Ferill 209. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 221 — 209. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um dagsektir til að koma á umgengni við börn.
Frá Hilmari Garðars Þorsteinssyni.
1. Hve mörg dagsektamál til að koma á umgengni við börn hafði sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu til meðferðar árin 2025 og 2026?
2. Hve háar eru þær dagsektir sem gjaldféllu árin 2025 og 2026?
3. Hve stór hluti þeirra dagsekta hefur innheimst?
4. Er dagsektum beitt ef hluti umsaminnar eða úrskurðaðrar umgengni fer fram eða aðeins ef engin umgengni fer fram?
5. Telur ráðherra að lagarammi dagsekta til að koma á umgengni feli í sér virkt og gagnlegt úrræði sem gagnast foreldrum og börnum sem ekki fá að umgangast vegna ólögmætra tálmana?
Skriflegt svar óskast.