Ferill 351. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1179  —  351. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.


     1.      Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
    Í eftirfarandi töflu má sjá heildarkostnað atvinnuvegaráðuneytisins og stofnana þess vegna loftslagsmála. Ekki bárust svör frá Fiskistofu.

Stofnun 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Atvinnuvegaráðuneytið 196.800 - 397.622 831.168 1.218.365 35.762.295 83.811.169 68.523.083 73.221.624
Samkeppniseftirlitið - - - - - - - - -
Neytendastofa - - - - - - 120.000 120.000 171.107
Faggildingasvið - - - - - - 40.000 231.000 308.000
Ferðamálastofa 362.500 522.300 578.954 630.000 884.840 1.260.980 968.330 1.097.000 1.050.911
Hafrannsóknastofnun - - - 846.400 3.202.450 4.007.592 4.195.221 3.545.200 3.249.423
Matvælastofnun - - - - - - - - -

     2.      Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
                  a.      skattstyrkjum,
                  b.      aðgerðum í samgöngum,
                  c.      aðgerðum í landbúnaði,
                  d.      öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.

    a. Engir skattstyrkir hafa verið veittir af atvinnuvegaráðuneytinu eða stofnunum þess.
    b. Aðgerðir í samgöngum:

Stofnun

2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Atvinnuvegaráðuneytið 196.800 - 397.622 831.168 1.218.365 1.058.295 1.156.307 1.273.083 1.601.687
Neytendastofa - - - - - - 120.000 120.000 171.107
Faggildingasvið - - - - - - 40.000 231.000 308.000
Ferðamálastofa 362.500 487.500 544.154 630.000 846.560 1.178.500 916.130 1.037.500 948.251
Hafrannsóknastofnun 846.400 3.202.450 2.829.650 3.302.707 3.152.907 3.100.023

    c. Aðgerðir í landbúnaði:

Stofnun                     2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Atvinnuvegaráðuneytið - - - - - 34.704.000 81.904.000 67.250.000 71.619.937

    d.    Aðrar beinar aðgerðir, svo sem styrkveitingar og kaup á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka:

Stofnun           2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Atvinnuvegaráðuneytið - - - - - - 750.662 - -
Ferðamálastofa - 34.800 34.800 38.280 82.480 52.200 59.500 102.660 -
Hafrannsóknastofnun 1.177.942 892.514 301.293 149.400

     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
    Í tilfelli rannsóknar og greiningar á metanlosun búfjár liggur fyrir grein í Icelandic Agricultural Science, „Measurements of methane emissions in Icelandic dairy herds, evaluation of methane prediction models and application of results to update calculation methods for the National Inventory in Iceland“. Markmið fjárveitingar var að efla vísindi á sviði fóðrunar í landbúnaði og því er árangur af ráðstöfun fjármagnsins í formi greinar á þessum tímapunkti. Ekki liggur fyrir hver áhrif af útgáfu greinarinnar kunna að verða en ætla má að samdráttur í losun metans frá jórturdýrum vegna bættrar fóðrunar geti leitt af niðurstöðunum.
    Unnið er úr umsóknum úr styrkjakalli til nákvæmnisdreifingar á áburði. Fyrirhugað er að styrkveitingum verði forgangsraðað m.t.t. áætlaðs samdráttar gróðurhúsalofttegunda á hverja styrkkrónu. Ráðgert er að styrkveiting fari fram á vormánuðum 2026 og mun Loftslags- og orkusjóður mæla árangur fjárveitinga í samræmi við hlutverk sjóðsins.
    Verkefnisstjórn Loftslagsvæns landbúnaðar skilar stöðuskýrslu til ráðuneytisins um árangur af verkefninu þar sem farið er yfir helstu áfanga á árinu.
    Almennt heldur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Umhverfis- og orkustofnun utan um árangur af loftslagsaðgerðum og svarar þessum hluta fyrirspurnarinnar fyrir hönd atvinnuvegaráðuneytisins.

     4.      Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.

Viðtakandi

Skýring á greiðslu

Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir
Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Anna Margrét Jónsdóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Ágúst Jensson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Bollastaðir ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Bustarfellsbúið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Engihlíð ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Félagsbúið Sandfellshaga Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Foldvegur ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Garður 681 ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Guðfinna Lára Hávarðardóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Guðný Helga Björnsdóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Guðrún Sigurjónsdóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Gunnar Jónsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Göngustaðir ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Hafrafellstunga ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Halla Bjarnadóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Helgi Ármannsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Helgi Benediktsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Hellur ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Hlíðarból ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Hokur ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Hríshólsbúið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Jóhannes H. Ríkharðsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Jóhannes Sveinbjörnsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Jónatan Úlfarsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Kári Ottósson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Keldudalur ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Kjartan Lárusson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Lambhagabúið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Ragnar Finnur Sigurðsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Samúel Unnsteinn Eyjólfsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sigríður Bjarnadóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sigrún Bjarnadóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sigurður Max Jónsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sigurður Þór Guðmundsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Smiðjugrund ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Spóastaðir ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Steinn Leó Rögnvaldsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Stóra-Ármót ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sturla Þormóðsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Svartárkotsbúið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sveitabær ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Sveitakarlinn ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Torfustaðabúið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Tún í Flóa ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Ylfélagið ehf. Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Þormar Ellert Jóhannsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Ævar Hreinsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Helga Berglind Hreinsdóttir Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Höskuldur Gunnarsson Þátttaka í Loftslagsvænum landbúnaði
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Framkvæmd Loftslagsvæns landbúnaðar
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Endurskoðun á aðgerðum í landbúnaði í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum
Landbúnaðarháskóli Íslands Rannsóknir á metanlosun frá iðragerjun nautgripa
Stefna ehf. Vinna vegna loftslagsbókhalds
Landgræðslan og Skógræktin (nú Land og Skógur) Bætt landnotkun sveitarfélaga
Landgræðslan (nú Land og skógur) Umbætur í mati á losun gróðurhúsalofttegunda frá ræktarlandi
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. Árangursmat á loftslagsvænum landbúnaði
Efla hf. Landbúnaðarland – flokkun á landsvísu
Efla hf. Söfnunarkerfi dýraleifa á landsvísu
Fjársýsla ríkisins Útboð – söfnunarkerfi dýraleifa
Land og skógur Skráning beitarsvæðis í rafræna gæðahandbók
Svarthamar Vestur ehf. Undirbúningur og framkvæmd ráðstefnu um auðgandi landbúnað 2025
Katla Carbon Kolefnisjöfnun