Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Elín Hirst
13. þm. SV, S, ElH
Elín Hirst

   
Einar Ingimundarson

Einar Ingimundarson

      F. í Kaldárholti í Holtum 29. maí 1917. For.: Ingimundur Benediktsson (f. 13. ágúst 1871, d. 5. febr. 1949) bóndi þar og k. h. Ingveldur Einarsdóttir (f. 4. des. 1874, d. 24. júlí 1953) húsmóðir, systir Eiríks Einarssonar alþm., föðursystir Steinþórs Gestssonar alþm. K. (24. júní 1949) Erla Axelsdóttir (f. 19. apríl 1924, d. 25. ágúst 1985) húsmóðir. For.: Axel Böðvarsson og k. h. Margrét Helga Steindórsdóttir. Börn: Valdís (1950), Ingimundur (1953), Ingveldur Þuríður (1959).
      Stúdentspróf MR 1938. Lögfræðipróf HÍ 1944. Hdl. 1949.
      Blaðamaður hjá dagblaðinu Vísi í Reykjavík júlí—okt. 1944. Fulltrúi í skrifstofu tollstjóra í Reykjavík 1944—1945, fulltrúi borgarfógeta 1945 og fulltrúi sakadómara 1946—1952. Bæjarfógeti á Siglufirði 1952—1966, sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði 1966—1973, sýslumaður í Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði og Seltjarnarneskaupstað 1974—1987, einnig bæjarfógeti í Garðakaupstað frá 1976.
      Í stúdentaráði Háskóla Íslands 1940—1942, formaður ráðsins 1941—1942. Formaður Stúdentafélags Reykjavíkur 1944—1945. Kosinn 1954 í kosningalaganefnd, 1955 í okurnefnd og 1964 í áfengismálanefnd. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1955. Fulltrúi á fundum Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1961 og 1962. Skip. 1962 í mþn. til að endurskoða lög um tollheimtu og tolleftirlit. Í stjórn Dómarafélags Íslands 1972—1973.

      Alþm. Siglf. 1953— 1956 og 1959, alþm. Norðurl. v. 1959—1966 (Sjálfstfl.).


Síðast breytt 27.06.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.