Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 407  —  4. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um stofnun sjóminjasafns.




    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar, í samráði við þjóðminjavörð, undirbúning að stofnun sjóminjasafns. Skal leita eftir samvinnu við Hafnarfjarðarbæ um hentugt landssvæði fyrir slíkt safn, svo og um byggingu þess og rekstur.


Samþykkt á Alþingi 21. febrúar 1974.