Ferill 76. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 76 — 76. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á búvörulögum og búnaðarlögum (framlenging búvörusamninga).
Frá atvinnuvegaráðherra.
I. KAFLI
Breyting á búvörulögum, nr. 99/1993.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
II. KAFLI
Breyting á búnaðarlögum, nr. 70/1998.
9. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. skal samningur við Bændasamtök Íslands um verkefni samkvæmt lögum þessum og framlög til þeirra gilda til og með 31. desember 2027.
10. gr.
Greinargerð.
Núgildandi búvörusamningar milli stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands, þ.e. rammasamningur um almenn starfsskilyrði landbúnaðar, samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar, samningur um starfsskilyrði nautgriparæktar og samningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, voru gerðir árið 2016. Þar er mælt fyrir um að samningarnir gildi til tíu ára eða til og með 31. desember 2026. Samningarnir hafa verið endurskoðaðir nokkrum sinnum síðan þeir öðluðust gildi en síðasta endurskoðun fór fram á árinu 2023 og voru þá ekki gerðar veigamiklar breytingar á búvörusamningum, þar sem samningsaðilar voru sammála um að hefja strax samtal um starfsumhverfi landbúnaðar til framtíðar.
Undirbúningur fyrir samtal stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands hefur staðið yfir um nokkurt skeið og á árinu 2023 voru samþykktar af Alþingi tvær þingsályktanir er varða landbúnað til framtíðar, annars vegar þingsályktun um matvælastefnu til ársins 2040, nr. 20/153, og hins vegar þingsályktun um landbúnaðarstefnu til ársins 2040, nr. 21/153. Síðustu misseri hafa stjórnvöld átt í samtali við Bændasamtök Íslands um starfsumhverfi landbúnaðar en fyrir liggur að meiri tíma þarf fyrir það samtal og er því tilefni þessa frumvarps að framlengja núgildandi búvörusamninga til ársloka 2027.
Með samkomulagi milli atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands, dags. 3. júní 2026, er kveðið á um að framlengja núgildandi búvörusamninga til og með 31. desember 2027 á meðan samtal um stuðningskerfi landbúnaðar til framtíðar fer fram.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, dags. 21. desember 2024, kemur m.a. fram að ýtt verði undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu og að gripið verði til aðgerða til að efla nýsköpun í landbúnaði, auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti og að dregið verði úr orkukostnaði garðyrkjubænda. Þá er í matvælastefnu til ársins 2040 mælt fyrir um að skapaður verði skýr lagalegur rammi og starfsumhverfi sem styðji við verðmætasköpun á grunni sjálfbærrar nýtingar. Meginmarkmið landbúnaðarstefnu til ársins 2040 er að efla og styðja íslenskan landbúnað og styrkja stoðir hans til framtíðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Með framlengingu búvörusamninga er lagt til að veita aukið svigrúm til samtals um stuðningskerfi landbúnaðar til framtíðar með hliðsjón af framangreindum stefnum hins opinbera á þessu sviði. Markmið frumvarpsins er því að veita aukið svigrúm til að ljúka samtali stjórnvalda við Bændasamtök Íslands og aðra hagaðila, eftir því sem við á, um stuðningskerfi landbúnaðar til framtíðar.
Samkomulag milli atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands um framlengingu búvörusamninga var undirritað af hálfu stjórnvalda með fyrirvara um nauðsynlegar lagaheimildir Alþingis. Verði ekkert aðhafst og frumvarpið verður ekki að lögum renna núgildandi búvörusamningar út 31. desember 2026.
3. Meginefni frumvarpsins.
Mælt er fyrir um gildistíma búvörusamninga í ákvæðum búvöru- og búnaðarlaga og því eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á núgildandi ákvæðum búvöru- og búnaðarlaga svo samkomulag um framlengingu búvörusamninga öðlist gildi. Í frumvarpinu er lagt til að gera orðalagsbreytingar á 37., 38., 41., 55. og 58. gr. búvörulaga og sett verði ákvæði til bráðabirgða í búnaðarlög.
Verði frumvarpið að lögum munu búvörusamningar gilda til og með 31. desember 2027 í stað 31. desember 2026.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið er ekki talið fela í sér álitaefni sem varða samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.
5. Samráð.
Frumvarpið snertir aðallega bændur og matvælaframleiðendur, en einnig neytendur, hagsmunasamtök í landbúnaði og matvælaframleiðslu. Frumvarpið skarast við stjórnarmálefni fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem fer með opinber fjármál skv. 2. tölul. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, en samkomulag um framlengingu búvörusamninga var unnið með ráðuneytinu. Samtal við Bændasamtök Íslands stendur yfir og þá hefur verið fundað með helstu hagsmunaaðilum og þeir upplýstir um framlengingu búvörusamninga. Með fréttatilkynningu 4. júní 2026 var einnig upplýst um undirritun samkomulags stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands um framlenginguna.
Áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 9. júlí 2026 í máli nr. S-124/2026 með umsagnarfresti til og með 10. ágúst 2026. Samhliða áformunum var einnig birt frummat á áhrifum lagasetningarinnar og samkomulag atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda við Bændasamtök Íslands um framlengingu búvörusamninga. Ein umsögn barst um áformin frá Samtökum iðnaðarins og Samtökum fyrirtækja í landbúnaði sem styðja fyrirhugaða framlengingu búvörusamninga.
Í frumvarpinu er mælt fyrir um tæknilegar orðalagsbreytingar í tilteknum ákvæðum sem mælt var fyrir um í áformum um lagasetningu og voru þar tilgreind þau lagaákvæði sem gera þarf tæknilegar breytingar á. Þá byggist frumvarpið á samkomulagi stjórnvalda við Bændasamtök Íslands sem einnig hefur verið birt verið í samráðsgátt stjórnvalda. Voru drög að frumvarpinu því ekki birt sérstaklega í samráðsgátt stjórnvalda í samræmi við 2. og 4. mgr. 9. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna, sbr. 10. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, nr. 791/2018.
6. Mat á áhrifum.
Samkomulag milli atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands var undirritað af hálfu stjórnvalda með fyrirvara um nauðsynlegar lagaheimildir Alþingis. Verði frumvarpið ekki að lögum renna núgildandi búvörusamningar út 31. desember 2026.
Frumvarpið, verði það að lögum, mun ekki hafa fjárhagsáhrif fyrir ríkissjóð, þar sem ekki eru lagðar til breytingar á þeim framlögum sem gert er ráð fyrir í fjármálaáætlun og fjárlögum, en áætlað er að framlögin nemi samtals 19,4 milljörðum kr. á ári.
Frumvarpið hefur ekki áhrif á bændur, þar sem ekki eru áformaðar efnislegar breytingar frá núgildandi búvörusamningum. Frumvarpið hefur óveruleg áhrif á stofnanir ríkisins verði það að lögum.
Frumvarpið hefur ekki áhrif á jafnrétti kynja, þar sem áhrif þess eru þau sömu á alla hópa, óháð kyni og það hefur lítil sem engin áhrif á stöðu kynja og því ekki talin þörf á að jafnréttismeta frumvarpið frekar.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.