Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 220  —  208. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um lögheimili barna og umgengni.

Frá Hilmari Garðars Þorsteinssyni.


     1.      Hve stór hluti barna sem er búsettur hér á landi á lögheimili hjá báðum foreldrum sínum?
     2.      Af þeim börnum sem búsett eru hér á landi og eiga lögheimili hjá öðru foreldri sínu, hve mörg þeirra eiga lögheimili hjá föður sínum og hve mörg þeirra eiga lögheimili hjá móður sinni?
     3.      Hvað staðfesti sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu mörg samkomulög foreldra um lögheimili barna árin 2025 og 2026? Í hve mörgum tilvikum fól slíkt samkomulag í sér að barn ætti lögheimili hjá móður sinni, og í hve mörgum tilvikum fól slíkt samkomulag í sér að barn ætti lögheimili hjá föður sínum? Hvert barn skal talið sem eitt tilvik, þótt samkomulag nái til fleiri en eins barns.
     4.      Í hve mörgum tilvikum var gengið frá samkomulagi um umgengni um leið og gengið var frá samkomulagi um lögheimili hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu árin 2025 og 2026?

                   
Skriflegt svar óskast.