Ferill 41. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 41 — 41. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um sölu Íslandspósts ohf.
Flm.: Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.
Greinargerð.
Með þingsályktunartillögunni er lagt til að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að selja Íslandspóst ohf. til einkaaðila. Markmiðið með sölunni er að auka samkeppni á póstþjónustumarkaði, tryggja bætta þjónustu fyrir viðskiptavini og stuðla að fjárfestingum sem efla rekstur og þjónustu. Leggja flutningsmenn áherslu á að við söluna verði horft til gagnsæis, hagkvæmni, hlutlægni og jafnræðis.
Félagið starfar á samkeppnismarkaði og flutningsmenn telja óeðlilegt að ríkið standi í rekstri sem þessum, þ.e. á virkum póst- og flutningsmarkaði þar sem samkeppni ríkir. Frjáls samkeppni er lykillinn að öflugu samfélagi og ríkið á að draga sig út úr rekstri fyrirtækja á samkeppnismörkuðum.
Á síðasta ári nam rekstrartap Íslandspósts 252 millj. kr. að teknu tilliti til endurgjalds frá ríkinu upp á 757 millj. kr. vegna alþjónustu. Án endurgjalds nam tap af rekstrinum því um milljarði króna. Á sama tíma drógust tekjur af rekstri Íslandspósts saman um 9,2% á milli ára, úr 7,3 milljörðum kr. árið 2024 í 6,7 milljarða kr., þrátt fyrir að endurgjald ríkisins vegna alþjónustu hafi hækkað um 11% milli ára eða úr 618 millj. kr. í 757 millj. kr.
Í ársskýrslu félagsins fyrir nýliðið ár eru settar fram fjórar lykilspurningar um framtíð Íslandspósts, þar á meðal um hvort ríkið þurfi að vera eigandi Íslandspósts til að fyrirtækið geti framfylgt skyldum sínum í póstþjónustu. Afstaða stjórnar og stjórnenda er sú að svo þurfi ekki að vera. Þvert á móti er talið að núverandi eignarhald, sem er að fullu í höndum ríkisins, standi félaginu fyrir þrifum.
Í ljósi framangreinds telja flutningsmenn rétt að ríkið losi sig út úr eignarhaldi félagsins.