Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 1971–72.
Þskj. 864  —  129. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um yfirlitsáætlun um fullnaðaruppbyggingu

þjóðvegakerfisins samkv. vegalögum.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að fela Vegagerð ríkisins að láta á árinu 1972 gera lauslega yfirlitsáætlun um fullnaðaruppbyggingu þjóðvegakerfisins og kostnað við hana miðað við þá gerð vega, sem stefna ber að samkv. 12. og 13. gr. vegalaga, nr. 98 1970, og þá flokkun vega, sem upp verður tekin í vegáætlun fyrir árin 1972–75.


Samþykkt á Alþingi 16. maí 1972.