Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1049 — 290. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um erlenda fanga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert er hlutfall erlendra fanga í fangelsum í nóvember árið 2025, þar á meðal þeirra sem hafa tvöfalt ríkisfang eða höfðu annað ríkisfang áður?
Upplýsinga var aflað frá Fangelsismálastofnun.
Samkvæmt þeim upplýsingum voru þann 1. nóvember 2025 samtals 158 fangar í íslenskum fangelsum, þar af 101 fangi í afplánun og 57 sem sættu gæsluvarðhaldi.
Af 101 fanga í afplánun þann dag höfðu 42 erlendan ríkisborgararétt eða 41,6%.
Af 57 föngum sem sættu gæsluvarðhaldi þann dag höfðu 35 erlendan ríkisborgararétt eða 61,4%.
Af þeim samtals 158 föngum sem vistaðir voru í fangelsi 1. nóvember 2025 höfðu 77 erlendan ríkisborgararétt eða 48,7%.
Ekki er haldin sérstök skráning um fanga sem kunna að hafa tvöfalt ríkisfang eða hvort fangi hafi áður haft annað ríkisfang.