Ferill 75. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 75 — 75. mál.
Stjórnartillaga.
Tillaga til þingsályktunar
um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.
Frá mennta- og barnamálaráðherra.
Alþingi ályktar skv. 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, að unnið verði samkvæmt eftirfarandi stefnu og framkvæmdaáætlun til ársins 2030.
STEFNA.
Framtíðarsýn stefnunnar er sú að Ísland verði barnvænt samfélag þar sem réttindi, velferð og öryggi barna séu alltaf sett í fyrsta sæti. Framtíðarsýninni verði náð með heildstæðri nálgun með áherslu á samfellu og samþættingu við veitingu þjónustu. Sérstaklega verði hugað að þörfum barna í viðkvæmri stöðu.
Stefnan hvíli á sex stoðum:
a. jafnræði,
b. barnvænni nálgun og þátttöku,
c. viðeigandi stuðningi,
d. Fræðslu, forvörnum og réttindum,
e. Framúrskarandi fagfólki.
f. áreiðanlegum gögnum.
II. Stoðir.
A. Jafnræði.
Lögð verði áhersla á að tryggja jafnræði allra barna og fjölskyldna þeirra, sérstök áhersla verði lögð á börn í viðkvæmri stöðu.
B. Barnvæn nálgun og þátttaka.
Lögð verði áhersla á að tryggja barnvæna nálgun og möguleika allra barna til þátttöku í eigin málum. Sérstök áhersla verði lögð á að umhverfi, viðhorf, stjórnsýsla og þjónusta taki mið af skoðunum, þörfum og hagsmunum barna svo að þau hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið og eigið líf.
C. Viðeigandi stuðningur.
Lögð verði áhersla á að þörfum allra barna og fjölskyldna þeirra verði mætt með viðeigandi stuðningi og þjónustu í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni. Sérstök áhersla verði lögð á að þjónusta og úrræði standi þeim til boða um leið og þörf krefur.
D. Fræðsla, forvarnir og réttindi.
Lögð verði áhersla á að fræðsla, forvarnir og réttindi barna liggi til grundvallar allri stefnumótun um málefni barna sem og þegar þjónusta er veitt. Lögð verði sérstök áhersla á valdeflingu barna og fjölskyldna þeirra.
E. Framúrskarandi fagfólk.
Lögð verði áhersla á að farsældarþjónusta í þágu barna verði veitt af framúrskarandi fagfólki. Sérstök áhersla verði lögð á að styrkja fagþekkingu og starfsumhverfi sem styður þær fjölbreyttu starfsstéttir sem sinna þeim störfum sem um ræðir.
F. Áreiðanleg gögn.
Lögð verði áhersla á að áreiðanleg gögn liggi til grundvallar ákvarðanatöku, stefnumótun og forgangsröðun í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Sérstök áhersla verði lögð á að gögnin veiti innsýn í þarfir og stöðu fjölbreyttra hópa barna.
III. Innleiðing.
Innleiðing stefnu þessarar verði viðvarandi verkefni stjórnvalda í víðtæku samráði við börn og samfélagið allt.
Samráðsvettvangur þeirra ráðherra sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, sbr. 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, annist eftirfylgni framkvæmdaáætlunar þessarar, meti árangur hennar og geri ráðherra mennta- og barnamála reglubundið grein fyrir framvindu hennar.
Unnið verði í samræmi við eftirfarandi framkvæmdaáætlun til að tryggja framgang framangreindrar framtíðarsýnar og sex stoða stefnu um farsæld barna.
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN.
Aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna verði kortlagt og greint. Gerðar verði tillögur að úrbótum til að bæta aðgengi að þjónustu sé þess þörf.
Markmið: Jafnt aðgengi allra barna að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti og Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, svæðisbundin farsældarráð, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, Samband íslenskra sveitarfélaga og frjáls félagasamtök.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Greining á aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna liggi fyrir og, eftir atvikum, tillögur að úrbótum.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.
2. Svæðisstöðvar íþróttahéraða.
Skapaðar verði forsendur til að auka þátttöku barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu í íþróttastarfi með því að festa svæðisstöðvar íþróttahéraða í sessi.
Markmið: Svæðisstöðvar íþróttahéraða verði virkur hluti af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og styðji markvisst við aukna þátttöku barna í viðkvæmri stöðu í íþróttastarfi.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Barna- og fjölskyldustofa og sveitarfélög.
Tímabil: 2027–2030.
Mælikvarði: Við lok tímabils taki fleiri börn í viðkvæmri stöðu þátt í skipulögðu íþróttastarfi en við upphaf þess.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.
3. Samfelld miðlun upplýsinga í þágu farsældar barns.
Fram fari kortlagning á kerfislægum hindrunum, m.a. í lagaumhverfi, sem koma í veg fyrir að nauðsynlegar upplýsingar um barn berist greiðlega og örugglega á milli þeirra sem veita þjónustuna. Þá verði skoðað hvaða leiðir séu best til þess fallnar að tryggja að nauðsynleg gögn í máli barns í samþættri þjónustu geti fylgt barni á milli þjónustuveitenda. Jafnframt verði unnið að þróun tæknilausna sem styðji örugga og skilvirka upplýsingamiðlun á milli aðila.
Markmið: Samræmd skráning og aðgengileg og örugg miðlun nauðsynlegra upplýsinga um barn í samþættri þjónustu á milli þjónustuveitenda.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Persónuvernd.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Greining á kerfislægum hindrunum sem koma í veg fyrir samfellda miðlun nauðsynlegra upplýsinga liggi fyrir ásamt tillögum að breytingum á lögum og/eða reglugerðum.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.
4. Barnvænt fræðsluefni um samþætta þjónustu.
Gefið verði út fræðslu- og upplýsingaefni um samþætta þjónustu og efnið sett fram á barnvænu máli í samvinnu við börn. Hugað verði að mismunandi aldri og þroska barna við gerð fræðsluefnisins. Efnið verði jafnframt þýtt á þau tungumál sem þörf er á samkvæmt þarfagreiningu. Unnið verði að innleiðingu á fræðslu sem miði að því að börn séu vel upplýst um efni laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og hvernig lögin geti stutt við börn.
Markmið: Þekking barna á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna aukist svo að þau þekki rétt sinn og séu upplýst um tengiliði í nærumhverfi sínu.
Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Samband íslenskra sveitarfélaga, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, umboðsmaður barna, félagasamtök sem vinna að málefnum barna og íþrótta- og æskulýðssamtök.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Fjölbreytt fræðsluefni fyrir börn um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna verði gefið út og gert aðgengilegt fyrir börn. Fræðsluáætlun verði unnin og innleidd.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.
5. Innleiðing hagsmunamats út frá réttindum barna.
Hagsmunamat út frá réttindum barna verði innleitt innan Stjórnarráðsins sem hluti af skyldubundnu ferli við undirbúning lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna, stefnumótandi ákvarðana, svo og ákvarðana í málefnum einstakra barna. Framkvæmd hagsmunamatsins verði skýrð fyrir þeim sem vinna það. Fræðsla, fræðsluefni og þjálfun um framkvæmd og beitingu matsins í málum sem varða börn verði aðgengileg starfsfólki ráðuneyta.
Markmið: Hagsmunir og réttindi barna verði höfð að leiðarljósi við stefnumótun og ákvarðanatöku innan Stjórnarráðs Íslands og styðji þannig farsæld barna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Forsætisráðuneyti, dómsmálaráðuneyti, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna og umboðsmaður barna.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Við lok tímabils verði innleiðingu á hagsmunamati út frá réttindum barna lokið og fræðsluefni aðgengilegt starfsfólki ráðuneyta.
Stoðir stefnu: B-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og f-liður um áreiðanleg gögn.
6. Þátttaka barna í eigin farsæld.
Þátttaka barna að gerð stuðningsáætlana um samþætta þjónustu verði rýnd með hliðsjón af aðkomu þeirra og upplifunar af ferlinu. Samdar verði leiðbeiningar fyrir málstjóra um þátttöku barna í gerð eigin stuðningsáætlana ásamt upplýsingaefni fyrir börn um rétt þeirra til þátttöku og aðkomu að gerð stuðningsáætlunar. Upplýsingaefnið taki m.a. til mismunandi aldurshópa, hvernig börn geti óskað eftir því að tjá sig, hvað þau geti gert ef þau telja ekki hlustað á sig og hvernig endurgjöf til barna verði háttað.
Markmið: Valdefling barna og aukin þátttaka í eigin farsæld.
Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, umboðsmaður barna, félagasamtök sem vinna að málefnum barna og þjónustuveitendur sem koma að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna, svo sem málstjórar.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Við lok tímabils verði rýni á þátttöku og aðkomu barna að eigin stuðningsáætlun lokið. Leiðbeiningar um verklag fyrir málstjóra liggi fyrir og kynning á þeim hafi farið fram. Upplýsingaefni fyrir börn varðandi þátttöku þeirra í eigin farsæld liggi fyrir.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, b-liður um barnvæna nálgun og þátttöku og d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi.
7. Bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn.
Gerð verði þarfagreining á því hvað helst skorti í þjónustu og stuðningi við börn ásamt því að kortlagðir verði biðlistar þar sem börn bíða eftir lögbundinni þjónustu. Leitað verði lausna og lagðar fram tillögur að aðgerðum til að vinna á biðlistum.
Markmið: Bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Ráðgjafar- og greiningarstöð, Barna- og fjölskyldustofa, önnur ráðuneyti sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna, umboðsmaður barna, Samband íslenskra sveitarfélaga og svæðisbundin farsældarráð.
Tímabil: 2026–2027.
Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir kortlagning á biðlistum og tillögur að forgangsröðun og úrbótum út frá þarfagreiningu.
Stoðir stefnu: A-liður um jafnræði, c-liður um viðeigandi stuðning og f-liður um áreiðanleg gögn.
8. Farsæld í framhaldsskólum.
Stutt verði við innleiðingu á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum með þróun gæðamælikvarða, samræmdri verklýsingu fyrir tengiliði sem starfa í framhaldsskólum og samræmdu verklagi sem tryggi hnökralausan flutning mála á milli skólastiga. Jafnframt verði samræmd upplýsingamiðlun í framhaldsskólum og fræðsla um farsæld barna efld fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.
Markmið: Bætt aðgengi og þekking á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna í framhaldsskólum ásamt aukinni samfellu í þjónustu þegar barn færist úr grunnskóla í framhaldsskóla.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Barna- og fjölskyldustofa, Skólameistarafélag Íslands og Samtök íslenskra framhaldsskólanema.
Tímabil: 2026–2027.
Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir verklýsing fyrir tengiliði farsældar í framhaldsskólum og verklag um flutning mála frá grunnskóla í framhaldsskóla. Skráðum tilvísunum eða málum í samþættir þjónustu í þágu farsældar barna innan framhaldsskóla hafi fjölgað um 25%.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og e-liður um framúrskarandi fagfólk.
9. Yfirsýn yfir stigskipta þjónustu hjá sveitarfélögum og ríki.
Í samstarfi við sveitarfélög og viðeigandi stofnanir verði tekið saman yfirlit yfir 1., 2. og 3. stigs úrræði og þjónustu fyrir börn samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Yfirlitið verði aðgengilegt starfsfólki þjónustuveitenda.
Markmið: Að starfsfólk þjónustuveitenda hafi góða yfirsýn yfir úrræði og þjónustu fyrir börn.
Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Mennta- og barnamálaráðuneyti, þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og svæðisbundin farsældarráð.
Tímabil: 2027–2028.
Mælikvarði: Við lok tímabils liggi fyrir yfirlit yfir þjónustu og úrræði fyrir börn í hverju sveitarfélagi. Yfirlitið tilgreini á hvaða stigi þjónustan og úrræðin eru.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, e-liður um framúrskarandi fagfólk og f-liður um áreiðanleg gögn.
10. Heildstæð endurskoðun á þjónustufarvegi fyrir börn með taugaþroskaraskanir.
Núverandi þjónustufarvegur fyrir börn sem sýna einkenni taugaþroskaraskana verði rýndur og gerðar tillögur að skilvirkari þjónustufarvegi þvert á kerfi.
Markmið: Bætt þjónusta og aukið samstarf þvert á þjónustukerfi fyrir börn með taugaþroskaraskanir.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Ráðgjafar- og greiningarstöð og Geðheilsumiðstöð barna.
Tímabil: 2026–2028.
Mælikvarði: Tillögur að bættum þjónustufarvegi liggi fyrir við lok tímabils ásamt áætlun um innleiðingu skammtíma- og langtímaumbóta.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning.
11. Samræmd innleiðing farsældar í heilbrigðis-, mennta- og barnverndarkerfum.
Á tímabili framkvæmdaáætlunarinnar starfi formlegur samhæfingarhópur á vegum heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Hlutverk hópsins verði að efla og samræma innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á kerfi. Hópurinn stuðli að skýrri ábyrgðarskiptingu, samræmdu verklagi og auknu samstarfi á milli heilbrigðis-, mennta- og barnaverndarkerfa með það að markmiði að tryggja snemmtækan, samfelldan og samþættan stuðning við börn og foreldra þeirra.
Markmið: Efld, samþætt og samræmd þjónusta í þágu farsældar barna þvert á þjónustukerfi.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofa, Geðheilsumiðstöð barna, Ráðgjafar- og greiningarstöð og svæðisbundin farsældarráð.
Tímabil: 2027–2030.
Mælikvarði: Við lok tímabils hafi samhæfingarhópur sameinast um markmið og ábyrgð, skilgreint forgangsatriði með það að markmiði að auka samhæfingu í framkvæmd og bæta upplýsingaflæði á milli kerfa.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning og e-liður um framúrskarandi fagfólk.
12. Áframhaldandi stuðningur við svæðisbundin farsældarráð barna.
Svæðisbundin farsældarráð á vegum sveitarfélaga verði öflugur vettvangur svæðisbundinnar samvinnu þjónustuveitenda ríkis og sveitarfélaga. Skilgreindar verði leiðir til áframhaldandi stuðnings við starfsemi farsældarráða í hverjum landshluta með það að markmiði að farsældarráðin nái fótfestu.
Markmið: Svæðisbundin farsældarráð verði öflugur vettvangur samráðs í öllum landshlutum og leiði svæðisbundna forgangsröðun í þágu farsældar barna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Svæðisbundin farsældarráð.
Tímabil: 2027.
Mælikvarði: Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða til fjögurra ára liggi fyrir í öllum landshlutum við lok tímabils.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning og e-liður um framúrskarandi fagfólk.
13. Árangur farsældarstyrkja.
Greindur verði árangur verkefna sem hlotið hafa styrk á grundvelli auglýsingar frá mennta- og barnamálaráðuneyti til að efla farsæld barna. Skýrslur styrkþega verði rýndar og lagt mat á hvort þar séu verkefni sem ástæða sé til að þróa eða innleiða á breiðari grundvelli.
Markmið: Árangur farsældarstyrkja verði metinn og verkefnum sem hafa reynst vel miðlað og, eftir atvikum, þau innleidd á breiðari grundvelli.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Barna- og fjölskyldustofa og styrkþegar.
Tímabil: 2028.
Mælikvarði: Greinargerð um afrakstur verkefna sem hlotið hafa farsældarstyrki liggi fyrir ásamt tillögum að verkefnum sem ástæða verði til að þróa eða innleiða frekar.
Stoðir stefnu: C-liður um viðeigandi stuðning, d-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og f-liður um áreiðanleg gögn.
14. Sameiginlegur skilningur þjónustuveitenda.
Skilningur á hlutverkum og verksviði þeirra sem veita samþætta þjónustu í þágu farsældar barna verði aukinn og samræmdur með fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu fyrir starfsfólk á vettvangi. Áhersla verði lögð á að styðja og efla tengiliði og málstjóra í hlutverkum sínum.
Markmið: Þjónustuveitendur sem sinna samþættri þjónustu í þágu farsældar barna hafi skýran og sameiginlegan skilning á ábyrgð sinni, hlutverki og skyldum samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna og beiti þeim í framkvæmd.
Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Skýrsla Barna- og fjölskyldustofu um sameiginlegan skilning þjónustuveitenda um samþætta þjónustu við börn liggi fyrir.
Stoðir stefnu: D-liður um fræðslu, forvarnir og réttindi og e-liður um framúrskarandi fagfólk.
15. Fræðsla fyrir stjórnendur.
Þróuð verði fræðsla um innleiðingu á samþættingu þjónustu sem beint verði sérstaklega að stjórnendum innan mennta- og heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustu. Stjórnendum verði boðið að sækja sér fræðslu um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til að styrkja þekkingu þeirra á inntaki laganna.
Markmið: Þekking og skilningur stjórnenda í viðeigandi þjónustukerfum á samþættingu þjónustu aukist.
Ábyrgð: Barna- og fjölskyldustofa.
Dæmi um samstarfsaðila: Háskólasamfélagið.
Tímabil: 2027–2030.
Mælikvarði: Við lok tímabils hafi helmingur stjórnenda innan mennta- og heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustu sótt námskeiðið.
Stoðir stefnu: E-liður um framúrskarandi fagfólk.
16. Árangur af fyrstu fimm árum samþættrar þjónustu.
Lagt verði mat á árangur af innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku laganna. Byggt verði á fyrirliggjandi gögnum og farið í frekari rannsóknir eða upplýsingaöflun eftir því sem við á. Niðurstöður matsins verði settar fram í skýrslu sem kunni, eftir atvikum, að innihalda tillögur að úrbótum í samræmi við markmið laganna.
Markmið: Að varpa ljósi á reynslu af lögunum frá gildistöku þeirra með áreiðanlegum gögnum í þeim tilgangi að bæta ákvarðanatöku og forgangsröðun um áframhaldandi innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Dæmi um samstarfsaðila: Þjónustuveitendur í þágu farsældar barna, félagasamtök og háskólasamfélagið.
Tímabil: 2027–2029.
Mælikvarði: Skýrsla liggi fyrir um árangur innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna frá gildistöku.
Stoðir stefnu: F-liður um áreiðanleg gögn.
Greinargerð.
Tillaga til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna til ársins 2035 var fyrst lögð fram á 156. löggjafarþingi ( þskj. 319, 283. mál). Við þinglega meðferð var kallað eftir því að framkvæmdaáætlun fylgdi stefnunni og náði málið ekki fram að ganga. Á 157. löggjafarþingi var því lögð fram tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 (þskj. 981, 579. mál), sem náði ekki fram að ganga. Felur þingsályktunartillaga þessi í sér endurflutning síðarnefndu tillögunnar.
Frá því að málið var lagt fram á síðasta þingi hafa nokkrar breytingar verið gerðar á því. Við útfærslu þeirra hefur einkum verið litið til skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem var birt 10. júní 2026, um innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, þar sem komu fram margar gagnlegar athugasemdir og ábendingar um hvernig unnt væri að stuðla að betri innleiðingu laganna. Í skýrslunni koma fram sex ábendingar um framkvæmd laganna. Flestar aðgerðir aðgerðaáætlunarinnar tengjast að einhverju leyti þeim ábendingum og athugasemdum sem fjallað er um í skýrslu Ríkisendurskoðunar en segja má að 8 af 16 aðgerðum feli í sér bein viðbrögð við þeim. Nánar er gerð grein fyrir þessu í skýringum við hverja aðgerð. Jafnframt hefur verið bætt við aðgerð 8 sem snýr að samþættri þjónustu í framhaldsskólum eftir ábendingar sem bárust við meðferð málsins. Þá hefur orðalag verið bætt á ýmsum stöðum án efnisbreytinga og framkvæmdatími á ákveðnum aðgerðum færður til ársins 2027 til samræmis við framlagningu þingsályktunartillögu þessarar.
Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið að breytingum sem miða að því að tryggja markvissa innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (hér eftir barnasáttmálinn), sem lögfestur var á Alþingi 20. febrúar 2013 með lögum nr. 19/2013. Ábyrgð á innleiðingu barnasáttmálans hvílir á stjórnvöldum og felur sú ábyrgð m.a. í sér að vinna að því að Ísland verði barnvænt samfélag þar sem réttindi barna eru virt í framkvæmd og þeim gefið tækifæri til að njóta þeirra á eigin forsendum.
Hinn 10. júní 2021 samþykkti Alþingi þingsályktun um barnvænt Ísland – framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, nr. 28/151. Þingsályktunin markaði mikilvæg tímamót en hún fól í sér fyrstu heildstæðu aðgerðaáætlunina um innleiðingu barnasáttmálans hér á landi. Í áætluninni er í aðgerð 5.1 kveðið á um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum barna og ungmenna á landsvísu. Í umfjöllun um aðgerðina er fjallað um mikilvægi þess að stjórnvöld starfi eftir samræmdri og víðtækri stefnu í því skyni að efla og tryggja réttindi barna. Er það í samræmi við ábendingar barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem hefur á grundvelli eftirlitshlutverks síns beint því til aðildarríkja barnasáttmálans að stjórnvöld vinni eftir heildstæðri stefnu þegar kemur að málefnum og réttindum barna.
Samhliða vinnu við markvissa innleiðingu barnasáttmálans hér á landi hefur verið lögð áhersla á heildstæða stefnumótun um málefni barna sem miðar að samþættingu og samfellu í þjónustu við börn. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, tóku gildi 1. janúar 2022. Lögin fela í sér grundvallarbreytingar á umgjörð samvinnu þeirra aðila sem veita börnum og barnafjölskyldum þjónustu og eru afrakstur heildstæðrar vinnu sem hófst árið 2018.
Í 3. mgr. 3. gr. laganna er kveðið á um skyldu ráðherra til að leggja fyrir Alþingi stefnu um farsæld barna og framkvæmdaáætlun um verkefni ríkisins sem varða farsæld barna til fjögurra ára í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Í ákvæðinu kemur jafnframt fram að við undirbúning stefnu og framkvæmdaáætlunar skuli tekið mið af niðurstöðum farsældarþings.
Á grundvelli ákvæðisins var boðað til fyrsta farsældarþingsins í september 2023. Eins og nánar er fjallað um í 3. kafla lögðu umræður á þinginu grunninn að þeirri stefnumótunarvinnu sem fram fór í kjölfarið.
Á síðustu árum hefur verið lögð aukin áhersla á að stjórnvöld vinni eftir heildstæðri stefnumótun á grundvelli ályktana Alþingis. Nokkrar slíkar stefnur sem tengjast málefnum barna og ungmenna hafa verið samþykktar. Hér má til að mynda nefna menntastefnu fyrir árin 2021–2030, sbr. þingsályktun nr. 16/151, stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030, sbr. þingsályktun nr. 29/149. Þessar stefnur um einstaka málaflokka eru mikilvægar. Á sama tíma skiptir máli að taka upp stefnu sem sameinar þá ólíku málaflokka sem tengjast réttindum og þjónustu í þágu barna með áherslu á samþættingu þjónustunnar.
Þingsályktunartillaga þessi hefur að geyma heildstæða stefnu íslenskra stjórnvalda um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Stefnan er sett fram með þeim hætti að unnt verði að byggja á henni við alla stefnumótun sem tengist málefnum barna með einhverjum hætti, hvort sem sú stefnumótun lýtur að ákveðnum málaflokkum, málefnum eða réttindum barna almennt. Jafnframt er lögð fram framkvæmdaáætlun um verkefni ríkisins sem byggist á sex stoðum stefnunnar.
2. Stoðir stefnu.
A. Jafnræði.
Um velferð og farsæld barna og barnafjölskyldna er víða fjallað í íslenskum lögum og alþjóðlegum samningum sem íslenska ríkið er aðili að. Í 2. gr. barnasáttmálans kemur fram sú grundvallarregla að hverju barni skuli tryggð þau réttindi sem það á tilkall til án mismununar af nokkru tagi. Sambærileg ákvæði um jafnræði og bann við mismunun er jafnframt að finna víða í lögum.
Fyrir liggur að tilteknir hópar barna og fjölskyldur þeirra eru líklegri en aðrir til þess að mæta hindrunum sem takmarka möguleika þeirra á að njóta réttinda sinna til fulls. Til þess að tryggja að öll börn geti notið sömu réttinda og tækifæra er mikilvægt að styðja sérstaklega við börn í viðkvæmri stöðu og fjölskyldur þeirra. Ljóst er að í sumum tilfellum kann einnig að vera nauðsynlegt að grípa til sérstakra aðgerða eða viðeigandi aðlögunar þannig að allir fái notið eða geti nýtt sér, til jafns við aðra, þau réttindi sem þeir eiga tilkall til.
Þá er ljóst að fjölskyldan gegnir lykilhlutverki í lífi barna og er mikilvæg forsenda þess að börn geti notið réttinda sinna. Því er mikilvægt að réttindi séu skilgreind með þeim hætti að fjölskyldan í heild fái notið þeirra.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að jafnræði allra barna og fjölskyldna þeirra verði tryggt.
B. Barnvæn nálgun og þátttaka.
Í því skyni að skapa samfélag þar sem öll börn fá notið sín á eigin forsendum er mikilvægt að styðja barnvæna nálgun á öllum sviðum. Í samræmi við 12. gr. barnasáttmálans ber stjórnvöldum að hlusta á skoðanir barna, taka réttmætt tillit til þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska og tryggja börnum sem myndað geta eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem þau varða.
Þátttaka barna, þar sem þau hafa tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf og taka virkan þátt í samfélaginu, er mikilvægur liður í því að unnt sé að skapa samfélag sem er reist á virðingu, samkennd og skilningi. Markviss þátttaka barna í ákvarðanatöku stjórnvalda sem og virk samfélagsleg og lýðræðisleg þátttaka þeirra er til þess fallin að hafa jákvæð áhrif á valdeflingu og stöðu barna í samfélaginu.
Tryggja þarf að umhverfi, viðhorf, stjórnsýsla og þjónusta taki mið af skoðunum, þörfum og hagsmunum barna svo að þau hafi raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið sem og eigið líf. Þá þarf einnig að stuðla að því efni um inntak farsældar verði sett fram á barnvænu máli svo að börn geti í raun notið réttinda sinna til fulls og þeirrar samþættu þjónustu sem kveðið er á um í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að tryggja barnvæna nálgun og möguleika allra barna til þátttöku í málum sem snúa að þeim.
C. Viðeigandi stuðningur.
Í 2. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er hugtakið farsæld barns skilgreint sem aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðilegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Börn eru fjölbreyttur hópur og þarfir þeirra ólíkar. Því er mikilvægt að veita þeim viðeigandi stuðning á einstaklingsbundnum grundvelli með það að markmiði að tryggja farsæld hvers barns. Með einstaklingsmiðuðum stuðningi er unnt að nálgast börn og mæta þeim þar sem þau eru stödd í takt við samfélagslegar áskoranir og áherslur hverju sinni. Þverfagleg teymisvinna allra sem veita börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu, með virkri aðkomu barna og foreldra sem í hlut eiga, er mikilvægur liður í því að nálgast mál á einstaklingsbundnum grundvelli. Með slíkri samvinnu er hægt að mæta þörfum barna með snemmtækum stuðningi.
Forsenda þess að unnt sé að veita snemmtækan og einstaklingsmiðaðan stuðning er að viðeigandi þjónusta og úrræði standi börnum til boða um leið og þörf er á, einkum í nærumhverfi þeirra. Slík úrræði þurfa að vera aðgengileg þeim sem veita þjónustu í þágu farsældar barna og til þess fallin að mæta ólíkum þörfum barnanna sem í hlut eiga. Mikilvægt er að börn hafi greiðan aðgang að þverfaglegri þjónustu og viðeigandi stuðningi og að stjórnvöld stuðli að greiðu aðgengi að viðeigandi úrræðum. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að aukinn stuðningur, ráðgjöf og þjónusta við foreldra og fjölskyldur eru mikilvægir þættir sem stuðla að aukinni farsæld barna. Samhliða auknum stuðningi við börn er mikilvægt að styðja foreldra og fjölskyldur allra barna hér á landi.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að þörfum barna og fjölskyldna þeirra verði mætt með viðeigandi stuðningi og þverfaglegri þjónustu í samræmi við þarfir þeirra hverju sinni.
D. Fræðsla, forvarnir og réttindi.
Fræðsla, forvarnir og virðing fyrir réttindum barna eru veigamiklir þættir í því að stuðla að heilbrigðara og öruggara samfélagi þar sem öll börn fá notið sín á eigin forsendum.
Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að veita góða grunnþjónustu og snemmtækan stuðning í þágu farsældar barna. Fjölmörg rök liggja að baki þeirri sýn að leggja áherslu á fræðslu, forvarnir og réttindi barna. Slíkar aðgerðir miða m.a. að því að vernda börn fyrir neikvæðum afleiðingum áfalla eða tiltekinnar lífsreynslu sem þau kunna að verða fyrir. Fræðsla um þá þjónustu sem stendur börnum til boða, markvissar forvarnir og aukin áhersla á réttindi barna er til þess fallin að valdefla börn og fjölskyldur og tryggja þeim þekkingu og færni til að bregðast við áskorunum og draga úr líkum á að þörf verði á frekari stuðningi síðar.
Þá er almenn fræðsla mikilvægur liður í því að tryggja að réttindi barna séu raunverulega virt. Á það við hvort sem litið er til fræðslu fyrir börnin sjálf, foreldra þeirra eða fjölskyldur, starfsfólk sem vinnur með börnunum eða aðra. Forsenda þess að börn öðlist færni til þess að standa vörð um réttindi sín og setja þau í samhengi við aðstæður í eigin umhverfi er að efla meðvitund og skilning þeirra á réttindum sínum sem og réttindum annarra.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að fræðsla, forvarnir og réttindi barna liggi til grundvallar allri stefnumótun um málefni barna og að sérstök áhersla verði lögð á valdeflingu barna og fjölskyldna þeirra þegar þjónusta er veitt í þágu farsældar barna.
E. Framúrskarandi fagfólk.
Forsenda þess að unnt sé að tryggja börnum bestu mögulegu þjónustu á hverjum tíma er að við þá þjónustu starfi fólk sem býr yfir hæfni og reynslu til að mæta þörfum þeirra. Fagfólk sem starfar við þjónustu í þágu farsældar barna býr yfir fjölbreyttum bakgrunni, þekkingu og reynslu, enda hvílir farsældarþjónusta á stoðum ólíkra þjónustukerfa sem mæta þörfum barns hverju sinni.
Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eru gerðar ríkar kröfur til þeirra aðila sem veita börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu. Felur það m.a. í sér skyldu til að fylgjast með velferð og farsæld barna og bregðast við þörfum þeirra fyrir þjónustu á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur. Mikilvægt er að það fólk sem veitir þjónustuna hafi forsendur til að standa undir þeirri ábyrgð sem lögin leggja á það. Til að tryggja að svo megi verða er ljóst að leggja þarf áherslu á sérhæfða fagþekkingu og starfsumhverfi sem styður fólkið sem sinnir þeim störfum sem um ræðir. Þá er ljóst að til þess að starfsfólk sem vinnur með börnum geti upplýst börn og fjölskyldur um þann stuðning og þá þjónustu sem þau eiga rétt á þarf starfsfólkið að hafa þekkingu á rétti barna til að fá slíka þjónustu.
Sérhæfð þjónusta krefst sérhæfðrar þekkingar og framlags starfsfólks sem víða skortir hér á landi. Mikilvægt er að til staðar sé fagmenntað starfsfólk en einnig þarf að styðja það fólk sem þegar sinnir þjónustu í þágu farsældar barna.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að hér á landi muni framúrskarandi fagfólk veita farsældarþjónustu í þágu barna.
F. Áreiðanleg gögn.
Í 3. gr. barnasáttmálans kemur fram að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar stjórnvöld gera ráðstafanir sem varða börn. Forsenda þess að stjórnvöld geti tekið upplýstar ákvarðanir í þágu barna er að upplýsingar um börn, stöðu þeirra og líðan liggi fyrir.
Þær upplýsingar og þau gögn sem safnað er þurfa að vera áreiðanleg og veita heildræna yfirsýn með það að markmiði að stefnumótun stjórnvalda byggist á bestu fáanlegu gögnum um stöðu barna hér á landi, og styðja forgangsröðun stjórnvalda í þágu barna og stuðla að því að stjórnvöld geti rækt almennar eftirlitsskyldur sínar. Huga þarf sérstaklega að því að gagnaöflun stjórnvalda endurspegli fjölbreyttan hóp barna og veiti innsýn í þarfir þeirra og stöðu. Þá er mikilvægt að unnt sé að sundurliða gögn þannig að greina megi mismunun eða hugsanlega mismunun meðal barna með það að markmiði að stjórnvöld geti brugðist við.
Gagnaöflun um farsæld barna nýtist ekki aðeins í opinberri stefnumótun og eftirfylgni með aðgerðum stjórnvalda heldur einnig í störfum annarra aðila, svo sem félagasamtaka, sem vinna í þágu farsældar barna. Þessi sýn er í samræmi við áherslur stjórnvalda undanfarin ár og birtist m.a. í lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, þar sem fram kemur að stefnumótun og forgangsröðun skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið.
Á grundvelli þess sem hér kemur fram er sett fram sú framtíðarsýn að áreiðanleg gögn liggi til grundvallar ákvarðanatöku, stefnumótun og forgangsröðun í þágu farsældar barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á að gögnin veiti innsýn í þarfir og stöðu fjölbreyttra hópa barna hér á landi.
3. Samráð.
Sú stefna og framkvæmdaáætlun sem hér er lögð fram var undirbúin í víðtæku samráði. Á grundvelli 4. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, var 4. september 2023 boðað til fyrsta farsældarþingsins. Rúmlega 1.200 þátttakendur skráðu sig á þingið en í hópnum voru börn, foreldrar og aðrir aðstandendur ásamt starfsfólki ólíkra kerfa sem veita börnum þjónustu, þ.m.t. á vegum skóla- og frístundastarfs, félagsþjónustu, heilbrigðiskerfisins, lögreglunnar og ýmissa ríkisstofnana. Þá voru einnig viðstaddir fulltrúar hagsmunasamtaka sem vinna að málefnum barna. Rúmlega helmingur þinggesta tók þátt í stefnumótandi umræðum þingsins. Umræðunum var skipt upp eftir grunnstoðum farsældar, sem eru:
1. heilsa og vellíðan,
2. menntun,
3. þátttaka og félagsleg tengsl,
4. öryggi og vernd,
5. lífsgæði og félagsleg staða.
Við mótun stefnu og framkvæmdaáætlunar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030, sem tillaga þessi tekur til, var einkum horft til niðurstaðna farsældarþingsins þar sem fram komu nokkrar megináherslur.
Í fyrsta lagi var lögð áhersla á mikilvægi þess að styðja og styrkja snemmtækan stuðning við börn. Var einkum tekið mið af því við mótun aðgerðar nr. 7, um bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn, og aðgerðar nr. 10, um heildstæða endurskoðun á þjónustufarvegi fyrir börn með taugaþroskaraskanir. Jafnframt styður aðgerð nr. 9, um yfirsýn yfir stigskipta þjónustu hjá sveitarfélögum og ríki, framangreinda áherslu.
Í öðru lagi var áréttað mikilvægi þess að skýra þau atriði sem hafa þótt óljós við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, m.a. með áherslu á að skýra hlutverk tengiliða og málstjóra. Sú áhersla var höfð að leiðarljósi við mótun aðgerða, m.a. aðgerða nr. 9 og 11. Þá má sérstaklega nefna aðgerð nr. 14, um sameiginlegan skilning þjónustuveitenda, er ætlað að styrkja og styðja tengiliði og málstjóra í hlutverkum sínum.
Í þriðja lagi var á farsældarþinginu bent á mikilvægi þess að bæta upplýsingamiðlun og draga úr kerfislægum hindrunum og var tekið mið af því við mótun aðgerðar nr. 3, um samfellda miðlun upplýsinga í þágu farsældar barns, sem ætlað er að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar fylgi barninu á öruggan og skilvirkan hátt á milli þeirra aðila sem koma að málefnum barnsins.
Í fjórða lagi var fjallað um mikilvægi samráðs við börn og foreldra þeirra eða forsjáraðila við meðferð mála. Sérstaklega var horft til þess við mótun aðgerðar nr. 4, um barnvænt fræðsluefni um samþætta þjónustu. Aðgerðinni er ætlað að stuðla að því að börn séu vel upplýst um inntak laganna. Aðgerð nr. 6, um þátttöku barna í eigin farsæld, styður einnig framangreind áherslumál með því að valdefla börn og auka þátttöku þeirra í eigin farsæld.
Í fimmta lagi kom fram á þinginu mikilvægi þess að sett yrðu mælanleg markmið við mótun framkvæmdaáætlunar í þágu farsældar barna, þeim fylgt eftir og lagt mat á árangur. Við hverja aðgerð í tillögu þessari er tilgreindur mælikvarði. Auk þess snúa tvær aðgerðir sérstaklega að mati og eftirfylgni, þ.e. aðgerð nr. 13 og 16. Aðgerð 13 felur í sér þau verkefni sem hlotið hafa styrk til að styðja við innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, verði rýnd til að kanna hvort reynslan geti nýst á breiðari grunni. Aðgerð 16 felur í sér mat á innleiðingu laganna frá gildistöku og greiningu á því hvort þörf sé á frekari stuðningi eða úrbótum.
Í sjötta lagi var mikilvægi fræðslu og samræmdrar nálgunar áréttað. Tekið var mið af því við mótun stefnunnar og áætlunarinnar og fjalla aðgerðir nr. 4, 13 og 14 sérstaklega um fræðslu um samræmdra nálgun. Með aðgerð 4 er stefnt að gerð barnvæns fræðsluefnis um samþætta þjónustu. Aðgerð 14 felur í sér að auka sameiginlega skilning meðal þjónustuveitenda og aðgerð 15 felur í sér fræðslu fyrir stjórnendur innan mennta- og heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustu.
Í byrjun maí 2024 óskaði mennta- og barnamálaráðuneytið eftir tilnefningu frá 37 hagsmunaaðilum í fimm rýnihópa, sem jafnframt var skipt upp eftir grunnstoðum farsældar. Tilnefningar bárust frá 30 aðilum, þ.m.t. ráðuneytum, stofnunum, samtökum og öðrum hagsmunaaðilum. Vinna rýnihópanna byggðist á niðurstöðum farsældarþings og mælaborði um farsæld barna. Hinn 2. september 2024 var haldinn fundur með þátttakendum í rýnihópunum fimm, stýrihópi Stjórnarráðsins í málefnum barna, innleiðingarstjórum farsældar hjá sveitarfélögunum og starfshópi um innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Á fundinum voru drög að stoðum stefnu þessarar lögð fyrir til umræðu og rýni.
Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is 26. febrúar 2025 (mál nr. S-50/2025) og var frestur til umsagna til 12. mars sama ár. Alls bárust 12 umsagnir, frá Leiðtogasamfélaginu ehf., Persónuvernd, ÖBÍ réttindasamtökum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssamtökunum Þroskahjálp, stjórn Félags um menntarannsóknir, Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ), Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Reykjavíkurborg, Suðurnesjabæ og Sambandi íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), auk einnar umsagnar frá einstaklingi.
Almennt voru umsagnir jákvæðar og tillögunni fagnað. Í umsögnunum komu fram ýmis gagnleg sjónarmið, þ.m.t. um mikilvægi samræmdra tæknilausna og fullnægjandi fjármagns til innleiðingar. Auk þess komu ábendingar um mikilvægi fræðslu fyrir foreldra og forsjáraðila, mikilvægi stuðnings við þau sem starfa að farsæld barna, mikilvægi þess að huga sérstaklega að stöðu barna í viðkvæmri stöðu og uppbyggingu nauðsynlegra innviða sem styðja innleiðingu samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna. Var tekið mið af framangreindum ábendingum við mótun framkvæmdaáætlunarinnar.
Í umsögn Persónuverndar var bent á mikilvægi þess að hvers kyns vinnsla persónuupplýsinga sem færi fram samkvæmt framkvæmdaáætluninni væri í fullu samræmi við kröfur laga nr. 90/2018. Í aðgerð sem lýtur að samfelldri miðlun nauðsynlegra upplýsinga í tengslum við þjónustu í þágu farsældar barns var Persónuvernd sérstaklega tilgreind sem samstarfsaðili.
Í umsögn ÖBÍ réttindasamtaka var áréttuð sérstök staða fatlaðra barna og auk þess komu fram sjónarmið um börn í viðkvæmri stöðu frá öðrum umsagnaraðilum sem varða jafnan rétt allra barna til þjónustu. Sérstaklega var hugað að hópi barna í viðkvæmri stöðu við mótun framkvæmdaáætlunarinnar, sem endurspeglast m.a. í aðgerð nr. 1 sem snýr að aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Markmið aðgerðarinnar er að greina hvort til staðar séu kerfislægar hindranir sem koma í veg fyrir að börn í viðkvæmri stöðu hafi jafnt aðgengi að samþættri þjónustu. Aðgerð nr. 2 snýr að því að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu með því að festa í sessi svæðisstöðvar íþróttahéraða. Í umsögn Félags um menntarannsóknir kom m.a. fram ábending þess efnis að samræma þyrfti stuðningsúrræði fyrir öll börn óháð búsetu, en aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar miða markvisst að því að jafna aðgengi barna að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
Þá kom fram ábending um að virkja rödd barna með ólíkan bakgrunn og var horft til þess við mótun aðgerðar nr. 6 sem snýr að þátttöku barna í eigin farsæld og hefur það markmið að valdefla börn og auka þátttöku þeirra í eigin farsæld.
Þá lagði Ungmennafélag Íslands áherslu á að nýta svæðisstöðvar íþróttahéraðanna í áframhaldandi vinnu stjórnvalda í tengslum við farsæld í umsögn sinni. Er því lagt til eins og að framan greinir í aðgerð nr. 2 að stjórnvöld haldi áfram að styðja við svæðisstöðvar íþróttahéraðanna með það markmið að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með áherslu á þátttöku barna í viðkvæmri stöðu.
Í tengslum við þinglega meðferð tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna til ársins 2035 (283. mál á 156. löggjafarþingi), sem náði ekki fram að ganga, fór fram samráð við hagsmunaaðila og var litið til þess við áframhaldandi vinnslu málsins. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir í garð stefnunnar en bentu á þætti sem betur mættu fara. Til að mynda var í umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar sérstaklega fjallað um biðlista fyrir þjónustu við börn og var litið til umsagnarinnar við mótun aðgerðar nr. 7. Þá var við framsetningu stefnunnar litið til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var lögð áhersla á að aðgerðir sem ráðist yrði í til að ná markmiðum stefnunnar yrðu kostnaðarmetnar og hefðu mælanleg markmið.
Við meðferð tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 (579. mál á 157. löggjafarþingi), sem náði ekki fram að ganga, barst velferðarnefnd alls tíu umsagnir. Þar af voru níu umsagnir frá sjö aðilum, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Landshlutasamtökum sveitarfélaga, Landssamtökunum Þroskahjálp, Persónuvernd, Ungmennafélagi Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum og þrjár umsagnir frá sama einstaklingi. Auk þess lagði ráðuneytið fram minnisblað að beiðni velferðarnefndar til að bregðast við þeim umsögnum sem bárust nefndinni. Að mati ráðuneytisins studdu umsagnirnar meginmarkmið tillögunnar um heildstæða, samþætta og réttindamiðaða nálgun í þágu farsældar barna. Í umsögnunum voru dregin fram sjónarmið ýmissa hagsmunaaðila en ekki kallað eftir breytingum á tillögunni. Sjónarmið umsagnaraðilanna verða þó til hliðsjónar við innleiðingu verði tillagan samþykkt, einkum hvað varðar stöðu fatlaðra barna, upplýsingamiðlun og persónuvernd, hlutverk farsældarráða og jafnt aðgengi barna að þjónustu og þátttöku í eigin málum.
4. Mat á áhrifum.
Á tímabilinu 2027–2030 er gert ráð fyrir að ráðuneytið standi að fjármögnun aðgerða í framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að heildarfjárhæð um 820,2 millj. kr. Þar af eru 520 millj. kr. á tímabilinu ætlaðar til áframhaldandi stuðnings við svæðisstöðvar íþróttahéraða til fjögurra ára, einkum til að styðja við þátttöku barna í viðkvæmri stöðu. Jafnframt er gert ráð fyrir allt að 300,2 millj. kr. til annarra aðgerða, m.a. vegna svæðisbundinna farsældarráða, fræðslu- og upplýsingaefnis fyrir börn og fjölskyldur, eflingar tengiliða og málstjóra, fræðslu fyrir stjórnendur, mats á innleiðingu og þróunar stafrænna lausna. Verkefnin eru m.a. samstarfsverkefni ráðuneyta og stofnana, sveitarfélaga, félagasamtaka og háskólasamfélagsins. Þá er gert ráð fyrir að snemmtæk íhlutun og markviss samþætting þjónustu geti til lengri tíma stuðlað að hagræðingu, m.a. með því að draga úr þörf fyrir sérhæfðari og kostnaðarsamari úrræði á síðari stigum.
5. Aðgerðir í framkvæmdaáætlun.
5.1. Aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
Mikilvægt er að öll börn og foreldrar sem þurfa á því að halda hafi gott aðgengi að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna óháð aðstæðum, uppruna eða stöðu. Þar sem staða barna og sá stuðningur sem þau njóta er mismunandi er nauðsynlegt að kortleggja og greina hvort börn í viðkvæmri stöðu hafi í reynd jafnt aðgengi að samþættri þjónustu og hvort hún nýtist þeim með sambærilegum hætti og öðrum börnum. Þegar vísað er til barna í viðkvæmri stöðu er einkum horft til barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, barna frá tekjulágum heimilum og barna með fötlun. Aðgerð þessi miðar að því að kortleggja og greina aðgengi þeirra að samþættri þjónustu, m.a. með því að kanna hvort kerfislægar hindranir séu til staðar sem kunna að takmarka aðgengi, svo sem hindranir sem tengjast upplýsingamiðlun, kostnaði eða túlkaþjónustu.
Komi í ljós að börn í viðkvæmri stöðu séu síður í samþættri þjónustu eða njóti hennar í minna mæli en ætla mætti miðað við hlutfall þeirra í barnahópnum, eða að kerfislægar hindranir standi í vegi fyrir jöfnu aðgengi, verða lagðar fram tillögur að úrbótum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 kom fram að óviðunandi væri að óvissa ríkti um rétt barna á flótta til þjónustu og var lögð áhersla á að skýra stöðuna sem allra fyrst og vinna samhliða að því að draga úr hindrunum barna af erlendum uppruna við samþættingu þjónustu á grundvelli laganna. Að mati ráðuneytisins kemur aðgerðin vel til móts við þá ábendingu. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4., 6. og 23. gr. barnasáttmálans þar sem áhersla er lögð á jafnræði, bann við mismunun og raunverulegt aðgengi allra barna að þjónustu sem stuðlar að farsæld þeirra.
5.2. Svæðisstöðvar íþróttahéraða.
Frá árinu 2024 hefur verið í gildi samkomulag ráðuneytisins við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands um stuðning við svæðisstöðvar íþróttahéraða. Samkvæmt samkomulaginu fjármagna íþróttahreyfingin og ráðuneytið saman stöðugildi svæðisfulltrúa. Svæðisstöðvarnar hafa það hlutverk að efla og samræma íþróttastarf á landsvísu. Starfsemi þeirra hefur reynst mikilvæg til að styðja við markmið og hugmyndafræði laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Ein helsta áherslan í starfsemi svæðisstöðvanna er að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu, þ.e. börn með fötlun, börn frá tekjulágum heimilum og börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Tilteknir hópar barna eru líklegri en aðrir til að mæta hindrunum sem takmarka möguleika þeirra á þátttöku og þar með að njóta réttinda og tækifæra til jafns við aðra. Með markvissri aðgerð á vettvangi íþróttastarfs má draga úr þessum hindrunum og stuðla að inngildingu. Svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar hafa tekið virkan þátt í farsældarráðum landshluta og eru mikilvægir þátttakendur í samtali við aðra þjónustuveitendur farsældarþjónustu. Samstarfið stuðlar að því að íþróttastarf verði virkur hluti af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og efli félagslega þátttöku, vellíðan og jákvæða upplifun barna.
Í framkvæmdaáætluninni er gert ráð fyrir að svæðisstöðvar íþróttahéraða verði áfram fjármagnaðar af ráðuneytinu til móts við íþróttahreyfinguna svo að unnt verði að stuðla að markvissri uppbyggingu og tengingu íþróttastarfs um allt land í anda hugmyndafræði laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4., 6., 12., 23., 24. og 31. gr. barnasáttmálans þar sem fjallað er um grundvallarreglur barnasáttmálans um jafnræði, bestu hagsmuni barnsins og virka framkvæmd réttinda þess. Með samstarfi ríkis og íþróttahreyfingarinnar, markvissri svæðisbundinni uppbyggingu og sérstakri áherslu á inngildingu er stuðlað að félagslegum jöfnuði og réttur barna til þátttöku og þroska styrktur.
5.3. Samfelld miðlun upplýsinga í þágu farsældar barns.
Í samþættri þjónustu í þágu farsældar barna felst að aðilar sem koma að málum barns, svo sem skólar, frístundastarf, heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta og aðrir viðeigandi þjónustuveitendur, geti unnið saman á grundvelli sameiginlegrar og fullnægjandi þekkingar á stöðu og þörfum barnsins. Frá gildistöku laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hefur komið í ljós að óskýrar heimildir eða mismunandi túlkun á heimildum til upplýsingamiðlunar geta hamlað slíkri samvinnu og valdið óvissu meðal starfsfólks. Afleiðingin getur orðið sú að upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja viðeigandi stuðning við barn berast ekki með þeim hætti eða á þeim tíma sem þörf er á. Aðgerð þessi miðar að því að skýra lagaheimildir og samræma verklag að baki miðlun nauðsynlegra upplýsinga um barn í samþættri þjónustu á milli þjónustuveitenda sem koma að farsæld barnsins og eyða þannig þeirri óvissu sem er fyrir hendi, án þess að gengið sé lengra en nauðsyn krefur. Tillagan er í samræmi við ábendingar sem settar voru fram í framangreindri skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Miðlun upplýsinga skal ávallt byggjast á meðalhófi og takmarkast við það sem er nauðsynlegt í hverju tilviki. Tryggja þarf að skýrt sé hvaða upplýsingar teljist nauðsynlegar, hverjir hafi heimild til að miðla og taka við þeim og við hvaða aðstæður slík miðlun sé heimil. Jafnframt þarf að kveða á um viðeigandi öryggisráðstafanir, aðgangsstýringar og skráningu, í samræmi við lög um persónuvernd og vernd fjölskyldu og einkalífs. Markmiðið er að ná jafnvægi á milli réttar barns til viðeigandi og samfelldrar þjónustu annars vegar og verndar persónuupplýsinga hins vegar.
Tillagan felur í sér að farið verði yfir gildandi lagaumhverfi og verklagsreglur með það að markmiði að samræma og skýra heimildir til upplýsingamiðlunar í þágu samþættrar þjónustu. Persónuvernd er tilgreind sem mögulegur samstarfsaðili í aðgerðinni en mikilvægt er að stofnuninni geti veitt leiðsögn við útfærslu aðgerðarinnar. Tillagan felur jafnframt í sér áframhaldandi þróun þeirra tæknilausna sem þegar er hafin og að unnið sé að því að tryggja að lausnirnar vinni að markmiðum laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Aðgerðin styður einkum við 3., 4. og 16. gr. barnasáttmálans þar sem áhersla er lögð á hagsmuni barnsins og þörf þess fyrir viðeigandi og samfellda þjónustu, en jafnframt er leitast við að virða rétt barns til verndar einkalífi.
5.4. Barnvænt fræðsluefni um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er lögð áhersla á heildstæða, snemmtæka og samþætta nálgun þar sem þarfir barnsins eru í forgrunni. Þekking barna og foreldra á lögunum er lykilforsenda þess að markmið laganna nái fram að ganga. Lögin byggjast á því að þjónusta sé veitt með hagsmuni barns að leiðarljósi í nánu samstarfi og samráði við barnið og foreldra þess. Til þess að slíkt samstarf verði árangursríkt þurfa börn og foreldrar að vera upplýst um réttindi sín, hlutverk og þau úrræði sem standa þeim til boða. Með aukinni þekkingu á inntaki og tilgangi laganna eykst geta fjölskyldna til að leita sér stuðnings á réttum tíma og taka virkan þátt í mótun þjónustu. Upplýsingagjöf og fræðsla um lögin er jafnframt mikilvæg til þess að auka traust til opinberrar þjónustu. Þegar börn og foreldrar skilja hvernig kerfið á að virka, hver ber ábyrgð og hvert unnt sé að leita, er dregið úr óvissu og líkum á misskilningi. Það eykur gagnsæi, skapar öryggi og stuðlar að markvissara samstarfi foreldra og fagfólks.
Mikilvægt er að börn hafi aðgang að upplýsingum og fræðsluefni um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna sem hæfir aldri þeirra og þroska. Lagt er til að útbúið verði upplýsinga- og fræðsluefni um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna annars vegar í þeim tilgangi að vekja athygli barna á þjónustunni og hins vegar til að skýra hvernig þau geti nýtt rétt sinn og leitað til tengiliðar í sínu nærumhverfi. Lykilatriði er að til sé fræðsluefni sem er aðgengilegt börnum.
Stefnt er að því að þýða efnið á þau tungumál sem talin er þörf á svo að það verði aðgengilegt óháð tungumála- og menningarbakgrunni. Þá verði miðað að því að efnið sé aðgengilegt á helstu stöðum þar sem börn dveljast, svo sem í skólum, heilsugæslustöðvum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og hjá íþróttafélögum. Til viðbótar við barnvænt fræðsluefni er lagt til að unnið verði að innleiðingu fræðslu sem miði að því að börn séu vel upplýst um inntak laganna og hvaða rétt þau eiga samkvæmt þeim. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 5., 12., 13. og 17. gr. barnasáttmálans sem varða m.a. rétt barns til upplýsinga, þátttöku og jafnræðis, ásamt því að aðgerðin miðar jafnframt að því að styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu.
5.5. Innleiðing hagsmunamats út frá réttindum barna.
Lagt er til að hagsmunamat út frá réttindum barna verði innleitt með formlegum og samræmdum hætti innan Stjórnarráðsins. Markmiðið er að tryggja að hagsmunir barna séu markvisst hafðir að leiðarljósi við mótun laga, stefna og annarra stjórnvaldsákvarðana og að stjórnvöld stuðli þannig enn frekar að farsæld barna og uppfylli skyldur sínar í auknum mæli samkvæmt barnasáttmálanum. Í 3. gr. barnasáttmálans er kveðið á um að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar séu ákvarðanir sem það varða. Stjórnvöld þurfa því að meta markvisst áhrif ákvarðana sinna á börn og réttindi þeirra og hvort og þá hvernig nauðsynlegt er að bregðast við. Ráðuneytið gaf árið 2024, í samvinnu við umboðsmann barna, út leiðarvísi um mat á áhrifum á börn. Leiðarvísirinn var hluti af innleiðingu barnasáttmálans og aðgerð 4.1 í þingsályktun um barnvænt Ísland – framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, nr. 28/151, en frekari innleiðing er nauðsynleg.
Mikilvægt er að hagsmunamatið verði hluti af skyldubundnu ferli við undirbúning lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna og stefnumótandi ákvarðana, svo og ákvarðana í málefnum einstakra barna. Með því að leggja mat á hagsmuni barna er hægt að vega og meta áhrif ákvarðana og fyrirhugaðra aðgerða á réttindi og aðstæður þeirra og draga þannig úr hættu á ófyrirséðum neikvæðum afleiðingum á börnin og stuðla að farsæld þeirra og réttindamiðaðri nálgun í stefnumótun og ákvarðanatöku. Innleiðing barnvæns hagsmunamats styður því markmið um farsæld barna og heildstæða, þverfaglega nálgun í málefnum þeirra. Með því að greina snemma hvaða áhrif ákvarðanir kunna að hafa á börn er unnt að bregðast við áhættuþáttum áður en þeir hafa skaðleg áhrif á börn og styrkja verndandi þætti í umhverfi þeirra.
Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur lagt áherslu á kerfisbundið mat á áhrifum lagafrumvarpa, stefnum og ráðstöfunar opinbers fjármagns á börn og beint þeim tilmælum til Íslands að gæta að því að reglunni um bestu hagsmuni barnsins sé beitt markvisst í framkvæmd.
Gert er ráð fyrir því að mennta- og barnamálaráðuneytið leiði innleiðinguna í samráði við önnur ráðuneyti. Forsætisráðuneytið er sérstaklega tilgreint vegna samræmingarhlutverks þess og dómsmálaráðuneytið vegna ábyrgðar á mannréttindasáttmálum, þ.m.t. barnasáttmálanum og framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4., 6. og 12. gr. barnasáttmálans þar sem markmiðið er að tryggja að hagsmunir barna séu ávallt hafðir að leiðarljósi við mótun laga, stefnu og stjórnvaldsákvarðana. Með því að festa formlegt mat í sessi á hagsmunum barna fá sjónarmið og reynsla þeirra vægi í ákvarðanatöku og hægt verður að koma auga á neikvæð áhrif á réttindi og hagsmuni þeirra. Stuðlað er að jafnræði með því að greina sérstaklega áhrif ákvarðana á ólíka hópa barna og draga úr hættu á mismunun eða ófyrirséðum neikvæðum áhrifum. Réttur barna til þroska er efldur með því að greina snemma neikvæð áhrif ákvarðana á þau og grípa til mótvægisaðgerða ef þörf krefur.
5.6. Þátttaka barna í eigin farsæld.
Samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna skal leitast við að veita markvissan stuðning á grundvelli stuðningsáætlunar um samþættingu þjónustu og eftirfylgd þegar barn nýtur þjónustu á öðru eða þriðja stigi, sbr. 22. gr. laganna. Stuðningsáætlun er einstaklingsbundin áætlun fyrir barn þar sem þjónusta sem veitt er í þágu farsældar þess er samþætt. Málstjóri útbýr stuðningsáætlun og fylgir því eftir að þjónustan sé veitt í samræmi við stuðningsáætlunina, sbr. 21. gr. laganna. Það er á ábyrgð málstjóra að gera stuðningsáætlun fyrir barnið og málstjóri fylgir eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við áætlunina, sbr. 22. gr. laganna. Í áætluninni skal eftir atvikum geta um mat og/eða greiningu á þörfum barns, markmið þjónustu, samþættingu einstakra þátta hennar á öllum þjónustustigum, hlutverk hvers þjónustuveitanda og annarra eftir atvikum, hvernig árangur verði metinn og gildistíma áætlunarinnar.
Stjórnvöldum ber að tryggja rétt barna til þátttöku í málum sem þau varða, sbr. 12. gr. barnasáttmálans. Ekki liggur fyrir hvernig þátttöku barna í áætlanagerð er háttað eða hvort bakgrunnur þeirra, t.d. fötlun, tungumál, menning, félagslegar aðstæður eða fyrri reynsla af kerfum og þjónustu, hafi áhrif á þátttökuna.
Í aðgerðinni er lagt til að stuðningsáætlanir verði rýndar með tilliti til þess hvernig þátttöku barna var háttað, hver aðkoma þeirra var í framkvæmd og hvernig þau upplifðu ferlið, þar á meðal upplýsingagjöf og samskipti. Jafnframt verði skoðað hvort börn í viðkvæmri stöðu hafi haft sömu tækifæri til þátttöku og önnur börn. Í kjölfarið verði unnar leiðbeiningar fyrir málstjóra um samræmt verklag við þátttöku barna í gerð eigin stuðningsáætlana. Auk þess er lagt til að sérstakt upplýsingaefni fyrir börn þar sem réttur þeirra til upplýsinga og þátttöku komi skýrt fram. Efnið skal taka mið af aldri, þroska, menningar- og tungumálabakgrunni barna. Efnið verið á mismunandi formi, svo sem myndbönd, bæklingar eða annað sem hentar hverjum hóp. Mikilvægt er að fram komi hvernig þátttaka fer fram og hvernig endurgjöf til barns verði háttað og hvað barn geti gert upplifi það að skoðanir þess séu ekki virtar. Með þessu er stuðlað að því að börn verði virkir þátttakendur í eigin farsæld og hafi áhrif á ákvarðanir sem þau varða. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4., 12., 13. og 17. gr. barnasáttmálans með því að tryggja að börn fái raunhæft tækifæri til að taka þátt í mótun og framkvæmd stuðningsáætlana sem þau varða, að börn fái skýrar og aldursviðeigandi upplýsingar um ferlið og að sérstaklega sé gætt jafnræðis svo að börn í viðkvæmri stöðu hafi sömu tækifæri og önnur til þátttöku.
5.7. Bætt aðgengi að þjónustu fyrir börn.
Meginmarkmið laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana, þ.e. að þau fái réttan stuðning á réttum tíma. Langir biðlistar eftir greiningu, meðferð eða stuðningsúrræðum ganga gegn þessu markmiði laganna. Þegar börn bíða mánuðum eða jafnvel árum saman eftir nauðsynlegri þjónustu er hætta á að vandi þeirra dýpki, félagsleg staða veikist og líðan versni. Slíkar tafir geta haft áhrif á námsárangur, félagsfærni og geðheilsu og aukið líkur á frekari íhlutun síðar á lífsleiðinni. Þá geta langir biðlistar einnig leitt til aukins álags á fjölskyldur og dregið úr trausti þeirra á opinberum kerfum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að stytta biðlista barna, auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og fjármagna meðferðarúrræði vegna fíknivanda. Lagt er til að gerð verði þarfagreining á því hvað helst skorti í þjónustu og stuðningi við börn og helstu biðlistar þar sem börn bíða eftir lögbundinni þjónustu kortlagðir. Fyrir liggur góður grunnur hjá umboðsmanni barna sem nýta má við þá vinnu. Í kjölfar þarfagreiningarinnar og kortlagningarinnar skulu liggja fyrir tillögur að forgangsröðun og tillögur að úrbótum og aðgerðum til að vinna á biðlistum. Aðgerðin hefur tekið breytingum frá því að tillaga þessi var lögð fram á 157. löggjafarþingi í samræmi við þær ábendingar sem tilgreindar eru í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026. Breytingin felur það m.a. í sér að aukin áhersla er nú lögð á þarfagreiningu á hvað helst skortir í samþættir þjónustu og stuðningi við börn. Aðgerðin styður einkum við 3., 4., 6., 23. og 24. gr. barnasáttmálans með því að tryggja að börn fái nauðsynlega þjónustu á réttum tíma og að hagsmunir þeirra séu í forgangi við úrbætur og greiningu á biðlistum. Með kortlagningu og tillögum að aðgerðum er skyldu stjórnvalda til að innleiða barnasáttmálann framfylgt. Aðgerðin stuðlar að greiðara aðgengi barna að viðeigandi stuðningi þegar á þarf að halda.
5.8. Farsæld í framhaldsskólum.
Barna- og fjölskyldustofa vann árið 2025 skýrslu um innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í þeim framhaldsskólum sem hafa nemendur yngri en 18 ára. Niðurstöðurnar bentu m.a. til kerfislægra áskorana í skipulagi, verklagi og samstarfi lykilaðila. Lagt er til að stutt verði við innleiðingu samþættrar þjónustu í framhaldsskólum landsins með áherslu á fræðslu, upplýsingagjöf og samræmt verklag. Aðgerð þessi var mótuð í samvinnu við Barna- og fjölskyldustofu og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þá var rætt við hagaðila, m.a. Skólameistarafélag Íslands og Samtök íslenskra framhaldsskólanema. Lagt er til að ráðist verði í úrbætur í samstarfi við framhaldsskóla landsins. Meðal annars verði unnið að samræmdu verklagi um flutning nauðsynlegra upplýsinga frá grunnskóla í framhaldsskóla og aukin áhersla lögð á fræðslu og samstarf við og á milli tengiliða farsældar í framhaldsskólum. Gert er ráð fyrir reglulegri eftirfylgni þar sem kallað verði eftir stöðuskýrslu frá framhaldsskólunum. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 kom fram ábending þess efnis skortur væri á samfellu í samþættri þjónustu þegar börn færu úr grunnskóla í framhaldsskóla. Aðgerðinni er ætlað að bæta þá samfellu. Tengiliðir í framhaldsskólum gegna lykilhlutverki við innleiðingu laganna og því verði sérstaklega unnið að auknu samstarfi þeirra og samræmdu verklagi í framhaldsskólum landsins.
Markmiðið er að bæta aðgengi barna í framhaldsskólum að samþættri þjónustu og stuðla að snemmtækri íhlutun þegar hennar er þörf með samræmdu verklagi, skráningu og upplýsingamiðlun. Gert er ráð fyrir að fleiri börn í framhaldsskólum njóti samþættrar þjónustu og að skráðum málum fjölgi um 25%. Fyrstu fjóra mánuði ársins 2026 voru 151 mál í samþættri þjónustu hjá framhaldsskólum, eða 2,5% allra skráðra mála. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 6., 12., 28. og 29. gr. barnasáttmálans. Með aukinni samfellu í þjónustu, snemmtækri íhlutun og samræmdu verklagi við skil á milli grunn- og framhaldsskóla er stuðlað að jöfnu aðgengi barna að stuðningi og menntun, að það sem barni er fyrir bestu sé haft að leiðarljósi og að börn fái notið þroska- og menntunarmöguleika sinna til fulls. Aðkoma framhaldsskólanema að mótun og eftirfylgni aðgerðarinnar styður jafnframt við rétt barna til þátttöku og áhrifa í málum sem þau varða.
5.9. Yfirsýn yfir stigskipta þjónustu hjá sveitarfélögum og ríki.
Í þriðja kafla laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er fjallað um stigskiptingu þjónustu, þ.e. að þjónusta í þágu farsældar barna sé veitt á þremur þjónustustigum. Fyrsta stig þjónustu í þágu farsældar barna tilheyrir grunnþjónustu sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Þá eru á fyrsta stigi úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og snemmtækur stuðningur með það að markmiði að styðja við farsæld barns. Snemmtækur stuðningur er veittur í samræmi við frummat á þörfum barns. Á öðru stigi þjónustu í þágu farsældar barna eru úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og markviss stuðningur með það að markmiði að tryggja farsæld barns. Markviss stuðningur er veittur í samræmi við faglegt mat og/eða frumgreiningu á þörfum barns. Leitast skal við að veita markvissan stuðning á grundvelli stuðningsáætlunar um samþætta þjónustu og eftirfylgd. Þriðja stig þjónustu í þágu farsældar barna felur í sér úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og sérhæfður stuðningur með það að markmiði að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin. Sérhæfður stuðningur er veittur í samræmi við sérhæft og ítarlegt mat og/eða greiningu á þörfum barns.
Samkvæmt lögunum skal ráðherra sem ber ábyrgð á farsældarþjónustu setja reglugerð, eftir atvikum að höfðu samráði við sveitarfélög, þar sem gerð er grein fyrir allri farsældarþjónustu, sem undir hvern ráðherra heyrir og stigskiptingu þeirra þjónustu í samræmi við lögin. Sú reglugerð hefur ekki verið sett. Lagt er til að undirbúningur reglugerðar verði hafinn, en forsenda þess er að sveitarfélög og stofnanir kortleggi þá þjónustu sem er til staðar og skilgreini á hvaða stigi þjónustan er í samræmi við lögin. Markmiðið er að þjónustuveitendur og aðrir sem vinna beint með börnum hafi góða yfirsýn yfir þau úrræði sem standa til boða fyrir börn hverju sinni og er að því leyti í samræmi við ábendingar sem fram koma í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026. Að kortlagningu lokinni verði hugað að setningu reglugerðar. Aðgerðin styður einkum við 2., 4. og 6. gr. barnasáttmálans með því að aðgengi barna að skýrt skilgreindri þjónustu sé kortlagt til að tryggja yfirsýn og skilvirkni í þjónustu við börn sem stuðlar að snemmtækum og viðeigandi stuðningi við börn.
5.10. Heildstæð endurskoðun á þjónustufarvegi fyrir börn með taugaþroskaraskanir.
Á undanförnum árum hefur fjölgað börnum sem sýna einkenni taugaþroskaraskana og leita eftir mati, greiningu og stuðningi. Á sama tíma hefur komið í ljós að þjónustufarvegir fyrir þessi börn eru flóknir og oft háðir formlegri greiningu, sem getur tafið nauðsynlegan stuðning. Biðlistar eftir greiningu og þjónustu eru langir og álag á sérhæfða innviði mikið. Fyrirliggjandi greiningar og stefnumótun stjórnvalda benda til þess að þörf sé á heildstæðari nálgun með áherslu á snemmtæka íhlutun, stuðning í nærumhverfi barns og skýrt samstarf á milli skóla og frístundastarfs, skólaþjónustu, félagsþjónustu og heilbrigðiskerfis. Sérstök áhersla er lögð á að börn fái viðeigandi stuðning óháð því hvort formleg greining liggi fyrir, í samræmi við lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Í framangreindri skýrslu Ríkisendurskoðunar sem varðaði innleiðingu og framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er sérstaklega vakin athygli á langri bið barna með einhverfu eða á einhverfurófi eftir greiningu og að þjónusta við þann hóp sé oft af skornum skammti. Aðgerðin kemur vel til móts við þá ábendingu.
Með aðgerðinni er lagt til að mótuð verði sameiginleg sýn og skýrari þjónustufarvegur fyrir börn sem sýna einkenni taugaþroskaraskana, dregið úr óþarfa töfum, nýting fjármagns og mannafla bætt og tryggt að börn og fjölskyldur þeirra fái markvissan stuðning sem fyrst. Gerðar verði tillögur að skilvirkari farvegi málanna þvert á þjónustukerfi. Niðurstöðurnar nýtist jafnframt við áframhaldandi þróun skóla- og geðheilbrigðisþjónustu barna og stafrænna innviða sem styðja við samþætta þjónustu. Aðgerðin styður einkum við 3., 4., 6., 23., 24. og 28. gr. barnasáttmálans þar sem hún fjallar m.a. um rétt barna til heilbrigðisþjónustu og menntunar með því að hafa skýra þjónustufarvegi fyrir börn sem sýna einkenni taugaþroskaraskana þvert á kerfi þannig að þau fái nauðsynlegan stuðning til fullrar þátttöku í leik og starfi.
5.11. Samræmd innleiðing farsældar í heilbrigðis-, mennta- og barnverndarkerfum.
Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna krefst virks samstarfs á milli þeirra sem veita börnum og fjölskyldum þeirra þjónustu. Þrátt fyrir skýra lagastoð og sameiginleg markmið hefur komið í ljós að framkvæmd samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna er ólík á milli kerfa og á milli landsvæða, sem getur leitt til ósamræmis, tvíverknaðar og óskýrrar ábyrgðar.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 kom fram að innleiðing farsældarlaganna hefði tekið lengri tíma innan heilbrigðiskerfisins, m.a. vegar skorts á samræmdu verklagi og ófullnægjandi útfærslu á vinnslu og miðlun gagna. Aðgerð nr. 3, um samfellda miðlun upplýsinga í þágu farsældar barns, tekur til miðlunar gagna og beinist að samhæfingu þvert á ráðuneyti og þjónustukerfi.
Með því að setja á fót formlegan samhæfingarhóp ráðuneyta sem bera ábyrgð á þjónustu í þágu farsældar barna er stefnt að því að skapa vettvang fyrir stefnumótun, eftirfylgni, samþættingu og samræmingu aðgerða þvert á kerfi. Hópnum er ætlað að brúa bil á milli stefnu og framkvæmdar, tryggja að farsældarsjónarmið séu samþætt í daglegu starfi og styðja þróun sameiginlegra verkferla og lausna.
Aðgerðin er liður í að styrkja heildstæða nálgun í málefnum barna, bæta þjónustu og tryggja að börn og fjölskyldur fái rétta þjónustu á réttum tíma. Samhæfingarhópnum er jafnframt ætlað að styðja aðrar aðgerðir áætlunarinnar, þar á meðal þróun skýrra þjónustufarvega og bættan stuðning við börn með fjölbreyttar þjónustuþarfir. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4. og 6. gr. barnasáttmálans með því að stuðla að því að hagsmunir barna séu hafðir að leiðarljósi við samhæfingu þjónustu og að stjórnvöld tryggi virka og samræmda framkvæmd réttinda barna með samvinnu og eftirfylgni. Þá stuðlar aðgerðin að því að börn fái sem fyrst heildstæða og samræmda þjónustu sem eflir þroska þeirra og farsæld.
5.12. Áframhaldandi stuðningur við svæðisbundin farsældarráð barna.
Samkvæmt 5. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna skipa sveitarfélög svæðisbundin farsældarráð sem eru samráðvettvangur fyrir svæðisbundið samráð um farsæld barna. Í ráðunum eiga sæti fulltrúar svæðisbundinna þjónustuveitenda ríkis og sveitarfélaga. Eitt veigamesta hlutverk ráðanna er að gera áætlun til fjögurra ára um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna sem mun taka mið af þingsályktunartillögu þessari um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030, verði hún samþykkt, og niðurstöðum farsældarþings. Svæðisbundnu farsældarráðin eru átta. Ráðuneytið samdi við landshlutasamtök sveitarfélaga um ráðningu verkefnastjóra í hverjum landshluta til að leiða undirbúning að stofnun svæðisbundinna farsældarráða. Samningarnir voru til tveggja ára og meginmarkmið þeirra var að farsældarráð hefðu tekið til starfa og undirbúningur fyrstu áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun hæfist fyrir lok samningstímans. Ráðin hafa verið stofnuð og næsta skref er að fulltrúar þjónustuveitenda og notenda hefji samtal um gerð aðgerðaáætlunar. Verið er að samhæfa krafta starfsfólks og verklag á milli sveitarfélaga og stórefla samvinnu þar á milli, sem gefur góð fyrirheit. Vinna við fyrstu áætlanirnar hefur þó ekki hafist þar sem þær munu byggjast á þeirri stefnu og framkvæmdaáætlun sem hér er lögð fram. Mikilvægt er að viðhalda stuðningi við uppbyggingu ráðanna svo að markmið laganna um fjögurra ára svæðisbundna forgangsröðun verkefna í þágu barna í hverjum landshluta náist.
Lagt er til að skilgreindar verði leiðir til áframhaldandi stuðnings við starfsemi farsældarráða í hverjum landshluta með það að markmiði að þau nái fótfestu. Aðgerðin styður einkum við 2., 3., 4. og 6. gr. barnasáttmálans með því að styrkja svæðisbundin farsældarráð, stuðla að jafnræði óháð búsetu og efla heildstæða þjónustu sem eflir og farsæld barna.
5.13. Árangur farsældarstyrkja.
Ráðuneytið hefur á undanförnum árum auglýst og veitt íslenskum félagasamtökum og sveitarfélögum styrki til verkefna sem stuðla að farsæld og velferð barna. Styrkveitingarnar hafa verið hluti af heildstæðri nálgun ráðuneytisins til að styðja innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030. Lögð hefur verið áhersla á að styrkja verkefni sem varða menntun, frístundastarf, forvarnir, samfélagslega virkni, stuðning og ráðgjöf til barna og fjölskyldna þeirra. Styrkirnir hafa verið mikilvægir í að efla þjónustu sem beinist að hagsmunum og farsæld barna. Fyrst og fremst styðja þeir frumkvæði og nýsköpun í starfsemi félagasamtaka og sveitarfélaga sem vinna náið með börnum og fjölskyldum þeirra. Mikilvægt er að fylgja verkefnunum markvisst eftir, meta árangur þeirra og greina hvort og hvernig megi yfirfæra lærdóm og aðferðir á önnur svið eða fleiri sveitarfélög. Því er lagt til að ráðuneytið rýni verkefnin til að meta árangur þeirra og hvort ástæða sé til að þróa þau eða innleiða á breiðari grundvelli. Aðgerð þessi styður einkum við 3. og 4. gr. barnasáttmálans með markvissri eftirfylgni og mati á verkefnum í þágu barna og upplýstri ráðstöfun fjármagns.
5.14. Sameiginlegur skilningur þjónustuveitenda.
Markmið aðgerðarinnar er að tryggja að þjónustuveitendur og þeir sem veita börnum og fjölskyldum þeirra almenna þjónustu hafi skýran og sameiginlegan skilning á ábyrgð sinni, hlutverki og skyldum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Sérstök áhersla verði lögð á að styrkja og efla tengiliði og málstjóra sem gegna lykilhlutverki við að samræma þjónustu, tryggja samfellu og halda utan um mál barna. Með markvissri eflingu þeirra verður stuðlað að skýrari verkaskiptingu og betri þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Barna- og fjölskyldustofa mun eiga frumkvæði að því að efla sameiginlegan skilning á hlutverkum og verksviðum þeirra sem sinna samþættri þjónustu í þágu farsældar barna á vettvangi ríkis og sveitarfélaga. Það verði m.a. gert með fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu fyrir starfsfólk á vettvangi. Jafnframt er gert ráð fyrir að horft verði til aðkomu þeirra sem veita börnum almenna þjónustu en í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026 er bent á að skýra þurfi aðkomu þeirra að samþættri þjónustu. Jafnframt er unnið að leiðbeiningum á vegum Barna- og fjölskyldustofu um aðkomu barna að stuðningsteymum í samþættri þjónustu. Stefnt er að því að árið 2030 liggi fyrir skýrsla stofunnar um hvernig tekist hefur að samræma skilning þjónustuveitenda sem koma að samþættri þjónustu samkvæmt lögum um farsæld barna. Aðgerðin styður einkum við 3. og 4. gr. barnasáttmálans með skýrari ábyrgð, samfellu og samræmingu þjónustu.
5.15. Fræðsla fyrir stjórnendur.
Með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er lögð áhersla á að þjónusta við börn og foreldra þeirra sé samfelld og markviss með hagsmuni barns að leiðarljósi. Innleiðing laganna krefst ekki aðeins breytinga á verklagi heldur einnig aukinnar þekkingar og skilnings þeirra sem fara með stjórn og faglega forystu innan menntakerfis, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu. Stjórnendur gegna lykilhlutverki við að móta starfsumhverfi, styðja samstarf á milli kerfa og tryggja að samþætt þjónusta verði hluti af daglegri framkvæmd.
Markmið aðgerðarinnar er að styrkja þekkingu og skilning stjórnenda á samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og efla hæfni þeirra til að leiða innleiðingu hennar í eigin starfsemi. Með markvissri fræðslu og þjálfun er stuðlað að sameiginlegum skilningi á markmiðum laganna, hlutverkaskiptingu og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar. Þannig skapast betri forsendur fyrir samhæfða þjónustu sem tekur mið af þörfum barns hverju sinni.
Aðgerðinni verður hrint í framkvæmd með þróun námskeiðs fyrir stjórnendur innan skólakerfisins, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu þar sem fjallað verður um innleiðingu samþættrar þjónustu, þverfaglegt samstarf og ábyrgð stjórnenda samkvæmt gildandi lögum og stefnu stjórnvalda.
Aðgerðin er liður í því að treysta stoðir innleiðingar samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna og stuðla að því að stjórnendur hafi þá þekkingu og hæfni sem nauðsynleg er til að tryggja samfellda, samþætta og árangursríka þjónustu til lengri tíma. Aðgerðin styður einkum við 3. og 4. gr. barnasáttmálans með því að efla hæfni stjórnenda til að tryggja að hagsmunir barna séu ávallt hafðir að leiðarljósi við skipulag og framkvæmd þjónustu og að hún sé samfelld, snemmtæk og miðuð að þörfum hvers barns. Aðgerðin stuðlar að því að stjórnvöld uppfylli skyldur sínar samkvæmt sáttmálanum með því að efla markvissa og samhæfða fræðslu og þjálfun stjórnenda.
5.16. Árangur af fyrstu fimm árum samþættrar þjónustu.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna byggjast á þeirri grundvallarsýn að börn eigi rétt á tímanlegri, heildstæðri og samfelldri þjónustu óháð því hvaða kerfi eða stjórnvald ber formlega ábyrgð á einstökum úrræðum. Til að þessi sýn verði að veruleika þarf stöðugt að meta innleiðinguna, draga lærdóm af reynslunni og grípa til úrbóta þegar þess er þörf. Því er lagt til að fimm árum frá gildistöku laganna fari fram ítarlegt mat á innleiðingu og framkvæmd þeirra með það að leiðarljósi að styrkja áframhaldandi innleiðingu samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna. Litið verði til skilgreindra árangursmælikvarða eins og kallað er eftir í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá júní 2026.
Matinu er ætlað að varpa skýru ljósi á hvernig innleiðingin hefur gengið, hvort framkvæmdin styðji markmið laganna og hvernig þjónustan nýtist börnum og fjölskyldum þeirra. Niðurstöðurnar verða teknar saman í skýrslu sem getur falið í sér tillögur að úrbótum.
Markmiðið með matinu er að draga fram skýra mynd af styrkleikum innleiðingarinnar, helstu áskorunum og þeim aðgerðum sem nauðsynlegt er að grípa til, til að tryggja að markmið laganna náist til fulls. Slíkar aðgerðir geta m.a. varðað skýrari verkaskiptingu, endurbættar boðleiðir, aukinn stuðning við innleiðingu á vettvangi, samræmda fræðslu og þjálfun, þróun sameiginlegra verkfæra og leiðbeininga og, eftir því sem niðurstöður gefa tilefni til, endurskoðun á regluverki, verklagi eða fjármögnun. Aðgerðin styður einkum við 3., 4. og 6. gr. barnasáttmálans með því að kanna hvort þjónustan nýtist börnum í reynd og hvort markmið laganna náist. Þannig stuðla stjórnvöld enn frekar að því að uppfylla skyldur sínar samkvæmt sáttmálanum með því að tryggja virka og árangursríka framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og meta hvort þörf sé á úrbótum þannig að lögin stuðli heildstætt að þroska, velferð og farsæld barna.