F. á Meðalfelli í Kjós 6. okt. 1864, d. 6. ágúst 1926. For.: Páll Einarsson (f. 23. sept. 1820, d. 20. jan. 1881) gullsmiður og bóndi þar og k. h. Guðrún Magnúsdóttir Waage (f. 13. ágúst 1828, d. 12. des. 1912) húsmóðir. K. (18. júlí 1889) Guðrún Hermannsdóttir (f. 18. mars 1866, d. 4. júní 1959) húsmóðir. For.: Hermann Johnson og k. h. Ingunn Halldórsdóttir. Dóttir: Ingunn (1896).
Stúdentspróf Lsk. 1886. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1888.
Heimiliskennari á Borðeyri veturinn 1888—1889. Fékk 1889 Breiðabólstað í Fljótshlíð og hélt til æviloka. Skip. 1918 prófastur í Rangárvallaprófastsdæmi.
Oddviti Fljótshlíðarhrepps um skeið. Átti sæti í bankaráði Íslandsbanka 1919— 1921.