Ferill 58. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1173  —  58. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá embætti landlæknis og Lífsbrú, miðstöð sjálfsvígsforvarna.
    Nefndinni bárust tvær umsagnir auk minnisblaða frá heilbrigðisráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Markmið tillögunnar er að Alþingi feli ríkisstjórninni að styðja rannsóknarverkefni á vegum Lífsbrúar um orsakaferli sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana, tryggja aðgengi að nauðsynlegum gögnum og leggja þannig grunn að markvissum forvörnum, snemmtækri íhlutun og bættri stefnumótun á sviði lýðheilsu.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Tillagan var fyrst lögð fram á 154. löggjafarþingi ( 17. mál) en hefur síðan verið endurflutt á síðari þingum og er nú lögð fram í fjórða sinn. Við þinglega meðferð málsins kom fram að veruleg þróun hefur orðið í málaflokknum þar sem á vegum Lífsbrúar, miðstöðvar sjálfsvígsforvarna, hjá embætti landlæknis er þegar hafin vinna að því markmiði sem tillagan kveður á um. Tillagan endurspeglar því raunhæfa og mikilvæga framvindu í málaflokknum og hefur jafnframt notið víðtæks þverpólitísks stuðnings.
    Hingað til hafa forvarnir hér á landi að verulegu leyti byggst á erlendum rannsóknum á áhættuþáttum. Meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á að skortur á innlendum gögnum hafi takmarkað möguleika stjórnvalda til að grípa til markvissra aðgerða sem taka mið af sérstöðu íslensks samfélags. Með þeirri rannsókn sem hér um ræðir skapist í fyrsta sinn raunhæfur grundvöllur fyrir gagnadrifnar aðgerðir á þessu sviði.
    Sú rannsókn sem nú er í gangi á vegum Lífsbrúar er víðtæk og nær yfir tímabilið 2000– 2025. Hún tengir saman upplýsingar um heilsufar, lyfjanotkun, félagslegar aðstæður, kyn, aldur og aðrar lýðfræðilegar breytur úr fjölmörgum gagnagrunnum, þar á meðal dánarmeinaskrá, heilbrigðisgögnum Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, SÁÁ, Vogs, heilsugæsluumdæma, lyfjagagnagrunni embættis landlæknis og gögnum frá Hagstofu, Barna- og fjölskyldustofu og Fangelsismálastofnun. Samstarfsaðilar rannsóknarinnar eru Landspítali, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri, SÁÁ og Sjúkrahúsið á Akureyri. Með því að greina samverkandi áhættuþætti í aðdraganda hvers dauðsfalls verður unnt að öðlast betri skilning á orsakaferlum og þróa markvissari úrræði fyrir einstaklinga í áhættuhópum.
    Við umfjöllun nefndarinnar um málið var nefndinni jafnframt gerð grein fyrir stöðu fjármögnunar rannsóknarinnar. Hún hlaut styrk frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti árið 2024 að fjárhæð 35 millj. kr. en sú fjárhæð nemur aðeins 59% af áætluðum heildarkostnaði verkefnisins. Rannsóknin er áætluð til ársins 2028 og krefst áframhaldandi fjárframlags til að ljúka gagnasöfnun og úrvinnslu.
    Í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins frá 29. apríl 2026 kemur fram að ráðuneytið hafi styrkt verkefnið Rannsóknarmiðstöð sjálfsvíga um 80.000.000 kr., af þeirri fjárhæð hafi 53.600.000 kr. verið greiddar út við undirritun samnings en 26.400.000 kr. verði greiddar við skil á lokaskýrslu. Styrkþegar hafi skilað framvinduskýrslu 27. febrúar 2026 og samkvæmt henni séu áætluð verklok í september 2027. Þá kemur fram að ráðuneytið hafi ekki undir höndum upplýsingar um viðbótarfjárþörf vegna seinni hluta rannsóknarinnar, umfram þau gögn sem varði þann samning sem gerður var um rannsóknarmiðstöð sjálfsvíga. Ekki hafi verið gert ráð fyrir frekari fjárframlögum til verkefnisins í fjárlögum 2026.
    Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins frá 30. apríl 2026 kemur fram að 44 millj. kr. af þeim 80 millj. kr. sem verkefnið Rannsóknarmiðstöð sjálfsvíga hafi fengið hafi komið í hlut þeirrar rannsóknar sem þingsályktunartillagan snýr að, þ.e. um orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana. Í minnisblaðinu kemur fram að til þess að markmið verkefnisins geti náðst með því að ráða einn sérfræðing í fullt starf á sviði rannsókna og gagnavinnslu nemi sá kostnaður um 18 millj. kr. á ári með launatengdum gjöldum og þá alls 36 millj. kr. fyrir tveggja ára tímabil. Einnig kæmi til greina að ráða tvo aðila til verksins og reyna að ljúka því á 12 mánuðum fyrir sömu fjárhæð. Þá kemur enn fremur fram að frá því að fjárhagsáætlun verkefnisins var unnin á vormánuðum 2024 hafi laun hækkað um a.m.k. 3,5% hér á landi. Stefnt væri að því að ljúka verkefninu fyrir nálægt 80% af kostnaðaráætlun með því að gæta fyllsta aðhalds á öllum sviðum við vinnslu verkefnisins.
    Meiri hluti nefndarinnar telur brýnt að tryggt verði fullnægjandi og fyrirsjáanlegt fjármagn svo að rannsóknin geti skilað niðurstöðum sem nýtast í stefnumótun og sértækum sjálfsvígsforvörnum.
    Þær umsagnir sem bárust nefndinni voru samhljóða og jákvæðar. Embætti landlæknis lýsir stuðningi við tillöguna og leggur áherslu á mikilvægi þess að efla innlenda þekkingu á áhættuþáttum sjálfsvíga. Högni Óskarsson geðlæknir lýsir einnig stuðningi við efni tillögunnar og gerir ekki athugasemdir við einstök efnisatriði hennar. Meiri hluti nefndarinnar tekur undir þau sjónarmið og telur að rannsóknin sé ekki markmið í sjálfu sér heldur mikilvægt tæki til að bæta þjónustu, efla forvarnir og styrkja snemmtæka íhlutun sem byggir á íslenskum gögnum.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

    Sigríður Á. Andersen var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
    Tómas Þór Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 6. maí 2026.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form.
Ingibjörg Isaksen, frsm. Grétar Mar Jónsson.
Rósa Guðbjartsdóttir. Sigríður Á. Andersen.