Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 5 — 5. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
Frá innviðaráðherra.
I. KAFLI
Almenn ákvæði um sveitarfélög.
1. gr.
Sjálfstjórn sveitarfélaga.
Með stjórn sveitarfélaga fara sveitarstjórnir sem kjörnar eru lýðræðislegri kosningu af íbúum þeirra samkvæmt kosningalögum.
Hver maður telst íbúi sveitarfélags þar sem hann á lögheimili.
Sveitarfélög eru lögaðilar.
2. gr.
Markmið og forsendur.
Lög þessi byggjast á þeim forsendum að:
1. sveitarfélög séu sjálfstæð stjórnvöld sem er stjórnað af lýðræðislega kjörnum sveitarstjórnum í umboði sveitarfélagsins,
2. skipulag og starfsaðstæður sveitarfélaga séu þannig að þau geti sjálf borið ábyrgð á framkvæmd verkefna sem þeim er falið að sinna,
3. sveitarfélög geti haft samvinnu sín á milli um starfrækslu þeirra verkefna sem þau telja hagkvæmara að leysa með þeim hætti,
4. afskipti annarra stjórnvalda af málefnum sveitarfélaga taki ávallt mið af sjálfstjórn sveitarfélaga samkvæmt stjórnarskrá og sáttmála Evrópuráðsins um sjálfstjórn sveitarfélaga,
5. sveitarfélög hafi sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrám sem þeim er heimilt að setja.
3. gr.
Almennar skyldur sveitarfélaga.
Sveitarfélögum er skylt að annast þau verkefni sem þeim eru falin í lögum. Ráðherra gefur út leiðbeinandi yfirlit um lögmælt verkefni sveitarfélaga, flokkuð eftir því hvort verkefnin eru skyldubundin eða ekki.
Sveitarfélög geta tekið að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þeirra, enda sé það ekki falið öðrum úrlausnar að lögum.
4. gr.
Yfirstjórn sveitarstjórnarmála.
Ráðherra sveitarstjórnarmála skal gæta að og virða sjálfstjórn sveitarfélaganna, verkefni þeirra og fjárhag.
Engu málefni sem varðar sérstaklega hagsmuni sveitarfélags skal ráðið til lykta án umfjöllunar sveitarstjórnarinnar.
Ráðherra leggur fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögu til þingsályktunar um stefnu ríkisins um málefni sveitarfélaga ásamt aðgerðaáætlun. Í henni skal mörkuð stefna fyrir næstu fimmtán ár og jafnframt tilgreindar sérstaklega þær aðgerðir sem ráðast skal í á fyrstu fimm árum gildistíma hennar. Ef forsendur stefnunnar breytast eða ef tilefni er til að öðru leyti leggur ráðherra fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um breytingu á stefnunni.
Við gerð tillagna að stefnumótandi áætlun og aðgerðaáætlun skv. 4. mgr. skal haft samráð við ráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög. Þá skal haft samráð við hagsmunaaðila eftir þörfum. Horfa skal einnig til þeirrar stefnumörkunar sem fram kemur í byggðaáætlun og sóknaráætlunum. Loks skal almenningi gefinn kostur á að koma að sjónarmiðum sínum og athugasemdum í opnu samráðsferli.
Ráðherra skal í reglugerð setja nánari ákvæði um gerð stefnumótandi áætlunar og aðgerðaáætlunar, sbr. 4. og 5. mgr.
5. gr.
Staðarmörk sveitarfélaga.
Óheimilt er að breyta mörkum sveitarfélaga nema með lögum.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur ráðherra breytt mörkum sveitarfélaga í tengslum við sameiningu þeirra eða til staðfestingar á samkomulagi milli sveitarfélaga. Birta skal staðfestingu ráðherra á breytingum staðarmarka sveitarfélaga í Stjórnartíðindum.
Réttur sveitarfélaga til ákvarðana eða umsagna um nýtingu sjávarbotns eða sjávar innan íslenskrar lögsögu en utan marka sveitarfélags fer eftir ákvæðum sérlaga hverju sinni.
6. gr.
Heiti sveitarfélags.
Ekki má breyta heiti sveitarfélags eða gefa nýju sveitarfélagi heiti nema með staðfestingu ráðherra. Þegar nýtt heiti sveitarfélags verið ákveðið skal samþykkt um stjórn sveitarfélagsins breytt til samræmis og tekur nýtt heiti gildi við gildistöku hennar.
7. gr.
Byggðarmerki.
Viðkomandi ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um skráningu byggðarmerkja, m.a. varðandi umsóknir og meðferð þeirra, skilyrði fyrir skráningu, ógildingu, birtingu og gjöld fyrir umsóknir og vottorð úr byggðarmerkjaskrá.
8. gr.
Aukin sjálfbærni sveitarfélaga.
Ef íbúafjöldi sveitarfélags er undir 1.000 við almennar sveitarstjórnarkosningar skal sveitarstjórn þess, innan árs frá þeim sveitarstjórnarkosningum, leitast við að ná markmiðum skv. 1. mgr. með því að:
a. hefja formlegar sameiningarviðræður á grundvelli 134. gr. eða
b. vinna álit um stöðu sveitarfélagsins, getu þess til að sinna lögbundnum verkefnum og um þau tækifæri sem felast í mögulegum kostum sameiningar sveitarfélagsins við annað eða önnur sveitarfélög.
Ráðherra setur með auglýsingu leiðbeiningar um þau atriði sem fram þurfa að koma í áliti skv. b-lið 2. mgr. en þar skal m.a. fjallað um fjárhagslega og félagslega þætti sveitarfélagsins, íbúaþróun, þjónustu sveitarfélagsins og aðrar samfélagslegar aðstæður. Ráðherra getur að ósk sveitarfélagsins veitt því lengri tíma til afgreiðslu álitsins ef ástæða þykir til.
Álit skv. b-lið 2. mgr. skal sent ráðherra til umsagnar og síðan kynnt íbúum sveitarfélagsins ásamt umsögn ráðherra. Að því loknu skal sveitarstjórn taka ákvörðun um hvort hefja eigi sameiningarviðræður á grundvelli 134. gr. og hafa um það tvær umræður skv. 1. mgr. 19. gr.
Ákveði sveitarstjórn að hefja ekki sameiningarviðræður við önnur sveitarfélög skv. 4. mgr. geta að lágmarki 10% kosningarbærra íbúa viðkomandi sveitarfélags samkvæmt kosningalögum farið fram á að það verði gert með söfnun undirskrifta skv. 3. og 4. mgr. 121. gr. Slík krafa skal koma fram innan þriggja mánaða frá ákvörðun sveitarstjórnar og beinast að nágrannasveitarfélögum.
Þegar krafa um sameiningarviðræður skv. 5. mgr. berst nágrannasveitarfélagi skal sveitarstjórn þess taka ákvörðun um hvort viðræður verði hafnar. Ef beiðninni er synjað geta 10% kosningarbærra íbúa þess sveitarfélags farið fram á það með sama hætti og sama fresti og í 5. mgr. að viðræður verði hafnar. Verði sú krafa samþykkt skulu sveitarfélögin hefja sameiningarviðræður sín á milli skv. 134. gr.
Ef íbúafjöldi sveitarfélags er yfir 1.000 við almennar sveitarstjórnarkosningar geta 10% kosningarbærra íbúa sveitarfélagsins samkvæmt kosningalögum farið fram á með söfnun undirskrifta skv. 3. og 4. mgr. 121. gr. að sveitarfélagið vinni álit um stöðu þess innan árs frá þeim sveitarstjórnarkosningum og skal þá fara um álitið skv. b-lið 2. mgr. og 3.–6. mgr.
II. KAFLI
Um sveitarstjórn.
9. gr.
Hlutverk sveitarstjórnar.
Starfsemi sveitarfélags fer fram á einu stjórnsýslustigi leiði annað ekki með beinum hætti af lögum.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélags.
Sveitarstjórn getur ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði sveitarfélagið.
10. gr.
Samþykkt um stjórn sveitarfélags.
Ráðherra semur fyrirmynd að samþykkt skv. 1. mgr. og birtir hana í Stjórnartíðindum.
11. gr.
Heiti sveitarstjórnar o.fl.
Reykjavík er höfuðborg Íslands. Í Reykjavíkurborg nefnist sveitarstjórnin borgarstjórn, byggðarráð nefnist borgarráð, framkvæmdastjóri nefnist borgarstjóri og oddviti nefnist forseti borgarstjórnar.
12. gr.
Fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn.
Fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn skal standa á oddatölu og vera innan þeirra marka sem hér segir:
1. Þar sem íbúar eru undir 2.000: 5–7 aðalfulltrúar.
2. Þar sem íbúar eru 2.000–9.999: 7–11 aðalfulltrúar.
3. Þar sem íbúar eru 10.000–49.999: 11–15 aðalfulltrúar.
4. Þar sem íbúar eru 50.000–99.999: 15–23 aðalfulltrúar.
5. Þar sem íbúar eru 100.000 eða fleiri: 23–31 aðalfulltrúi.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er ekki skylt að fækka eða fjölga aðalfulltrúum í sveitarstjórn fyrr en íbúatala samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefur verið hærri eða lægri en viðmiðunarmörkin í fjögur ár samfellt, talið frá áramótum fyrir almennar kosningar til sveitarstjórna.
13. gr.
Ný sveitarstjórn tekur til starfa.
Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórninni boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar átt jafn lengi setu í sveitarstjórninni fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein. Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
14. gr.
Kjör oddvita og varaoddvita.
Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meiri hluta þeirra sem eiga sæti í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði.
Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið í þriðja sinn en á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita, enda fari ekki um kosningu hans skv. 5. mgr.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags má ákveða að kjósa skuli fyrsta og annan varaoddvita til að gegna, í þeirri röð, störfum oddvita í forföllum hans. Skal kosning þeirra vera hlutfallskosning, enda sé ekki full samstaða um annað innan sveitarstjórnar.
Kjörtímabil oddvita og varaoddvita er hið sama og sveitarstjórnar nema sveitarstjórn ákveði annað. Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Sá fulltrúi sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn eða aldursforseti skv. 2. mgr. 13. gr., að undanskildum oddvita eða varaoddvita, skal stýra kosningu um vantraust oddvita eða varaoddvita.
Ef oddviti og varaoddviti eru forfallaðir, eða varafulltrúar sitja fyrir, felur oddviti öðrum sveitarstjórnarfulltrúa að undirbúa fund sveitarstjórnar og gegna oddvitastörfum til bráðabirgða.
III. KAFLI
Sveitarstjórnarfundir.
15. gr.
Skylda til að halda fundi.
Aukafundi skal halda þegar oddviti eða framkvæmdastjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess. Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur sólarhringum eftir að ósk þar um barst þeim sem boðar fund skv. 1. mgr. 16. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
16. gr.
Boðunarfrestur og auglýsing funda.
Heimilt er að víkja frá fresti skv. 1. mgr. við boðun aukafundar sveitarstjórnar ef á dagskrártillögu fundar eru ekki viðamikil mál og skal það rökstutt í fundarboði. Þó er heimilt að afgreiða mál á slíkum fundi ef samþykki allra fundarmanna liggur fyrir um slíka afgreiðslu. Fund skal þó aldrei boða með styttri fyrirvara en sólarhring.
Nánari fyrirmæli um boðun funda er unnt að setja í samþykkt um stjórn sveitarfélags, þ.m.t. um hvenær fundarboð telst hafa verið sent með sannanlegum hætti.
Fundarboði skal fylgja tillaga að dagskrá fundarins og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.
Íbúum sveitarfélags skal kunngert með opinberri auglýsingu hvar og hvenær sveitarstjórn heldur fundi. Einnig skal sveitarstjórn birta opinberlega innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarfulltrúa fundarboð og tillögu að dagskrá fundar, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi. Auglýsing á vef sveitarfélags telst fullnægjandi.
17. gr.
Opnir fundir.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélags séu viðstaddir.
18. gr.
Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
Mæla skal fyrir um heimild sveitarstjórnarfulltrúa til að taka þátt í fundi í gegnum fjarfundarbúnað í fundum sveitarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins í samþykkt um stjórn þess. Sveitarstjórnarfulltrúi sem tekur þátt í fundi með slíkum hætti skal vera staðsettur innan viðkomandi sveitarfélags eða vera í erindagjörðum á vegum þess. Sveitarstjórn er þó heimilt að ákveða að nefndarfulltrúum í fastanefndum eða ráðum sveitarfélagsins skv. 42. gr, sem hafa skráðan dvalarstað utan sveitarfélagsins á grundvelli laga um lögheimili og aðsetur, sé ávallt heimil þátttaka í fundi með fjarfundarbúnaði.
Tryggja skal jafna möguleika allra fundarmanna til að taka þátt í fundi og atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram, sbr. 1. mgr. 17. gr., og öryggi samskipta milli fundarmanna.
19. gr.
Tvær umræður í sveitarstjórn.
1. samþykkt um stjórn sveitarfélagsins skv. 10. gr.,
2. stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélags í heild eða meiri hluta þess,
3. tillögu um að kjósa samstarfsnefnd vegna sameiningar sveitarfélaga skv. 1. mgr. 134. gr.,
4. samþykktir og samninga um samvinnu við önnur sveitarfélög.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjármálastefnu skv. 69. gr., fjármálaáætlun skv. 70. gr. og fjárheimildir skv. 71. gr.
Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárheimildir.
20. gr.
Fundarstjórn og fundargerðir.
Ráðherra setur með auglýsingu leiðbeiningar um ritun fundargerða sveitarstjórnar, m.a. um hvað þar er skylt að bóka, um staðfestingu þeirra þegar að loknum fundi og skráningu og meðferð rafrænna fundargerða. Þar skal einnig setja nánari viðmið um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarfélagsins skv. 3.–4. mgr. 18. gr.
21. gr.
Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
a. maki aðila,
b. hafi verið maki aðila,
c. skyldur aðila í beinan legg
d. skyldur aðila að einum lið til hliðar,
e. mægður aðila í beinan legg,
f. mægður aðila að einum lið til hliðar,
g. tengdur aðila með sama hætti og mælt er fyrir um í c- til f-lið vegna ættleiðingar.
Starfsmaður sveitarfélags verður ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. og 2. mgr. ber sveitarstjórnarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélags að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélags.
Sveitarstjórnarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Sveitarstjórnarfulltrúar eða nefndarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa eða taka ákvörðun í tilteknu máli sem lagt er fyrir sveitarstjórn eða nefnd eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórnin eða nefndin fjallar um málið. Þetta á þó ekki við um framkvæmdastjóra.
Ákvæði 5. mgr. á ekki við þegar sveitarstjórn eða viðkomandi nefnd fjallar um og afgreiðir ársreikninga, fjármálaáætlanir, skipulagsáætlanir og aðrar almennar áætlanir sveitarfélagsins, enda eigi sveitarstjórnarfulltrúi eða nefndarfulltrúi ekki sérstakra og verulegra hagsmuni að gæta umfram aðra við afgreiðslu viðkomandi málefnis.
22. gr.
Málsmeðferð vegna hæfi sveitarstjórnarfulltrúa.
Sveitarstjórn eða nefnd tekur ákvörðun um hæfi sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúa til meðferðar og afgreiðslu einstakra mála. Áður en ákvörðun er tekin um hæfi sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúa skal gera grein fyrir þeim atvikum sem kunna að valda vafa um hæfi viðkomandi. Sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúi sem er vanhæfur til meðferðar máls má ekki taka þátt í meðferð þess eða hafa áhrif á það með öðrum hætti og skal ávallt yfirgefa fundarsal við meðferð þess og afgreiðslu.
Sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúi sem hlut á að máli getur borið ákvörðun sveitarstjórnar skv. 1. mgr. undir ráðherra skv. 126. gr. Ráðherra skal þá að taka málið til formlegrar umfjöllunar skv. 127. gr. og skal hraða afgreiðslu þess eins og kostur er. Hið sama á við ef um er að ræða sérstakt mat sveitarfélags á hæfi sveitarstjórnarfulltrúa eða nefndarfulltrúa sem ekki kemur til ákvörðunar sveitarstjórnar eða fastanefndar. Við mat ráðherra á ákvörðun sveitarfélags um hæfi sveitarstjórnar- eða nefndarfulltrúa skal taka tillit til þess svigrúms sem sveitarstjórn hefur til að tryggja og viðhalda trausti íbúa á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
23. gr.
Varafulltrúar.
Þegar kosið hefur verið til sveitarstjórnar hlutbundinni listakosningu, eða listi hefur verið sjálfkjörinn, taka varafulltrúar af lista aðalfulltrúa sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir.
Ef framboðslisti hefur verið borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalfulltrúar listans komið sér saman um að varafulltrúar listans, sem eru úr sama stjórnmálaflokki eða samtökum og aðalfulltrúi, taki sæti hans í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varafulltrúa. Sé enginn varafulltrúi af viðkomandi lista í sama stjórnmálaflokki eða samtökum og sá aðalfulltrúi sem í hlut á taka varafulltrúar listans samkvæmt venjulegum reglum. Hér skal ávallt miða við stöðu viðkomandi á þeim tíma er kjör til sveitarstjórnar fór fram.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar að loknum sveitarstjórnarkosningum og gildir hún til loka kjörtímabils.
IV. KAFLI
Réttindi og skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.
24. gr.
Mætingarskylda.
25. gr.
Skylda til að taka kjöri.
Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafn langan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafn langan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi starf fer fram.
26. gr.
Aðrar almennar skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.
Sveitarstjórnarfulltrúum ber að gegna starfi sínu af alúð og samviskusemi. Þeim ber í hvívetna að gæta að almennum hagsmunum íbúa sveitarfélagsins sem og öðrum almannahagsmunum.
27. gr.
Sjálfstæði í starfi.
28. gr.
Málfrelsi, tillöguréttur og atkvæðisréttur.
Þeir sem eiga rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags er heimilt að mæla fyrir um hámarkslengd athugasemda skv. 2. mgr.
Vilji sveitarstjórnarfulltrúi ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.
29. gr.
Réttur til að bera upp mál.
Mál sem ekki er tilgreint á tillögu að dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/ 3 hluta fundarmanna.
30. gr.
Aðgangur að gögnum og þagnarskylda.
Sveitarstjórn skal í samþykkt um stjórn sveitarfélags mæla nánar fyrir um rétt sveitarstjórnarfulltrúa til að fá afhent afrit gagna sem falla undir 1. mgr. Við ákvörðun um afhendingu afrits gagna skal gæta jafnræðis milli sveitarstjórnarfulltrúa.
Sveitarstjórnarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt ákvæðum X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
31. gr.
Siðareglur.
Siðareglur sveitarstjórnar skv. 1. mgr. skulu birtar á vef sveitarfélagsins.
Samband íslenskra sveitarfélaga skipar nefnd sem veitt getur álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim.
32. gr.
Reglur um varnir gegn hagsmunaárekstrum og hagsmunaskráningu.
Í reglunum skal mælt fyrir um skyldur aðila skv. 1. mgr. til að tilkynna um stjórnarsetur í félögum eða fyrirtækjum og önnur launuð störf, eignir, skuldir, sjálfskuldarábyrgðir og aðrar ábyrgðir sínar hérlendis og erlendis auk sömu upplýsinga um maka. Einnig skal mæla fyrir um skyldur kjörinna fulltrúa að skrá í hagsmunaskrá allar greiðslur sem hann þiggur frá sveitarfélaginu, stofnunum þess eða fyrirtækjum í meirihlutaeigu þess að undanskildum föstum mánaðarlegum launagreiðslum ef fulltrúinn er jafnframt fastráðinn launþegi hjá sveitarfélaginu.
Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um eignir, skuldir og ábyrgðir sem ekki er skylt að tilkynna um. Reglur sveitarfélags um varnir gegn hagsmunaárekstrum og hagsmunaskráningu og hagsmunaskráning á grundvelli þeirra skulu birtar á vef sveitarfélagsins.
33. gr.
Kjörgengi.
Skjóta má úrskurði sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar kosningamála og úrskurði hennar má skjóta til dómstóla.
34. gr.
Lausn frá störfum.
Telji sveitarstjórnarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, svo sem vegna veikinda eða annarrar vinnu, getur sveitarstjórn létt af honum störfum, heimilað honum að taka sæti fyrsta varafulltrúa skv. 35. gr. eða veitt honum lausn úr sveitarstjórn, að hans ósk, um tiltekinn fyrirframákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar sveitarstjórnarfulltrúi flytur úr sveitarfélagi um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir sveitarstjórnarfulltrúi kjörgengi samkvæmt hefðbundnum reglum.
Ef sveitarstjórnarfulltrúi missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
35. gr.
Boðun varafulltrúa.
Þegar aðalfulltrúi getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilbrigðisástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varafulltrúi hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðalfulltrúi skal tilkynna forföll eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varafulltrúi verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalfulltrúi í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varafulltrúi hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalfulltrúi sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalfulltrúi fellur frá, missir kjörgengi, tekur sæti varafulltrúa skv. 2. mgr. 34. gr. eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varafulltrúi hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.
36. gr.
Réttur til þóknunar o.fl.
Sveitarstjórnarfulltrúi á rétt til greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar sem nauðsynlegur er vegna starfa hans í þágu sveitarfélagsins samkvæmt reglum sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn er heimilt að setja nánar reglur um réttindi sveitarstjórnarfulltrúa samkvæmt þessari grein, svo sem um endurgreiðslu útlags kostnaðar og tapaðra launatekna.
Sveitarstjórnarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
37. gr.
Réttur til þátttöku í sveitarstjórnarstörfum.
Sé starfsmanni sem hefur boðið sig fram til sveitarstjórnar eða verið kjörinn í sveitarstjórn sagt upp starfi skal vinnuveitandi hans sýna fram á að ástæður uppsagnar sé ekki að rekja til þeirra atriða.
Sveitarstjórnarfulltrúi á rétt á fjarveru úr starfi að því leyti sem honum er nauðsynlegt til að sinna lögbundinni mætingarskyldu á fundi í sveitarstjórn, nefndum sveitarfélagsins og aðra fundi sem hann hefur verið kjörinn til að sækja fyrir hönd sveitarstjórnar. Teljist viðvera starfsmanns nauðsynleg vegna sérstakra og rökstuddra atvika getur atvinnuveitandi þó hafnað ósk starfsmanns um fjarveru.
38. gr.
Réttindi og skyldur varafulltrúa.
V. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
39. gr.
Byggðarráð.
Byggðarráð telst til fastanefnda sveitarstjórnar, sbr. 42. gr. Ákvæði þessa kafla, fyrir utan ákvæði 1. mgr. 49. gr., eiga við um byggðarráð að því leyti sem annað er ekki sérstaklega tekið fram.
Byggðarráð fer ásamt framkvæmdastjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin. Byggðarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjármálaáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir sveitarstjórn. Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðar fyrir sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.
Heimilt er að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélags að byggðarráð taki að meira eða minna leyti við starfi annarra fastanefnda sveitarstjórnar. Þá er heimilt að ákveða í samþykkt um stjórn sveitarfélags að ályktanir, tillögur og fundargerðir annarra nefnda megi leggja fyrir byggðarráð til umfjöllunar áður en þær eru lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða endanlegrar afgreiðslu.
40. gr.
Framsal á valdi sveitarstjórnar til byggðarráðs.
Á meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella.
Heimild byggðarráðs til að taka fullnaðarákvörðun í málum eða taka ákvarðanir í sumarleyfi sveitarstjórnar skv. 1. og 2. mgr. er bundin því skilyrði að ekki sé ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags er heimilt að fela byggðarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála sem samkvæmt samþykktum sveitarfélags hafa áður komið til umfjöllunar annarra nefnda sveitarstjórnar.
41. gr.
Kosning í byggðarráð.
Fjöldi aðalfulltrúa í byggðarráði skal standa á oddatölu. Aðalfulltrúar í byggðarráði skulu ekki vera fleiri en sem nemur helmingi af aðalfulltrúum í sveitarstjórn, þó mest níu. Kjósa skal jafnmarga aðal- og varafulltrúa.
Aðalfulltrúar í byggðarráði skulu koma úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórn. Varafulltrúa skal einnig velja úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórninni. Heimilt er þó að ákveða að aðalfulltrúar og varafulltrúar af sama framboðslista og hinn kjörni byggðarráðsfulltrúi verði varafulltrúar hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn kýs formann og varaformann byggðarráðs úr hópi kjörinna byggðarráðsfulltrúa. Ef formaður og varaformaður eru forfallaðir eða varafulltrúar sitja fyrir þá, felur formaður öðrum fulltrúa í byggðarráði að undirbúa fund þess og gegna hlutverki formanns á viðkomandi fundi.
42. gr.
Fastanefndir sveitarstjórnar.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnarinnar nema annað leiði af lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins. Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kosið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 13. gr.
Heimilt er sveitarstjórn að sameina nefndir þannig að ein nefnd fari með verkefni á fleiri en einu sviði þótt lög kveði á um að kjósa skuli sérstaka nefnd til að fara með tiltekin verkefni.
Í sveitarfélögum þar sem erfiðlega horfir með að manna nefndir er sveitarstjórn heimilt að fara sjálf með verkefni lögskipaðrar nefndar nema verkefni hennar sé ósamrýmanlegt störfum sveitarstjórnar.
43. gr.
Nefnd fyrir hluta sveitarfélags.
Ef mælt er fyrir um kosningu slíkrar nefndar í lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélags telst hún til fastanefnda sveitarstjórnar.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags má ákveða að nefnd samkvæmt þessari grein skuli kosin af íbúum viðkomandi hluta sveitarfélags sem hafa kosningarrétt í íbúakosningum sveitarfélagsins, sbr. 144. gr.
Ákvörðun skv. 3. mgr. er háð samþykki ráðherra og er m.a. háð því skilyrði að hægt sé að gefa út kjörskrá fyrir þann hluta sveitarfélagsins sem um ræðir. Við framkvæmd atkvæðagreiðslu samkvæmt þessari grein skal að öðru leyti farið eftir 144. gr.
Ákvæði 51., 52. og 56. gr. gilda ekki um skipun nefndar sem er kosin skv. 3. mgr. Að öðru leyti gilda ákvæði þessara laga um störf slíkrar nefndar, kjörgengi, réttindi og skyldur nefndarfulltrúa og aðra þætti eftir því sem við getur átt.
44. gr.
Heimastjórnir.
Heimastjórn skal fara með afmörkuð málefni eða málaflokka í viðkomandi hluta sveitarfélagsins, sbr. 1. mgr. 43. gr., og hafa að lágmarki afmarkaðar valdheimildir sem skilgreindar skulu nánar í fyrirmynd ráðherra, sbr. 1. mgr.
Heimastjórn telst til fastanefnda sveitarstjórnar og sveitarstjórn ákveður nánar skipan, hlutverk og valdheimildir heimastjórnar í samþykkt um stjórn sveitarfélags. Þó skal meiri hluti nefndarfulltrúa hafa lögheimili í viðkomandi hluta sveitarfélagsins og vera kjörinn af íbúum hans, sbr. 3. og 4. mgr. 43. gr.
Sveitarfélagi er óheimilt að nota heitið heimastjórn yfir nefnd nema hún uppfylli skilyrði þessa ákvæðis.
45. gr.
Réttur íbúa byggðarkjarna til skipan nefndar til að fara með málefni hans.
Skilyrði fyrir byggðarkjarna skv. 1. mgr. eru að:
a. Íbúar í byggðarkjarnanum séu 250 eða fleiri hinn 1. janúar á því ári sem krafa um skipan nefndar er sett fram samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.
b. Byggðarkjarninn sé samfellt byggt svæði innan sveitarfélags þar sem fjarlægð milli íbúðarhúsa sé ekki meiri en 200 metrar.
c. Byggðarkjarninn sé staðsettur í að minnsta kosti 10 km fjarlægð frá stærsta byggðarkjarna sveitarfélagsins.
d. Ekki sé þegar starfrækt nefnd skv. 43. eða 44. gr. fyrir það svæði þar sem byggðarkjarninn er staðsettur.
Íbúar geta knúið fram skipun nefndar skv. 1. mgr.:
a. með söfnun undirskrifta 51% kosningarbærra íbúa samkvæmt kosningalögum í byggðarkjarnanum skv. 121. gr. eða
b. með því að lágmarki 20% kosningarbærra íbúa samkvæmt kosningalögum krefjist atkvæðagreiðslu skv. 120. gr. um skipun nefndarinnar og tillagan verði samþykkt í atkvæðagreiðslunni.
Séu skilyrði 2. og 3. mgr. uppfyllt ber sveitarstjórn að gera þegar í stað nauðsynlegar ráðstafanir til að koma nefndinni á fót. Í því felst að breyta samþykktum sveitarfélagsins og kjósa fulltrúa nefndarinnar skv. 50. gr. eða sjá um framkvæmd atkvæðagreiðslu skv. 4. mgr. 43. gr., sbr. 144. gr.
Sveitarstjórn tekur ákvörðun um hlutverk, skipan og valdheimildir nefndarinnar.
46. gr.
Nefnd til að fara með einstök verkefni eða málaflokka.
Í nefndir samkvæmt þessari grein má kjósa einstaklinga sem ekki hafa náð aldri til að njóta kosningarréttar við sveitarstjórnarkosningar og einstaklinga sem ekki eiga þar lögheimili.
Sveitarstjórn getur sett reglur um fundi nefnda og ráða samkvæmt þessari grein eða falið viðkomandi nefnd eða ráði að setja sér slíkar starfsreglur að því leyti sem ekki er mælt fyrir um í öðrum lögum.
47. gr.
Valdsvið nefnda.
Hafi nefnd ekki verið falin fullnaðarafgreiðsla máls samkvæmt lögum eða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins teljast ályktanir hennar tillögur til sveitarstjórnar enda þótt þær séu orðaðar sem ákvarðanir eða samþykktir nefndar.
48. gr.
Afgreiðsla á fundargerðum.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn eða byggðarráð eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
Eftir því sem við á gildir ákvæði þetta einnig um afgreiðslu sveitarstjórnar á fundargerðum byggðarráðs.
49. gr.
Framsal sveitarstjórnar á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.
Á sama hátt og með sömu skilyrðum er sveitarstjórn heimilt að fela einstökum starfsmönnum sveitarfélags fullnaðarafgreiðslu mála. Sveitarstjórn, byggðarráð eða hlutaðeigandi fastanefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar. Þessi málsgrein hefur þó ekki áhrif á almennar heimildir starfsmanna sveitarfélags til töku ákvarðana sem varða daglegan rekstur og þjónustu sveitarfélags og teljast leiða af stöðuumboði þeirra.
Sá starfsmaður sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu mála skv. 2. mgr., eða þriðjungur hlutaðeigandi fastanefndar skv. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að sveitarstjórn, byggðarráð eða viðkomandi fastanefnd samkvæmt samþykkt um stjórn sveitarfélagsins taki ákvörðun í máli.
Þegar sveitarstjórn nýtir heimildir skv. 1. eða 2. mgr. skal jafnframt kveða á um það í samþykkt sveitarfélagsins hver skuli taka fullnaðarákvörðun í máli skv. 3. mgr. og hvernig skuli fara með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.
50. gr.
Kosningar og kjörgengi.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningar nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 46. gr.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélags eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitenda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.
51. gr.
Framlagning lista við hlutfallskosningu.
1. Leggja skal fram lista þar sem fram koma tillögur um fulltrúa í viðkomandi nefnd. Hver sveitarstjórnarfulltrúi getur aðeins staðið að tillögu um einn lista í hverja nefnd. Listi getur innihaldið allt að tvöföldum þeim fulltrúafjölda sem kjósa skal til nefndarinnar. Nafn sveitarstjórnarfulltrúa má aðeins setja á þann lista sem hann sjálfur stendur að tillögu um.
2. Ef velja á tvo eða þrjá fulltrúa í nefnd skal a.m.k. einn af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á fjóra eða fimm fulltrúa skulu a.m.k. tveir af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á sex til átta í nefnd skulu a.m.k. þrír af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á níu fulltrúa skulu a.m.k. fjórir af hvoru kyni vera á lista. Ef velja á fleiri í nefnd skulu a.m.k. 40% af hvoru kyni vera á lista. Ef kjörgengi í nefnd er bundið við sveitarstjórnarfulltrúa eða varafulltrúa þeirra á þessi regla þó ekki við. Hið sama á við ef kjörgengi í nefnd er bundið með þeim hætti að ekki er fært að fullnægja kröfum samkvæmt þessum lið.
3. Tillaga um lista skal lögð fram skriflega og undirrituð af a.m.k. einum þeirra sveitarstjórnarfulltrúa sem standa að henni. Ef gerð er tillaga um fulltrúa sem ekki er skylt að taka kjöri í viðkomandi nefnd skal liggja fyrir samþykki hans fyrir tilnefningunni.
52. gr.
Kosning á milli lista.
1. Nefndarsætum er deilt á viðkomandi lista í hlutfall við þau atkvæði sem hver listi fær á grundvelli eftirfarandi reglu: Deila skal atkvæðatölum listanna með tölunum 1, 2, 3, 4 o.s.frv. Útkomutölur eru skráðar fyrir hvern lista.
2. Þegar ákveðnar hafa verið útkomutölur fyrir hvern lista skal ákvarða hvaða fulltrúar hafa fengið kosningu í nefnd. Það er gert á eftirfarandi hátt: Fyrsta fulltrúa fær sá listi sem hefur hæsta útkomutölu. Sú tala er síðan felld niður. Annan fulltrúa fær sá listi sem nú hefur hæsta útkomutölu. Þessu skal fram haldið þar til úthlutað hefur verið jafnmörgum fulltrúum og kjósa á.
3. Ef of fá nöfn eru á lista þegar til úthlutunar kemur skal ganga fram hjá þeim lista við frekari úthlutun. Ef tvær eða fleiri útkomutölu eru jafnháar skal varpa hlutkesti.
4. Ef í ljós kemur að þessu loknu að annað kynið hefur ekki eins marga fulltrúa af hverjum lista fyrir sig og krafist er í 2. tölul. 51. gr. skal færa einstaklinga af því kyni sem fulltrúa vantar svo langt upp listann sem þarf þannig að tilskilið hlutfall náist.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 50. gr., skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 51. gr. við skipun í viðkomandi nefnd.
53. gr.
Fundir nefnda og ályktunarhæfi.
Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla eftir því sem við getur átt.
54. gr.
Varafulltrúar.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn, og aðalfulltrúi í nefnd er forfallaður taka varafulltrúar af þeim lista sem aðalfulltrúi er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 52. gr.
Ef tveir flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varafulltrúar á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalfulltrúi í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varafulltrúa. Sé enginn í hópi varafulltrúa viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalfulltrúi tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varafulltrúar af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
55. gr.
Boðun varafulltrúa.
Þegar aðalfulltrúi í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varafulltrúi hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalfulltrúa að nýju. Ella skipar sveitarstjórn nýjan varafulltrúa til setu í nefndinni.
56. gr.
Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarfulltrúi, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/ 3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórn sveitarfélags skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 50. gr. nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 51. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 52. gr. um kynjahlutföll.
57. gr.
Áheyrnarfulltrúar.
Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarfulltrúa.
Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skv. 1. mgr. skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.
Ákvæði þessa kafla um varafulltrúa eiga einnig við um varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.
58. gr.
Þóknun.
59. gr.
Önnur réttindi og skyldur.
Ákvæði III. og IV. kafla gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélaga eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem viðkomandi fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
60. gr.
Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélag á aðild að.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélagi væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélags í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
VI. KAFLI
Framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélaga.
61. gr.
Ráðning framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími framkvæmdastjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar. Heimilt er að semja um gagnkvæman uppsagnarfrest innan ráðningartíma.
62. gr.
Hlutverk framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda sveitarstjórnar.
Framkvæmdastjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.
Framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarfélags. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.
Í samþykkt um stjórn sveitarfélags skal setja nánari ákvæði um verksvið framkvæmdastjóra og mörk milli þess og ákvörðunarvalds sveitarstjórnar og byggðarráðs.
63. gr.
Ráðning annarra starfsmanna.
Framkvæmdastjóri fer með sömu heimildir og mælt er fyrir um í 1. mgr. gagnvart öðrum starfsmönnum nema sveitarstjórn ákveði annað í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins eða með almennum fyrirmælum sem birt skulu á vef sveitarfélagsins.
64. gr.
Starfskjör, réttindi og skyldur.
Starfsmenn sveitarfélaga og aðrir sem sveitarfélög ráða til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu samkvæmt ákvæðum X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
VII. KAFLI
Fjármál sveitarfélaga.
65. gr.
Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.
1. staðfesting ársreiknings,
2. fjármálastefna til fimm ára,
3. fjárheimildir næstkomandi árs,
4. fjármálaáætlun til fimm ára,
5. viðauki við fjárheimildir skv. 3. tölul.,
6. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélags,
7. sala eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
8. álagning skatta og gjalda,
9. ráðning eða uppsögn endurskoðanda.
Sveitarfélög skulu birta gjaldskrár sínar á vef sínum sé ekki annað tekið fram í lögum.
66. gr.
Reikningsárið og bókhaldsskylda.
67. gr.
Ársreikningur.
Ársreikningur sveitarfélagsins skal saminn í samræmi við lög þessi, reglur settar á grundvelli þeirra og góða reikningsskilavenju. Að öðru leyti skal litið til laga um ársreikninga og reglna settra á grundvelli þeirra.
Í ársreikningi skal koma fram samanburður við:
a. ársreikning undanfarins árs,
b. upphaflega fjárheimild ársins,
c. fjárheimildir ársins ásamt viðaukum.
Ársreikningur sveitarfélags skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði eða framkvæmdastjóra sveitarfélags þar sem ekki er byggðarráð og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélags, stofnana sveitarfélags og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert. Ráðherra getur að ósk sveitarstjórnar veitt henni lengri frest til staðfestingar ef brýn nauðsyn krefur.
68. gr.
Flokkun í reikningsskilum.
a. A-hluti: Starfsemi sem fjármögnuð er að meiri hluta af tekjustofnum sveitarfélaga.
b. B-hluti: Starfsemi sem tilheyrir ekki A-hluta og er rekin á fjárhagslega ábyrgð sveitarfélaga, svo sem þau félög sveitarfélaga sem fjármögnuð eru að meiri hluta með þjónustutekjum, eru með ótakmarkaða ábyrgð eða sveitarfélag hefur gengist í ábyrgðir fyrir.
c. C-hluti: Félög sem falla hvorki í A- né B-hluta og eru með takmarkaða ábyrgð.
Sveitarfélögum er heimilt eftir því sem leiðir af viðkomandi lagareglum að ákveða sér eðlilegan afrakstur af því fjármagni sem er bundið í rekstri stofnana þeirra og fyrirtækja.
69. gr.
Fjármálastefna.
Sveitarstjórn skal endurskoða fjármálastefnu skv. 1. mgr. innan fimm ára tímabilsins ef grundvallarforsendur hennar bresta eða ef upp koma aðstæður sem ógerlegt er að bregðast við með tiltækum úrræðum innan gildandi fjármálastefnu. Endurskoðuð fjármálastefna skal ná til a.m.k. fimm ára.
70. gr.
Fjármálaáætlun til fimm ára.
Fjármálaáætlun skal gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjármálaáætlunar skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu A-, B- og C-hluta við upphaf áætlunartímabilsins með gerð útkomuspár líðandi árs.
Byggðarráð eða framkvæmdastjóri, eftir því sem kveðið er á um í samþykkt um stjórn sveitarfélags, leggur tillögu um fjármálaáætlun skv. 1. mgr. fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um fjármálaáætlun á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða fjármálaáætlun, þó ekki síðar en 15. desember. Ráðherra getur að ósk sveitarstjórnar veitt henni lengri tíma til afgreiðslu fjármálaáætlunar ef brýn nauðsyn krefur.
Tillögu skv. 3. mgr. skulu bæði fylgja upplýsingar um þær forsendur sem byggt er á og lýsing helstu framkvæmda og skuldbindinga sem gert er ráð fyrir.
71. gr.
Fjárheimildir næstkomandi árs.
Óheimilt er að víkja frá fjárheimildum næstkomandi árs skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við fjárheimildina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárheimildinni í þegar samþykktum fjárheimildum. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitar-stjórnarinnar.
Í reglugerð sem sett er á grundvelli 83. gr. er heimilt að skilgreina þau tilvik þar sem tilfærslur innan málaflokka eru heimilaðar án þess að fyrir liggi samþykktur viðauki, sbr. 1. málsl. 2. mgr. Þó skulu allar slíkar breytingar færðar í viðauka við fyrsta tækifæri.
72. gr.
Viðmið um afkomu og fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
Sveitarstjórn uppfyllir skyldu sína skv. 1. mgr. m.a. með því að fylgja eftirfarandi reglum:
1. Jafnvægisreglu:
a. Samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A-hluta í reikningsskilum skv. 68. gr. séu á hverjum þremur samliggjandi reikningsárum ekki hærri en sem nemur samanlögðum heildartekjum á sama tímabili.
b. Samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 68. gr. séu á hverjum þremur samliggjandi reikningsárum ekki hærri en sem nemur samanlögðum heildartekjum á sama tímabili.
2. Skuldareglu:
a. Heildarskuldir og skuldbindingar A-hluta í reikningsskilum skv. 68. gr. séu ekki hærri en sem nemur 130% af heildartekjum.
b. Heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 68. gr. séu ekki hærri en sem nemur 150% af heildartekjum.
Ráðherra skilgreinir í reglugerð nánar þau viðmið sem lögð eru til grundvallar skv. 2. mgr., þar á meðal um útgjöld, tekjur, eignir, skuldir og skuldbindingar og aðlögun sveitarfélaga að þeim. Þar skal jafnframt heimilt að undanþiggja nánar tilgreindar skuldir eða skuldbindingar einstakra sveitarfélaga þannig að þær hafi engin eða aðeins hlutfallsleg áhrif.
73. gr.
Ábyrg meðferð fjármuna.
Sveitarfélögum er heimilt að ávaxta fjármuni sína með áhættulitlum fjárfestingakostum, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf, sértryggð skuldabréf viðskiptabanka eða skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga.
Sveitarfélagi er óheimilt að takast á hendur áhættufjárfestingar og fjárfestingar í hagnaðarskyni, svo sem kaup hlutabréfa, nema um sé að ræða verkefni sem því hefur með lögum verið falið eða heimilað að sinna. Þó er sveitarfélögum heimilt að taka þátt í verkefnum í ljósi brýnna samfélagslegra hagsmuna en þó þannig að áhætta vegna þátttöku í þeim gangi ekki gegn ábyrgri meðferð fjármuna.
Sveitarstjórn setur sveitarfélaginu reglur um fjárstýringu skv. 1. og 2. mgr.
74. gr.
Miklar fjárfestingar og skuldbindingar.
Ef ákvörðun skv. 1. mgr. nemur samanlagt 20% eða meira af heildartekjum sveitarfélagsins á komandi fjárhagsári skal fá sérfróðan aðila sem ekki er tengdur sveitarfélaginu til að gera mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélagsins skv. 1. mgr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um innihald áhrifamats skv. 1. og 2. mgr. og undanþágur frá því.
75. gr.
Yfirráð yfir fasteignum og öðrum eignum.
76. gr.
Heimild til veðsetningar.
Þrátt fyrir 1. mgr. getur sveitarfélag veitt Lánasjóði sveitarfélaga ohf. veð í tekjum sínum vegna lána sem það tekur hjá sjóðnum og vegna ábyrgða sem það veitir honum skv. 1. og 2. mgr. 77. gr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um tryggingar lánasjóðsins skv. 2. mgr.
77. gr.
Heimild til að gangast í ábyrgðir.
Sveitarstjórn getur einnig veitt lán og gengist í hlutfallslega ábyrgð til tryggingar á lánum vegna félags sem það á hlut í með öðrum opinberum aðilum. Innbyrðis skal lánveiting og ábyrgð eigenda skiptast í hlutfalli við eignarhlut. Skilyrði er að viðkomandi lögaðili sé að fullu í eigu opinberra aðila, að lánveiting eða trygging lánveitingar sé bundin við lögákveðið verkefni sveitarfélaga og að allir eigendur veiti eða ábyrgist lán í samræmi við eignarhlut sinn. Tryggja skal að ábyrgð sveitarfélagsins falli niður ef lögaðili hættir að sinna lögákveðnu verkefni sveitarfélaga eða færist að einhverju leyti í eigu einkaaðila.
Sveitarfélag má ekki veita lán eða gangast í ábyrgðir með öðrum skilyrðum vegna annarra skuldbindinga en greinir í 1. og 2. mgr. Prókúruhafa sveitarfélags er þó heimilt fyrir þess hönd að ábyrgjast með framsalsáritun greiðslu viðskiptaskjala sem sveitarfélagið hefur eignast á eðlilegan hátt í tengslum við daglegan rekstur þess.
78. gr.
Úthlutun takmarkaðra gæða.
Heimilt er að víkja frá auglýsingaskyldu skv. 1. mgr. ef sýnt er fram á að slíkt þjóni betur íbúum sveitarfélags, t.d. vegna atvinnuuppbyggingar eða annarra stefnumarkandi markmiða sveitarfélagsins.
79. gr.
Skuldajöfnuður.
Fjármálastofnun má ekki nýta fjármuni sem sveitarfélag hefur afhent henni til varðveislu skv. 73. gr. til skuldajafnaðar til fullnustu kröfu sem stofnunin kann að eiga á sveitarfélagið.
80. gr.
Gjaldþrotaskipti og aðför.
81. gr.
Endurskoðun.
Endurskoðandi skal endurskoða ársreikning sveitarfélags skv. 67. gr. í samræmi við 1. mgr. og í því sambandi kanna bókhaldsgögn sveitarfélagsins og aðra þætti er varða rekstur þess og stöðu. Endurskoðandi skal gera grein fyrir áliti sínu í áritun sinni á ársreikninginn.
Endurskoðandi sveitarfélags skal jafnframt kanna hvort fullnægjandi heimildir hafi verið fyrir útgjöldum og hvort almenn stjórnsýsla sveitarfélags og einstakar ákvarðanir af hálfu þess séu í samræmi við reglur um fjármál sveitarfélags, ábyrga fjármálastjórn og upplýsingaskyldu sveitarfélaga.
Endurskoðandi sveitarfélags skal skila skriflegri skýrslu til sveitarstjórnar um mikilvæg atriði sem fram hafa komið við endurskoðun ársreiknings og könnun skv. 3. mgr. Í skýrslunni skal sérstaklega, ef við á, geta um veikleika í innra eftirliti í vinnuferli við gerð reikningsskila.
Sveitarstjórn skal veita endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki aðgang að öllum þeim upplýsingum og gögnum sem þörf er á vegna endurskoðunar. Reglur um þagnarskyldu takmarka ekki rétt endurskoðenda í þessu efni.
Endurskoðandi sem ber ábyrgð á endurskoðun sveitarfélags skal taka sér hlé frá endurskoðun þess í a.m.k. tvö ár samfellt eigi síðar en sjö árum eftir að hann var ráðinn til verksins.
Endurskoðandi sveitarfélags skal vera óháður sveitarfélaginu, bæði í reynd og ásýnd, sbr. lög um endurskoðendur. Endurskoðanda er óheimilt að taka þátt í ákvörðunum sveitarstjórnar eða stjórnenda sveitarfélags sem geta leitt til þess að hlutleysi hans við framkvæmd endurskoðunarstarfa sé stefnt í hættu.
82. gr.
Álitsgerð endurskoðanda og meðferð hennar.
Berist sveitarstjórn skrifleg álitsgerð endurskoðanda um að reikningsskil eða fjármál sveitarfélags séu ekki í samræmi við kröfur skal oddviti tryggja að álitsgerðin hafi borist öllum aðalfulltrúum í sveitarstjórn ekki síðar en sjö dögum eftir að það liggur fyrir.
Endurskoðandi sveitarfélags getur krafist þess sérstaklega að álitsgerð hans sé tekin til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar. Enn fremur skal taka slíka álitsgerð til umfjöllunar á fundi sveitarstjórnar ef sveitarstjórnarfulltrúi krefst þess.
83. gr.
Reglur um bókhald og reikningsskil.
1. bókhald sveitarfélaga, þar á meðal um samræmdan upplýsingalykil,
2. vinnslu, meðferð, form og efni fjármálaáætlana,
3. vinnslu, meðferð, form og innihald ársreiknings og meðferð á skýrslum endurskoðanda um hann.
84. gr.
Skil á upplýsingum um fjármál.
Ársreikning sveitarfélags, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðherra og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert. Álitsgerð endurskoðanda skv. 82. gr. skal hann sjálfur senda ráðherra jafnskjótt og hún er afhent sveitarfélagi.
Að fengnum tillögum eftirlitsnefndar með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga skal ráðherra setja reglugerð um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir ráðuneytið, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga. Í reglugerðinni skal m.a. mælt fyrir um framsetningu og form slíkra upplýsinga sem og um rafræn skil þeirra eftir því sem við á. Haft skal samráð við Hagstofu Íslands um setningu reglugerðarinnar.
VIII. KAFLI
Eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
85. gr.
Skyldur sveitarstjórnar.
Komist sveitarfélag í fjárþröng þannig að sveitarstjórn telur sér ekki unnt að standa í skilum skal hún tilkynna það til eftirlitsnefndar með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga. Á sama hátt skal sveitarstjórn gera nefndinni viðvart telji hún að fjármál sveitarfélags eða einstakar fjárhagslegar ráðstafanir séu ekki í samræmi við lög þessi eða fjármál sveitarfélags stefni að öðru leyti í óefni. Ef skilyrði 94. gr. eru fyrir hendi skal tilkynning fela í sér ósk um skipun fjárhaldsstjórnar.
86. gr.
Eftirlitsnefnd með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga.
Kostnaður af störfum eftirlitsnefndarinnar, þ.m.t. þóknun nefndarfulltrúa, greiðist úr ríkissjóði. Skal þóknunin ákveðin af ráðherra.
Nefndin er fjölskipað stjórnvald sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Ákvarðanir hennar sæta þó ekki kæru til ráðherra. Nefndin setur sér starfsreglur þar sem m.a. skal kveðið á um boðun funda, fundarsköp og ályktunarhæfi.
87. gr.
Hlutverk eftirlitsnefndar.
a. fylgjast með fjármálum sveitarfélaga, þ.m.t. reikningsskilum og áætlanagerð, og bera þau saman við viðmið samkvæmt lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim.
b. hafa almennt eftirlit með því að fjármál, fjármálastjórn og fjárhagslegar ákvarðanir sveitarfélaga séu í samræmi við lög og reglur,
c. stuðla að samræmingu í reikningsskilum sveitarfélaga og öðrum fjárhagslegum ráðstöfunum þeirra,
d. sinna öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni á þessu sviði.
Eftirlit nefndarinnar og ákvarðanir hennar skulu byggjast á heildarmati á fjárhagslegri stöðu viðkomandi sveitarfélags. Nefndinni ber í einstökum málum að velja þau úrræði sem líklegast er að nái því markmiði sem að er stefnt að teknu tilliti til sjálfstjórnar sveitarfélaga.
88. gr.
Aðgangur eftirlitsnefndar að upplýsingum.
Sveitarfélög skulu veita nefndinni og starfsmönnum hennar aðgang að starfsstöðvum sveitarfélagsins, bókum, fylgiskjölum og öðrum gögnum sveitarfélags sem henni er þörf á vegna starfs síns auk skýringa um slík atriði innan frests er nefndin tiltekur.
89. gr.
Reglugerð um störf eftirlitsnefndar og viðmið um fjármál sveitarfélaga.
90. gr.
Nánar um úrræði eftirlitsnefndar.
1. birt reglubundið almennar grunnupplýsingar um fjárhag sveitarfélaga,
2. gefið út nánari leiðbeiningar og álit um bókhald, fjármálaáætlanir, fjárheimildir og reikningsskil sveitarfélaga,
3. sent fyrirspurnir til sveitarstjórna þar sem óskað er skýringa eða gagna innan hæfilegs frests,
4. sent ábendingar eða tilmæli til sveitarstjórnar vegna fjárhagslegrar stöðu sveitarfélags eða einstakra fjárhagslegra ákvarðana,
5. látið rannsaka fjárreiður og rekstur sveitarfélags og lagt síðan fyrir sveitarstjórn að bæta það sem áfátt kann að reynast innan hæfilegs frests,
6. birt tilkynningu eða álit um stöðu eða einstakar fjárhagslegar ákvarðanir sveitarfélags,
7. vísað máli til ráðherra, sbr. 91.–93. gr. eða 125. gr.
91. gr.
Samkomulag sveitarstjórnar og ráðherra um fjármál.
Ráðherra getur einnig gert samkomulag samkvæmt þessari grein að beiðni viðkomandi sveitarstjórnar. Skal þá leitað umsagnar eftirlitsnefndar áður en samkomulag er gert.
Þegar samkomulag liggur fyrir skal það staðfest af ráðherra annars vegar og viðkomandi sveitarstjórn hins vegar. Ráðherra getur gert þá kröfu að 2/ 3 fulltrúa á fundi sveitarstjórnar greiði atkvæði með samkomulaginu til að það öðlist gildi. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og reikningsskilum sveitarfélaga hefur eftirlit með framkvæmd sveitarfélags á samkomulagi samkvæmt þessari grein.
92. gr.
Önnur úrræði ráðherra.
1. veitt sveitarfélagi styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjárhag sveitarfélagsins á réttan kjöl, enda sé haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um þá ráðstöfun,
2. heimilað eða lagt fyrir sveitarstjórn að leggja álög á útsvör og eða fasteignaskatta sem nemi allt að 25% umfram það hámark sem ákveðið er í lögum um tekjustofna sveitarfélaga,
3. sett sveitarfélagi fyrirmæli um rekstur og stjórnsýslu, sbr. 93. gr.
Beiting úrræða samkvæmt kafla þessum útilokar ekki að ráðherra beiti einnig úrræðum skv. XI. kafla.
Eftirlitsnefnd með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga hefur eftirlit með fram-kvæmd ákvarðana ráðherra samkvæmt þessari grein.
Ákvæði 2. mgr. 87. gr. gildir um ákvarðanir ráðherra eftir því sem við á.
Ráðherra er heimilt að mæla fyrir í reglugerð um nánari viðmið og skilyrði styrks og láns úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. lög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
93. gr.
Nánar um skilyrði um rekstur og stjórnsýslu sveitarfélaga.
1. sveitarfélag skili mánaðarlega upplýsingum úr bókhaldi, sem a.m.k. gefi yfirlit um tekjur, gjöld, handbært fé, eignir og skuldir,
2. sveitarfélag vinni og afgreiði fjármálaáætlun til allt að tíu ára, þar á meðal um að slík áætlun skuli gerð árlega og fullnægi, eftir því sem við á, reglum um fimm ára áætlun,
3. sveitarfélag leiti aðstoðar hjá sérhæfðum ráðgjafa eða öðrum sérfræðingi,
4. fjármálaáætlun, þar á meðal áætlun skv. 2. tölul., og starfsemi sveitarfélags að öðru leyti, séu í samræmi við tiltekin viðmið um:
a. framlegð af rekstri,
b. samdrátt í rekstri eða samdrátt í ákveðnum þætti rekstrar,
c. takmarkanir á fjárfestingum,
d. takmarkanir á lántökum og öðrum skuldbindingum, þar á meðal um gjaldmiðil sem heimilt er að taka lán í, um endurfjármögnun og önnur lánskjör,
e. nýtingu tekjustofna,
f. annað sem telja má þýðingarmikið fyrir fjármál viðkomandi sveitarfélags,
5. mat skv. 74. gr. skuli framkvæmt af tilteknum aðila eða aðila með tiltekna sérfræðikunnáttu um lægri viðmið en tilgreind er í 74. gr. og nánari fyrirmæli um það sem leggja skal mat á.
94. gr.
Ákvörðun um fjárhaldsstjórn og svipting fjárforráða.
Birta skal ákvörðun um sviptingu fjárforræðis og skipun fjárhaldsstjórnar í Lögbirtingablaði.
95. gr.
Fjárhaldsstjórn.
Fjárhaldsstjórn skal skipuð til tiltekins tíma og ekki lengur en til eins árs í senn. Þóknun til fjárhaldsmanna skal ákveðin af ráðherra og greiðist úr ríkissjóði.
96. gr.
Réttaráhrif skipunar fjárhaldsstjórnar.
Eftir að fjárhaldsstjórn hefur verið skipuð skal almennt heimilt að ráðstafa fjármunum sveitarfélagsins vegna:
1. lögbundinnar þjónustu sveitarfélagsins,
2. launa sem sveitarfélaginu ber að greiða og tengdra greiðslna,
3. aðgerða sem telja má víst að séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir verulegt tjón.
Fjárhaldsstjórn ákveður greiðslur skv. 2. mgr. og vegna annarra útgjalda sem hún telur rétt að mæta meðan á greiðslustöðvun stendur.
Að öðru leyti en að framan greinir leiðir skipun fjárhaldsstjórnar til sömu réttaráhrifa og greiðslustöðvun eftir ákvæðum IV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, í allt að eitt ár frá því að fjárhaldsstjórnin var fyrst skipuð.
97. gr.
Hlutverk og úrræði fjárhaldsstjórnar.
Fjárhaldsstjórn getur með samþykki ráðherra selt eigur sveitarfélagsins til lúkningar skuldum, þó ekki þær sem eru nauðsynlegar til framkvæmda á lögskyldum verkefnum. Með sama móti getur fjárhaldsstjórn ákveðið að færa tiltekna starfsemi sem rekin hefur verið á vegum sveitarfélags í hendur einkaaðila eða leitað samvinnu um rækslu hennar við annað sveitarfélag samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Ef sveitarfélagi hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn og fyrir liggur að það er og verður um ófyrirséða framtíð ófært um að standa í skilum með skuldbindingar sínar getur fjárhaldsstjórn ákveðið einhliða að leita nauðasamnings fyrir það. Einhliða nauðasamninga skal einungis leita hafi samningar við lánardrottna ekki borið árangur. Um slíkan nauðasamning gilda almennar reglur laga um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir því sem við getur átt en þó þannig að umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum lætur ekki greiða atkvæði um frumvarp að nauðasamningi.
98. gr.
Sameining við annað sveitarfélag.
99. gr.
Brottfall á sviptingu fjárforráða.
Í eitt ár eftir að svipting fjárforráða fellur brott þarf ávallt samþykki ráðherra á viðaukum við fjármálaáætlanir sem fjárhaldsstjórn vann og ráðherra staðfesti. Á sama tímabili getur ráðherra einnig einhliða ákveðið viðauka við umræddar fjármálaáætlanir sé það nauðsynlegt af tilliti til fjárhags sveitarfélagsins til lengri eða skemmri tíma. Haft skal viðeigandi samráð við sveitarstjórn um slíka ákvörðun.
IX. KAFLI
Samvinna sveitarfélaga og samningar um starfrækslu verkefna.
100. gr.
Samvinna sveitarfélaga.
Samvinna sveitarfélaga skal ávallt grundvallast á samningi viðeigandi sveitarfélaga sem öðlast ekki gildi fyrr en hann hefur fengið staðfestingu viðkomandi sveitarstjórna. Sé ekki ítarlegri ákvæði að finna í lögum skal í samningi um samvinnu að lágmarki kveðið á um form samvinnu, ákvarðanatöku, slit samvinnu og fjárhagsleg atriði. Afrit af öllum samningum um samvinnu sveitarfélaga þeirra á milli skal senda ráðherra sem árlega skal gefa út yfirlit yfir samninga sveitarfélaga um samvinnu.
Ákvarðanir sem eru teknar á grundvelli samnings um samvinnu sveitarfélaga, jafnvel þótt þær byggist á framsali á valdi til töku ákvörðunar um rétt eða skyldu manna, sæta ekki kæru til viðkomandi sveitarfélaga.
101. gr.
Framsal á valdi til töku ákvarðana um rétt eða skyldu manna.
Samningar samkvæmt þessari grein öðlast gildi við birtingu þeirra í Stjórnartíðindum.
102. gr.
Byggðasamlög.
Byggðasamlögum er einum rétt og skylt að hafa orðið byggðasamlag í heiti sínu eða skammstöfunina bs.
103. gr.
Aðalfundur byggðasamlaga.
Atkvæðisrétt á aðalfundi eiga:
a. allir kjörnir fulltrúar aðildarsveitarfélaga eða
b. fulltrúaráð, skipað kjörnum fulltrúum aðildarsveitarfélaga, sbr. þó 106. gr. Í samþykkt byggðasamlags skal kveðið á um fjölda fulltrúa hvers aðildarsveitarfélags í fulltrúaráði og atkvæðavægi þeirra. Öllum kjörnum fulltrúum aðildarsveitarfélaga skal þó ávallt vera heimilt að sækja aðalfund með málfrelsi og tillögurétt.
Í samþykkt byggðasamlags skv. 104. gr. skal skilgreina þær ákvarðanir sem eru á forræði aðalfundar og verða ekki framseldar til stjórnar eða framkvæmdastjóra. Að lágmarki skal aðalfundur taka ákvörðun um:
1. heildarstefnu og markmið byggðasamlags,
2. fjármálaáætlun til fimm ára og fjárheimild næstkomandi árs, sbr. þó 7. tölul. 104. gr.
3. staðfestingu ársreiknings,
4. óvenjulegar eða meiri háttar ákvarðanir, svo sem fjárfestingar, lántökur, sölu eigna eða veigamiklar breytingar á verkefnum byggðasamlags,
5. veigamiklar breytingar á samþykktum byggðasamlagsins,
6. inngöngu nýrra sveitarfélaga, úrsögn úr samstarfinu og slit byggðasamlagsins.
Heimilt er að ákveða í samþykkt byggðasamlags að tilteknar ákvarðanir aðalfundar séu háðar samþykki aðildarsveitarfélaga og skal þá aðalfundur haldinn eigi síðar en 10. október ár hvert. Í samþykkt skal þá:
a. tilgreint hvaða ákvarðanir eru háðar slíkri staðfestingu,
b. lýsa því ferli sem grípa skal til ef ákvörðun aðalfundar er ekki staðfest af öllum aðildarsveitarfélögum. Í samþykkt er heimilt að ákveða að ekki skuli haldinn aukaaðalfundur til að taka nýja ákvörðun í kjölfar slíkrar synjunar.
104. gr.
Samþykkt byggðasamlags.
1. Heiti byggðasamlags og hvaða verkefnum það sinnir.
2. Valdheimildir byggðasamlags og starfsmanna þess, þ.e. þær ákvarðanir sem aðildarsveitarfélög fela stjórn, framkvæmdastjóra eða einstökum starfsmönnum byggðasamlaga að fullnaðarafgreiða.
3. Boðun aðalfunda og framkvæmd þeirra. Heimilt er að setja reglur um tillögurétt kjörinna fulltrúa og ræðutíma, sbr. b-lið 2. mgr. 103. gr., til að tryggja eðlilega framvindu aðalfundar.
4. Kjör til fulltrúaráðs ef við á, fjölda aðalfulltrúa og varafulltrúa í fulltrúaráð, kjörtímabil og atkvæðavægi þeirra.
5. Kjör til stjórnar ef við á, fjölda aðalfulltrúa og varafulltrúa í stjórn og kjörtímabil.
6. Hvort dagleg stjórn byggðasamlags sé í höndum stjórnar eða framkvæmdastjóra sem ráðinn er af stjórn og um umboð stjórnar eða framkvæmdastjóra.
7. Hvernig ákvörðunarvaldi um viðauka við fjárheimild yfirstandandi árs er háttað. Heimilt er að mæla svo fyrir í samþykkt byggðasamlags að ákvörðun um viðauka þurfi ekki að koma til samþykktar á aðalfundi, sbr. þó 4. tölul. 3. mgr. 103. gr.
8. Ályktunarhæfi funda og annað sem máli skiptir í því sambandi.
9. Samráðsvettvang aðildarsveitarfélaga ef við á, svo sem eigendafund eða stefnuráð.
10. Hvort og hvenær þörf er á staðfestingu sveitarstjórna á ákvörðunum aðalfundar skv. 4. mgr. 103. gr.
11. Heimildir til samninga við einkaaðila ef við á, sbr. 115. gr.
12. Heimildir til samninga við einstök aðildarsveitarfélög um að þau taki að sér afmarkaða þætti í þeirri starfsemi sem falin hefur verið byggðasamlagi ef við á.
13. Skipan og störf sérfræðings skv. 3. mgr. 107. gr. og sáttanefndar skv. 3. mgr. 108. gr.
14. Úrgöngu úr byggðasamlagi, þar á meðal um uppgjör aðildarsveitarfélaga, ábyrgð á skuldbindingum og rétt til innlausnar á eignarhlutum.
105. gr.
Skýrsla um starfsemi byggðasamlags og upplýsingaréttur.
Einstakar sveitarstjórnir og endurskoðendur eiga rétt á aðgangi að öllum gögnum um stjórnsýslu byggðasamlags. Kjörnir fulltrúar eiga vegna starfa sinna rétt á öllum gögnum sem liggja fyrir í stjórnsýslu byggðasamlags og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar sveitarstjórnar, sbr. 30. gr.
106. gr.
Kosning í fulltrúaráð byggðasamlags.
Í fulltrúaráð byggðasamlags eru þeir kjörgengir í atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. sem hafa kosningarrétt í aðildarsveitarfélagi byggðasamlagsins samkvæmt kosningalögum. Í samþykkt byggðasamlags er þó heimilt að ákveða að einstaklingar sem ekki hafa náð aldri til að kjósa samkvæmt kosningalögum séu kjörgengir í slíkri atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að ákveða að atkvæðavægi fulltrúa sem kosnir eru samkvæmt þessari grein sé með öðrum hætti en skv. 1. mgr. 103. gr. Að öðru leyti skulu ákvæði 144. gr. eiga við um kosninguna.
107. gr.
Ábyrgð og kostnaðarskipting byggðasamlaga.
Þrátt fyrir 1. mgr. er heimilt að ákveða kostnaðarskiptingu og fjárhagslega ábyrgð eftir hlutlægum mælikvörðum sem sveitarfélög koma sér saman um í samþykkt byggðasamlagsins.
Hvort sem kostnaðarskipting og fjárhagsleg ábyrgð er ákveðin á grundvelli 1. eða 2. mgr. geta einstök aðildarsveitarfélög farið fram á að fyrir aðalfund verði skipaður óháður sérfræðingur eða sérfræðingar til að greina raunkostnað starfseminnar fyrir hvert sveitarfélag. Beiðni um skipan sérfræðings skal berast stjórn eða framkvæmdastjóra byggðasamlags með þeim fresti fyrir aðalfund sem nánar er kveðið á um í samþykkt byggðasamlags. Niðurstaða sérfræðings skal lögð fram sem tillaga á aðalfundi og ef hún er samþykkt skal kostnaðarskipting og fjárhagsleg ábyrgð byggjast á tillögunni fyrir komandi starfsár. Kostnaður af störfum sérfræðings skal greiðast af því sveitarfélagi sem óskar eftir skipan hans nema um annað sé samið. Kveða skal nánar á um skipan og störf slíkra sérfræðinga í samþykkt byggðasamlags.
108. gr.
Úrganga úr byggðasamlagi og slit byggðasamlags.
Einstök sveitarfélög geta með tveggja ára fyrirvara sagt upp aðild að byggðasamlagi hafi ekki verið samið um annan tímafrest. Samhliða getur sveitarfélag krafist innlausnar á nettóeignarhlut sínum í samlaginu núvirðisreiknuðum í samræmi við ákvæði í samþykkt skv. 104. gr.
Ef ágreiningur rís um úrgöngu sveitarfélags úr byggðasamlagi, þ.m.t. um skilmála hennar, innlausn eignarhluta eða tímasetningu, er byggðasamlagi og viðkomandi sveitar-félagi heimilt að skipa sáttanefnd til að leysa úr ágreiningi. Nánar skal kveðið á um skipan og störf slíkrar nefndar í samþykkt byggðasamlags. Sáttanefndin skal innan þess frests sem viðkomandi sveitarfélag og byggðasamlagið setja leggja fram sáttatillögu sem taka skal mið af fjárhagslegum skuldbindingum, mikilvægum samfélagslegum hagsmunum og hagsmunum annarra aðildarsveitarfélaga.
Náist ekki samkomulag á grundvelli sáttatillögu skv. 3. mgr. um úrgöngu sveitarfélags úr byggðasamlagi er hægt að vísa málinu til ráðherra. Ráðherra getur ákveðið að viðkomandi sveitarfélagi sé ekki heimilt að ganga úr byggðasamlagi um tilgreindan tíma, þó ekki lengur en í fimm ár að telja frá ákvörðun ráðherra, vegna mikilvægra samfélagslegra hagsmuna eða vegna mikilvægra hagsmuna annarra aðildarsveitarfélaga sem standa að byggðasamlagi. Af sömu ástæðum er ráðherra heimilt að ákveða frestun innlausnar á eignarhlut sveitarfélags.
Tillaga um að starfsemi byggðasamlags sé hætt nær því aðeins fram að ganga að hún sé staðfest af 2/ 3 hlutum sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga eða hún hafi verið samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu á starfssvæði byggðasamlagsins. Þá geta 2/ 3 hlutar stjórnarmanna í byggðasamlagi eða 2/ 3 hlutar fulltrúa á aðalfundi byggðasamlags, sé slíkur fundur haldinn, krafist atkvæðagreiðslu í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga um slit byggðasamlags.
Ef ákveðið er að hætta starfsemi byggðasamlags eða svo er fyrir mælt í lögum skal á aðalfundi skipa sérstaka skiptastjórn til að gera upp allar eignir og skuldir byggðasamlagsins. Á aðalfundi er einnig heimilt að ákveða að slitameðferð fari fram án skipaðrar skiptastjórnar. Ábyrgð á uppgjöri eigna og skulda hvílir þá á stjórn eða framkvæmdastjóra byggðasamlagsins. Heimilt er að auglýsa eftir kröfum á hendur byggðasamlaginu með opinberri innköllun sem birt skal í Stjórnartíðindum.
Þegar allar þekktar kröfur á hendur byggðasamlaginu hafa verið greiddar eða trygging sett fyrir greiðslu þeirra skal þeim eignum sem eftir standa, svo og eftirstöðvum skulda, skipt milli aðildarsveitarfélaganna. Skiptingin skal fara fram í hlutfalli við innbyrðis ábyrgðarhlutdeild aðildarsveitarfélaga á því starfsári þegar slitin fara fram skv. 107. gr. Skiptastjórn, framkvæmdastjóri eða stjórn skulu tilkynna slitin með auglýsingu í Stjórnartíðindum.
Komi fram áður óþekktar eignir eða kröfur eftir að byggðasamlagi hefur verið slitið skv. 7. mgr. hvílir ábyrgðin enn á aðildarsveitarfélögum. Skiptast slíkar eignir eða skuldir milli þeirra á sama grundvelli og lýst er í 7. mgr. og bera sveitarfélögin áfram ábyrgð á skuldbindingum í samræmi við ábyrgðarhlutfall sitt.
109. gr.
Önnur ákvæði um byggðasamlög.
Að öðru leyti en því sem kveðið er á um í 102.–108. gr. og reglugerð skv. 1. mgr. lúta byggðasamlög ákvæðum laga þessara um meðferð mála, skyldur og réttindi stjórnarmanna, starfslið, fjármál, fjármálaáætlanir og endurskoðun ársreikninga og stjórnsýslueftirlit og þeim almennu reglum sem að öðru leyti gilda um störf sveitarfélaga og annarra stjórnvalda.
110. gr.
Samningur um að sveitarfélag taki að sér verkefni fyrir önnur sveitarfélög.
Þegar sveitarfélag tekur að sér verkefni fyrir annað eða önnur sveitarfélög er heimilt að ákveða að þau sveitarfélög sem teljast kaupendur þjónustu tilnefni áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundi viðkomandi nefndar í því sveitarfélagi sem telst þjónustuveitandi þegar málefni samstarfsverkefnisins eru þar til umræðu.
Fulltrúar í sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem hafa falið öðru sveitarfélagi að annast fyrir sig afmörkuð verkefni samkvæmt þessari grein eiga sama rétt á aðgangi að gögnum og upplýsingum um það verkefni hjá því sveitarfélagi sem veitir þjónustuna og þeir hefðu ella haft skv. 30. gr.
Í samningi samkvæmt þessari grein skulu að lágmarki eftirfarandi atriði tiltekin:
1. hvaða sveitarfélög eru aðilar að samningnum,
2. hvert þeirra sér um rækslu verkefnis,
3. tilgreining viðkomandi verkefnis eða verkefna,
4. hvaða valdheimildir færast til þess sveitarfélags sem sér um verkefni,
5. gildistími samnings og á hvaða tíma sveitarfélagið tekur verkefnið yfir,
6. þörf á staðfestingu á ákvörðunum um framkvæmd verkefnis,
7. hvort sveitarfélagi sé heimilt að gera samning við einkaaðila um framkvæmd verkefnis skv. 115. gr.,
8. upplýsingagjöf til annarra samstarfsaðila,
9. fjárhagslegt uppgjör og samskipti vegna verkefnisins,
10. eignarhald á mannvirkjum, rekstrartækjum og öðrum verðmætum, ef við á, og önnur mikilvæg atriði sem varða framkvæmd verkefnis og fjárútlát vegna þess.
Þegar sveitarfélag annast verkefni fyrir annað sveitarfélag samkvæmt þessari grein skal kostnaðarskipting sveitarfélaganna byggjast á árlegri greiningu á raunkostnaði verkefnisins sem fram fer í þágu þess sveitarfélags sem þiggur þjónustuna. Sveitarfélaginu sem veitir þjónustuna er jafnframt heimilt að bæta við álagi á þá fjárhæð. Hvoru sveitarfélagi um sig er heimilt að krefjast mats óháðs sérfræðings á raunkostnaði sveitarfélagsins sem þiggur þjónustuna og skal kostnaðarskipting þá byggjast á niðurstöðu þeirrar greiningar ef sveitarfélögin geta ekki komist að annarri niðurstöðu. Kostnaður af störfum sérfræðings skal greiðast af því sveitarfélagi sem óskar eftir skipan hans nema um annað sé samið. Heimilt er að kveða nánar á um skipan og störf slíks sérfræðings í þjónustusamningi.
Ef sveitarfélög sem eru aðilar að samningi samkvæmt þessari grein eru um það sammála má slíta samstarfi þegar í stað. Að öðrum kosti getur hvert sveitarfélag sagt upp aðild sinni að samningi með eins árs fyrirvara hafi ekki verið samið um annan uppsagnarfrest.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem nánar er mælt fyrir um samninga sveitarfélaga þar sem sveitarfélag annast verkefni annars sveitarfélags. Við setningu reglugerðar samkvæmt þessari málsgrein skal ráðherra gæta þess að sveitarfélögum sé veittur hæfilegur frestur til að aðlaga starfsemi sína og samninga að breyttum reglum.
111. gr.
Landshlutasamtök sveitarfélaga.
Starfssvæði landshlutasamtaka fer eftir ákvörðun aðildarsveitarfélaga sem staðfest hefur verið af ráðherra. Landshlutasamtök skulu þó aldrei vera fleiri en átta á landinu öllu. Sveitarfélög sem liggja innan starfssvæðis landshlutasamtaka eiga rétt á aðild að þeim. Ráðuneyti og opinberar stofnanir skulu ávallt leita umsagnar hlutaðeigandi landshlutasamtaka um stefnumótun eða ákvarðanir sem varða viðkomandi landsvæði sérstaklega.
Landshlutasamtök geta með samningum eða samkvæmt heimildum í sérlögum tekið að sér verkefni eða aðra starfsemi sem tengist hlutverki þeirra skv. 1. mgr., svo sem verkefni tengd byggðaþróun eða öðrum sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaga.
Ekki er heimilt að fela landshlutasamtökum verkefni sem fela í sér töku ákvarðana um réttindi og skyldur manna samkvæmt stjórnsýslulögum nema um sé að ræða veitingu styrkja eða ákvarðanir á grundvelli laga.
Áður en landshlutasamtökum er falið nýtt verkefni með lögum skal fara fram samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi aðildarsveitarfélög. Skal þar sérstaklega metið hvort verkefnið samræmist hlutverki landshlutasamtakanna sem svæðisbundinna hagsmunasamtaka.
112. gr.
Sóknaráætlanir landshluta.
Landshlutasamtök sveitarfélaga skulu vinna sóknaráætlanir hver á sínu starfssvæði og bera ábyrgð á framkvæmd þeirra.
Sóknaráætlanir eru unnar í samvinnu við samráðsvettvang viðkomandi landshluta sem er samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkisstofnana, atvinnulífs, menningarlífs, fræðasamfélags og annarra hagsmunaaðila í hverjum landshluta.
Þar sem atvinnu- og þjónustusóknarsvæði, eins og þau eru skilgreind í byggðastefnu, ná yfir tvo eða fleiri landshluta skulu viðkomandi landshlutasamtök sveitarfélaga samhæfa sóknaráætlanir sínar.
Byggðastofnun leggur mat á framvindu sóknaráætlana og hefur eftirlit með fjárreiðum þeirra.
113. gr.
Samband íslenskra sveitarfélaga.
Sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga sem eiga aðild að sambandinu kjósa fulltrúa á landsþing sambandsins eftir þeim reglum sem ákveðnar eru í samþykktum þess.
Þegar ráðherra setur almenn stjórnvaldsfyrirmæli á grundvelli laga þessara skal hann ávallt hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um efni þeirra.
Sambandi íslenskra sveitarfélaga er heimilt, í þágu hlutverks síns sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaga, að kalla eftir og miðla nauðsynlegum gögnum og upplýsingum frá sveitarfélögum. Tilgangur gagnaöflunar skal takmarkast við að:
1. safna saman og miðla tölfræðilegum upplýsingum um starfsemi, rekstur og þjónustu sveitarfélaga,
2. greina þróun í málaflokkum sveitarfélaga til stuðnings stefnumótunar,
3. undirbúa umsagnir og gæta hagsmuna sveitarfélaga gagnvart ríkisvaldi og öðrum aðilum,
4. styðja við þróunar- og rannsóknarverkefni á vettvangi sveitarstjórnarstigsins,
5. uppfylla skyldur sem Sambandið hefur tekið að sér fyrir hönd sveitarfélaga, svo sem við hönnun og rekstur stafrænna lausna og á sviði kjaramála.
Sambandi íslenskra sveitarfélaga er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga, svo sem um kjaramál, mannauðsmál, fræðslu- og félagsþjónustu og barnavernd, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaga, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
114. gr.
Samstarf um gerð kjarasamninga.
115. gr.
Samningar um þjónustustarfsemi og einstök rekstrarverkefni.
Í samningi samkvæmt þessari grein skal m.a. skilgreina umfang og gæði þeirrar þjónustu sem sveitarfélag kaupir, samningstíma, greiðslur úr sveitarsjóði, eftirlit með þjónustu og meðferð ágreiningsmála.
Ákvæði þessarar greinar skulu gilda með sama hætti um samninga sem falla undir 1. mgr. og sveitarfélag gerir við einkaaðila með heimild í öðrum lögum nema ríkari kröfur séu gerðar til samninga í sérlögum. Lög um opinber innkaup gilda eftir því sem við á um útboð verkefna.
116. gr.
Skyldur einkaaðila sem sinna verkefni fyrir sveitarfélag.
Sama gildir geri byggðasamlag slíka samninga við einkaaðila.
X. KAFLI
Samráð við íbúa.
117. gr.
Réttur íbúa til áhrifa á stjórn sveitarfélags.
Áhrif íbúa má m.a. tryggja með:
1. virkri upplýsingagjöf til íbúa,
2. því að skilgreina samráðsferla þar sem fram komi upplýsingar um hvernig upplýsingamiðlun verði háttað, svigrúm og möguleikar íbúa og þjónustunotenda til áhrifa eftir mismunandi samráðsleiðum og að hvaða leyti verði tekið mið af þátttöku þeirra í samráðinu,
3. skipun íbúa- og notendaráða,
4. því að skipuleggja starfsemi sveitarfélagsins eftir staðbundnum forsendum í samráði við svæðisbundin íbúaráð, nefndir fyrir hluta sveitarfélaga og íbúa,
5. samstarfi við þjónustunotendur og íbúa sem vilja vinna í þágu samfélagsins í sveitarfélögum.
118. gr.
Upplýsingar um málefni sveitarfélags.
Upplýsingagjöf skv. 1. mgr. skal eiga sér stað á meðan mál eða áætlanir eru til meðferðar hjá sveitarfélaginu og áður en þau eru fullnaðarafgreidd nema nauðsyn krefjist hraðari málsmeðferðar. Skal þá getið um ástæður þess við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn skal leitast við að upplýsa almennt um þær leiðir og aðferðir sem hún notar til samráðs við íbúa, m.a. við undirbúning mála og áætlana skv. 1. mgr.
Sveitarstjórn skal enn fremur leitast við að íbúar sveitarfélagsins fái reglulega upplýsingar um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, umfang þess og kostnað.
119. gr.
Opinber gagnaveita um fjármál sveitarfélaga.
Ráðherra getur sett nánari fyrirmæli um gagnaveitu skv. 1. mgr. í reglugerð.
120. gr.
Íbúakosningar um einstök málefni.
Til atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. skal boða með a.m.k. 20 daga fyrirvara með opinberri auglýsingu. Samhliða skal sveitarstjórn opinberlega kynna þá tillögu sem borin verður undir atkvæði og þær upplýsingar sem kjósendum eru nauðsynlegar til að geta tekið til hennar upplýsta afstöðu.
Atkvæðagreiðsla samkvæmt þessari grein og skv. 121. gr. er ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði að hún skuli binda hendur hennar til loka kjörtímabils. Í auglýsingu skv. 2. mgr. skal koma fram hvort atkvæðagreiðsla er bindandi. Slíka ákvörðun má binda skilyrði um að tiltekið hlutfall þeirra sem voru á kjörskrá hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslu.
Við framkvæmd atkvæðagreiðslu samkvæmt þessari grein skal að öðru leyti farið eftir ákvæðum 144. gr.
121. gr.
Frumkvæði íbúa sveitarfélags.
Almennrar atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. verður ekki krafist um efni fjármálaáætlunar skv. 70. gr., fjárheimildir næstkomandi árs og viðauka skv. 71. gr., um tekjustofna sveitarfélaga eða álagningu annarra lögheimilla gjalda, um ráðningu í störf hjá sveitarfélagi, um laun og önnur starfskjör sveitarstjórnarfulltrúa eða starfsmanna sveitarfélags eða tillögu sem gengur gegn lögum eða myndi leiða til þess að lagaskyldu yrði ekki fullnægt af hálfu sveitarfélagsins.
Við mat á því hvort tilskilinn fjöldi hafi lagt fram ósk skv. 1. mgr. skal miðað við þá einstaklinga sem hafa kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórna á þeim degi sem söfnun undirskrifta og/eða staðfestinga lýkur samkvæmt kjörskrá sem Þjóðskrá Íslands lætur sveitarfélagi í té.
Ráðherra skal í reglugerð mæla nánar fyrir um það hvernig staðið verður að söfnun undirskrifta skv. 1. og 2. mgr. Þar má m.a. kveða á um að undirskriftir skuli lagðar fram á sérstöku eyðublaði sem ráðherra eða viðkomandi sveitarfélag lætur gera eða að staðfesting skuli lögð fram rafrænt á nánar tiltekinn hátt. Sé mælt fyrir um rafræna staðfestingu skal þó ávallt jafnframt gefinn kostur á að undirskriftir verði lagðar fram skriflega á þar til gerðum eyðublöðum.
XI. KAFLI
Stjórnsýslueftirlit með sveitarfélögum.
122. gr.
Almennt stjórnsýslueftirlit með sveitarfélögum.
Eftirlit ráðherra tekur ekki til eftirfarandi:
1. Sambands íslenskra sveitarfélaga eða landshlutasamtaka sveitarfélaga nema þessum aðilum hafi verið falin stjórnsýsluverkefni fyrir hönd einstakra sveitarfélaga skv. 1. mgr. sem ráðherra hefði ella haft eftirlit með.
2. Ákvarðana sveitarfélaga sem teknar er á grundvelli einkaréttar nema að því leyti sem almennar reglur stjórnsýslu- og sveitarstjórnarréttar gilda um málsmeðferð sveitarfélags.
3. Ákvarðana sveitarfélaga í starfsmannamálum.
4. Gerðar kjarasamninga.
5. Skyldu sveitarfélaga að skrá upplýsingar um málsatvik og meðferð mála samkvæmt upplýsingalögum.
6. Stjórnsýslu sveitarfélaga sem öðrum stjórnvöldum er með beinum hætti falið eftirlit með.
123. gr.
Tegundir eftirlitsmála.
1. við meðferð mála sem lúta að fjármálum sveitarfélaga, sbr. VIII. kafla,
2. við meðferð kærumála, sbr. 124. gr.,
3. við meðferð eftirlitsmála, sbr. 125.–127. gr.
Þegar ráðherra þarf að beita úrræðum samkvæmt lögum þessum í tengslum við eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga skal hann velja það úrræði sem líklegast er að nái því markmiði sem að er stefnt að teknu tilliti til sjálfstjórnar sveitarfélaga. Heimilt er að nota fleiri en eitt úrræði samkvæmt lögum þessum samhliða eftir því sem tilefni er til.
Áður en ráðherra tekur ákvörðun um beitingu úrræða samkvæmt kafla þessum skal hann gefa sveitarstjórn færi á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Það á þó ekki við um úrræði ráðherra skv. 4. mgr. 127. gr.
Ráðherra getur óskað eftir því að önnur stjórnvöld veiti, innan síns málefnasviðs, þá leiðsögn sem nauðsynleg er vegna eftirlits hans skv. 122. gr.
Önnur stjórnvöld geta leitað eftir áliti ráðherra vegna álitaefna er snúa að túlkun laga þessara og almennra reglna sveitarstjórnarréttar við meðferð eftirlitsmála.
124. gr.
Stjórnsýslukæra.
Kæra skal borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun nema lög mæli á annan veg. Um kæruleiðbeiningar, kærufrest og meðferð kærumáls fer að öðru leyti að ákvæðum stjórnsýslulaga.
125. gr.
Ábendingar vegna stjórnsýslu sveitarfélags.
Persónuupplýsingar þess sem veitir ráðherra ábendingu skv. 1. mgr. eru háðar þagnarskyldu og skulu ekki veittar þriðja aðila nema með samþykki viðkomandi.
126. gr.
Kvartanir vegna stjórnsýslu sveitarfélaga.
Í kvörtun til ráðherra skv. 1. mgr. skal lýst þeirri úrlausn eða annarri háttsemi sveitarfélags sem er tilefni kvörtunar og öll tiltæk gögn um málsatvik skulu fylgja henni. Ráðherra skal upplýsa þann sem ber fram kvörtun skv. 1. mgr. hvort hún hafi gefið tilefni til umfjöllunar hans og um niðurstöðu málsins.
127. gr.
Umfjöllun ráðherra um stjórnsýslu sveitarfélaga.
Þegar ráðherra ákveður að fjalla um stjórnsýslu sveitarfélags skv. 1. mgr. getur hann:
1. gefið út leiðbeiningar um túlkun laga og stjórnsýslu sveitarfélagsins,
2. gefið út álit um lögmæti athafna eða athafnaleysis sveitarfélags eða annars er eftirlit beinist að,
3. gefið út fyrirmæli til sveitarfélags eða annarra er eftirlit beinist að, um að það taki ákvörðun í máli, felli ákvörðun úr gildi eða komi málum að öðru leyti í lögmætt horf,
4. beitt öðrum úrræðum samkvæmt kafla þessum, sé tilefni til.
Niðurstöður ráðherra skv. 2. mgr. skulu rökstuddar eftir því sem tilefni er til. Í þeim skal einnig koma skýrt fram hvort og þá hvernig ráðherra muni fylgja niðurstöðu sinni eftir.
Ráðherra getur að eigin frumkvæði tekið til umfjöllunar atriði sem falla undir eftirlit hans skv. 122. gr. og gefið út álit eða leiðbeiningar um túlkun laga eða stjórnsýslu sveitarfélaga með almennum hætti, að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
128. gr.
Aðgangur að upplýsingum.
Ráðherra getur óskað þess að starfsmenn þeirra aðila sem lúta eftirliti ráðherra skv. 122. gr. veiti honum upplýsingar og skýringar sem varða einstök mál, og ráðherra er þörf á vegna eftirlits síns. Lögbundin þagnarskylda stendur ekki í vegi slíkrar upplýsingagjafar.
Við framkvæmd upplýsingaöflunar skal taka tillit til hagsmuna viðkomandi stjórnvalda og einkaaðila ef við á og ekki ganga lengra en þörf er á.
129. gr.
Ógilding ákvarðana og frestun réttaráhrifa.
Þegar sérstakar ástæður mæla með því getur ráðherra ákveðið að fresta réttaráhrifum ákvörðunar sem sveitarfélag hefur tekið meðan hann hefur mál til meðferðar skv. VIII. kafla eða 124. og 127. gr.
130. gr.
Ógilding samþykkta og samninga.
a. einstök ákvæði samnings eða samþykktar eða
b. samþykkt eða samning í heild sinni.
Hið sama á við hafi sveitarfélag eða annar aðili sem eftirlit ráðherra beinist að gert samning sem í veigamiklum atriðum fullnægir ekki ákvæðum sem fram koma í VII. kafla um fjármál sveitarfélaga eða VIII. kafla um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, enda hafi eftirlitsnefnd með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga lagt það til með rökstuddum hætti.
Ákvæði þetta á þó ekki við ef samningur telst marklaus gagnvart sveitarfélagi vegna veigamikilla ágalla á gerð hans.
Ákvörðun ráðherra skv. a- og b-lið 1. mgr. skal birt í Stjórnartíðindum.
131. gr.
Vanræksla sveitarfélaga.
Hafi sveitarfélag, að undangenginni formlegri umfjöllun ráðherra skv. 127. gr., vanrækt að sinna skyldum sínum samkvæmt lögum þessum og öðrum löglegum fyrirmælum, sem falla undir eftirlit ráðherra skv. 122. gr., getur ráðherra lokið málinu með ákvörðun um stjórnvaldssekt sem lögð er á sveitarfélagið. Heimild ráðherra til að beita stjórnvaldssektum er bundin eftirfarandi skilyrðum:
1. að skilyrði fyrir ógildingu ákvörðunar sveitarfélags séu ekki fyrir hendi,
2. að önnur og vægari úrræði þessa kafla hafi verið reynd án árangurs eða augljóst þykir að þau muni ekki ná árangri,
3. að um sé að ræða mjög alvarlega eða ítrekaða vanrækslu af hálfu sveitarfélags.
Ákvæði þessu er heimilt að beita gagnvart byggðasamlögum eftir því sem við á.
Ráðherra skal í reglugerð ákveða lágmarks- og hámarksfjárhæð dagsekta skv. 1. mgr. en hámarksfjárhæð stjórnvaldssekta skv. 2. mgr. skal aldrei miða við hærri fjárhæð en 1% af heildarrekstrartekjum sveitarfélags á undangengnu fjárhagsári eða aldrei hærri fjárhæð en 300 millj. kr. Ákvörðun um stjórnvalds- eða dagsektir skal taka mið af alvarleika brots og íbúafjölda sveitarfélags. Hámarksfjárhæð stjórnvaldssekta skal uppfæra miðað við vísitölu neysluverðs eins og hún var reiknuð út af Hagstofu Íslands fyrir desember 2026.
Stjórnvalds- og dagsektir renna í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Gera má aðför, án undangengins dóms, til fullnustu sekta. Dagsektir skulu innheimtar ekki sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Fresta skal innheimtu stjórnvalds- eða dagsekta ef það málefni sem um ræðir er borið undir dómstóla. Óinnheimtar dagsektir falla niður þegar skyldu er fullnægt.
Ráðherra er heimilt að innheimta stjórnvalds- og dagsektir með því að halda eftir samsvarandi fjárhæð af almennum jöfnunarframlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem veitt eru á grundvelli laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
132. gr.
Dómsmál til ógildingar á ákvörðun ráðherra.
133. gr.
Viðurkenningarmál.
XII. KAFLI
Sameining sveitarfélaga.
134. gr.
Sameining sveitarfélaga.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu um sameiningu skulu viðkomandi sveitarstjórnir taka málið á dagskrá. Skal hafa eina umræðu um málið án atkvæðagreiðslu.
Að lokinni umræðu sveitarstjórna skal fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameininguna. Atkvæðagreiðslan skal fara fram samtímis í öllum viðkomandi sveitarfélögum.
Íbúum sveitarfélaganna skal kynnt tillagan sem greiða skal atkvæði um og helstu forsendur hennar með a.m.k. 20 daga fyrirvara, svo sem með kynningarfundum og/eða dreifibréfum. Tillagan skal innan sama frests auglýst opinberlega í Lögbirtingablaði og í fjölmiðlum.
Við framkvæmd atkvæðagreiðslu samkvæmt þessari grein skal að öðru leyti farið eftir ákvæðum 144. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari tilhögun við sameiningu sveitarfélaga.
135. gr.
Skilyrði fyrir frjálsri sameiningu.
Sveitarstjórnum sveitarfélaga þar sem sameiningartillaga hlýtur samþykki meiri hluta kjósenda er heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga þótt tillaga samstarfsnefndar hljóti ekki samþykki meiri hluta kjósenda í öllum sveitarfélögunum sem stóðu að tillögunni.
Heimilt er að sameina sveitarfélög yfir mörk kjördæma en slík sameining hefur ekki áhrif á skipan kjördæma við alþingiskosningar.
136. gr.
Fjárhagslegar ráðstafanir eftir samþykkt sameiningartillögu.
137. gr.
Undirbúningur að stofnun nýs sveitarfélags.
Stjórn til undirbúnings nýs sveitarfélags skv. 1. mgr. ber ábyrgð á undirbúningi að stofnun nýs sveitarfélags þannig að starfsemi þess geti hafist hnökralaust við gildistöku sameiningarinnar. Í því skyni skal undirbúningsstjórn sinna m.a. eftirfarandi verkefnum:
1. ákveða hvaða samþykkt um stjórn og fundarsköp frá einu af eldri sveitarfélögunum skuli gilda til fyrir hið nýja sveitarfélag þar til ný sveitarstjórn hefur sett því samþykkt,
2. ákveða fjölda kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa í hinu nýja sveitarfélagi,
3. ákveða hvort í nýju sveitarfélagi starfi nefndir sem fara með málefni fyrir hluta sveitarfélags og hlutverk, skipan og valdheimildir þeirra, sbr. 43. gr., þ.m.t. heimastjórnir skv. 44. gr. Undirbúningsstjórn er jafnframt heimilt að ákveða að kosningar til slíkra nefnda, sem fram eiga að fara skv. 144. gr., fari fram fyrir gildistöku sameiningarinnar og hefja undirbúning þeirra,
4. gera tillögu um hvernig sameiningin tekur gildi, sbr. 139. gr.,
5. taka nauðsynlegar ákvarðanir um fjármál og rekstur hins nýja sveitarfélags fram að fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar,
6. semja drög að nýrri samþykkt um stjórn og fundarsköp sem ný sveitarstjórn tekur afstöðu til þegar sameiningin hefur tekið gildi,
7. yfirfara gildandi samþykktir og reglur aðildarsveitarfélaganna og hefja vinnu við samræmingu þeirra.
138. gr.
Staðfesting ráðherra á sameiningu.
Staðfesting ráðherra skv. 1. mgr. skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Þar skal greint frá hvaða sveitarfélög hafa verið sameinuð, tölu sveitarstjórnarfulltrúa, hvaða samþykkt um stjórn sveitarfélagsins gildir þar til ný sveitarstjórn hefur sett því samþykkt skv. 6. tölul. 2. mgr. 137. gr., hvort í nýju sveitarfélagi starfi nefndir sem fara með málefni fyrir hluta sveitarfélags ef við á skv. 3. tölul. 2. mgr. 137. gr. og með hvaða hætti sameining öðlast gildi skv. 139. gr.
139. gr.
Gildistaka sameiningar.
Ef kosið skal til nýrrar sveitarstjórnar ákveður ráðherra að tillögu stjórnar til undirbúnings að stofnun hins nýja sveitarfélags hvaða dag kosningar til hins sameinaða sveitarfélags fara fram. Um kosningar til nýrrar sveitarstjórnar og um skipti á sveitarstjórnum fer að öðru leyti eftir ákvæðum laga þessara og kosningalaga. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins nýja sveitarfélags 15 dögum eftir kjördag. Á sama tíma tekur sameining gildi.
Ef sveitarstjórn eins hinna sameinuðu sveitarfélaga tekur yfir stjórn þess nýja til loka kjörtímabils tekur sameining gildi á þeim degi sem ráðherra ákveður. Sama dag fellur umboð annarra sveitarstjórna hinna sameinuðu sveitarfélaga úr gildi.
140. gr.
Endurskoðun reglna, samþykkta og gjaldskráa.
Að því leyti sem ákvörðunum, svo sem um skatta, verður ekki breytt innan ársins vegna ákvæða annarra laga er heimilt að hafa mismunandi reglur innan hins nýja sveitarfélags þann tíma sem af ákvæðum viðkomandi laga leiðir.
141. gr.
Fjárhagsleg aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
XIII. KAFLI
Samskipti og samráð ríkis og sveitarfélaga.
142. gr.
Formlegt samráð og samstarf ríkis og sveitarfélaga.
Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga skal funda að lágmarki einu sinni á ári. Fast sæti á fundum samstarfsráðsins eiga ráðherra sveitarstjórnarmála, sá ráðherra er fer með fjárreiður ríkisins og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aðrir ráðherrar sitja fundi samstarfsráðsins eftir því sem tilefni er til hverju sinni. Um skipan samstarfsráðsins fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum samstarfssáttmála, sbr. 4. mgr.
Yfirumsjón með samstarfi samkvæmt þessari grein hefur samstarfsnefnd ríkis og sveitarfélaga. Í henni eiga sæti ráðuneytisstjórar ráðuneytis sveitarstjórnarmála og þess ráðuneytis er fer með fjárreiður ríkisins og þrír fulltrúar tilnefndir af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ef þörf er á getur samstarfsnefndin ákveðið að kalla til fulltrúa fleiri ráðuneyta. Samstarfsnefndin starfar í umboði samstarfsráðsins og er vettvangur fyrir reglulega umfjöllun um samskiptamál ríkis og sveitarfélaga.
Samstarf samkvæmt þessari grein skal nánar útfært í samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga sem unninn skal af samstarfsnefnd eða í sérlögum eftir því sem við á. Þar skal einnig fjallað um gerð árlegrar þjóðhags- og landshlutaspár sem leggja ber til grundvallar í samstarfi samkvæmt þessari grein og sveitarfélögum er skylt, eftir því sem við á, að byggja á við gerð fjármálaáætlana.
143. gr.
Mat á fjárhagslegum áhrifum.
Við mat á fjárhagslegum áhrifum skv. 1. mgr. skulu markmið og tilætluð áhrif dregin skýrt fram ásamt nákvæmri lýsingu á þjónustukröfum. Á þeim grunni skal meta áhrif þeirra á sveitarfélög. Í matinu skal m.a. lagt til hvernig sá kostnaður sem leiðir af fyrirhuguðum breytingum verði fjármagnaður.
Þegar mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnarfrumvarps, stjórnvaldsfyrirmæla eða annarra stefnumarkandi ákvarðana liggur fyrir skal matið þegar lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og því gefinn hæfilegur frestur til umsagnar.
Mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög samkvæmt þessari grein og afstaða Sambands íslenskra sveitarfélaga til matsins skal liggja fyrir áður en stjórnarfrumvarp er afgreitt úr ríkisstjórn til framlagningar á Alþingi eða stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar aðgerðir af hálfu stjórnvalda eru endanlega ákveðnar.
Verði ágreiningur um niðurstöðu mats á fjárhagslegum áhrifum getur Samband íslenskra sveitarfélaga eða viðkomandi ráðherra vísað ágreiningsefninu til samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga skv. 3. mgr. 142. gr. Skal umsögn nefndarinnar getið í greinargerð með stjórnarfrumvarpi eða tillögu til þingsályktunar. Þegar um er að ræða stjórnvaldsfyrirmæli eða aðrar stefnumarkandi ákvarðanir skal viðkomandi ráðherra upplýsa Samband íslenskra sveitarfélaga um afstöðu sína til umsagnar nefndarinnar.
Komi í ljós að ekki hafi farið fram mat á fjárhagslegum áhrifum samkvæmt þessari grein og ljóst er að löggjöf, stjórnvaldsfyrirmæli eða stefnumarkandi ákvarðanir ríkisins munu hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélag eða sveitarfélög skal viðkomandi ráðherra eiga frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum sem geta m.a. falið í sér breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum.
XIV. KAFLI
Framkvæmd íbúakosninga sveitarfélaga.
144. gr.
Íbúakosningar sveitarfélaga.
Atkvæðagreiðsla í íbúakosningu skal vera leynileg og atkvæðisréttur jafn. Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð skv. 8. mgr. að í íbúakosningu skv. 1. mgr. skuli kjósendum vera heimilt að greiða atkvæði með pósti og/eða að íbúakosning fari fram á tilteknu tímabili í stað þess að hún fari fram á tilteknum kjördegi. Einungis er heimilt að auglýsa atkvæðagreiðslu sem fer fram á grundvelli laga þessara undir heitinu íbúakosning.
Rétt til þátttöku í íbúakosningu á:
1. hver íslenskur, danskur, finnskur, sænskur eða norskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning hefst og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu,
2. erlendur ríkisborgari, annar en greinir í a-lið, ef hann hefur átt skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir upphaf kosningar, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar.
Sveitarstjórn er heimilt að veita þeim íbúum kosningarrétt í íbúakosningum sem verða 16 ára á kosningaári.
Í íbúakosningu um einstök málefni sveitarfélags sem fram fer að frumkvæði sveitarstjórnar og ekki er bindandi, sbr. 3. mgr. 120. gr., er sveitarstjórn heimilt að ákveða að kosningarréttur sé bundinn ákveðnum aldri, að kosningarréttur sé bundinn við lögheimili í tilteknum hluta sveitarfélags, sbr. 1. mgr. 120. gr., og/eða að ekki sé gerð krafa um ríkisfang eða búsetutíma. Ákvörðun sveitarstjórnar er háð því skilyrði að hægt sé að gefa út kjörskrá fyrir þann hóp kjósenda sem um ræðir.
Þjóðskrá Íslands skal gera kjörskrá fyrir atkvæðagreiðsluna og um gerð hennar gilda ákvæði reglugerðar, sbr. 8. mgr. Þjóðskrá Íslands er heimil vinnsla persónuupplýsinga við gerð kjörskrár fyrir íbúakosningar sveitarfélaga og skal hún vera í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Ákvörðunum Þjóðskrár Íslands um gerð kjörskrár, þ.m.t. um að taka kjósanda á kjörskrá og um leiðréttingar á kjörskrá, má skjóta til ráðherra. Nánar skal kveðið á um málsmeðferð slíkra kærumála, svo sem um kærufresti og aðild, í reglugerð skv. 8. mgr.
Sveitarfélög setja sér reglur í samþykkt um stjórn sveitarfélags eða í sérstakri samþykkt hvernig kosið skuli í nefnd fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 43. og 44. gr. Reglurnar skulu birtar eigi síðar en 30 dögum áður en atkvæðagreiðsla hefst. Að öðru leyti gilda um slíkar kosningar lög þessi og reglugerð skv. 8. mgr.
Ráðherra skal setja reglugerð um þau lágmarksatriði sem skulu gilda um undirbúning, framkvæmd og fyrirkomulag íbúakosninga sveitarfélaga, þ.m.t. um skipan og starfshætti kjörstjórnar, kjörskrá, framkvæmd talningar, kjörgögn, aðstoðarmenn kjósenda, umboðsmenn, kostnað við kosningar, fyrirkomulag atkvæðagreiðslu með pósti, kærumál o.fl. Í reglugerðinni skal jafnframt mælt fyrir um þau lágmarksatriði sem fram skulu koma í reglum sveitarfélaga um íbúakosningar um skipan nefndar fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 43. og 44. gr., þ.m.t. reglur um kjörgengi frambjóðenda.
145. gr.
Rafræn íbúakosning.
Ráðherra skal í reglugerð mæla nánar fyrir um hlutverk Þjóðskrár Íslands vegna rafrænna íbúakosninga, undirbúning, framkvæmd og fyrirkomulag rafrænna kosninga og gerð rafrænnar kjörskrár, þar á meðal um notkun rafrænnar kjörskrár, viðmiðunardag kjörskrár, auglýsingu um kjörskrá og heimild til breytinga á henni, um skipan og starfshætti kjörstjórna, meðferð kjörgagna, tímafresti, öryggi við framkvæmd sem tryggir leynd kosninga, gerð kosningakerfa, dulkóðun og framkvæmd öryggisúttektar, kröfur til auðkenningar, framkvæmd talningar, kosningakærur og eyðingu gagna úr kosningakerfum að afloknum kosningum. Að öðru leyti gilda ákvæði 144. gr. um framkvæmd rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár.
Þjóðskrá Íslands er heimilt að taka gjald í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar fyrir þá þjónustu sem stofnunin veitir vegna undirbúnings og framkvæmdar rafrænna íbúakosninga skv. 1. mgr. og rafrænna undirskriftasafnana skv. 121. gr., svo og fyrir gerð rafrænnar kjörskrár skv. 1. mgr.
Ráðherra er heimilt að skipa þriggja manna ráðgjafarnefnd til að vera ráðherra til ráðgjafar og til að fylgjast með framkvæmd rafrænna íbúakosninga og gerð rafrænnar kjörskrár sem og að sinna öðrum verkefnum sem ráðherra felur henni á þessu sviði. Einn skal skipa samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvo án tilnefningar. Þrír varafulltrúar skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
146. gr.
Kvörtun vegna ólögmæti íbúakosninga.
Við meðferð kvörtunar skv. 1. mgr. skal ráðherra taka til skoðunar atriði sem snúa að framkvæmd og undirbúningi kosningarinnar og stjórnsýslu sveitarfélaga í tengslum við hana. Galli á kosningu leiðir ekki til ógildingar kosningar nema verulega líklegt sé að hann hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Niðurstaða ráðherra er endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi.
Heimilt er að bera niðurstöðu ráðherra skv. 1. mgr. eða úrskurð skv. 6. mgr. 144. gr. undir dómstóla innan tveggja vikna frá birtingu. Málið sætir flýtimeðferð skv. XIX. kafla laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991, en um það fer að öðru leyti samkvæmt almennum reglum þeirra laga.
Málshöfðun vegna lögmæti bindandi íbúakosningar, þar á meðal um sameiningu sveitarfélaga, frestar réttaráhrifum niðurstöðu ráðherra þar til endanlegur dómur liggur fyrir. Málshöfðun frestar að öðru leyti ekki réttaráhrifum ákvarðana eða úrskurða ráðherra.
147. gr.
Refsiákvæði vegna íbúakosninga.
a. ef sveitarstjórn, kjörstjórn eða starfsmaður sveitarfélags hagar fyrirskipaðri framkvæmd laga þessara vísvitandi á ólöglegan hátt eða vanrækir hana,
b. kjósandi ónýtir af ásettu ráði atkvæðaseðil sinn við kosningu,
c. maður njósnar um hvernig kjósandi kýs eða hefur kosið,
d. maður vanrækir af ásettu ráði að koma til skila atkvæðisbréfi sem honum hefur verið trúað fyrir eða tefur vísvitandi fyrir sendingu atkvæða og kjörgagna,
e. maður gefur ónákvæmar eða villandi upplýsingar um sig eða aðra, svo sem um nafn, aldur, búsetu í landinu, heimilisfang eða annað, sem leiðir eða leitt getur til þess að maður verður settur á kjörskrá sem ekki á rétt á að vera þar, eða maður er ekki settur á kjörskrá eða er tekinn út af kjörskrá sem á rétt á að vera þar, eða maður verði látinn greiða atkvæði í stað annars manns sem stendur á kjörskrá; hér undir heyrir sérstaklega ef maður telur sig til málamynda eiga lögheimili í kjördæmi, aðeins til þess að verða settur þar á kjörskrá, ef ekki liggur þyngri refsing við eftir öðrum ákvæðum laga þessara eða eftir öðrum lögum,
f. maður gefur út villandi kosningaleiðbeiningar,
g. kjörstjórnarmaður eða starfsmaður sveitarfélags njósnar um hvernig kjósandi kýs eða hefur kosið, eða gefur vísvitandi villandi kosningaleiðbeiningar,
h. kjörstjórnarmaður, starfsmaður sveitarfélags eða aðstoðarmaður kjósanda sem aðstoð veitir segir frá því hvernig kjósandi sem hann hefur aðstoðað hefur greitt atkvæði,
i. kjörstjórnarmaður, starfsmaður sveitarfélags eða sá sem tekið hefur að sér flutning kjörgagna tefur fyrir að þau komist til skila,
j. maður greiðir atkvæði á tveimur stöðum við sömu kosningar,
k. maður ber fé eða fríðindi á mann eða heitir manni fé eða fríðindum til að hafa áhrif á hvort hann greiðir atkvæði eða hvernig hann greiðir atkvæði, eða ef maður sviptir mann atvinnu eða hlunnindum eða ógnar manni með sviptingu atvinnu eða hlunninda í sama skyni,
l. maður tekur fé eða fríðindi fyrir að greiða atkvæði, láta vera að greiða atkvæði eða greiða atkvæði á ákveðinn hátt
m. aðstoðarmaður kjósanda aðstoðar fleiri en þrjá kjósendur við sömu kosningu.
Það varðar fangelsi allt að tveimur árum nema þyngri refsing liggi við eftir öðrum lögum:
a. ef maður beitir þvingunarráðstöfunum eða ofbeldi eða hótunum um ofbeldi til að raska kosningafrelsi manns, með því að neyða hann til að greiða atkvæði, með því að meina honum að greiða atkvæði eða neyða hann til að greiða atkvæði á annan veg en hann vill,
b. ef maður vísvitandi rangfærir atkvæðagreiðslu, annaðhvort með því að glata atkvæði, breyta atkvæði, skemma eða glata atkvæðasendingu, búa til kjörseðla, sem líkjast mjög þeim sem notaðir eru við kosningu, og hagnýtir þá sjálfur eða lætur þá frá sér til þess að aðrir geti ruglað úrslit talningar atkvæða eða á annan hátt.
XV. KAFLI
Aðrar skyldur sveitarfélaga.
148. gr.
Málstefna.
Mál það sem er notað í starfsemi sveitarfélags eða á vegum þess skal vera vandað, einfalt og skýrt.
149. gr.
Stefna um þjónustustig í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags.
Við gerð og mótun stefnunnar skal sveitarstjórn hafa samráð við íbúa sveitarfélagsins. Málsmeðferð við afgreiðslu stefnunnar skal að öðru leyti vera skv. 3. mgr. 70. gr.
XVI. KAFLI
Ýmis ákvæði, gildistaka og breytingar á öðrum lögum.
150. gr.
Neyðarástand í sveitarfélagi.
Verði sveitarstjórn að mati ráðherra óstarfhæf vegna neyðarástands í sveitarfélagi, svo sem af völdum náttúruhamfara, getur ráðherra falið sveitarstjórn og viðeigandi nefndum nágrannasveitarfélags að fara með stjórn sveitarfélagsins eða falið sérstakri nefnd að fara með tiltekin verkefni sveitarfélagsins á ábyrgð þess. Ráðherra getur einnig skipað sveitarfélagi sérstaka framkvæmdastjórn sem tekur að fullu við hlutverki hinnar óstarfhæfu sveitarstjórnar. Ráðherra skal með reglugerð setja almenn fyrirmæli um starfshætti slíkrar framkvæmdastjórnar.
Ráðherra skal birta ákvörðun skv. 1. og 2. mgr. í Stjórnartíðindum og getur hún gilt að hámarki í fjóra mánuði í senn.
151. gr.
Sérreglur um stjórn og stjórnskipulag einstakra sveitarfélaga.
Sveitarstjórnum er á sama hátt og kveðið er á um í 1. mgr. heimilt að gera með sér samning um samvinnu sín á milli sem felur í sér frávik frá ákvæðum IX. kafla um samvinnu sveitarfélaga og samninga um starfrækslu verkefna.
Samþykktir um stjórn og fundarsköp sem settar eru á grundvelli þessarar greinar skulu vera ítarlegar og taka til allra þátta sem nauðsynlegir eru svo að stjórn sveitarfélags geti gengið hnökralaust. Sömu skilyrði eiga við um samninga um starfrækslu verkefna.
Ef fallið er frá stjórnskipulagi sem ákveðið er samkvæmt þessari grein skal sveitarstjórn þegar setja sveitarfélaginu nýja samþykkt um stjórn og fundarsköp sem er í samræmi við ákvæði laga þessara. Verður þessari heimild þá ekki beitt á ný af hálfu viðkomandi sveitarfélags fyrr en að átta árum liðnum.
152. gr.
Reglugerðarheimild.
1. Gerð stefnumótandi áætlunar og aðgerðaáætlunar skv. 6. mgr. 4. gr.
2. Viðmið sem lögð eru til grundvallar jafnvægis- og skuldareglu skv. 3. mgr. 72. gr.
3. Áhrifamat skv. 3. mgr. 74. gr.
4. Tryggingar lánasjóðsins skv. 3. mgr. 76. gr.
5. Bókhald sveitarfélaga, fjármálaáætlana og vinnslu, meðferð, form og innihald ársreiknings og meðferð á skýrslum endurskoðanda um hann skv. 83. gr.
6. Ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga úr bókhaldi og reikningsskilum skv. 3. mgr. 84. gr.
7. Störf eftirlitsnefndar með fjármálum og reikningsskilum sveitarfélaga, viðmið um fjárhagsleg málefni sveitarfélaga skv. 89. gr.
8. Söfnun undirskrifta skv. 4. mgr. 121. gr.
9. Lágmarks- og hámarksfjárhæð dagsekta skv. 4. mgr. 131. gr.
10. Íbúakosningar sveitarfélaga skv. 8. mgr. 144. gr.
11. Rafrænar íbúakosningar sveitarfélaga skv. 2. mgr. 145. gr.
12. Starfshætti framkvæmdastjórnar skv. 2. mgr. 150. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um:
1. Heimilaðar tilfærslur innan málaflokka í fjárheimild án viðauka skv. 4. mgr. 71. gr.
2. Nánari viðmið og skilyrði styrks og láns úr Jöfnunarsjóði sveitarfélag skv. 5. mgr. 92. gr.
3. Starfsemi byggðasamlaga skv. 1. mgr. 109. gr.
4. Samninga þar sem sveitarfélag tekur yfir verkefni annars skv. 7. mgr. 110. gr.
5. Opinbera gagnaveitu skv. 2. mgr. 119. gr.
6. Sameiningu sveitarfélaga skv. 6. mgr. 134. gr.
153. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011.
154. gr.
Breyting á öðrum lögum.
1. Lög um félagsheimili, nr. 107/1970: Í stað orðsins „fjárhagsáætlun“ í 2. gr. laganna kemur: fjármálaáætlun.
2. Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991:
a. Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
1. Í stað „94. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 102. gr.
2. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
3. Í stað „96. gr.“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: 110. gr.
4. Í stað „28. gr.“ í 5. mgr. kemur: 30. gr.
b. 1. mgr. 55. gr. laganna orðast svo:
Um félagsmálanefndir og starfslið sveitarfélaga gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga eftir því sem við á.
3. Lög um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995: Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. laganna:
a. Í stað orðsins „fjárhagsáætlunar“ í 4. mgr. kemur: fjárheimildar.
b. Í stað „90. gr.“ í 6. mgr. kemur: 92. gr.
4. Lög um húsnæðismál, nr. 44/1998: Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 5. mgr. 47. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „fjármálum“ tvívegis kemur: og reikningsskilum.
b. Í stað „sbr. 74. og 75. gr.“ kemur: á grundvelli.
5. Íþróttalög, nr. 64/1998: Í stað orðsins „fjárhagsáætlun“ í 2. mgr. 7. gr. laganna kemur: fjármálaáætlun.
6. Lög um leikskóla, nr. 90/2008: 1. mgr. 28. gr. laganna orðast svo:
Sveitarfélögum er heimilt að hafa með sér samvinnu um rekstur leikskóla. Um hana fer eftir sveitarstjórnarlögum. Samningur um samvinnu skal staðfestur af ráðherra.
7. Lög um grunnskóla, nr. 91/2008:
a. 2. málsl. 5. tölul. 4. mgr. 43. gr. a laganna fellur brott.
b. Orðin „að fenginni umsögn ráðherra sveitarstjórnarmála“ í 3. málsl. 1. mgr. 45. gr. laganna falla brott.
8. Lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009: Orðin „nr. 45/1998“ í 3. málsl. 7. gr. laganna falla brott.
9. Skipulagslög, nr. 123/2010: Í stað orðanna „42. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011“ í 2. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
10. Lög um náttúruvernd, nr. 60/2013: Í stað orðanna „3. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011“ í 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 3. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga.
11. Lög um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014: Í stað „100. og 101. gr.“ í 7. tölul. 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: 115. og 116. gr.
12. Lög um örnefni, nr. 22/2015: Orðin „nr. 138/2011, með síðari breytingum“ í 1. mgr. 6. gr. laganna falla brott.
13. Lög um opinber fjármál, nr. 123/2015: Í stað „128. gr.“ í 5. mgr. 11. gr. laganna kemur: 142. gr.
14. Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018: 2. málsl. 2. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.
Ákvæði til bráðabirgða I.
Sveitarstjórnir skulu eigi síðar en 1. janúar 2028 hafa uppfært samþykktir um stjórn sveitarfélaga til þess að þær séu í samræmi við ákvæði laga þessara.
Sveitarstjórnir skulu eigi síðar en 1. janúar 2028 skulu sveitarstjórnir hafa uppfært siðareglur sveitarfélagsins, sbr. 31. gr., og sett sér reglur um reglur um varnir gegn hagsmunaárekstrum og hagsmunaskráningu, sbr. 32. gr.
Ákvæði til bráðabirgða II.
a. Þrátt fyrir 2. mgr. 50. gr. eru þeir kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir Grindavíkurbæjar sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu eða höfðu kosningarrétt í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningum árið 2026 nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 46. gr. Þeir sem skipaðir eru í nefndir, ráð og stjórnir Grindavíkurbæjar geta ekki setið í nefndum, ráðum og stjórnum í öðru sveitarfélagi á sama tíma.
b. Þrátt fyrir 1. mgr. 15. gr. er sveitarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að ákveða í samþykkt skv. 10. gr. að fundir sveitarstjórnar og nefnda sveitarfélagsins fari fram utan staðarmarka þess.
c. Þrátt fyrir 3. mgr. 18. gr. er sveitarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að ákveða í samþykkt skv. 10. gr. að sveitarstjórnar- og nefndarfulltrúar sveitarfélagsins geti tekið þátt í fundum með fjarfundarbúnaði óháð því hvar þeir eru staðsettir.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.