Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1092 — 337. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um samráð um stjórnarfrumvörp.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mörg stjórnarfrumvörp hafa verið lögð fram á Alþingi árið 2025 án þess að þau hafi áður farið í samráð í samráðsgátt stjórnvalda?
2. Hversu mörg slík frumvörp fengu styttri umsagnartíma í samráðsgátt en samþykkt ríkisstjórnar segir til um, eða 2–4 vikur?
3. Hvaða ástæður eru fyrir því að undantekningar eru gerðar á málsmeðferð í hverju tilviki um sig?
Á árinu 2025 voru samtals 159 stjórnarfrumvörp lögð fram á Alþingi, þ.m.t. 7 frumvörp til fjárlaga, fjáraukalaga og staðfestingar ríkisreiknings sem eðli máls samkvæmt eru ekki birt í samráðsgátt stjórnvalda og koma því ekki til frekari umfjöllunar hér. Sum málin voru endurflutt. Tæplega 86%, eða 130 af þeim 152 frumvörpum sem til skoðunar eru, höfðu verið birt til opins samráðs í samráðsgátt stjórnvalda áður en þau voru lögð fram á Alþingi en rúmlega 14% (22 frumvörp) ekki. Frestur til að senda inn umsagnir var 14 dagar eða lengri, að birtingardegi meðtöldum, í 81% tilfella (105 frumvörp) en í rúmlega 19% tilfella (25 frumvörp) var fresturinn skemmri. Sjá nánar í eftirfarandi töflum.
| Löggjafarþing | Fjöldi frv. | Frv. birt | Frv. ekki birt |
| 156. (4. febrúar – 14. júlí 2025) | 74 | 61 | 13 |
| 157. (9. september – 18. desember 2025) | 78 | 69 | 9 |
| Samtals | 152 | 130 | 22 |
| Löggjafarþing | Frestur tvær vikur eða lengur | Frestur skemmri en tvær vikur |
| 156. (4. febrúar – 14. júlí 2025) | 51 | 10 |
| 157. (9. september – 18. desember 2025) | 54 | 15 |
| Samtals | 105 | 25 |
Samkvæmt gildandi reglum skulu drög að lagafrumvörpum ríkisstjórnar að meginreglu fara í opið samráð við almenning og hagsmunaaðila (í samráðsgátt). Gera má undantekningu frá þessari meginreglu „ef sérstök rök mæla gegn slíkri birtingu, svo sem ef mál er sérlega brýnt“. Ástæður þessa skal rökstyðja í greinargerð með viðkomandi frumvarpi og eyðublaðinu „Samantekt um stjórnarfrumvarp“ sem fylgir frumvörpum til ríkisstjórnar. Hæfilegur frestur skal gefinn til athugasemda, að minnsta kosti tvær til fjórar vikur.
Um þetta efni er fjallað í 9. gr. samþykktar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna frá 2023, sbr. reglur um starfshætti ríkisstjórnar frá 2018 og lög um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
Um ástæður þess að frumvarpsdrög voru ekki birt í samráðsgátt stjórnvalda á árinu 2025 eða birt þar með óvenjulega stuttum umsagnarfresti ber þess að geta að ný ríkisstjórn tók til starfa í lok árs 2024. Á 156. löggjafarþingi var því skemmri tími til ráðstöfunar en á hefðbundnu löggjafarþingi. Að öðru leyti vísast í eftirfarandi töflu, svo sem varðandi sérlega brýn mál, samráð á fyrra stigi máls eða samráð um málið á öðrum vettvangi. Tekin er upp umfjöllun í kafla um samráð í greinargerð með viðkomandi lagafrumvarpi. Ekki er talin ástæða til að fjalla að auki um þær upplýsingar sem lagðar hafa verið fyrir ríkisstjórn í eyðublaðinu Samantekt um stjórnarfrumvarp, en um gögn ríkisstjórnar gilda sérstakar reglur samkvæmt upplýsingalögum, nr. 140/2012.
| 156. löggjafarþing | Umfjöllun í greinargerð |
| 1. Heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra (ábyrgðaskipting á uppbyggingu hjúkrunarheimila) | Í ljósi framangreinds og hve brýnt þykir að uppfylla innihald umrædds samkomulags gafst ekki tími til að kynna frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda fyrir framlagningu þess á Alþingi. |
| 2. Opinber fjármál (stöðugleikaregla o.fl.) | Fram kemur í 4. gr. laganna að ný ríkisstjórn skuli leggja fram fjármálastefnu svo fljótt sem auðið er og skv. 5. gr. laganna skal leggja fram fjármálaáætlun fyrir Alþingi eigi síðar en 1. apríl ár hvert. Skv. 2. mgr. 5. gr. skal fjármálaáætlun byggð á fjármálastefnu og skilyrðum hennar skv. 7. gr. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingum á skilyrðum fjármálaáætlunar skv. 7. gr. laganna. Þar gert er ráð fyrir því að ný fjármálastefna og ný fjármálaáætlun taki mið af stöðugleikareglu og þar af leiðandi þarf að samþykkja frumvarpið áður en stefnan og áætlunin verða samþykktar. Því var nauðsynlegt að hraða sem mest framlagningu frumvarpsins og gafst því ekki tækifæri til að birta það í samráðsgátt. Í því sambandi er ástæða til að nefna að litlar efnislegar breytingar felast í frumvarpinu frá því sem gert var ráð fyrir í áformaskjalinu um málefnið sem lagt var fram í samráðsgáttinni. |
| 3. Raforkulög og stjórn vatnamála (flýtimeðferð og breyting á vatnshloti) | Sökum þess hve brýnt er að bregðast við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2457/2024 gafst ekki tími til að kynna áform um lagasetningu eða frumvarpið fyrir almenningi í opnu samráði. Eins og tilgreint er í 2. kafla er mjög brýnt að ná fram vissu um leyfismál fyrir Hvammsvirkjun á næstu vikum. Einnig er afar brýnt að lög um stjórn vatnamála feli í sér skýra lagaheimild til að heimila breytingu á vatnshloti vegna framkvæmda. |
| 4. Vegabréfsáritanir | Áform um frumvarpið voru kynnt innan Stjórnarráðsins og haft samráð við dómsmálaráðuneytið. Ekki gafst tækifæri til að kynna frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda áður en það var lagt fram. Efni frumvarpsins er metið sérlega brýnt ekki síst út frá markmiðum ríkisstjórnarinnar um að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri. Þar að auki hefur ör vöxtur í áritanamálum leitt til verulega aukins álags og dregið úr málshraða synjana- og kærumála. Þá hefur vöxturinn leitt til þess að tölvukerfi sem umsóknir um vegabréfsáritanir eru unnar í ræður mjög illa við aukið álag. Frumvarpinu er ætlað að leysa þann sérlega brýna vanda með tilfærslu verkefna og einföldun stjórnsýslu samhliða því að auka tekjur ríkissjóðs. |
| 5. Tekjustofnar sveitarfélaga (niðurfelling fasteignaskatta í Grindavíkurbæ) | Sökum þess að frumvarpið varðar eingöngu eitt sveitarfélag og nauðsynlegt er að hraða framlagningu þess voru áformaskjal og drög að frumvarpinu ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir framlagningu þess á Alþingi. |
| 6. Stjórn fiskveiða (strandveiðar) | Áform og drög að frumvarpinu voru ekki birt í samráðsgátt stjórnvalda en strandveiðitímabil 2025 hófst 5. maí 2025 og ljóst að bregðast þarf skjótt við ef tryggja ber 48 veiðidaga á strandveiðum miðað við þann fjölda strandveiðibáta sem lá fyrir eftir 22. apríl 2025. Ekki var því talið svigrúm til birtingar í samráðsgátt. |
| 7. Kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík o.fl. (framlenging fresta) | Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi voru ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir framlagningu á Alþingi. Efni frumvarpsins snertir fyrst og fremst þá tæplega fimmtíu einstaklinga eða heimili sem eiga íbúðarhúsnæði í Grindavík og gætu uppfyllt skilyrði laga nr. 16/2024, um að eiga rétt á því að selja húsnæðið til Þórkötlu en hafa ekki enn nýtt þann rétt. Einnig þá rekstraraðila í Grindavík sem uppfylla skilyrði til að taka stuðningslán með ábyrgð ríkissjóðs. |
| 8. Búvörulög (framleiðendafélög) | Málið á sér langan aðdraganda og forsögu en vísað er til umfjöllunar í 1. kafla greinargerðar þessarar hvað það varðar. Ekki er fyrirhugað að viðhafa almennt samráð um þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu en talsvert samráð hefur þegar átt sér stað um málið undanfarin misseri og í aðdraganda lagasetningarinnar. Þá hefur því verið slegið föstu með fyrrnefndum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur að þau ákvæði sem lagt er til að felld verði brott stríði gegn stjórnarskrá þar sem þau hafi ekki verið sett á stjórnskipulegan hátt og hafi af þeim sökum ekki lagagildi. |
| 9. Fjöleignarhús (hunda- og kattahald) | Ekki gafst tími fyrir til að kynna drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda en efnislega sambærilegt frumvarp hefur sem fyrr greinir verið lagt fram á Alþingi sem þingmannafrumvarp fjórum sinnum áður. |
| 10. Húsaleigulög (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar) | Líkt og fram kemur í 1. kafla var frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar) lagt fram á 156. löggjafarþingi (þskj. 255, 224. mál) og að frumvarpið yrði endurflutt óbreytt að öðru leyti á 157. löggjafarþingi. Var frumvarpið því ekki birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda fyrir upphaf 157. löggjafarþings. |
| 11. Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna) | Efni frumvarpsins snertir einkum örorkulífeyrisþega, lífeyrissjóði og kerfi almannatrygginga. Frumvarpið var samið í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Við undirbúning þess var einnig haft samráð við Landssamtök lífeyrissjóða, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Við frumvarpsgerðina var byggt á greiningum sem unnar voru af Bjarna Guðmundssyni tryggingastærðfræðingi. Vegna þess hve tímafrek nauðsynleg gagnaöflun og greining reyndist vannst ekki tíma til að kynna efni frumvarpsins í samráðsgátt stjórnvalda. |
| 12. Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála (stefnumörkun) | Frumvarpið er samið í innviðaráðuneytinu í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, sem tekið hefur við húsnæðis- og skipulagsmálum af innviðaráðuneytinu. Þá voru áform um frumvarpsgerðina kynnt í innra samráði innan stjórnarráðsins. Ekki var talið tilefni til að kynna efni frumvarpsins í ytra samráði þar sem það varðar innra skipulag við stefnumörkun innviðaráðuneytisins. |
| 13. Útlendingar (afturköllun alþjóðlegrar verndar) | Við samningu frumvarpsins var haft samráð við Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar var frumvarpið ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda vegna tímaskorts. |
| 157. löggjafarþing | Umfjöllun í greinargerð |
| 1. Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026 | Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026. Vegna eðlis málsins og tengsla við frumvarp til fjárlaga voru frumvarpsáform, frummat á áhrifum og frumvarpsdrög ekki sett í samráðsferli samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, sbr. 10. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, þar sem kveðið er á um að heimilt sé að víkja frá þessu ef mál eru sérlega brýn eða aðrar gildar ástæður eru fyrir hendi, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 1. gr., 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. og 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. samþykktarinnar. |
| 2. Afurðasjóður Grindavíkurbæjar (framlenging) | Brýnt þykir að frumvarpið verði samþykkt sem fyrst og eigi síðar en fyrir lok árs 2025. Vegna þessa þótti nauðsynlegt að víkja frá ákvæðum samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, sbr. 9. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar 24. febrúar 2023, hvað varðar bæði innra og ytra samráð. |
| 3. Vegabréfsáritanir | Áform um frumvarpið voru kynnt innan Stjórnarráðsins og haft samráð við dómsmálaráðuneytið. Ekki gafst tækifæri til að kynna frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda áður en það var lagt fram á vorþingi 2025. Frumvarpið hlaut umfjöllun utanríkismálanefndar og bárust nefndinni sex umsagnir, sem og minnisblöð frá utanríkisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti. Þar sem frumvarpið er endurflutt þótti ekki ástæða til að setja það í samráðsferli, enda er það lagt fram að mestu óbreytt en með innfærðum breytingartillögum utanríkismálanefndar frá nýafstöðnu vorþingi. Efni frumvarpsins er metið brýnt ekki síst út frá markmiðum ríkisstjórnarinnar um að einfalda stjórnsýslu og hagræða í ríkisrekstri. Þar að auki hefur ör vöxtur í áritanamálum leitt til verulega aukins álags og dregið úr málshraða synjunar- og kærumála. Þá hefur vöxturinn leitt til þess að tölvukerfi sem umsóknir um vegabréfsáritanir eru unnar í ræður illa við aukið álag. Frumvarpinu er ætlað að leysa þann brýna vanda með tilfærslu verkefna og einföldun stjórnsýslu samhliða því að auka tekjur ríkissjóðs. Í frumvarpinu sem lagt var fram á 156. lögþ. kom fram að ef beðið yrði með framlagningu frumvarpsins þyrfti fyrirsjáanlega að grípa til aðgerða sem myndu leiða til þess að ríkissjóður yrði af töluverðum tekjum auk þess sem áritanaskyldir ferðamenn ættu erfitt með að komast til landsins. Enn sem komið er hefur ekki þurft að grípa til slíkra aðgerða heldur náðist að halda tímabundið í horfinu með ráðningu sumarstarfsfólks. Framangreindu til viðbótar er vert að nefna að efni frumvarpsins varðar íslenskan almenning ekki með beinum hætti heldur lýtur það að fyrirkomulagi afgreiðslumála áritanaskyldra ferðamanna innan stjórnsýslunnar. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa á undanförnum árum ítrekað nálgast utanríkisráðuneytið og óskað eftir að bætt verði úr stöðu áritanamála og afkastageta aukin. Þessar óskir endurspeglast m.a. í umsögnum Samtaka atvinnulífsins og Íslensk-indverska viðskiptaráðsins til utanríkismálanefndar um frumvarpið sem lagt var fram á 156. lögþ. |
| 4. Almannatryggingar (eingreiðsla) | Frumvarp þetta er samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í samráði við Tryggingastofnun sem annast framkvæmd laga um almannatryggingar. Frumvarpið fór í innra samráð í samræmi við reglur þess efnis. Ákveðið var að frumvarpið færi ekki í opið samráð. |
| 5. Fjöleignarhús (dýrahald) | Ekki gafst tími fyrir til að kynna drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda áður en það var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en efnislega sambærilegt frumvarp hefur sem fyrr greinir verið lagt fram á Alþingi sem þingmannafrumvarp fjórum sinnum áður. Í framhaldi af þinglegri meðferð á 156. löggjafarþingi var ákveðið að við endurflutning málsins á 157. löggjafarþingi yrði tekið tillit til þeirra breytinga sem velferðarnefnd Alþingis lagði til í nefndaráliti sínu (þskj. 550, 220. mál) og að frumvarpið yrði endurflutt óbreytt að öðru leyti á 157. löggjafarþingi. Var frumvarpið því ekki birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda fyrir upphaf 157. löggjafarþings. |
| 6. Húsaleigulög (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar) | Líkt og fram kemur í 1. kafla var frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga og breyting leigufjárhæðar) lagt fram á 156. löggjafarþingi (þskj. 255, 224. mál) og að frumvarpið yrði endurflutt óbreytt að öðru leyti á 157. löggjafarþingi. Var frumvarpið því ekki birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda fyrir upphaf 157. löggjafarþings. |
| 7. Húsnæðismál (hlutdeildarlán) | Sú óvissa sem breytingar á framboði húsnæðislána í kjölfar fyrrnefnds dóms Hæstaréttar Íslands í vaxtamálinu svokallaða hafði í för með sér urðu til þess að ekki var unnt að ljúka við útfærslu breytingartillagnanna fyrr en um miðjan nóvember 2025. Af þeim sökum gafst ekki tími til að kynna drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda þar sem áhersla var áfram lögð á að frumvarpið yrði lagt fram á haustþingi 2025 með það fyrir augum að breytingar á hlutdeildarlánakerfinu taki gildi 1. janúar 2026. Samráð var haft við forsætisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið við vinnslu þeirra tillagna sem frumvarpið byggist á. |
| 8. Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála (stefnumörkun) | Frumvarpið er samið í innviðaráðuneytinu í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, sem tekið hefur við húsnæðis- og skipulagsmálum af innviðaráðuneytinu. Þá voru áform um frumvarpsgerðina kynnt í innra samráði innan stjórnarráðsins. Ekki var talið tilefni til að kynna efni frumvarpsins í ytra samráði þar sem það varðar innra skipulag við stefnumörkun innviðaráðuneytisins. |
| 9. Útlendingar (afturköllun alþjóðlegrar verndar) | Áður en frumvarpið var lagt fram á 156. lögþ. var haft samráð við Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar var frumvarpið ekki kynnt í samráðsgátt stjórnvalda vegna tímaskorts. Við meðferð málsins hjá allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis bárust athugasemdir frá tíu umsagnaraðilum sem og minnisblað frá dómsmálaráðuneyti. Þar sem frumvarpið er endurflutt þótti ekki ástæða til að setja það í samráðsferli, enda er það lagt fram að mestu óbreytt frá nýafstöðnu vorþingi. |
Í eftirfarandi yfirliti má sjá þau frumvörp þar sem umsagnarfrestur í samráðsgátt var skemmri en tvær vikur en almennt fylgir ekki sérstakur rökstuðningur fyrir því.
156. löggjafarþing:
1. Ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. (framkvæmd markaðssetts útboðs).
2. Varnarmálalög (netöryggissveit).
3. Veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni).
4. Jarðalög o.fl. (forkaupsréttur sameigenda o.fl.).
5. Dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim (riðuveiki o.fl.).
6. Kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla (rekstur líkhúsa).
7. Kílómetragjald á ökutæki
8. Raforkulög (raforkuviðskipti).
9. Starfstengdir eftirlaunasjóðir.
10. Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi).
157. löggjafarþing:
1. Almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta (hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris o.fl.).
2. Dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim (riðuveiki o.fl.).
3. Kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla (rekstur líkhúsa).
4. Kílómetragjald á ökutæki.
Frumvarp þetta er að miklu leyti óbreytt frá því það var lagt fram á 155. og 156. löggjafarþingi. …
Áform um lagasetningu voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is dagana 11. júlí til 12. ágúst 2024 (mál nr. S-147/2024) og bárust alls 61 umsögn um áformin. Frumvarpsdrögin voru einnig kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda dagana 15.–20. október 2024 (mál nr. S-214/2024) og bárust alls 194 umsagnir um drögin. Brugðist var við mörgum athugasemdum sem fram komu í umsögnum og tók frumvarpið breytingum í samræmi við það. …
Í ljósi þess að þær breytingar og viðbætur sem hafa átt sér stað við vinnslu frumvarpsins vegna endurflutnings þess eru óverulegar þótti ekki ástæða til frekara samráðs áður en frumvarpið verður nú lagt fram að nýju.
5. Starfstengdir eftirlaunasjóðir.
6. Úrvinnslugjald (skilagjald, umbúðir og uppfærslur viðauka).
7. Landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsaga og landgrunn (mörk landgrunns).
8. Laun forseta Íslands og Stjórnarráð Íslands (forsetaritari, handhafalaun o.fl.).
9. Nálgunarbann og brottvísun af heimili (rafrænt eftirlit o.fl.).
10. Opinberir háskólar (háskólasamstæður).
11. Raforkulög (raforkuviðskipti).
12. Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki (framkvæmd).
13. Tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda (erlendar fjárfestingar).
14. Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa).
15. Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi).