Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1136  —  320. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá BHM, Byggðastofnun, Háskólafélagi Suðurlands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Hraðinu – miðstöð nýsköpunar, ICEARMA – félagi sérfræðinga í rannsóknaþjónustu, Landspítala, Langanesbyggð, Rannís – rannsóknamiðstöð Íslands, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtökum þekkingarsetra, Samtökum verslunar og þjónustu og Vestfjarðastofu.
    Nefndinni bárust 20 umsagnir auk minnisblaðs frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu eru lögð fram ný heildarlög um opinbera samkeppnissjóði á sviði vísinda og nýsköpunar ásamt því að hlutverk Rannís í stuðningsumhverfi þekkingarsamfélagsins er skilgreint. Markmið frumvarpsins er að einfalda sjóðaumhverfi vísinda og nýsköpunar, fækka sjóðum og minnka umsýslukostnað og þannig samræma stjórnsýslu eins og unnt er. Að því virtu er lagt til að fjórir sjóðir taki við hlutverki sjö eldri sjóða og verði hinir nýju sjóðir Rannsóknasjóður, Nýsköpunarsjóður, Áherslusjóður og Innviðasjóður. Frumvarpinu er einnig ætlað að aðgreina sjóði til grunnrannsókna og grunnnýsköpunar, sem og að lögfesta árangurs- og áhrifamat á sjóðunum til að tryggja árangur.
    Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir gagnvart frumvarpinu og lýstu stuðningi við meginmarkmið þess. Jafnframt var heildarendurskoðun laganna og einföldun sjóðaumhverfis fagnað. Sérstaklega var tekið undir markmið um einföldun umsýslu, aukna yfirsýn og skilvirkni, samræmingu ferla og skýrari þjónustuleiðir fyrir umsækjendur sem stuðla að auknum samfélagslegum áhrifum vísindastarfs. Í umsögn Landspítala er sérstaklega tekið undir markmið um að byggja upp alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi rannsókna og nýsköpunar. Þá telur Rannís að endurskoðun laganna endurspegli betur þá breidd sem felst í starfsemi þeirra. Í umsögnum aðila frá landsbyggðinni, m.a. frá samtökum sveitarfélaga, þekkingar- og nýsköpunarsetrum sem og Byggðastofnun, komu fram ábendingar um að frumvarpið þyrfti að tryggja betur byggðasjónarmið og leggur meiri hlutinn til breytingar þess efnis. Þá gerðu Samtök atvinnulífsins athugasemdir við skipun fulltrúa í stjórn Nýsköpunarsjóðs. Leggur meiri hlutinn jafnframt til breytingar hvað það varðar. Um breytingartillögur meiri hlutans vísast til umfjöllunar í kafla um breytingartillögur.
    Meiri hlutinn tekur undir mat umsagnaraðila og telur að heildarendurskoðun laganna sé mikilvæg og tímabær til að ná fram þeim markmiðum sem að er stefnt, svo sem um einfaldara sjóðaumhverfi fyrir umsækjendur og bætta yfirsýn stjórnvalda yfir styrkveitingar til að opinbert fé nýtist betur fyrir íslenskt samfélag. Þá telur meiri hlutinn til bóta að hlutverk Rannís sé skilgreint svo að það endurspegli betur þá starfsemi sem þar fer fram.

Breytingartillögur.
Byggðasjónarmið og Lóa – verkefnastyrkir (26. og 27. gr.).
    Samhliða stofnun nýrra sjóða er lagt til að þau lög sem giltu um eldri sjóði, svo sem lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, og lög um Tækniþróunarsjóð, nr. 26/2021, falli brott. Ásamt því er lagt til að ákvæði í lögum um opinberan stuðning við nýsköpun, nr. 25/2021, sem kveða á um Lóu – verkefnastyrki verði fellt brott og munu styrkirnir sem tilheyrðu Lóu falla til nýs Áherslusjóðs. Ætlun Lóu – verkefnastyrkja er að stuðla sérstaklega að eflingu nýsköpunar á landsbyggðinni.
    Í umsögnum samtaka sveitarfélaga, þekkingar- og nýsköpunarsetra og umsögn Byggðastofnunar eru gerðar athugasemdir við að frumvarpið taki ekki nægilegt tillit til byggðasjónarmiða. Bent er á að hætta sé á því að með sameiningu sjóða glatist stuðningur við nýsköpun og rannsóknir á landsbyggðinni og dragi þannig úr samkeppnishæfni landshluta utan höfuðborgarsvæðisins. Sérstaklega eru gerðar athugasemdir við að Lóa – verkefnastyrkir verði lagðir niður og sameinaðir Áherslusjóði án þess að tryggð verði skýr markmið um áframhaldandi stuðning við landsbyggðina. Þá komu fram ábendingar um að frumvarpið tryggði ekki þátttöku fulltrúa frá landsbyggðinni í stjórnum og fagráðum hinna nýju sjóða, sem stuðlar enn frekar að ójafnræði milli landshluta. Því er í tilteknum umsögnum framangreindra aðila lagt til að Lóa – verkefnastyrkir haldi áfram sem sértækur sjóður, eða lögbundinn undirsjóður nýs kerfis.
    Í minnisblaði frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, dags. 9. apríl 2026, kemur fram að ráðuneytið leggi áherslu á að úthlutanir úr sjóðunum sem falla undir frumvarpið séu byggðar á gæðum umsókna og verkefna en ekki öðrum sjónarmiðum. Þá tekur ráðuneytið fram að það leggist ekki gegn því að fallið verði frá sameiningu Lóu – verkefnastyrkja í Áherslusjóð. Hyggst það í framhaldinu gera áhrifamat á styrkveitingum úr Lóu til þess að finna þeim farveg til framtíðar.
    Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram hafa komið í framangreindum umsögnum. Með einföldun sjóðaumhverfis og auknu bolmagni samkeppnissjóða á sviði vísinda og nýsköpunar verður þó að huga að sérstöðu Lóu – verkefnastyrkja með tilliti til hlutverks þeirra við að styðja eflingu byggða og landshluta. Með vísan í ábendingar ráðuneytisins og sjónarmið framangreindra umsagnaraðila leggur meiri hlutinn því til að Lóa – verkefnastyrkir haldi áfram sem sértækur sjóður og stuðli þannig að áframhaldandi nýsköpun, sérstaklega á landsbyggðinni.
    Hvað varðar mat á fjárhagslegum áhrifum af því að halda Lóu – verkefnastyrkjum áfram óbreyttum bendir meiri hlutinn á það sem fram kemur í greinargerð um að frumvarpið muni leiða til hagræðis í rekstri samkeppnissjóða þar sem um færri sjóði er að ræða, með færri stjórnir og fagráð, þó að ekki sé gert ráð fyrir beinum fjárhagsáhrifum á ríkissjóð. Þá greiðist allur umsýslukostnaður úr sjóðunum sjálfum. Að því virtu telur meiri hlutinn að fjármögnun Lóu hafi takmörkuð áhrif hvað varðar það markmið frumvarpsins að auka hagræði í rekstri samkeppnissjóða en tryggi betur sérstöðu landsbyggðarinnar.

Stjórn Nýsköpunarsjóðs (10. gr.).
    Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um skipun fulltrúa í stjórn Nýsköpunarsjóðs. Með sjóðnum er lögð áhersla á nýsköpun og hagnýtingu þekkingar með það að markmiði að styrkja verkefni sem hafa ávinning fyrir íslenskt atvinnulíf. Með 10. gr. er því lagt til að ráðherra skipi fimm einstaklinga í stjórn sjóðsins, m.a. einn fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins.
    Í umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka verslunar og þjónustu eru gerðar athugasemdir við breytingar ákvæðisins á tilnefningu fulltrúa atvinnulífsins í stjórn sjóðsins. Benda Samtök atvinnulífsins á að skv. 3. gr. laga um Tækniþróunarsjóð, sem fella á brott, hafi Samtök atvinnulífsins, auk Samtaka iðnaðarins, skipað tvo stjórnarmenn í stjórn Tækniþróunarsjóðs. Með 10. gr. frumvarpsins missi samtökin því aðila í stjórn. Sem málsvarar íslensks atvinnulífs benda samtökin á að nauðsynlegt sé að í stjórn Nýsköpunarsjóðs sitji jafnframt tveir fulltrúar atvinnulífsins til að tryggja að starfsemi og áherslur sjóðsins endurspegli þarfir atvinnulífsins í heild.
    Í umræddu minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis kemur fram að ráðuneytið leggist ekki gegn því að Samtök atvinnulífsins tilnefni einn aðila í stjórn. Ráðuneytið leggur þó áherslu á að við skipan fulltrúa í stjórn sé horft til þekkingar á nýsköpunarstarfi og faglegrar þekkingar og lagt er til að fjöldi fulltrúa í stjórn verði ekki fleiri en fimm í þágu skilvirkni og lægri umsýslukostnaðar.
    Meiri hlutinn hefur skilning á þeim ábendingum sem fram koma í umsögn Samtaka atvinnulífsins og undirstrikar mikilvægi þess að Nýsköpunarsjóður stuðli að langtímaávinningi fyrir atvinnulífið í heild í samræmi við markmið sjóðsins. Meiri hlutinn bendir einnig á að í umræddri 3. gr. laga um Tækniþróunarsjóð hafi Vísinda- og tækniráð, sem nú er Vísinda- og nýsköpunarráð, sem og ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála, tilnefnt fulltrúa í stjórn Tækniþróunarsjóðs, auk Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Forverar Nýsköpunarsjóðsins Kríu, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Kría, sprota- og nýsköpunarsjóður, áttu því hvorugir fulltrúa í stjórn samkvæmt ákvæðinu. Þá þykir meiri hlutanum eðlilegt að Samtök atvinnulífsins, sem hafi áður tilnefnt tvo fulltrúa í stjórn Tækniþróunarsjóðs, geti áfram tilnefnt einn fulltrúa og missi þar með ekki aðila í stjórn með breytingum frumvarpsins. Að því virtu og í samræmi við ábendingar ráðuneytisins leggur meiri hlutinn til breytingar þess efnis að Samtök atvinnulífsins tilnefni einn fulltrúa í stjórn sjóðsins í stað Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Stjórn sjóðsins verði þannig áfram skipuð fimm fulltrúum þar sem áhersla er á nýsköpunarstarf og faglega þekkingu.
    Að lokum eru lagðar til fáeinar málfarsbreytingar.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 1. mgr. 9. gr.
                  a.      Í stað orðanna „styður við“ í 2. málsl. komi: styrkir.
                  b.      Í stað orðanna „styður einnig við“ í 3. málsl. komi: styrkir einnig.
     2.      Í stað orðanna „Nýsköpunarsjóðsins Kríu“ í 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. komi: Samtaka atvinnulífsins.
     3.      Í stað orðsins „úr“ í 3. mgr. 13. gr. komi: frá.
     4.      Orðin „og Lóu – verkefnastyrkja“ í 3. mgr. 26. gr. falli brott.
     5.      27. gr. falli brott.

Alþingi, 28. apríl 2026.

Víðir Reynisson,
form.
Guðmundur Ari Sigurjónsson,
frsm.
Grímur Grímsson.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Sandra Sigurðardóttir.