Ferill 107. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 422  —  107. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um eftirlit með dráttarvélum og ráðstafanir


til aukins öryggis við notkun þeirra.




    Neðri deild Alþingis ályktar að fela ríkisstjórninni að stuðla að auknu eftirliti með öryggisbúnaði dráttarvéla og annarra vinnuvéla, annaðhvort með undirbúningi löggjafar eða setningu reglugerðar á grundvelli núgildandi umferðarlaga, svo og að setja reglur, sem miða að auknu öryggi stjórnenda slíkra tækja. Verði þá kannað, hvort eigi þyki rétt að gera auknar kröfur til þekkingar og þjálfunar þeirra, er við slíkar vélar starfa.


Samþykkt í neðri deild Alþingis 1. marz 1971.