Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 215  —  121. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um alþjóðleg ökuskírteini.


     1.      Hefur ráðherra látið skoða hvort gera ætti þá kröfu til erlendra ferðamanna að þeir framvísi alþjóðlegu ökuskírteini til þess að fá leigðan bílaleigubíl á Íslandi?
    Ráðuneytið bendir á að lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015, heyra skv. b-lið 7. tölul. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, undir atvinnuvegaráðuneyti. Óski fyrirspyrjandi eftir nánari upplýsingum um málefnið ber að beina fyrirspurn þar að lútandi til atvinnuvegaráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
    Ráðuneytið vekur þó athygli á að skv. 1. mgr. 62. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, setur ráðherra reglur um þau skilyrði sem þeir sem dveljast hér á landi og hafa íslenskt ökuskírteini þurfa að fullnægja til að mega stjórna vélknúnu ökutæki. Þær reglur eru í 29. gr. reglugerðar um ökuskírteini, nr. 830/2011, og eru erlend ökuskírteini samkvæmt því sem þar segir almennt tekin gild hér á landi óháð uppruna. Þess er þó krafist skv. 6. mgr. að ökuskírteini sem gefið er út utan Evrópska efnahagssvæðisins sé með latneskum bókstöfum eða að því fylgi þýðing á texta þess á íslensku, dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Samkvæmt því verður þess í ákveðnum tilvikum krafist að erlendu ökuskírteini fylgi þýðing, svo að það veiti handhafanum rétt til að stjórna ökutæki hér á landi.

     2.      Ef svo er ekki, stendur til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir slíkri breytingu með það að augnamiði að auka umferðaröryggi hérlendis?
    Sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.