Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1109 — 328. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar og lögum um ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Alþýðusambandi Íslands, BHM, BSRB, embætti landlæknis, Endósamtökunum, Félagi sjúkraþjálfara, Félagsráðgjafafélagi Íslands, heilbrigðisráðuneyti, Ljósmæðrafélagi Íslands, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Lyfjastofnun, Læknafélagi Íslands, Læknafélagi Reykjavíkur, Persónuvernd, Ríkisendurskoðun, Sálfræðingafélagi Íslands, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Skattinum, Samtökum heilbrigðisfyrirtækja og Samtökum verslunar og þjónustu, Tannlæknafélagi Íslands, Félagi talmeinafræðinga á Íslandi og Visku, og frá ÖBÍ réttindasamtökum.
Nefndinni bárust 22 umsagnir auk minnisblaðs frá heilbrigðisráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lögum um ófrjósemisaðgerðir, nr. 35/2019, til að skerpa á tilteknum ákvæðum í ljósi lögbundins hlutverks sjúkratryggingastofnunarinnar sem samningsaðila og kostnaðargreiðanda heilbrigðisþjónustu. Meðal annars eru lagðar til skýrari heimildir fyrir sjúkratryggingastofnunina til gjaldtöku, eftirlits og upplýsingaöflunar. Þá er lagt til að skyldur stofnunarinnar verði skýrðar betur.
Umfjöllun nefndarinnar.
Tilefni og markmið frumvarpsins.
Sjúkratryggingastofnunin hefur veigamiklu hlutverki að gegna sem kaupandi annars stigs heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er markmiðið að hún annist alla samningagerð um kaup á heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins, hvort sem um er að ræða þjónustu opinberra aðila eða einkaaðila. Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, þurfa því að tryggja stofnuninni fullnægjandi heimildir til að vinna og greina nauðsynlegar upplýsingar um kostnað, svo sem vegna kaupa á heilbrigðisþjónustu og sakir greiðsluþátttöku vegna lyfjakaupa, til að tryggja sem best nýtingu fjármuna í málaflokknum.
Ríkisendurskoðun birti skýrslu í júní árið 2025 um Sjúkratryggingar sem samnings- og eftirlitsaðila í tengslum við kaup og kostnaðar- og þarfagreiningu vegna kaupa á annars stigs þjónustu. Fjallað er nánar um inntak skýrslunnar í greinargerð með frumvarpinu en niðurstaða hennar var m.a. að sjúkratryggingastofnunin hefði ekki orðið sá sterki samningsaðili sem að var stefnt með lögum um sjúkratryggingar. Nýlegir samningar varpi ljósi á veika samningsstöðu stofnunarinnar og yfirburðastöðu margra viðsemjenda hennar. Að því virtu telur Ríkisendurskoðun brýnt að styrkja samningsstöðu sjúkratryggingastofnunarinnar. Með frumvarpinu er því m.a. brugðist við ábendingum í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar.
Í umsögnum ÖBÍ réttindasamtaka og Alþýðusambands Íslands er tekið undir þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu og ætlað er að auka réttindi sjúklinga. Nefnir Alþýðusambandið sérstaklega aukið gagnsæi, aðgengi og þjónustu, sem og ábyrga ráðstöfun opinbers fjár. Þá telur embætti landlæknis að frumvarpið sé almennt til bóta og að það sé til þess fallið að skýra og efla hlutverk og starfsemi sjúkratryggingastofnunarinnar til hagsbóta fyrir sjúkratryggða og aðra haghafa. Þá fagna Endósamtökin í umsögn sinni því að með samþykkt frumvarpsins verði lögfest sú meginregla að ákvarðanir Sjúkratrygginga Íslands skuli byggjast á gagnreyndri þekkingu. Endósamtökin leggja á sama tíma áherslu á að það útiloki ekki að þjónusta sé veitt þegar vísindaleg þekking er í mótun og tekur meiri hlutinn undir þau mikilvægu sjónarmið.
Meiri hluti nefndarinnar telur brýnt að frumvarpið nái fram að ganga, sérstaklega svo að unnt verði að efla sjúkratryggingastofnunina þannig að hún verði betur í stakk búin til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Þá telur meiri hlutinn að stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar endurspegli enn fremur veika stöðu stofnunarinnar og nauðsyn þeirra breytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu. Sterkur lagagrundvöllur og skýrar heimildir eru til þess fallnar að styrkja stofnunina og getu hennar til samninga við heilbrigðisstofnanir til hagsbóta fyrir sjúklinga og aðra hagaðila.
Réttur sjúkratryggðra og raunveruleg búseta (8. gr.).
Við umfjöllun nefndarinnar komu fram sjónarmið um nauðsyn á auknum skýrleika þess hverjir teljist sjúkratryggðir hér á landi og að horft yrði til raunverulegrar búsetu einstaklinga. Í 10. gr. laga um sjúkratryggingar er kveðið á um hverjir teljist sjúkratryggðir. Í 4. mgr. ákvæðisins segir að sjúkratrygging falli niður þegar sjúkratryggður flytji búsetu sína frá Íslandi, nema annað leiði af milliríkjasamningum. Með c-lið 8. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á ákvæðinu sem ætlað er að veita sjúkratryggingastofnuninni skýrari lagaheimild til að fella niður sjúkratryggingu þeirra einstaklinga sem hafa lögheimili á Íslandi án raunverulegrar búsetu. Er það m.a. gert með öflun gagna frá Þjóðskrá Íslands og skattyfirvöldum. Á grundvelli gildandi ákvæðis hefur sjúkratryggingastofnunin heimild til að ákvarða hvort einstaklingur teljist sjúkratryggður hér á landi en sú heimild takmarkast við fyrirmæli laganna um að búseta sé miðuð við lögheimilisskráningu. Hefur stofnunin því ekki haft heimild til að fella niður sjúkratryggingu ef einstaklingur er skráður með lögheimili á Íslandi en hefur ekki búsetu hér. Með frumvarpinu er því lagt til að sjúkratryggingastofnuninni verði veitt heimild til að fella niður rétt einstaklings til sjúkratrygginga ef gögn sýna fram á að hann hafi ekki raunverulega búsetu hér á landi.
Í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka er bent á að taka þurfi tillit til mismunandi aðstæðna fólks sem dvelur erlendis af ýmsum ástæðum og því sé mikilvægt að málsmeðferð um niðurfellingu sjúkratrygginga sé skýr með tilliti til stjórnsýslulaga. Í umsögn frá Skattinum er bent á að gagnagrunnar ríkisskattstjóra séu byggðir upp með það að markmiði að styðja við skilvirka skattframkvæmd og gera hana mögulega. Því geti úrvinnsla upplýsinga og öflun gagna í öðrum tilgangi en að sannreyna rétt skattskil reynst tímafrek.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að fá sjúkratryggingastofnuninni fleiri verkfæri í hendur til að ganga úr skugga um raunverulega búsetu þeirra einstaklinga sem njóta réttar til sjúkratrygginga samkvæmt lögunum. Að því virtu er mikilvægt að horfa til skráningar í Þjóðskrá Íslands á lögheimili og aðsetri, sem og að kanna raunveruleg skattskil hér á landi. Á grundvelli þeirra gagna verði sjúkratryggingastofnuninni heimilt að fella niður rétt til sjúkratrygginga ef búseta reynist ekki vera raunverulega hér á landi.
Stjórn Sjúkratrygginga Íslands (4. gr.).
Með 4. gr. frumvarpsins er lagt til að lögð verði niður stjórn Sjúkratrygginga Íslands sem fjallað er um í 6. gr. laga um sjúkratryggingar. Er það gert í samræmi við tillögu starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar frá 4. mars 2025 þar sem lagt er til að stjórnir almennra stofnana verði lagðar niður í ljósi þess að þær hafi oft óljósa stöðu og hlutverk, og vegna þess að hætta sé á því að ábyrgðarskil stjórnar og forstöðumanns stofnunar verði óljós. Þar eru Sjúkratryggingar Íslands nefndar í dæmaskyni um þá stofnun sem kemur til skoðunar. Þess í stað er lagt til í frumvarpinu að ráðherra skipi fagráð um eftirlit með stofnuninni og til ráðgjafar fyrir ráðherra.
Í umsögnum sem bárust nefndinni, m.a. frá Alþýðusambandi Íslands, BSRB, Læknafélagi Íslands og ÖBÍ réttindasamtökum, koma fram athugasemdir um breytinguna og gagnrýni á hana. Fram koma sjónarmið um að stjórn Sjúkratrygginga gegni lykilhlutverki við eftirlit, aðhald, mörkun langtímastefnu og þær umbætur sem nauðsynlegar eru til að sjúkratryggingastofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Fremur ætti að efla stjórnina og styrkja þannig sjúkratryggingastofnunina. Í umsögnum Alþýðusambandsins, BSRB og Læknafélags Íslands er sérstaklega bent á að kostnaður við stjórn Sjúkratrygginga sé ekki mikill á móti þeim fjárhæðum sem renna árlega til stofnunarinnar. Að því virtu telji þau að hagræðingarsjónarmið standi ekki að baki breytingunni.
Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti, dagsettu 25. mars 2026, kemur fram að breytingin sé í samræmi við framangreinda tillögu um hagræðingu og einföldun á yfirstjórn Sjúkratrygginga sem hefur að mati ráðuneytisins ekki í för með sér að stjórnsýsla stofnunarinnar veikist, heldur þvert á móti að skýra ábyrgð forstöðumanns gagnvart ráðuneytinu. Bendir ráðuneytið á skýrsluna „Samhent stjórnsýsla“ frá árinu 2010 sem unnin var í tengslum við endurskoðun laga um Stjórnarráð Íslands. Þar kemur fram að hlutverk stjórna stofnana ríkisins sé oft óskýrt og að þær hafi sjaldnast beint vald yfir forstöðumanni. Sambærileg sjónarmið koma fram í skýrslunni „Einfaldara ríkiskerfi með markvissari stjórnun stofnana“ frá árinu 2015.
Meiri hlutinn tekur undir mat ráðuneytisins og telur nauðsynlegt að forstöðumaður beri skýra ábyrgð gagnvart ráðuneytinu. Með því að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga er því verið að einfalda og efla stjórnsýslu sjúkratryggingastofnunarinnar, sem meiri hlutinn telur afar mikilvægt, sérstaklega með tilliti til nýlegrar skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þá telur meiri hlutinn að með frumvarpinu í heild séu sjúkratryggingastofnuninni veitt nægileg verkfæri og heimildir til að styrkja rekstur og stöðu sína til að hún sé betur til þess fallin að sinna lögbundnu hlutverki sínu.
Gjöld utan afsláttarstofns (h- og i-liður 12. gr.).
Með h- og i-lið 12. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 29. gr. laganna þannig að heimilt verði að ákveða að tiltekinn kostnaður falli utan afsláttarstofns. Líkt og fram kemur í skýringum við 12. gr. frumvarpsins er greiðsluþátttaka sjúkratryggðra ekki einungis ákveðin í þeim tilgangi að sjúkratryggðir taki að hluta þátt í kostnaði við heilbrigðisþjónustu heldur nýtist greiðsluþátttaka einnig sem stýritæki í notkun á þjónustu. Markmiðið með breytingunum er því að veita heimildir til að stjórna aðgengi að þjónustunni með skilvirkari hætti og sporna við ofnotkun á henni. Þannig er lagt til að heimilt verði að láta greiðslur vegna þjónustu sem tilgreind er í 21. og 21. gr. a laganna, þ.e. vegna sjúkraþjálfunar og sálfræðinga, falla utan afsláttarstofns. Til gjalds sem ætlað er að láta falla utan afsláttarstofns telst t.d. komugjald og verður það útfært nánar með reglugerð.
Í umsögnum Alþýðusambands Íslands, BSRB, Félags sjúkraþjálfara og ÖBÍ réttindasamtaka var þessum breytingum mótmælt. Fram komu ábendingar um að ekki lægju fyrir greiningar sem sýndu fram á ofnotkun á þjónustu. Skortur væri á áhrifamati og skýrri útfærslu á framkvæmd gjaldtökunnar. Þá komu fram sjónarmið um að gjaldtakan myndi bitna mest á þeim sjúklingum sem nýta þjónustuna reglulega, þar á meðal fötluðu fólki og fólki með langvinna sjúkdóma og skerta starfsgetu. Í því samhengi var bent á að gjaldtakan mætti ekki leiða til aukins kostnaðar fyrir þá hópa sem nýta þjónustuna mest, sem oft eru efnaminni, og hindra þannig aðgengi að henni.
Í áðurnefndu minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti er bent á að í gildandi lögum séu þröngar skorður settar við því að láta gjöld sem sjúkratryggðir greiða falla utan afsláttarstofns. Aukin greiðsluþátttaka sjúkratryggðra getur verið nauðsynlegt viðbragð í þeim tilgangi að ná stjórn á þjónustunotkun og þar með óhóflegum útgjöldum. Í því samhengi hefur kostnaður vegna sjúkraþjálfunar verið til skoðunar í ráðuneytinu. Í minnisblaðinu má sjá yfirlit um fjárhæðir og notkun á þjónustu sjúkraþjálfara árin 2023-2025. Þar kemur fram að greiðslur einstaklinga fyrir hverja komu hafa einungis hækkað um 340 kr. að meðaltali en greiðslur Sjúkratrygginga hafa hækkað um 4.425 kr. Hlutfallslega hefur því greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga aukist. Að því virtu er ráðherra með frumvarpinu veitt heimild til að láta komugjald vegna þjónustu sjúkraþjálfara falla utan afsláttarstofns til að mæta kostnaðaraukningu undanfarinna ára. Er það í samræmi við markmið um að stýra aðgengi að þjónustu með skilvirkum hætti.
Hvað varðar komugjöld til sálfræðinga bendir ráðuneytið á að í 5. gr. reglugerðar nr. 1495/2025 sé þegar kveðið á um að komugjald fullorðinna til sálfræðings, sem er aðili að rammasamningi Sjúkratrygginga, skuli falla utan afsláttarstofns. Með breytingum samkvæmt i- og h-lið 12. gr. frumvarpsins sé því verið að styrkja lagastoð fyrir því að láta komugjöld til sálfræðinga falla utan afsláttarstofns, líkt og þegar er kveðið á um í reglugerð.
Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og bendir jafnframt á þær upplýsingar sem fram koma í yfirliti í minnisblaðinu um kostnaðaraukningu undanfarinna ára og greiðsluhlutfall Sjúkratrygginga á móti hlutfalli sjúkratryggðra. Meiri hlutinn hefur skilning á sjónarmiðum umsagnaraðila um að viðkvæmir hópar, sem nýta sér umrædda þjónustu reglulega, geti átt erfiðara með að takast á við aukin útgjöld en bendir þó á að sá hópur nýtur áfram niðurgreiðslu í formi afsláttar.
Miðlægur lyfjagreiðslugrunnur og miðlun gagna (13. gr.).
Með 13. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 29. gr. a laga um sjúkratryggingar. Lagt er til að skýrt verði nánar hvaða upplýsingar skuli færa í lyfjagreiðslugrunn og tiltekið verði hvernig aðgangur að gagnagrunninum skuli veittur og að skyldur notenda verði skýrðar. Þá er lagt til að við ákvæðið bætist vísun til 77. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, til að tryggja afhendingu gagna þar sem þau eru nauðsynleg svo að sjúkratryggingastofnunin geti tryggt rétta afgreiðslu við útgáfu lyfjaskírteina og við framkvæmd lyfjagreiðsluþátttökukerfisins.
Í umsögn embættis landlæknis komu fram sjónarmið um að sá gagnagrunnur skaraðist á við lyfjagagnagrunn embættis landlæknis og að ætlunin væri að afrita lyfjagagnagrunn embættisins inn í gagnagrunn Sjúkratrygginga. Þá var bent á að lyfjalög heimiluðu miðlun upplýsinga frá embættinu til Sjúkratrygginga og hægt væri að komast hjá því að byggja upp tvo sambærilega gagnagrunna. Í umsögn Lyfjastofnunar koma fram sambærileg sjónarmið þar sem bent er á að draga þurfi mörk á milli fjárhagslegs eftirlits Sjúkratrygginga og faglegs eftirlits heilbrigðisyfirvalda til að tryggja örugga stjórnsýslu. Í umsögn Persónuverndar eru auk þess gerðar athugasemdir við þessa tilhögun og kemur fram í umsögn stofnunarinnar að forðast ætti skráningu upplýsinga á fleiri en einum stað.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis frá 156. löggjafarþingi, dagsettu 9. maí 2025, var leitast við að svara samhljóða athugasemdum. Þar kemur fram að bæði tilgangur söfnunar og skráning upplýsinga í gegnum gagnagrunna sé ólíkur eftir því hvort um er að ræða vinnslu hjá Sjúkratryggingum eða embætti landlæknis og er það m.a. ástæða þess að lagt er til að heimilt verði að starfrækja tvo gagnagrunna. Þá eiga við sjónarmið um aðskilnað og upplýsingaöryggi og rétta skráningu og söfnun. Meiri hlutinn telur því ekki forsendur til að leggja til breytingar á 13. gr. frumvarpsins hvað þetta varðar.
Aukagjöld í samningsleysi (b-liður 22. gr.).
Með 22. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 38. gr. laga um sjúkratryggingar, sem mælir fyrir um að sjúkratryggingastofnuninni sé heimilt að taka þátt í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu þegar samningar eru ekki fyrir hendi. Í a-lið 22. gr. er lagt til að heimilt verði að greiða samkvæmt gjaldskrá þegar samningar um þjónustu eru ekki fyrir hendi. Fjallað verður nánar um þá tilhögun, sem og breytingar sem nefndin leggur til, í umfjöllun um breytingartillögur.
Í b-lið 22. gr. frumvarpsins er lagt til að þjónustuaðila, sem þiggur greiðslu samkvæmt gjaldskrá þegar samningur er ekki fyrir hendi, verði óheimilt að krefja sjúkling um aukagjöld. Er þetta í samræmi við það sem gildir þegar greitt er fyrir þjónustu á grundvelli samnings, sbr. 2. mgr. 43. gr. laganna. Í skýringum við 22. gr. frumvarpsins kemur fram að framkvæmdin hafi verið sú að þjónustuveitendur hafi krafið sjúklinga um aukagjöld til viðbótar við þau sem sjúkratryggingastofnunin hefur greitt í samræmi við eldri samning án takmarkana. Þegar verðlagning þjónustu fyrir sjúkling er ákveðin af þjónustuveitanda og samningsleysi varir getur það vegið að markmiðum laganna um jafnan aðgang að þjónustu óháð efnahag.
Í umsögnum Alþýðusambands Íslands, ÖBÍ réttindasamtaka og Endósamtakanna er þessari breytingu fagnað og hún talin mikilvægt skref til að sporna gegn viðbótarkostnaði sjúklinga. Í umsögn Læknafélags Íslands koma þó fram sjónarmið um að ákvæðið sé íþyngjandi fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk þar sem það geri þeim ómögulegt að starfa í samningsleysi. Bendir félagið á að á tímum samningsleysis sem áður varði hafi sjálfstætt starfandi læknar verið knúnir til að leggja aukagjöld á sjúklinga vegna þess að gjaldskrá hafi staðið óbreytt í nokkurn tíma á meðan laun starfsmanna og rekstrarkostnaður hækkaði. Hvað þessi sjónarmið varðar vísar nefndin til umfjöllunar að aftan um breytingartillögur í tengslum við gjaldskrár í samningsleysi.
Meiri hlutinn bendir á mikilvægi þess að hvati sé til samningagerðar, bæði fyrir Sjúkratryggingar og þjónustuveitendur. Að því virtu telur meiri hlutinn að innheimta aukagjalda í samningsleysi geti verið til þess fallin að hafa verulega neikvæð áhrif á sjúklinga og geti valdið misskiptingu í aðgengi að þjónustunni. Þá telur meiri hlutinn að aukagjöld geti dregið úr því að samningar náist um ýmsa heilbrigðisþjónustu sem Sjúkratryggingar taka þátt í að greiða og orðið þess valdandi að þjónustan verði verðlögð hærra en nauðsyn ber til. Mikilvægt er að samningar séu endurnýjaðir reglulega þar sem fjármunum ríkissjóðs er ráðstafað skynsamlega en þó þannig að þjónustuveitendur sem samið er við geti sinnt þjónustunni á skilvirkan hátt án aukins tilkostnaðar. Leggur meiri hlutinn því áherslu á að aukagjöld séu óheimil í samningsleysi.
Eftirlit með kostnaði vegna aðila sem eru ekki í samningssambandi (24. gr.).
Í 24. gr. frumvarpsins er lagt til að innleiddar verði skýrari eftirlitsheimildir og úrræði vegna aðila sem eru ekki í beinu eða óbeinu samningssambandi við sjúkratryggingastofnunina. Lagt er til nýtt ákvæði, 38. gr. b, sem veiti stofnuninni skýrar heimildir til að hafa eftirlit með þjónustu og útgjöldum á ábyrgð stofnunarinnar sem leiðir af ávísunum eða tilvísunum aðila sem ekki hafa samninga við stofnunina, svo sem lyfjaávísunum og tilvísunum í myndgreiningar. Þannig er komið til móts við ábendingar Ríkisendurskoðunar um að tryggja viðeigandi eftirlit með útgjöldum stofnunarinnar.
Í umsögn Lyfjafræðingafélags Íslands eru gerðar sérstakar athugasemdir við þá tilhögun ákvæðisins að sjúkratryggingastofnuninni verði heimilt að krefjast endurgreiðslu úr hendi heilbrigðisstarfsmanns eða þjónustuveitanda sem brýtur gegn reglum eða fyrirmælum um þjónustu eða afhendingu lyfja sem veldur ofgreiðslu stofnunarinnar. Telja þau tilhögunina geta haft neikvæðar afleiðingar fyrir starfsemi þjónustuveitenda þar sem ábyrgð sé færð yfir á þá þrátt fyrir að ofgreiðsla hafi runnið til hins sjúkratryggða eða annarra aðila. Félagið leggur til að greinin verði felld brott og bendir á að Lyfjastofnun fari með víðtækt eftirlit með starfsemi lyfjabúða og að embætti landlæknis hafi eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum, þar á meðal með lyfjaávísunum lækna. Lyfjastofnun gerir jafnframt athugasemdir í umsögn sinni og telur að vegið sé að faglegu sjálfstæði lækna sem fara með eftirlit sem byggist á klínískum og faglegum forsendum en ekki fjárhagslegum. Sambærileg sjónarmið koma fram í umsögnum Læknafélags Íslands og Samtaka heilbrigðisfyrirtækja.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis er bent á að heimildir til að krefjast endurgreiðslu frá heilbrigðisstarfsmanni vegna athafna hans séu bundnar við það að Sjúkratryggingar hafi áður beint fyrirmælum til viðkomandi aðila um breytta framkvæmd með tilliti til þess að hann hafi ekki starfað samkvæmt eðlilegum og viðurkenndum starfsháttum. Jafnframt yrði endurgreiðslu beint að rekstrarleyfishafa en ekki starfsmanninum sjálfum. Hið sama á við um heimild sjúkratryggingastofnunarinnar til að krefjast endurgreiðslu vegna háttsemi lyfsala eða annars þjónustuveitanda sem verður uppvís að því að brjóta gegn reglum eða fyrirmælum með þeim hætti að það leiði til ofgreiðslna stofnunarinnar. Endurgreiðslu kostnaðar yrði beint að rekstrarleyfishafa og lyfsöluleyfishafa. Þá bendir ráðuneytið á að ákvæðinu yrði ekki beitt gegn lyfsala, þjónustuveitanda eða heilbrigðisstarfsmanni þar sem mistök hafa átt sér stað í rafrænum kerfum eða vegna rangrar skráningar lyfjaávísana og hann því grandlaus um að brotið hafi verið gegn viðurkenndum starfsháttum.
Meiri hlutinn tekur undir ábendingar ráðuneytisins og þykir jafnframt rétt að Sjúkratryggingar, sem greiðandi þjónustunnar, hafi tæki til að bregðast við því og koma í veg fyrir að stofnunin taki þátt í að greiða fyrir þjónustu sem fer gegn viðurkenndum starfsháttum. Þá undirstrikar meiri hlutinn það sem fram kemur í minnisblaðinu um að íþyngjandi ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli ákvæðisins séu aðeins teknar með tilliti til málefnalegra sjónarmiða í samræmi við meðalhófsreglu þegar fyrir liggur að starfshættir fari gegn faglegum kröfum hverju sinni.
Upplýsingaöflun (28. og 30. gr.).
Með frumvarpinu eru lagðar til heimildir fyrir sjúkratryggingastofnunina til upplýsingaöflunar. Með 28. gr. frumvarpsins eru heimildir sjúkratryggingastofnunarinnar til að vinna upplýsingar í tengslum við kostnaðargreiningar þjónustu skýrðar. Þá eru með 30. gr. frumvarpsins lagðar til heimildir stofnunarinnar til að afla upplýsinga frá embætti landlæknis og/eða heilbrigðisstofnunum um biðlista og biðtíma í því skyni að greina hvar þörf er á samningum. Einnig er í b-lið ákvæðisins lagt til að viðsemjendum stofnunarinnar verði skylt að afhenda ársreikninga svo að stofnunin hafi upplýsingar um raunkostnað keyptrar þjónustu í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar um aukið gagnsæi í tengslum við rekstur samningsaðila. Hvað þessa breytingu varðar vísast jafnframt í umfjöllun að aftan um breytingartillögur við 26. gr. frumvarpsins. Að auki er lagt til að sjúkratryggingastofnunin hafi heimild til að óska eftir frekari upplýsingum umfram ársreikning í þeim tilgangi að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustuna.
Í umsögnum sem nefndinni bárust eru gerðar athugasemdir við breytingarnar. Í umsögnum Ljósmæðrafélags Íslands og BHM koma fram sjónarmið um að heimildir framangreindra ákvæða til upplýsingaöflunar séu afar víðtækar, sérstaklega í ljósi þess að um viðkvæmar persónuupplýsingar sé að ræða. Sambærilegar athugasemdir koma fram í umsögnum Læknafélags Reykjavíkur, Sálfræðingafélags Íslands og Félags sjúkraþjálfara þar sem reifuð eru sjónarmið um að upplýsingaöflun sé umfram það sem nauðsynlegt er og feli í sér íhlutun í starfsemi þjónustuveitenda. Þá gerir Læknafélag Íslands ekki athugasemdir við heimildir til að kalla eftir ársreikningum en telur hins vegar óeðlilegt að sjúkratryggingastofnunin geti haft virkt eftirlit með raunkostnaði.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis er bent á að með heimild Sjúkratrygginga til að afla upplýsinga umfram það sem fram kemur í ársreikningi sé leitast við að auðvelda stofnuninni að kostnaðargreina þjónustuna. Þá bendir ráðuneytið á að samningsaðilar sjúkratrygginga séu um 1.500 talsins og meiri hluti þeirra sjálfstætt starfandi læknar, sjúkraþjálfarar og tannlæknar. Að mati ráðuneytisins er eðlilegt að Sjúkratryggingar hafi möguleika á að gera ríkari kröfur um sundurliðun vegna starfsemi samningsaðila þegar slíkt er nauðsynlegt í ljósi umfangs reksturs og kostnaðar til að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem kostnaðargreinandi heilbrigðisþjónustu.
Meiri hlutinn tekur undir mat ráðuneytisins og ítrekar markmið laga um sjúkratryggingar um að stuðla að rekstrarlegri og þjóðhagslegri hagkvæmni heilbrigðisþjónustu. Í ljósi þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem fólgnir eru í samningum Sjúkratrygginga er mikilvægt að eftirlit með framkvæmd þeirra sé markvisst, bæði að því er snýr að kostnaði og gæðum. Meiri hlutinn telur að með því að styrkja heimildir sjúkratryggingastofnunarinnar til upplýsingaöflunar verði hún betur til þess fallin að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Að mati meiri hlutans ganga ákvæði frumvarpsins ekki lengra en nauðsynlegt er í samræmi við meginreglur stjórnskipunarréttar. Meiri hlutinn ítrekar mikilvægi þess að sjúkratryggingastofnunin hafi fullnægjandi úrræði til að viðhafa virkt eftirlit með kostnaði við samninga og safna upplýsingum um raunkostnað þjónustuveitenda svo að unnt sé að leggja mat á ábata og kostnað ólíkra þjónustuleiða. Skal stofnunin sinna eftirliti sínu eftir sem áður í samræmi við reglur stjórnsýslulaga, þar á meðal um meðalhóf og jafnræði. Meiri hlutinn leggur þó til breytingar á b-lið 30. gr. með tilliti til sjónarmiða umsagnaraðila. Vísast til nánari umfjöllunar um breytingarnar í kafla þess efnis að aftan.
Breytingartillögur.
Gjaldtaka Sjúkratrygginga (f-liður 12. gr.).
Með 12. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 29. gr. laga um sjúkratryggingar um auknar gjaldtökuheimildir. Með f-lið 12. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að innheimta gjald vegna þjónustu sjúkrabifreiðar án þess að sjúklingur hafi verið fluttur. Í gildandi lögum er skortur á skýrum heimildum til gjaldtöku vegna framangreindrar þjónustu, en sjúkrabifreiðar eru reglulega kallaðar út án þess að sjúklingur sé fluttur á sjúkrahús en þjónusta þó veitt á útkallsstað. Með frumvarpinu eru því lagðar til skýrar lagaheimildir fyrir gjaldtöku þar sem þær skortir.
Í umsögnum sem nefndinni bárust frá Alþýðusambandi Íslands og ÖBÍ réttindasamtökum var bent á mikilvægi þess að aukin gjaldtaka yrði ekki til þess að hindra aðgengi viðkvæmra hópa að mikilvægri þjónustu. ÖBÍ réttindasamtök gerðu jafnframt athugasemdir við gjaldtöku vegna útkalls sjúkrabifreiða án flutnings og bentu á að sjúkrabifreið væri oft kölluð út af öðrum aðila en þeim sem þyrfti á aðstoð að halda og sú staða gæti komið upp að það ástand sem varð til þess að kallað var á sjúkrabifreið væri liðið.
Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að lögfesta skýrar heimildir til gjaldtöku vegna kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu. Þá beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að með reglugerð um nánari útfærslu gjaldtöku verði sérstaklega hugað að stöðu viðkvæmra hópa, svo sem öryrkja, og að gjaldtaka verði ekki íþyngjandi og til þess fallin að hindra aðgengi þeirra að heilbrigðisþjónustu. Meiri hlutinn áréttar jafnframt að þrátt fyrir að sjúkrabifreið sé ekki nýtt til flutninga sjúklings veita viðbragðsaðilar oft þjónustu á vettvangi. Að því virtu er nauðsynlegt að skýr heimild sé fyrir gjaldtöku vegna slíkrar þjónustu. Til nánari skýringar leggur meiri hlutinn þó til breytingu á f-lið 12. gr. frumvarpsins þannig að kveðið verði skýrlega á um að gjaldtaka taki til veittrar þjónustu á vettvangi vegna útkalls sjúkrabifreiðar.
Gjaldskrá í samningsleysi (a-liður 22. gr.).
Með a-lið 22. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að greiða samkvæmt gjaldskrá þegar samningar um þjónustu eru ekki fyrir hendi, að hámarki í 12 mánuði. Með breytingunni hefur sjúkratryggingastofnunin þannig svigrúm til að setja gjaldskrá í samræmi við það sem gilt hafði í samningi en ekki heimild til að ákveða einhliða ómálefnalegar takmarkanir sem hefðu ekki rúmast innan þess samnings sem gjaldskráin varðar. Þó er lagt til að gjaldskrár sem settar eru á grundvelli ákvæðisins verði endurskoðaðar eftir þörfum með tilliti til verðlagsþróunar.
Líkt og fram kemur í skýringum við 22. gr. frumvarpsins verður varanlegu endurgreiðslukerfi ekki komið á án þess að fyrir liggi samningar í samræmi við meginreglu um að þátttaka hins opinbera í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu byggist á samningi milli sjúkratryggingastofnunarinnar og þjónustuveitanda. Um árabil greiddi stofnunin þó fyrir heilbrigðisþjónustu á grundvelli gjaldskrár skv. 38. gr. án þess að samningar væru fyrir hendi í andstöðu við framangreinda meginreglu. Með því að setja tímamark á greiðsluþátttöku í samningsleysi er því upprunalegur tilgangur ákvæðisins ítrekaður.
Í umsögnum Læknafélags Reykjavíkur, Tannlæknafélags Íslands, Læknafélags Íslands, BHM og Félags sjúkraþjálfara koma fram sjónarmið um að með breytingunni verði sjúkratryggingastofnuninni heimilt að ákvarða gjaldskrár einhliða ef samningur um heilbrigðisþjónustu er ekki fyrir hendi. Tilhögunin muni því skapa hvata til að viðhalda samningsleysi og raska jafnvægi gagnvart samningsaðilum. Í umsögn Sálfræðingafélags Íslands eru gerðar athugasemdir við breytinguna og talið að ákvæðið svipti sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn samningsrétti. Þá er þessum breytingum einnig mótmælt í umsögnum Félags talmeinafræðinga á Íslandi og Visku, Samtaka heilbrigðisfyrirtækja og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu telja þó jákvætt að takmarka tímalengd gjaldskrár sjúkratryggingastofnunarinnar í 12 mánuði.
Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti, dagsettu 25. mars 2026, kemur fram að það telji að nokkurs misskilnings gæti hjá umsagnaraðilum um eðli og efni þeirra breytinga sem lagðar eru til í 22. gr. frumvarpsins um gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands á grundvelli 38. gr. laganna í samningsleysi. Ákvæðinu er ekki ætlað að veita Sjúkratryggingum heimild til að ákveða einhliða gjaldskrá sem sé ekki í samræmi við það endurgjald sem kveðið var á um í samningi. Tilgangurinn sé einmitt sá að veita Sjúkratryggingum sveigjanleika við gerð gjaldskrár skv. 38. gr. laganna þannig að hún geti verið í auknu samræmi við útrunninn samning. Þá ítrekar ráðuneytið að breytingunni sé beinlínis ætlað að sporna við samningsleysi og ýta undir samningagerð milli Sjúkratrygginga og þjónustuveitanda í samræmi við áðurnefnda meginreglu. Því myndu Sjúkratryggingar aldrei leitast við að viðhalda samningsleysi. Þá er í umræddu minnisblaði ráðuneytisins fjallað um orðalag ákvæðisins um verðlagsþróun sem sé matskennt og ráðherra hefði því ákveðið svigrúm við mat á því hvaða verðlag yrði lagt til grundvallar.
Meiri hlutinn áréttar ábendingar ráðuneytisins og leggur til grundvallar að með ákvæðinu sé Sjúkratryggingum ekki veitt heimild til að ákvarða einhliða gjaldskrá sem ekki er í samræmi við þá samninga sem áður giltu og þannig viðhalda samningsleysi. Færi slíkt gegn tilgangi og markmiði laganna. Meiri hlutinn bendir jafnframt á að samningar til langs tíma stuðli að auknum fyrirsjáanleika og aðgengi fyrir notendur heilbrigðisþjónustu án þess að kostnaður aukist verulega. Þá undirstrikar meiri hlutinn það sem fram kemur í umfjöllun í greinargerð með frumvarpinu um núverandi fyrirkomulag og bendir á mikilvægi jafnræðis við gerð samninga um heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að tryggja sem besta nýtingu fjármagns til hagsbóta fyrir sjúklinga, þjónustuveitendur og Sjúkratryggingar.
Að því virtu leggur meiri hlutinn til breytingar á orðalagi ákvæðis a-liðar 22. gr. til að skýra betur að gjaldskrá skuli taka mið af endurgjaldi samkvæmt þeim samningum sem áður giltu. Þannig leiki enginn vafi á því að gjaldskráin geti ekki verið í ósamræmi við endurgjald útrunnins samnings. Þá leggur meiri hlutinn jafnframt til að heimilt verði að taka mið af verðlagsákvæðum þeirra samninga sem áður giltu ef samningar kváðu á um slík ákvæði að hluta eða öllu leyti. Framangreindar breytingar eru til þess fallnar að skýra ákvæðið betur með það að markmiði að ganga ekki gegn upprunalegum tilgangi ákvæðis í 38. gr. um að sjúkratryggingastofnunin greiði ekki fyrir þjónustu nema á grundvelli samninga.
Félagaform (26. gr.).
Með frumvarpinu er lagt til að viðsemjendur sjúkratryggingastofnunarinnar verði almennt í formi hlutafélags eða einkahlutafélags. Breytingunni er ætlað að auka gagnsæi um rekstur samningsaðila og tryggja þannig ítarlegar upplýsingar um raunkostnað þeirrar heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggingastofnunin tekur þátt í að greiða fyrir. Samningar við stofnunina standa að mestu leyti undir rekstrartekjum viðsemjenda hennar og því þykir eðlilegt að hún hafi aðgang að tilteknum upplýsingum í þeim tilgangi að kostnaðarmeta þjónustuna. Þó er í ákvæðinu gerð undantekning á kröfu um tiltekið félagaform fyrir umfangslítinn rekstur líkt og hann er nánar skilgreindur í greinargerð með frumvarpinu. Þá er með ákvæðinu lagt bann við gerviverktöku, þ.e. því að samningsaðila verði óheimilt að gera samning um undirverktöku starfsmanna eða starfshópa í þeim tilvikum þegar um ráðningarsamband er að ræða.
Í skýringum með 26. gr. frumvarpsins er fjallað um það að stór hluti heilbrigðisstarfsmanna sem hafa samning við sjúkratryggingastofnunina hafi reksturinn í samlagsfélagi. Með slíku félagaformi eru náin fjárhagsleg tengsl milli eiganda og félagsins og ekki er lögbundin skylda um skil á ársreikningi. Að því virtu er gagnsæi um fjármuni sem renna inn í félagið í gegnum samninga við sjúkratryggingastofnunina takmarkað. Rekstur í formi hlutafélags eða einkahlutafélags myndi auka gagnsæi um kostnað starfseminnar og gera sjúkratryggingastofnuninni því kleift að kostnaðargreina hana með ítarlegri hætti. Þannig geti hún uppfyllt lögbundið hlutverk sitt um að stuðla að rekstrarlegri og þjóðhagslegri hagkvæmni heilbrigðisþjónustu.
Fyrir nefndinni vógust á sjónarmið um hvort krafa um félagaform væri nauðsynleg til að ná því markmiði sem breytingunni er ætlað að ná, þ.e. að auka gagnsæi með því að fá aðgang að tilteknum upplýsingum. Í umsögn embættis landlæknis kemur fram að krafan þyki eðlileg í ljósi umfangs starfsemi samningsaðila sjúkratryggingastofnunarinnar. Á móti er kröfunni mótmælt í umsögnum Læknafélags Íslands, Læknafélags Reykjavíkur, Ljósmæðrafélags Íslands, Sálfræðingafélags Íslands, Félags sjúkraþjálfara, BHM, Samtaka heilbrigðisfyrirtækja og Tannlæknafélags Íslands. Í framangreindum umsögnum koma m.a. fram sjónarmið um að krafan feli í sér óþarfa íhlutun í atvinnufrelsi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks. Læknafélag Íslands telur breytinguna í andstöðu við atvinnufrelsisákvæði 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Í umsögnum Sálfræðingafélags Íslands og Tannlæknafélags Íslands koma fram ábendingar um að krafa um tiltekið félagaform sé ekki nauðsynleg til að ná markmiðum um gagnsæi en sjúkratryggingastofnunin hafi þegar víðtækar heimildir til að krefjast tiltekinna gagna ef hún telur það nauðsynlegt. Vísast hér til umfjöllunar um 30. gr. frumvarpsins er varðar heimild fyrir sjúkratryggingastofnunina til að krefjast ársreiknings frá viðsemjanda. Þá bendir Ljósmæðrafélag Íslands á að óeðlilegt væri að gera þá kröfu að starfsemi félagsins, sem er umfangslítil, væri í formi hlutafélags eða einkahlutafélags. Slík krafa gæti haft í för með sér þjónustuskerðingu fyrir sængurkonur og nýbura.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis er markmið breytingarinnar ítrekað, þ.e. að tryggja aukið gagnsæi um þann kostnað sem Sjúkratryggingar greiða fyrir heilbrigðisþjónustu og gera stofnuninni kleift að greina raunkostnað þjónustunnar með ítarlegri hætti. Að því virtu sé eðli forms samlagsfélags þannig að gagnsæi um fjármuni sem renna inn í félagið í gegnum samninga við stofnunina er takmarkað. Ráðuneytið telur hins vegar að jafnvel þó að sterk rök séu fyrir því að gera kröfu um tiltekið félagaform megi láta á það reyna hvort sú tillaga frumvarpsins sem lýtur að skilum ársreikninga og upplýsingaöflunar reynist fullnægjandi til að skapa nægilegt gagnsæi um rekstur og afkomu.
Meiri hlutinn tekur undir mat ráðuneytisins og telur að form hlutafélaga og einkahlutafélaga sé betur til þess fallið að auka gagnsæi. Þá telur meiri hlutinn að umrætt ákvæði stangist ekki á við atvinnufrelsisákvæði í 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og bendir á það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að ekki sé verið að takmarka frelsi sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna til atvinnu, enda fari starfs- og rekstrarleyfi þeirra eftir lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, og lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 54/2007. Breytingarnar varði aðeins þá heilbrigðisstarfsmenn sem starfa samkvæmt samningi við sjúkratryggingastofnunina. Meiri hlutinn hefur þó skilning á þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið um að krafan kunni að vera íþyngjandi fyrir þá viðsemjendur stofnunarinnar sem eru nú þegar í samlagsfélagi eða eru í umfangslítilli starfsemi. Telur meiri hlutinn rétt að láta á það reyna hvort 30. gr. frumvarpsins, þar sem gerð er krafa um ríka upplýsingaskyldu viðsemjenda Sjúkratrygginga, þar á meðal um skil á ársreikningi, dugi til að skapa nauðsynlegt gagnsæi og tryggja upplýsingar um raunkostnað þeirrar heilbrigðisþjónustu sem stofnunin tekur þátt í að greiða, enda er markmið 30. gr. frumvarpsins samhljóða.
Að öllu framangreindu virtu telur meiri hlutinn, með vísan til ábendinga ráðuneytisins, að tilefni sé til að falla frá kröfu í 1. og 2. málsl. a-liðar 26. gr. frumvarpsins um tiltekið félagaform og láta skilyrði í 30. gr. frumvarpsins um skil á ársreikningi duga að sinni. Að því virtu verður breytingin þess efnis að ekki verði gerð krafa um að viðsemjendur sjúkratryggingastofnunarinnar verði í tilteknu félagaformi en þeim beri þó skylda til að skila stofnuninni ársreikningi í samræmi við skilyrði 30. gr. frumvarpsins. Þannig telur meiri hlutinn að áfram sé tryggt markmið um gagnsæi og að ítarlegar upplýsingar um raunkostnað þeirrar þjónustu sem Sjúkratryggingar greiða fyrir liggi fyrir, einkum með 30. gr. frumvarpsins. Sömuleiðis falli þá brott c-liður 26. gr. frumvarpsins þar sem vísað er í kröfu um félagaform.
Meiri hlutinn leggur áherslu á að samningsaðilum verður áfram óheimilt að gera samning um undirverktöku starfsmanna eða starfshópa í þeim tilvikum þar sem um ráðningarsamband er að ræða. Meiri hlutinn leggur áherslu á að verkefni sem unnin eru í ráðningarsambandi verði ekki unnin í verktöku og á það að í lögum um tekjuskatt og framkvæmd þeirra hafa mótast skýr viðmið um hvað sé ráðningarsamband og hvað sé verktaka. Meiri hlutinn leggur því áherslu á að störf séu ekki unnin í gerviverktöku þegar í reynd sé um ráðningarsamband að ræða.
Skil ársreikninga og upplýsingaöflun (b-liður 30. gr.).
Meiri hlutinn leggur til eftirfarandi breytingar á b-lið 30. gr. frumvarpsins. Í fyrsta lagi komu fram sjónarmið um að krafa um afhendingu ársreikninga samkvæmt b-lið 30. gr. gæti reynst íþyngjandi fyrir umfangslítinn rekstur, sérstaklega þegar um starfsemi einyrkja er að ræða. Að því virtu leggur meiri hlutinn til breytingu á b-lið 30. gr. þess efnis að sjúkratryggingastofnunin hafi heimild til að víkja frá kröfu um afhendingu ársreiknings ef starfsemi er umfangslítil. Um skilgreiningu á því hvað teljist til umfangslítillar starfsemi bendir meiri hlutinn á skýringar við 26. gr. frumvarpsins. Þar kemur fram að með umfangslítilli starfsemi sé m.a. átt við rekstur starfsmanns sem stendur einn að veitingu þjónustu, er í hlutastarfi eða er aðili með hlutfallslega lága ársveltu miðað við sambærilega aðila heilbrigðiskerfisins. Sem dæmi um umfangslitla starfsemi má benda á þjónustu ljósmæðra við sængurkonur og nýbura með heimavitjunum og bakvöktum stuttu eftir fæðingu barns. Með umræddri breytingu á b-lið 30. gr. gæti sjúkratryggingastofnunin því veitt ljósmæðrum sem sinna slíkri þjónustu undanþágu frá kröfu b-liðar 30. gr. um afhendingu ársreiknings.
Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að nýr málsliður bætist við b-lið 30. gr. frumvarpsins. Hann kveði á um að þegar sjúkratryggingastofnunin óskar eftir upplýsingum umfram það sem fram kemur í ársreikningi, í þeim tilgangi að kostnaðargreina þjónustuna, verði sérstaklega kveðið á um skyldu stofnunarinnar til að upplýsa samningsaðila um ástæðu og nauðsyn slíkrar upplýsingaöflunar með tilliti til sjónarmiða um meðalhóf. Er breytingin til þess fallin að tryggja að ákvörðun um upplýsingaöflun sé vel rökstudd og íþyngi samningsaðila því ekki um of. Þá undirstrikar meiri hlutinn að 30. gr. taki gildi 1. janúar 2027 og gildi eingöngu um þá samninga sem gerðir eru eftir gildistöku ákvæðisins, sbr. 3. mgr. 36. gr. frumvarpsins.
Gildistaka (36. gr.).
Meiri hlutinn leggur til breytingar á ákvæði 36. gr. frumvarpsins um gildistöku. Í fyrsta lagi leggur meiri hlutinn til að gildistaka 2. mgr. ákvæðisins verði 1. júní 2026 í stað 1. apríl 2026 í ljósi þess að frumvarpið hafði ekki hlotið afgreiðslu þann dag. Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til að 3. mgr. ákvæðisins er varðar gildistöku á þeim hluta 26. gr. sem lýtur að rekstrarformi falli brott í samræmi við framangreinda tillögu meiri hlutans um að falla frá kröfu ákvæðisins um tiltekið rekstrarform viðsemjenda. Þá leggur meiri hlutinn til tæknilega breytingu við 23. og 24. gr. frumvarpsins þess efnis að 24. gr. verði b-liður 23. gr. Þá lagði heilbrigðisráðuneyti í umræddu minnisblaði til að umrætt ákvæði frumvarpsins tæki gildi 1. janúar 2027 og tekur meiri hlutinn undir þá tillögu. Að lokum leggur meiri hlutinn til að ákvæði 30. gr. um skil á ársreikningum taki gildi 1. janúar 2028 í stað 1. janúar 2027. Þeim sem skylt er að afhenda sjúkratryggingastofnuninni ársreikninga samkvæmt ákvæðinu hafa því svigrúm yfir rekstrarárið 2027 til að undirbúa skil og gerð ársreiknings.
Að lokum eru lagðar til fáeinar málfarsbreytingar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað orðanna „þjónustu sjúkrabifreiðar“ í f-lið 12. gr. komi: veitta þjónustu sjúkrabifreiðar á vettvangi.
2. Við a-lið 22. gr.
a. Við 1. málsl. bætist: og tekur mið af ákvæðum þeirra samninga sem lágu að baki fyrir samningsleysið.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að taka mið af verðlagsákvæðum þeirra samninga sem áður giltu, hafi samningar kveðið á um slík ákvæði, að hluta eða öllu leyti.
3. 23. gr. orðist svo:
Á eftir 38. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 38. gr. a og 38. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:
a. (38. gr. a.)
Greiðslur á grundvelli fjármögnunarlíkana.
b. (38. gr. b.)
Eftirlit með kostnaði sjúkratryggingastofnunarinnar vegna aðila sem eru ekki í samningssambandi við stofnunina.
Sjúkratryggingastofnuninni er við slíkt eftirlit og eftirfylgni þess heimilt, eftir því sem við á, að beita úrræðum 45., 46. og 48. gr. Leiði eftirlit í ljós að athafnir heilbrigðisstarfsmanns samræmast ekki eðlilegum og viðurkenndum starfsháttum er sjúkratryggingastofnuninni m.a. heimilt að beina fyrirmælum um breytta framkvæmd til viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns. Starfi viðkomandi hjá stofnun á vegum hins opinbera skal sjúkratryggingastofnunin jafnframt upplýsa viðeigandi forstöðumann.
Leiði brot gegn reglum eða fyrirmælum um þjónustu eða afhendingu lyfja eða annarra vara til ofgreiðslna sjúkratryggingastofnunarinnar er stofnuninni heimilt að krefjast endurgreiðslu úr hendi viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns eða þjónustuveitanda. Sé ekki orðið við kröfu um endurgreiðslu eða viðkomandi brýtur ítrekað gegn reglum og öðrum fyrirmælum er sjúkratryggingastofnuninni heimilt að stöðva greiðslur til hans.
Ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar á grundvelli 3. mgr. eru kæranlegar til ráðuneytisins.
4. 24. gr. falli brott.
5. Við 26. gr.
a. 1. og 2. málsl. a-liðar falli brott.
b. Inngangsmálsliður b-liðar orðist svo: Á eftir 5. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi.
c. C-liður falli brott.
6. Við 30. gr.
a. Orðin „þá sem eru á“ í a-lið falli brott.
b. Við 1. efnismgr. b-liðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sjúkratryggingastofnuninni er heimilt að víkja frá þessu ef starfsemi er lítil að umsvifum.
c. Á eftir orðunum „átt við“ í 2. málsl. 2. efnismgr. b-liðar komi: upplýsingar.
d. Við 2. efnismgr. b-liðar bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Við öflun upplýsinga skal stofnunin gæta meðalhófs og upplýsa samningsaðila um ástæðu hennar og nauðsyn.
7. Við 36. gr.
a. Í stað „1. apríl 2026“ í 2. mgr. komi: 1. júní 2026.
b. Á eftir 2. mgr. komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. öðlast b-liður 23. gr. gildi 1. janúar 2027.
c. 3. mgr. falli brott.
d. Í stað „1. janúar 2027“ í 1. málsl. 4. mgr. komi: 1. janúar 2028.
Alþingi, 20. apríl 2026.
| Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. |
Grétar Mar Jónsson. | Ragna Sigurðardóttir. | |
| Rúnar Sigurjónsson. | Sandra Sigurðardóttir. | ||