Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 74 — 74. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um staðfestingu ríkisreiknings 2025.
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
1. gr.
Staðfesting ríkisreiknings.
2. gr.
Gildistaka.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er ríkisreikningur fyrir árið 2025 lagður fyrir Alþingi til staðfestingar í samræmi við ákvæði 58. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Reikningurinn er settur fram í samræmi við 56. gr.
Ríkisreikningur 2025 er í þriðja sinn birtur sem heildarsamstæða ríkissjóðs fyrir A-, B- og C-hluta. Einnig er birtur ársreikningur fyrir A-hluta. Í séryfirlitum er svo birt yfirlit um afkomu og efnahag fyrir A1-hluta ásamt yfirliti um afkomu ársins sem er samanburðarhæft við 1. gr. fjárlaga. A1-hluti ríkissjóðs er sá hluti ríkisrekstrarins sem tekur til starfsemi sem einkanlega er fjármögnuð með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum og á sér samsvörun í fjárlögum.
Áritun ríkisendurskoðanda er án fyrirvara og niðurstaða endurskoðunarinnar er að ríkis-reikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu ríkissjóðs 31. desember 2025, afkomu ríkissjóðs árið 2025 og breytingu á handbæru fé á árinu. Í áritun ríkisendurskoðanda vegna ársins 2025 eru, ólíkt fyrra ári, ekki settar fram sérstakar ábendingar um innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla eða forsendur útreiknings lífeyrisskuldbindinga.
Í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, segir að reikningsskil fyrir A-hluta ríkissjóðs í heild skuli gerð á grundvelli alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn (IPSAS) og tóku þau ákvæði gildi 1. janúar 2017. Reikningsskilaráð hefur heimild til að fresta innleiðingu staðla eins og kemur fram í 1. mgr. 52. gr. laga um opinber fjármál en þar segir að reikningsskilaráð geti frestað tímabundið að taka upp hluta af stöðlunum, enda liggi til þess málefnalegar ástæður. Í ríkisreikningi skal gera grein fyrir hvaða atriðum staðalsins er ekki fylgt, ástæðum þess og áhrifum á afkomu og fjárhag.
Í ríkisreikningi 2024 hafði innleiðingu fjögurra staðla verið frestað, þ.e. IPSAS 36 um fjárfestingar í hlutdeildarfélögum og sameiginlegum verkefnum (frestað að hluta), IPSAS 37 um samrekstur, IPSAS 38 um upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum rekstrareiningum og IPSAS 42 um velferðarþjónustu og félagslega aðstoð. Á árinu 2025 reyndist ekki þörf á að nýta heimild til frekari frestunar og eru nú allir staðlar sem tekið höfðu gildi að fullu innleiddir í reikningsskilum ríkissjóðs. Í sumum tilvikum er ekki að fullu leyti búið að ná utan um þá þætti sem staðlarnir fjalla um en þeir þættir eru þá að hluta enn þá utan ríkisreiknings. Undir þetta falla til dæmis IPSAS 19 um reiknaðar skuldbindingar, óvissar skuldir og óvissar eignir, IPSAS 30 um skýringar um fjármálagerninga og IPSAS 32 um sérleyfiseignir, en þar má til dæmis nefna flugsamgöngumannvirki. Vinna er í gangi við rýni á þessum þáttum og gert ráð fyrir að sú vinna taki nokkurn tíma. Ef sú vinna leiðir í ljós að fleira eigi að koma inn í reikningsskilin en nú kemur fram í ríkisreikningi 2025 mun það vera fært inn í samræmi við staðla þegar það liggur fyrir.
Auk þess voru á árinu innleiddir staðlarnir IPSAS 44 (fastafjármunir til sölu og aflögð starfsemi), IPSAS 45 (varanlegir rekstrarfjármunir, sem leysir af hólmi IPSAS 17) og IPSAS 46 (mat og mælikvarðar).
Reikningsskilaráð hefur ákveðið að fresta tímabundið innleiðingu tveggja nýrra staðla sem gefnir hafa verið út en taka ekki gildi fyrr en 1. janúar 2026, þ.e. IPSAS 47 um tekjur (sem leysir af hólmi IPSAS 9, 11 og 23) og IPSAS 48 um tilfærsluútgjöld, vegna óvissu um áhrif þeirra á reikningsskil ríkissjóðs.
2. Niðurstöðutölur ríkisreiknings 2025 og aðlögun að grunni fjárlaga.
Í ársreikningi A1-hluta, eins og var gert árin 2017–2021, áður en byrjað var að innleiða samstæðustaðalinn og breytta flokkun ríkisaðila, var afkoma ríkisaðila í B- og C-hluta tekin inn í heildaruppgjörið sem hlutdeild í afkomu viðkomandi aðila til hækkunar eða lækkunar á afkomu ríkissjóðs. Á sama hátt voru efnahagsáhrifin tekin inn í efnahagsreikning með hlutdeild í eigin fé þessara aðila á eignahlið. Breytingin við að færa þessa aðila inn í heildarsamstæðu A-, B- og C-hluta hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs heldur á umfang tekna og gjalda. Markmiðið með staðlinum um að ríkið geri samstæðuuppgjör fyrir A-, B- og C-hluta er m.a. að ná utan um heildarumfangið í starfsemi ríkisins. Í því felst að ekki skiptir öllu máli í hvaða félagaformi starfsemin fer fram heldur er fyrst og fremst horft á stjórnunarleg áhrif eða ábyrgð stjórnvalda á starfseminni. Á bls. 10–13 í ríkisreikningi 2025 er að finna yfirlit um afkomu, efnahagsreikning og sjóðstreymi heildarsamstæðu A-, B- og C-hluta. Þessi sömu yfirlit fyrir A-hluta eru að finna á bls. 87–90.
Rekstrarafkoma samstæðu ríkisins fyrir árið 2025 var neikvæð um 182 milljarða kr. Tekjur námu samtals 1.507 milljörðum kr., þar af voru skatttekjur 1.135 milljarðar kr. Gjöld samtals án fjármagnsgjalda og sölutaps námu 1.646 milljörðum kr., þar af voru tilfærslur og styrkir 637 milljarðar kr. og laun og launatengd gjöld 421 milljarður kr. Annar rekstrarkostnaður nam 380 milljörðum kr., breytingar á lífeyrisskuldbindingum námu 140 milljörðum kr. og afskriftir og niðurfærslur 69 milljörðum kr.
Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 71 milljarði kr., fjármagnsgjöld voru 306 milljarðar kr. og fjármunatekjur 234 milljarðar kr.
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 2 milljarða kr.
Ársreikningur A-hluta er birtur á bls. 87 og þar má sjá samanburðarhæfar fjárhæðir miðaðar við fyrra ár.
Tafla 1.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.1. Rekstrarafkoma A1-hluta aðlöguð að alþjóðlegum hagskýrslustaðli og framsetningu fjárlaga.
Framsetning og flokkun samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli (GFS) er sú flokkun og framsetning sem 1. gr. fjárlaga miðast við og þar með meginmarkmið stjórnvalda í fjár-málastefnu og fjármálaáætlun sem og fjármálareglur í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Bæði GFS- og IPSAS-stöðlunum er ætlað að tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni en staðlarnir hafa ólíkar áherslur. IPSAS-staðallinn samræmir reikningsskil með áherslu á rekstrarafkomu og stöðu efnahags, gerir kleift að meta fjárhagslega afkomu og rekstrarárangur, skerpa ábyrgð stjórnenda og auka gagnsæi fyrir ákvarðanatöku í rekstri. GFS-staðallinn metur efnahagsleg áhrif opinberrar fjármálastefnu, greinir áhrif hennar á hagkerfið og valkosti við ákvarðanatöku í opinberum fjármálum. Megináhersla GFS-staðalsins er á heildarafkomu sem mælikvarða á efnahagsleg áhrif.
Samkvæmt framsetningu á grundvelli alþjóðlegs hagskýrslustaðals er afkoma ársins 2025 neikvæð um 66 milljarða kr. fyrir A1-hluta ríkissjóðs.
Meginforsendur breytinga milli staðlanna eru í töflu 2. Nánari skýringar á forsendum breytinga má finna á bls. 159–160 í ríkisreikningi 2025, í séryfirliti 2 um heildarafkomu – samanburður við fjárlög.
Tafla 2.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Niðurstaða samkvæmt GFS-staðli sýnir afkomu ríkissjóðs á sama hátt og sýnt er í 1. gr. fjárlaga. Í töflu 3 er niðurstaða ársins 2025 sýnd í samanburði við fjárheimildir fjárlaga og fjáraukalaga fyrir árið 2025.
Tafla 3.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.2. Efnahagsreikningur ríkisins.
Tafla 4 sýnir bæði efnahagsreikning samstæðunnar og A1-hluta.
Tafla 4.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.3. Þróun skulda.
Skuldir A1-hluta ríkissjóðs námu 3.585 milljörðum kr. í árslok 2025 og hækkuðu um 450 milljarða kr. á milli ára. Þar af hækkuðu lántökur um 280 milljarða kr. og af þeim hækkuðu erlendar skuldir um 87 milljarða kr. en eignir hækkuðu um samsvarandi fjárhæð. Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs námu 1.098 milljörðum kr. í árslok. Af 165 milljarða kr. hækkun lífeyrisskuldbindinga á árinu má rekja 147 milljarða kr. til leiðréttingar á upphafsstöðu 1. janúar 2025. Leiguskuldbinding nam í árslok 22 milljörðum kr. en var 24 milljarðar kr. árið áður.
2.4. Sjóðstreymi.
Sjóðstreymi A1-hluta eins og kemur fram í ársreikningi A1-hluta sýnir að handbært fé til rekstrar var neikvætt um 15,9 milljarða kr. Fjárfestingahreyfingar námu 115 milljörðum kr. og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 72,7 milljarða kr. Handbært fé var 359,7 milljarðar kr. í ársbyrjun og 419 milljarðar kr. í árslok.
2.5. Tekjur.
Tekjur samstæðu A-, B- og C-hluta ríkisins án fjármunatekna og söluhagnaðar námu 1.507,4 milljörðum kr. árið 2025. Tekjur A-hluta voru 85,6% af tekjum samstæðunnar á sama grunni og tekjur A1-hluta voru 99,0% af tekjum A-hluta.
Tekjur A1-hluta árið 2025 námu 1.276,9 milljörðum kr. Tekjur af sköttum og tryggingagjöldum námu 1.187,0 milljörðum kr., þar af námu skatttekjur 1.054,2 milljörðum kr. og tryggingagjöld 132,8 milljörðum kr. Aðrar ríkistekjur námu 34,7 milljörðum kr. Tekjur af starfsemi A1-hluta námu 55,3 milljörðum kr. og þar af námu tekjur af sölu vöru og þjónustu 32,6 milljörðum kr.
Áður en skattgreiðslum frá aðilum innan A1-hluta er eytt út og aðlögun gerð vegna álagningarspár námu skattar og tryggingagjöld alls 1.240,5 milljörðum kr. Beinir skattar ná m.a. yfir skatta á tekjur og hagnað einstaklinga og lögaðila, laun, eignir og skuldir og námu þeir 578,5 milljörðum kr. Í ríkisreikningi eru tryggingagjöld einnig talin til beinna skatta og námu þau 153,4 milljörðum kr. Vörugjöld, virðisaukaskattur, sértækir þjónustuskattar, neyslu- og leyfisskattar, tollar og aðrir óbeinir skattar námu samtals 508,6 milljörðum kr. Frá þessari fjárhæð dragast innbyrðis færslur vegna tryggingagjalds og virðisaukaskattur sem ríkisaðilar í A1-hluta greiða í ríkissjóð, alls að fjárhæð 47,9 milljarður kr. Einnig dragast frá 5,7 milljarðar kr. vegna aðlögunar álagningarspár ríkistekna. Að teknu tilliti til þessara liða námu skattar og tryggingagjöld 1.187,0 milljörðum kr., eða 93,0% af tekjum A1-hluta án fjármunatekna og söluhagnaðar.
Fjármunatekjur samstæðu ríkisins námu 234,2 milljörðum kr. þegar leiðrétt hefur verið fyrir innbyrðis færslum, sem er 22,7 milljörðum kr. minna en árið áður. Fjármunatekjur A1-hluta námu 50,6 milljörðum kr. og jukust um 19,1 milljarð kr. milli ára.
Söluhagnaður og matsbreytingar eigna samstæðunnar voru jákvæð um 26,6 milljarða kr., samanborið við neikvæð áhrif að fjárhæð 7,9 milljarðar kr. árið áður. Í A1-hluta voru áhrif þessara liða neikvæð um 10,6 milljarða kr., samanborið við neikvæð áhrif að fjárhæð 0,1 milljarður kr. árið 2024.
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1,7 milljarða kr. hjá samstæðu ríkisins. Í A1-hluta voru hlutdeildaráhrif jákvæð um 81,5 milljarða kr., sem er 34,5 milljörðum kr. meira en árið áður. Arðgreiðslur hlutdeildarfélaga til samstæðunnar námu 1,5 milljörðum kr. en arðgreiðslur til A1-hluta námu 54,4 milljörðum kr. Arðgreiðslur hafa ekki áhrif á afkomu ársins samkvæmt IPSAS-staðlinum heldur eru færðar til lækkunar á bókfærðu virði eignarhluta. Þær eru hins vegar tekjufærðar samkvæmt GFS-grunni fjárlaga.
Í séryfirliti 2 er afkoma A1-hluta aðlöguð að GFS-grunni svo unnt sé að bera niðurstöðuna saman við fjárlög. Heildartekjur á þeim grunni námu 1.489 milljörðum kr. og voru 68,4 milljörðum kr. umfram áætlun fjárlaga. Þær voru þó 4,2 milljörðum kr. lægri en síðasta áætlun ársins. Skatttekjur og tryggingagjöld voru 22,4 milljörðum kr. umfram fjárlög en 18,1 milljarði kr. undir síðustu áætlun. Aðrar tekjur, svo sem fjárframlög og eignatekjur, reyndust 46 milljörðum kr. umfram fjárlög og voru vextir og arðgreiðslur tæpur helmingur þess fráviks.
2.6. Gjöld málefnasviða.
Gjöld umfram rekstrartekjur voru alls 1.543 milljarðar kr. sem var 31 milljarði kr. innan heildarfjárheimilda ársins. Sundurliðun á málaflokka kemur fram í séryfirliti 4 á bls. 165 í ríkisreikningi. Heildarfjárheimild ársins að meðtöldum fjárheimildum sem fluttust frá fyrra ári, en án fjárfestingarframlags, nam 1.574 milljörðum kr. og er sundurliðun eftir eðli fjárheimilda í séryfirliti 7a á bls. 200 í ríkisreikningi.
Í töflu 5 er yfirlit yfir helstu frávik í rekstri málefnasviða.
Tafla 5.
Málefnasvið með meira en 1 ma. kr. fráviki frá heildarfjárheimildum, að teknu tilliti til fluttra fjárheimilda frá fyrra ári.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ársskýrslur ráðherra voru birtar samhliða ríkisreikningi 2025. Í þeim eiga ráðherrar að gera ítarlega grein fyrir niðurstöðu útgjalda innan málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga og skýra frávik innan ársins. Einnig skal greint frá fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og meta ávinning af ráðstöfun þeirra með tilliti til settra markmiða og aðgerða.
2.7. Fjárfestingar.
Fjárfestingar ársins 2025 námu 58,6 milljörðum kr. Heildarfjárheimild til ráðstöfunar nam 137 milljörðum kr. og var ónýtt fjárheimild því 78,4 milljarðar kr. Stærstu fjárfestingar ársins voru í málaflokkunum Samgöngur, 25,1 milljarður kr., Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, 17 milljarðar kr. og Hjúkrunar- og dvalarrými, 2,3 milljarðar kr.
Í töflu 6 er yfirlit yfir helstu frávik raunfjárfestinga frá fjárheimild.
Tafla 6.
Málefnasvið með meira en 1 ma. kr. fráviki frá heimilaðri fjárfestingu ársins.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.