Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1199 — 348. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.
1. Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
Í eftirfarandi töflu má sjá yfirlit yfir fjármuni sem forsætisráðuneytið og þær undirstofnanir sem svör bárust frá hafa veitt til loftslagsmála á umræddu tímabili. Fjárhæðir eru í þús. kr.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | |
| Forsætisráðuneytið | 380 | 339 | 1.565 | 1.861 | 2.162 | 2.649 | 2.923 | 2.792 | 2.936 |
| Seðlabanki Íslands | 3.013 | 6.795 | 8.236 | 9.124 | 13.573 | 13.149 | 14.200 | ||
| Hagstofa Íslands | 1.377 | 1.537 | 1.895 | 1.776 | 5.586 | 3.931 | 4.747 | 5.170 | 4.396 |
| Óbyggðanefnd | 124 | 144 | 247 | 120 |
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
a. skattstyrkjum,
b. aðgerðum í samgöngum,
c. aðgerðum í landbúnaði,
d. öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
Í eftirfarandi töflu má sjá til hvaða verkefna fjármunir hafa runnið á tímabilinu. Fjárhæðir eru í þús. kr.
| 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | |
| Forsætisráðuneytið | |||||||||
| Samgöngustyrkir | 380 | 339 | 1.423 | 1.767 | 2.162 | 2.583 | 2.510 | 2.585 | 2.744 |
| Kolefnisbinding | 142 | 94 | 66 | 413 | 207 | 192 | |||
| Seðlabanki Íslands | |||||||||
| Samgöngustyrkir | 3.013 | 6.795 | 8.236 | 9.124 | 11.030 | 11.849 | 13.075 | ||
| Kolefnisbinding | 2.543 | 1.300 | 1.125 | ||||||
| Hagstofa Íslands | |||||||||
| Samgöngustyrkir | 1.377 | 1.537 | 1.895 | 1.776 | 5.586 | 3.812 | 4.607 | 5.170 | 4.396 |
| Kolefnisbinding | 119 | 140 | |||||||
| Óbyggðanefnd | |||||||||
| Samgöngustyrkir | 124 | 144 | 247 | 120 |
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið heldur utan um árangur af loftslagsaðgerðum og svarar þessum hluta fyrirspurnarinnar fyrir hönd forsætisráðuneytisins.
Búið er að binda 2.769,2 tonn af CO2 í samstarfi Seðlabankans og Lands og skógar.
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
Greiðslur forsætisráðuneytisins vegna kolefnisbindingar fyrir tímabilið 2019–2022 fóru til Kolviðar en fyrir tímabilið 2023–2025 til Kötlu Carbon. Um er að ræða kaup á kolefniseiningum.
Greiðslur Seðlabanka Íslands vegna kolefnisbindingar fóru til Lands og skógar. Fjármunirnir voru nýttir til að endurheimta votlendi, græða upp land og byggja upp birkiskóga.
Greiðslur Hagstofu Íslands vegna kolefnisbindingar fóru til Kolviðar.