Ferill 287. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 734  —  287. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


um fullgildingu á samkomulagi um breyting á samstarfssamningi frá 23. marz 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar.




    Alþingi ályktar að veita ríkisstjórninni heimild til þess fyrir Íslands hönd að fullgilda samkomulag um breyting á samstarfssamningi frá 23. marz 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, er undirritað var í Kaupmannahöfn 13. febrúar 1971 og prentað er hér sem fylgiskjal. 1


Samþykkt á Alþingi 30. marz 1971.


1 Sbr. Stjórnartíðindi 1971, C-deild, 201.–223. bls.