur aðstöðu til að rekja smit og hefur til þess heimild sóttvarnalæknis. Viðkomandi er skylt að hlýða fyrirmælum um nauðsynlegar ráðstafanir til varnar útbreiðslu smits frá sjúklingi.
13. gr.
Skyldur heilbrigðisstarfsmanna.
Heilbrigðisstarfsmaður skal þegar í stað tilkynna það sóttvarnalækni ef hann kemst að því í starfi sínu að einstaklingur hefur smitast af smitsjúkdómi sem samkvæmt lögum þessum er tilkynningarskyldur eða hefur grun um að svo sé. Hliðstæð skylda hvílir á forstöðumönnum rannsóknastofa, sjúkradeilda og annarra heilbrigðisstofnana.
Viðeigandi aðilum er skylt að aðstoða sóttvarnalækni og umdæmislækni sóttvarna, m.a. með því að veita upplýsingar sem þeir telja nauðsynlegar vegna sóttvarna.
Forstöðumönnum heilbrigðisstofnana er skylt að senda sóttvarnalækni upplýsingar um magn sýklalyfja sem notað er á viðkomandi stofnun, skipt eftir deildum þar sem það á við.
Heilbrigðisstarfsmaður skal tilkynna það þegar í stað til viðkomandi umdæmislæknis sóttvarna eða sóttvarnalæknis ef hann hefur rökstuddan grun eða vitneskju um að sjúklingur, sem hann hefur til meðferðar og haldinn er smitsjúkdómi, fylgi ekki fyrirmælum sem honum hafa verið sett um umgengni.
Hafi ráðherra sett reglugerð um að smitsjúkdómur sé samfélagslega hættulegur sjúkdómur getur landlæknir stöðvað starfsemi heilbrigðisstofnunar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir álag annars staðar í heilbrigðiskerfinu eða til að nýta starfskrafta heilbrigðisstarfsmanna annars staðar í heilbrigðiskerfinu. Slíka ákvörðun skal leggja fyrir ráðherra til staðfestingar og birtingar.
14. gr.
Bann við heimsóknum á heilbrigðisstofnun.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð sem kveður á um almennar tímabundnar takmarkanir á heimsóknum eða tímabundið bann við heimsóknum á heilbrigðisstofnanir í allt að fjórar vikur í senn, sbr. IV. kafla.
Við ákvörðun skv. 1. mgr. og við setningu reglugerðar skv. 2. mgr. skal sérstaklega horft til hagsmuna og réttinda þeirra sem dvelja til langs tíma á heilbrigðisstofnun, svo sem á hjúkrunarheimilum.
15. gr.
Rannsóknastofur.
Sóttvarnalæknir getur falið tilteknum rannsóknastofum að ábyrgjast greiningu örvera eða sníkjudýra úr sýnum frá sjúklingum með smitsjúkdóma og fylgjast með ónæmisástandi einstaklinga gegn smitsjúkdómum.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð skilyrði fyrir leyfi til reksturs rannsóknastofa samkvæmt ákvæði þessu, svo sem um feril leyfisveitingar, faggildingu, gæðakröfur og gæðaeftirlit, sem og um tilvísunarrannsóknastofur og ábyrgð þeirra og skyldur.
IV. KAFLI
Opinberar sóttvarnaráðstafanir.
A. Almenn ákvæði.
16. gr.
Jafnræði og meðalhóf.
Ef ráðherra tekur ákvörðun um beitingu ráðstafana sem heimilaðar eru samkvæmt þessum kafla skal ráðherra bera málið upp í ríkisstjórn, eins tímanlega og mögulegt er.
17. gr.
Upplýsingaskylda.
18. gr.
Upplýsingaskylda stjórnvalda.
Þegar ráðherra hefur tekið ákvörðun um setningu reglna skv. 28. og 30. gr. og þegar þær eru hertar skal hann, eftir atvikum í samráði við farsóttanefnd, kynna velferðarnefnd Alþingis án tafar ákvörðun sína, forsendur hennar og röksemdir. Velferðarnefnd getur enn fremur óskað eftir kynningu ráðherra þótt reglum hafi ekki verið breytt, svo sem um röksemdir fyrir því að halda aðgerðum óbreyttum eða létta á þeim.
Ráðherra skal, eftir atvikum í samráði við aðra ráðherra, upplýsa Alþingi um sóttvarnaaðgerðir með mánaðarlegri skýrslugjöf enda hafi aðgerð varað lengur en í átta vikur.
19. gr.
Rannsókn á uppruna smits.
20. gr.
Vinnsla persónuupplýsinga vegna opinberra sóttvarnaráðstafana.
Sóttvarnalækni er heimilt að halda skrá yfir þá sem sæta sóttkví. Um þá sem sæta einangrun fer eftir reglum um farsóttaskrá. Sóttvarnalækni er jafnframt heimilt að miðla upplýsingum um einstaklinga í sóttkví og einangrun til aðila sem starfa sinna vegna þurfa á slíkum upplýsingum að halda, t.d. aðila sem annast sjúkraflutninga, lögreglu, slökkviliðs og þeirra sem sinna heimahjúkrun eða annarri aðhlynningu á heimilum fólks.
Sóttvarnalæknir skal tryggja að miðlun persónuupplýsinga vegna skimunar, faraldsfræðilegrar rannsóknar á uppruna smits eða smitrakningar fari fram á öruggan hátt, t.d. með dulkóðun gagna, notkun gerviauðkenna, aðgangsstýringum og aðgerðaskráningu.
Persónuupplýsingar sem sérstaklega er aflað vegna smitrakningar, t.d. frá aðilum sem á hvílir þagnar- og trúnaðarskylda samkvæmt öðrum lögum eða vegna notkunar smitaðs einstaklings á hugbúnaði eða öðrum búnaði sem geymir t.d. upplýsingar um staðsetningu hans, skulu undanþegnar varðveislu- og skilaskyldu samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn. Slíkum gögnum skal eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf vegna smitrakningar. Þau er óheimilt að nota í öðrum tilgangi en þeirra var aflað.
B. Aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum.
21. gr.
Aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits.
Þegar sóttvarnalækni berast upplýsingar úr smitrakningu eða eftir öðrum leiðum um að grunur leiki á að tiltekinn einstaklingur sé haldinn smitsjúkdómi skal sóttvarnalæknir taka ákvörðun um viðeigandi aðgerðir.
Með aðgerðum skv. 1. og 2. mgr. er m.a. átt við heilbrigðisskoðun, sóttkví, einangrun eða aðrar viðeigandi ráðstafanir sem miða að því að fyrirbyggja eða hefta að smitaður einstaklingur eða einstaklingur sem grunur leikur á að sé haldinn smitsjúkdómi smiti aðra.
22. gr.
Ákvörðun um frelsissviptingu.
Sóttvarnalæknir getur tekið stjórnvaldsákvörðun munnlega ef hann telur að hvers konar töf á afgreiðslu málsins sé hættuleg. Veita skal málsaðila skriflega og rökstudda staðfestingu á ákvörðuninni svo fljótt sem verða má.
Sóttvarnalæknir getur leitað aðstoðar lögreglu við að framfylgja ákvörðunum sem teknar eru samkvæmt þessu ákvæði, eftir atvikum með líkamlegri valdbeitingu, beri nauðsyn til.
Sóttvarnayfirvöld og lögregla skulu sýna þeim sem þau hafa afskipti af á grundvelli laga þessara virðingu og kurteisi og skulu draga eftir föngum úr óþægindum og vanlíðan sem fylgt getur ráðstöfunum sem beita þarf. Slíkar ráðstafanir skulu aldrei standa lengur en þörf krefur.
Umdæmislæknar sóttvarna hafa einnig valdheimildir til að taka ákvarðanir samkvæmt þessu ákvæði undir faglegri stjórn og eftirliti sóttvarnalæknis.
Stjórnvaldsákvörðun um aðgerðir samkvæmt þessu ákvæði er kæranleg til ráðherra feli hún ekki í sér sviptingu frelsis. Kæra frestar ekki framkvæmd ákvörðunar.
Aðgerðir sem mælt er fyrir um í stjórnvaldsákvörðun samkvæmt lögum þessum og hafa í för með sér sviptingu frelsis í skilningi 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar skulu bornar undir héraðsdóm ef viðkomandi neitar að hlíta ákvörðuninni. Slíkar aðgerðir mega aldrei vara lengur en 15 sólarhringa í senn.
Ráðherra er heimilt að kveða nánar á um fyrirkomulag samkvæmt þessu ákvæði í reglugerð.
23. gr.
Málsmeðferð frelsissviptingar.
Sóttvarnalæknir skal svo fljótt sem verða má setja fram skriflega kröfu um staðfestingu á gildi ákvörðunarinnar sem afhent skal dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur nema málsaðili óski þess að slíkt mál verði rekið í þeirri þinghá þar sem viðkomandi á lögheimili eða fastan dvalarstað þegar ákvörðun er tekin. Aðilum er þó heimilt að semja um meðferð máls í hverri þinghá sem er.
Í dómsmáli skv. 2. mgr. skal sóttvarnalæknir talinn sóknaraðili málsins og sá sem stjórnvaldsákvörðunin beinist gegn varnaraðili þess.
Málsmeðferð fyrir dómi frestar ekki framkvæmd stjórnvaldsákvörðunar.
Í skriflegri kröfu sóknaraðila skal að jafnaði koma fram nafn, kennitala og heimilisfang hans og varnaraðila og hvar sá síðarnefndi dvelst meðan á meðferð málsins stendur og eftir atvikum símanúmer hans. Þar skal vera ítarleg lýsing á málavöxtum og rökstuðningur fyrir nauðsyn þess að gripið sé til umræddra úrræða með stjórnvaldsákvörðuninni. Þá skal geta þeirrar lagaheimildar sem ákvörðunin byggist á. Loks skulu talin upp önnur gögn sem lögð eru fram, svo sem afrit af stjórnvaldsákvörðuninni.
Sóttvarnalækni er heimilt í kröfugerð sinni að víkja frá ákvörðun sinni og gera kröfu um breyttan vistunarstað varnaraðila. Sé þess krafist getur dómari einnig sett það skilyrði að varnaraðili hafi á sér búnað til að unnt sé að fylgjast með ferðum hans. Þá má að kröfu sóknaraðila skylda varnaraðila til að afhenda vegabréf sitt meðan á frelsissviptingu stendur ef hætta þykir á að hann muni reyna að yfirgefa landið.
Dómari skal taka málið fyrir án tafar og hraða meðferð þess svo sem kostur er.
Dómari skal kynna varnaraðila kröfu sóknaraðila og gefa honum kost á að tjá sig um hana nema ástandi hans sé svo háttað að það sé ekki mögulegt. Ef ekki er unnt að kveðja varnaraðila fyrir dóm skal veita honum færi á að tjá sig um fram komna kröfu í símtali eða með annarri fjarskiptatækni sé þess nokkur kostur.
Dómari skal skipa varnaraðila talsmann samkvæmt ákvæðum laga um meðferð sakamála um verjendur og gefa honum kost á að bera fram ósk um hver verði skipaður.
24. gr.
Málsmeðferð hjá dómstólum.
Dómari kveður sóknaraðila, talsmann varnaraðila og vitni fyrir dóm ef þess er þörf.
Dómari skal eftir að rannsókn máls er lokið gefa aðilum kost á að flytja málið munnlega áður en það er tekið til úrskurðar.
Að svo miklu leyti sem ekki er á annan veg mælt fyrir um í lögum þessum fer um meðferð slíkra mála eftir lögum um meðferð einkamála.
Dómari kveður upp úrskurð um það hvort stjórnvaldsákvörðun sóknaraðila skuli staðfest eða felld úr gildi að hluta eða öllu leyti. Reynist frelsissvipting ólögmæt skal varnaraðili þegar látinn laus. Þegar efni standa til að ákvörðun sóknaraðila skuli staðfest skal í úrskurðarorði taka fram hvaða dag og klukkan hvað frelsissvipting skal niður falla en hún má ekki vara lengur en 15 sólarhringa í senn. Ef sóknaraðili telur nauðsynlegt að hún vari lengur skal hann að nýju taka stjórnvaldsákvörðun og bera kröfu undir héraðsdóm hlíti viðkomandi ekki ákvörðuninni, sbr. 1. mgr. 23. gr.
Ef sóttvarnalæknir telur ekki þörf á að varnaraðili sæti lengur einangrun, sóttkví eða annarri frelsissviptingu sem staðfest hefur verið í úrskurði að varnaraðili skuli sæta, þótt 15 sólarhringar séu ekki liðnir, skal varnaraðili þegar látinn laus.
Þóknun skipaðs talsmanns varnaraðila og annan málskostnað, þ.m.t. kostnað við öflun læknisvottorða og annarra sérfræðiskýrslna, skal greiða úr ríkissjóði. Engin dómsmálagjöld skal greiða vegna dómsmála samkvæmt lögum þessum.
25. gr.
Kæra til Landsréttar.
Úrskurði skv. 5. mgr. 24. gr. má skjóta til Landsréttar með kæru og fer um hana eftir ákvæðum XXX. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, eftir því sem við á. Kæra frestar ekki framkvæmd úrskurðar héraðsdóms.
Um kæru á úrskurði Landsréttar gilda ákvæði XXXII. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
26. gr.
Bætur vegna ólögmætrar frelsissviptingar.
C. Opinberar sóttvarnaráðstafanir innan lands.
27. gr.
Sóttvarnaráðstafanir vegna alvarlegs sjúkdóms.
28. gr.
Sóttvarnaráðstafanir vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms.
Reglugerð um sóttvarnaráðstafanir sem sett er samkvæmt ákvæði þessu getur að hámarki gilt í fjórar vikur í senn. Sóttvarnalæknir getur ákveðið að grípa til ráðstafana skv. 1. mgr. til bráðabirgða í að hámarki sjö daga án þess að leita heimildar fyrir fram ef hann telur að hvers konar töf sé hættuleg en hann skal jafnskjótt gera ráðherra og farsóttanefnd ráðstafanir sínar kunnar. Opinberum sóttvarnaráðstöfunum skal aflétta svo fljótt sem verða má.
D. Sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á að smitsjúkdómur berist til eða frá landinu.
29. gr.
Opinberar sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna alvarlegs sjúkdóms.
Í reglugerðinni er ráðherra heimilt að kveða á um að við komu eða brottför og af ástæðum er varða lýðheilsu megi krefjast þess að ferðamenn:
1. Upplýsi um áfangastaði og gefi samskiptaupplýsingar svo að unnt sé að ná sambandi við þá og fylli út spurningalista um heilsu sína.
2. Upplýsi um ferðaslóð sína fyrir komu og framvísi heilbrigðisskjölum.
3. Tilkynni sig til íslenskra stjórnvalda ef þeir hafa verið vaktaðir vegna lýðheilsu í öðru ríki.
4. Undirgangist heilbrigðisskoðun sem er eins lítið ífarandi og unnt er til að ná settu lýðheilsumarkmiði. Ekki skal beitt inngripum nema gagnvart þeim sem grunur leikur á að gætu hafa smitast.
30. gr.
Opinberar sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna samfélagslega hættulegs sjúkdóms.
Þrátt fyrir ákvæði 29.–36. gr. er ráðherra heimilt að setja reglugerð, til að bregðast við tiltekinni hættu eða bráðri ógn við lýðheilsu, um að beita skuli fleiri en einni ráðstöfun samtímis sem kveðið er á um þar, óháð því hvort grunur leikur á að ferðamaður hafi smitast. Í þeim tilvikum skal gætt að tilkynningarskyldu íslenskra stjórnvalda til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skv. 43. gr. alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
31. gr.
Upplýst samþykki.
32. gr.
Þvingunaraðgerðir og frávísun úr landi.
Lögreglustjóra er heimilt að vísa útlendingi, sem ekki er búsettur hér á landi, frá landi í samræmi við k-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, ef hann neitar að verða við fyrirmælum um ráðstafanir sem ráðherra hefur heimilað skv. 29. eða 30. gr. eða í ljós kemur að hann hefur ekki fylgt þeim. Ákvörðun um frávísun er kæranleg til kærunefndar útlendingamála en kæra frestar ekki framkvæmd ákvörðunar. Að öðru leyti fer um málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga.
33. gr.
Vottorð.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur í reglugerð um vottorð um ónæmisaðgerðir, svo sem um form og efni vottorða, og um önnur vottorð tengd smitsjúkdómum, svo sem vottorð sem sýna fram á afstaðna sýkingu eða að ferðamaður sé ekki smitandi.
34. gr.
Vöktun ferðamanna vegna lýðheilsu.
Ferðamönnum sem koma til landsins ber að öðru leyti að fylgja þeim reglum sem settar hafa verið á grundvelli ákvæða í þessum kafla.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem kveðið er á um nánara fyrirkomulag ráðstafana samkvæmt þessu ákvæði og innleiða að öðru leyti alþjóðaheilbrigðisreglugerð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
35. gr.
Skyldur flugrekenda eða umráðenda loftfars og útgerða eða umráðenda skips.
Ákvæði þetta gildir jafnframt um skyldur flugrekenda eða umráðenda loftfars og útgerða eða umráðenda skips gagnvart skoðun á farangri eftir því sem við á.
Flugrekanda eða umráðanda loftfars og útgerð eða umráðanda skips er skylt að upplýsa farþega um afleiðingar þess ef farþegi hefur ekki uppfyllt skilyrði reglugerðar sem heimilt er að setja á grundvelli ákvæðisins.
Reglugerð skv. 1. mgr. skal sæta endurskoðun eigi sjaldnar en á átta vikna fresti.
Samgöngustofa getur lagt stjórnvaldssekt á einstakling eða lögaðila fyrir brot gegn 1. mgr. og reglugerð sem sett er á grundvelli 1. mgr., sbr. heimildir Samgöngustofu til að leggja á stjórnvaldssektir samkvæmt lögum um loftferðir. Ákvörðun um stjórnvaldssekt skal tilkynnt á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Gera má lögaðila sekt fyrir brot gegn 1. mgr. og reglugerð settri á grundvelli 1. mgr. óháð því hvort sök verði sönnuð á tiltekið fyrirsvarsfólk lögaðilans, starfsfólk hans eða annan aðila sem starfar á vegum hans.
Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir dagsetningu ákvörðunar. Greiða skal dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar sé hún ógreidd 15 dögum eftir gjalddaga. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
Ákvörðun um stjórnvaldssekt skv. 5. mgr. má skjóta til ráðherra samkvæmt stjórnsýslulögum. Ber Samgöngustofu að leiðbeina aðila um rétt til kæru. Ákvarðanir Samgöngustofu um að leggja á stjórnvaldssekt eru aðfararhæfar að liðnum kærufresti. Málskot til ráðherra frestar aðför en úrskurðir ráðherra eru aðfararhæfir. Málshöfðun fyrir almennum dómstólum frestar ekki aðför og er ekki háð því að mál hafi áður verið kært til ráðherra.
Heimild Samgöngustofu til að leggja á stjórnvaldssekt samkvæmt ákvæði þessu fellur brott þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk. Frestur rofnar þegar Samgöngustofa tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að brotinu.
Ítrekuð eða stórfelld brot gegn 1. mgr. og reglugerð sem sett er á grundvelli 1. mgr. varða refsingu skv. 41. gr. Gera má lögaðila sekt samkvæmt ákvæðum II. kafla A almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, fyrir slík brot. Brot samkvæmt ákvæði þessu sæta aðeins rannsókn lögreglu að undangenginni kæru Samgöngustofu.
36. gr.
Sóttvarnaráðstafanir gagnvart farartækjum, farangri, vörum og þess háttar vegna hættu á landamærunum.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd þessa ákvæðis, þ.m.t. frekari innleiðingu á reglum alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar.
V. KAFLI
Ýmis ákvæði.
37. gr.
Göngudeildir smitsjúkdóma.
Á heilbrigðisstofnunum, sem ráðherra ákveður, skal vera aðstaða til einangrunar þeirra sem eru til rannsóknar eða meðferðar vegna smitsjúkdóma eða gruns um smitsjúkdóm.
38. gr.
Öryggisbirgðahald.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem kveðið er á um nánari framkvæmd ákvæðis þessa um öryggisbirgðir, svo sem um lyf, lækningatæki og annan búnað sem skylt er að tryggja birgðir af.
39. gr.
Gjaldtaka og kostnaður vegna framkvæmdar laga þessara.
Heilbrigðisskoðun sem gerð er vegna umsóknar um dvalar- og atvinnuleyfi og er í samræmi við verklagsreglur sóttvarnalæknis skal greiðast að fullu af vinnuveitanda eða þeim sem sækir um dvalar- eða atvinnuleyfi. Leiði heilbrigðisskoðun í ljós þörf fyrir frekari sértækar rannsóknir greiðir viðkomandi eða sjúkratrygging hans kostnað við þau heilsufarslegu vandamál sem greinast fyrstu sex mánuðina sem dvalið er í landinu. Vinnuveitandi greiðir læknisrannsókn sem hann óskar sérstaklega eftir.
Ef frá eru talin þau tilvik sem falla undir 2. mgr. skal ekki tekið gjald fyrir heilbrigðisráðstafanir á grundvelli 29.–36. gr. nema þær séu til hagsbóta fyrir ferðamenn. Ef sóttvarnalæknir hefur metið svo að yfirvofandi eða bráð ógn sé við lýðheilsu er honum, eða þeim sem hann hefur falið slíka framkvæmd, heimilt að taka gjald fyrir heilbrigðisráðstafanir á grundvelli 29.–36. gr. þrátt fyrir að þær séu ekki til hagsbóta fyrir ferðamenn. Þegar tekið er gjald samkvæmt ákvæði þessu skal ráðherra birta gjaldskrá í reglugerð eða sérstaklega í B-deild Stjórnartíðinda. Gjaldskrá og breytingar á henni skulu birtar með a.m.k. tíu daga fyrirvara. Fjárhæð gjalds skal ekki vera hærri en sem nemur kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggjast á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjöld má innheimta með fjárnámi.
40. gr.
Reglugerðarheimild.
1. Hvaða smitsjúkdómar eða sjúkdómar af völdum eiturefna og geislavirkra efna falla undir lögin, sbr. 1. mgr. 4. gr.
2. Hvaða sjúkdóma og atburði skylt er að tilkynna til sóttvarnalæknis og efni tilkynningar, sbr. 1. mgr. 4. gr.
3. Hvaða sjúkdómar teljast alvarlegir, sbr. 2. mgr. 4. gr.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerðir nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þ.m.t. um:
1. Hvaða smitsjúkdómar teljast samfélagslega hættulegir sjúkdómar, sbr. 3. mgr. 4. gr.
2. Störf farsóttanefndar, sbr. 3. mgr. 8. gr.
3. Tímabundnar takmarkanir á heimsóknum eða tímabundið bann við heimsóknum á heilbrigðisstofnun, sbr. 14. gr.
4. Rannsóknastofur sem greina smitsjúkdóma, m.a. tilvísunarrannsóknastofur, sbr. 15. gr.
5. Nánari útfærslu á þeim reglum sem gilda um þá sem sæta einangrun og sóttkví og miðlun persónuupplýsinga um þá til viðbragðsaðila og annarra sem starfa sinna vegna þurfa aðgang að upplýsingunum, sbr. 22. gr.
6. Opinberar sóttvarnaráðstafanir skv. 27.–30. gr.
7. Vottorð ferðamanna, sbr. 33. gr.
8. Frekari útfærslu á reglum alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinnar, sbr. 34. og 36. gr.
9. Skyldur flugrekenda eða umráðenda loftfars og útgerða eða umráðenda skips, sbr. 35. gr.
10. Öryggisbirgðahald sem sóttvarnalæknir hefur umsjón með, sbr. 38. gr.
11. Greiðsluþátttöku sjúklinga, sbr. 39. gr.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd og samræmingu ónæmisaðgerða, m.a. um ráðgefandi nefnd um bólusetningar.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um sérstakar ráðstafanir vegna sóttvarna við náttúruhamfarir og aðra vá í samræmi við lög þessi.
Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð reglur Evrópusambandsins um sóttvarnir og önnur atriði sem lög þessi taka til með aðlögun vegna EES-samningsins og stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.
Ráðherra er heimilt að vísa til erlendrar frumútgáfu reglugerðar við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins sem teknar eru upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með einfaldaðri málsmeðferð. Skal erlenda frumútgáfan birt í C-deild Stjórnartíðinda.
41. gr.
Viðurlög.
1. 12. gr. um skyldu til að gæta varúðar vegna smitsjúkdóma og að fylgja fyrirmælum læknis, m.a. um aðgerðir skv. 21. gr.
2. 13. gr. um skyldur heilbrigðisstarfsmanna.
3. 27. og 28. gr. um sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á smitsjúkdómum innan lands.
4. 29., 30. og 32. gr. um sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á að smitsjúkdómar berist til eða frá landinu.
5. 1. mgr. 35. gr. ef um ítrekuð og stórfelld brot er að ræða.
Gera má lögaðila sekt fyrir brot á lögum þessum óháð því hvort sök verði sönnuð á tiltekinn fyrirsvarsmann lögaðilans, starfsmann hans eða annan aðila sem starfar á hans vegum. Hafi fyrirsvarsmaður lögaðilans, starfsmaður hans eða annar á hans vegum brotið gegn lögum þessum eða reglum sem settar eru á grundvelli þeirra af ásetningi í starfi lögaðilans má gera honum refsingu, auk þess að gera lögaðilanum sekt.
VI. KAFLI
Gildistaka o.fl.
42. gr.
Gildistaka.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast 5., 8. og 9. gr. og ákvæði til bráðabirgða þegar gildi.
Við gildistöku laga þessara falla eftirtalin lög úr gildi:
1. Sóttvarnalög, nr. 19/1997.
2. Lög um heimild handa ríkisstjórninni til að banna flutning til landsins á varningi, sem stjórnin telur stafa sýkingarhættu af, nr. 8/1920.
Reglugerðir settar samkvæmt sóttvarnalögum, nr. 19/1997, halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þær fá samrýmst lögum þessum.
43. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007: K-liður 1. mgr. 4. gr. laganna fellur brott.
2. Lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996: Við 1. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Sóttvarnalæknir.
3. Lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994: Tilvísunin „nr. 19/1997“ í 7. gr. h laganna fellur brott.
4. Lög um matvæli, nr. 93/1995: Í stað tilvísunarinnar „4. og 5. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 11. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997“ í 3. málsl. 2. mgr. 30. gr. c laganna kemur: sóttvarnalög.
5. Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013: Tilvísunin „nr. 19/1997“ í 1. mgr. 66. gr. laganna fellur brott.
Ákvæði til bráðabirgða.
Öllum starfsmönnum sóttvarnasviðs embættis landlæknis sem eru í starfi við gildistöku laga þessara skal boðið starf á sviði sóttvarnalæknis, þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og fer um rétt starfsmanna til starfa á sviði sóttvarnalæknis eftir ákvæðum sömu laga.