Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 35 — 35. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um veitingu íslensks ríkisborgararéttar.
Flm.: Snorri Másson, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Þorgrímur Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að endurskoða lög um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, með það að markmiði að herða skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar, að fækka samþykktum umsóknum og gera ríkari kröfur til þeirra sem öðlast ríkisborgararétt. Eftirfarandi breytingar verði gerðar á lögunum:
1. 1. tölul. 1. mgr. 8. gr. laganna verði breytt þannig að tíu ára búseta hér verði almennt skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar en sjö ára búseta fyrir ríkisborgara í norrænum ríkjum.
2. Önnur skilyrði 8. gr. laganna sem varða tímamörk verði hert í réttu hlutfalli við framangreint.
3. 6. tölul. 8. gr. laganna falli brott.
4. Við lögin bætist nýtt ákvæði um það að skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar verði að umsækjendur hafi staðist próf um sögu Íslands, menningu Íslendinga, réttindi og skyldur íslenskra ríkisborgara, stjórnmál á Íslandi og þjóðfélagsleg gildi hér á landi. Prófið verði á íslensku.
Enn fremur ályktar Alþingi að fela dómsmálaráðherra að breyta reglugerð um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt þannig að umsækjendur hafi staðist íslenskupróf sem samsvarar hæfniþrepinu B2 eða C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
Ráðherra upplýsi Alþingi um framvindu mála og ljúki endurskoðun þessari fyrir lok 158. löggjafarþings.
Greinargerð.
Árið 1995 var sú breyting gerð á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að íslenska ríkinu er óheimilt að svipta mann íslenskum ríkisborgararétti nema hann öðlist með samþykki sínu ríkisfang í öðru ríki. Á móti mætti taka það til skoðunar hvort ekki væri eðlileg krafa að íslenskur ríkisborgararéttur yrði ekki veittur nema gegn því að menn afsali sér ríkisborgararétti í öðru landi. Þá hefur lögum verið breytt til þess að auðvelda mönnum að öðlast ríkisborgararétt á Íslandi.
Möguleikum til að öðlast ríkisborgararétt hefur stórfjölgað en óbreytt er geta ríkisvaldsins til að svipta menn sama rétti. Ríkisborgararéttur er heilagasti réttur sem íslenska ríkið getur veitt nokkrum manni. Íslenskur ríkisborgari nýtur mikilla fríðinda og réttinda sem ríkið verndar. Íslenska ríkið hefur þann tilgang æðstan að verja hagsmuni og tryggja vöxt og viðgang íslensku þjóðarinnar. Hagsmunir þjóðarinnar eru best tryggðir með því að takmarka með málefnalegum hætti möguleika erlendra ríkisborgara á að öðlast ríkisborgararétt með umsókn. Því er brýnt að Alþingi ráðist tafarlaust í endurskoðun laga um ríkisborgararétt, ekki síst til að samstilla kröfur um veitingu hans, og réttindi sem honum fylgja. Í framhaldinu er einnig vert að kanna ráðrúm ríkisins til að afturkalla hann.
Almennt er gerð krafa um að menn hafi staðist próf sem samsvarar hæfniþrepinu B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum er þeir sækja um háskólanám. Nú þurfa umsækjendur um ríkisborgararétt aðeins að standast próf sem samsvarar hæfniþrepinu A2. Eru hagsmunir íslenskra ríkisborgara, nýrra sem gamalla, best tryggðir með því að þeir geti átt skilvirk og skýr samskipti á íslensku.
Undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar hefur um langt skeið veitt ríkisborgararétt með lögum tvisvar á ári og geta menn sótt um hann til Alþingis. Undirnefndin er skipuð þremur alþingismönnum og er starf hennar unnið í trúnaði. Því þurfa 60 alþingismenn að greiða atkvæði um að veita hópi manna ríkisborgararétt með engar upplýsingar um þá í höndunum nema nöfn þeirra. Þegar nefndin tekur til starfa herja utanaðkomandi menn á nefndarmenn til að koma skjólstæðingum sínum að í frumvarpi um veitingu ríkisborgararéttar. Vinnubrögð þessi eru Alþingi ekki til sóma. Afar brýnt er að taka þau til gagngerrar endurskoðunar tafarlaust með það að markmiði að undirnefndin fjalli aðeins um umsóknir um ríkisborgararétt sem standast ströng skilyrði og Útlendingastofnun getur ekki fjallað um. Má þar nefna umsóknir manna sem eiga ættir sínar að rekja til Íslands en hafa ekki hlotið náð fyrir augum Útlendingastofnunar. Starfshætti nefndarinnar ber að endurskoða með það fyrir augum að nefndin samþykki mun færri umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt.
Að hafa staðist próf er forsenda veitingar ríkisborgararéttar víða í nágrannaríkjum Íslands. Yfirleitt eru slík próf um klukkustundarlöng. Þar er spurt 30–50 spurninga um sögu, menningu, stjórnmál og atvinnuvegi viðkomandi ríkis og um réttindi og skyldur borgara og þjóðfélagsleg gildi þar í landi. Umsókn um ríkisborgararétt er ekki sambærileg öðrum umsóknum þar sem sótt er um heimild eða stöðu heldur verður hún að teljast yfirlýsing um vilja til að heyra til öðru þjóðfélagi en því sem maður fæddist og eftir atvikum ólst upp í. Sem fyrr segir er ríkisborgararéttur heilagasti réttur sem íslenska ríkið getur veitt nokkrum manni. Er sjálfsögð krafa að umsækjendur um hann þreyti og geti staðist próf um Ísland á íslensku. Að lokum er rétt að það verði skoðað gaumgæfilega hvort eðlilegt sé að gera það að skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar að öðrum ríkisborgararétti umsækjenda verði þá um leið afsalað.