Ferill 49. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 311  —  49. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um stuðning við æðarrækt.




    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta athuga, á hvern hátt bezt verði unnið að stuðningi við ræktun og verndun æðarfugls.
    Sérstaklega láti ríkisstjórnin nú þegar endurskoða ákvæði laga um eyðingu svartbaks og annarra vargfugla með það fyrir augum að beita raunhæfari aðgerðum en hingað til hefur verið beitt í þessum efnum.


Samþykkt á Alþingi 25. janúar 1971.