Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 26  —  26. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um tekjuskatt og virðisaukaskatt (heimilishjálp, börn og barnavörur).

Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hildur Sverrisdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Gunnarsson, Jón Pétur Zimsen, Njáll Trausti Friðbertsson, Ólafur Adolfsson, Rósa Guðbjartsdóttir.


I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003.
1. gr.

    Við A-lið 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Útgjöld vegna heimilishjálpar að hámarki 1.800.000 kr.

2. gr.

    Við 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr liður, C-liður, svohljóðandi:
     1.      150.000 kr. vegna eins barns innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns.
     2.      300.000 kr. vegna tveggja barna innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns.
     3.      575.000 kr. vegna þriggja barna innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns.
     4.      370.000 kr. til viðbótar við 575.000 kr. fyrir hvert barn umfram þrjú innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns.
     5.      150.000 kr. vegna hvers barns innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns sem skráð er í skipulagt æskulýðsstarf. Hafi foreldrar samið um skipta búsetu barns undir 16 ára aldri skiptist frádráttarheimildin jafnt milli þeirra.
    Fjárhæðir skv. 1.-5. tölul. 1. mgr. skulu í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Fjárhæðirnar skal birta með auglýsingu ráðherra fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
    Það er skilyrði frádráttar skv. 1. mgr. að barn hafi skráð lögheimili hjá viðkomandi einstaklingi. Framfærandi telst sá aðili sem hefur barnið hjá sér og annast framfærslu þess í lok tekjuársins, sbr. 68. gr. Hjón, sem skattlögð eru skv. 62. gr., teljast bæði framfærendur og skiptist frádrátturinn milli þeirra til helminga. Hið sama gildir um sambúðarfólk sem uppfyllir í lok tekjuársins skilyrði 3. mgr. 62. gr. enda þótt það óski ekki að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein.
    Það er og skilyrði frádráttar skv. 5. tölul. að æskulýðsstarf á árinu standi yfir í tíu vikur hið minnsta og að starfið fari fram undir stjórn eða leiðsögn fagaðila á sviði æskulýðsstarfa, sbr. ákvæði æskulýðslaga, nr. 70/2007.
    Frádráttur samkvæmt þessum lið heimilast frá tekjum skv. A- og C-lið 7. gr.
    Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd frádráttar samkvæmt þessum lið.

II. KAFLI
Breytingar á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
3. gr.

    Við 1. mgr. 12. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Barnavörur sem falla undir eftirfarandi tollskrárnúmer:
     a.      8715.0000
     b.      9401.2002
     c.      9619.0011
     d.      9619.0091
     e.      6111.2001
     f.      6111.2009
     g.      6111.3001
     h.      6111.3009
     i.      6111.9001
     j.      6111.9009
     k.      6209.2009
     l.      6209.3001
     m.      6209.9001
     n.      6209.9009
     o.      6403.4002
     p.      6403.4002
     q.      6403.5902
     r.      6403.9102
     s.      6404.1101
     t.      6404.1902
     u.      6404.2002
     v.      6405.1002
     w.      6405.2002
     x.      6405.9002

4. gr.

    12. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.

5. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027.

Greinargerð.

    Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og fólksfjölgun er forsenda þess að viðhalda samfélagi. Fæðingartíðni hefur lengi verið áhyggjuefni á meginlandi Evrópu, en tíðnin ein og sér viðheldur til að mynda ekki fólksfjölda í neinu Evrópusambandsríki. Lengi vel hafði Ísland sérstöðu í þessum efnum þar sem fæðingartíðni hér hafði verið umtalsvert hærri en tíðni nágrannalandanna. Nú er öldin hins vegar önnur og fæðingartíðni á Íslandi er í sögulegu lágmarki þannig að ekki dugir til að viðhalda mannfjölda haldi þróunin áfram sem horfir. Þessi breytta staða mun hafa mikil áhrif á aldurssamsetningu þjóðarinnar og þar með velferðarkerfi hennar. Ef fæðingartíðni er of lág til lengri tíma stendur mannfjöldi samfélagsins hreinlega ekki undir velferðarkerfi þess. Samfélag þarf þá að reiða sig á innflytjendur til þess að standa undir því.
    Undanfarin ár hefur þverfræðilegur hópur fræðafólks við Háskóla Íslands skoðað hvað valdi minnkandi fæðingartíðni á Íslandi. Meðal þess sem hefur komið fram er að fæðingartíðni hefur minnkað mest hjá þeim sem eru í lægri tekjuþrepum og er munurinn mjög mikill á efsta og lægsta tekjuþrepi. Þessar niðurstöður ásamt öðru hafa leitt til vangaveltna og orðræðu sem beinist að því hvort barneignir séu orðnar forréttindi.
    Þessar niðurstöður ríma við háværar umkvartanir kvenna á barneignaraldri og aðstandenda þeirra. Staðan sé sú að barneignir hafi verulega neikvæð áhrif á tekjur foreldra, ekki síst mæðra sem taka enn þá stærri hluta fæðingarorlofs og lengja það enn frekar. Útgjöld í aðdraganda og strax í kjölfar barneigna, svokallaður byrjunarkostnaður, eru mikil. Dagvistunarvandinn frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til börn fá dagvistunarpláss eykur enn á útgjöld og fjárhagsáhyggjur foreldra. Þótt skylduskólaganga (og nú skólamáltíðir) sé ókeypis fylgja ýmis útgjöld börnum sem hafa lokið leikskólagöngu. Má þar m.a. nefna skipulagt frístundastarf grunnskólanna, auk íþrótta og annarra tómstunda sem eru mjög kostnaðarsamar þrátt fyrir (eða í takt við) veglegan frístundastyrk sveitarfélaga. Tómstundastarf er lykilþáttur í forvarnastarfi og þátttaka barna og ungmenna í slíku starfi er mjög góð í samanburði við aðrar þjóðir. Er þá ótalinn hefðbundinn rekstrarkostnaður barnafjölskyldu; fleiri munna til að metta og kroppa til að klæða.
    Flutningsmenn telja að með frumvarpi þessu sé stuðningur tryggður við barnafjölskyldur með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Þá hafi frumvarpið forvarna- og lýðheilsugildi.

Um 1. gr.

    Greinina var upphaflega að finna í sérstöku frumvarpi sem hefur ítrekað verið lagt fram, síðast á 157. löggjafarþingi (51. mál), en hún er nú lögð fram samhliða öðrum greinum.
    Með greininni er lögð til heimild til skattalegs frádráttar vegna heimilishjálpar sem felur í sér að draga má fjárhæð að hámarki 1.800.000 kr. á ári frá tekjuskattsstofni einstaklings, þ.e. sem nemur að meðaltali 150.000 kr. á mánuði.
    Frádrættinum er ætlað að ná til starfa sem innt eru af hendi hér á landi á heimili einstaklings og í sumarbústað þar sem einstaklingur dvelur. Sama á við um slík störf í bílskúr og geymslum, afmörkuðum garði og í innkeyrslu umhverfis heimili eða sumarbústað einstaklings. Til slíkra starfa teljast t.d. hefðbundin heimilisstörf, svo sem þrif og hreingerningar, hefðbundin garðyrkjustörf eða snjómokstur á gangstéttum og í innkeyrslu að heimili. Þegar húsfélag fjöleignarhúss annast greiðslu kostnaðar úr sameiginlegum sjóði vegna slíkra starfa á sameign getur einstaklingur dregið sinn hlut í þeim kostnaði frá tekjuskattsstofni sínum. Þá er ákvæðinu jafnframt ætlað að ná til annars konar umönnunar, svo sem umönnunar heimilismanna vegna veikinda eða fötlunar, umönnunar barna, sem felur m.a. í sér aðstoð við heimavinnu og fleira skólatengt, ásamt því að fylgja börnum í og úr leikskóla, skóla og frístundastarfi. Ákvæðinu er einnig ætlað að taka til aðstoðar við einstakling í tengslum við ferðir til og frá heimili, t.d. ferðir á heilsugæslustöð, í banka eða annað sambærilegt.
    Markmiðið með frumvarpi þessu er m.a. að sporna við svartri atvinnustarfsemi auk þess sem hægt verður að auka réttindi þess fólks sem vinnur í dag þau störf sem hér eru talin. Með því er m.a. átt við lífeyrisgreiðslur og atvinnuleysisbætur.
    Flutningsmenn telja að með lögfestingu skattfrádráttar vegna aðkeyptrar heimilishjálpar sé komið til móts við einstaklinga og fjölskyldur, einkum barnafjölskyldur, með margvíslegum hætti. Þá gagnast breytingin einnig eldri borgurum sem vilja búa áfram á eigin heimili en þurfa á þjónustu að halda við almenn heimilisþrif og önnur létt heimilisstörf.
    Sambærilegar heimildir til skattalegs frádráttar er m.a. að finna í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi þó að útfærslan sé misjöfn eftir löndum. Árið 2011 gerðu sænsk skattyfirvöld könnun á áhrifum frádráttarins. Hún leiddi í ljós að svört starfsemi, en undir þá skilgreiningu fellur m.a. vinna við heimilishjálp, hefði minnkað um 10% á milli áranna 2005 og 2011. Sambærilega sögu er að segja frá Danmörku en dönsk skattyfirvöld hafa fengið fleiri tilkynningar frá almenningi um svarta atvinnustarfsemi eftir að hægt var að draga frá tekjuskattsstofni á þessum grundvelli.

Um 2. gr.

    Sérstakt frumvarp þessa efnis var áður flutt á 155., 156. og 157. löggjafarþingi ( 46. mál) en hlaut ekki afgreiðslu.
Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að skatta þurfi að lækka og opinberar álögur séu of miklar á barnafjölskyldur. Því er lagt til að foreldrum verði heimill frádráttur frá tekjum vegna barna á framfærslu þeirra, svo og að heimilt verði að draga frá tekjum kostnað við æskulýðsstarf barns, eins og hugtakið er skilgreint í æskulýðslögum, nr. 70/2007. Fjárhæðin nemur 150.000 kr. á barn, eða 75.000 kr. á hvort foreldri hafi foreldrar komist að samkomulagi um skipta búsetu barns. Flutningsmenn telja að með frumvarpi þessu sé stuðningur tryggður við þær með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Þá hafi frumvarpið forvarna- og lýðheilsugildi.

Um 3. og 4. gr.

    Frumvarp þessa efnis var fyrst lagt fram á 157. löggjafarþingi ( 432. mál) en varð ekki útrætt. Með breytingunni er lagt til að hætt verði að leggja virðisaukaskatt á ýmsar barnavörur, svo sem barnaföt, bleyjur, barnavagna, bílstóla og aðrar nauðsynjavörur fyrir börn.