F. á Geldingalæk vestri á Rangárvöllum 18. nóv. 1868, d. 22. okt. 1932 (drukknaði í Ytri-Rangá). For.: Jón Loftsson (f. 12. okt. 1836, d. 23. jan. 1925) bóndi þar og k. h. Þuríður Einarsdóttir (f. 14. júní 1845, d. 13. júní 1893) húsmóðir. K. (17. júní 1909) Ingunn Stefánsdóttir (f. 15. des. 1880, d. 20. febr. 1952) húsmóðir. For.: Stefán Hallgrímsson og k. h. Guðfinna Pétursdóttir. Börn: Nikulás (1908), Pétur (1910), Þuríður (1912), Loftur Þór (1921).
Hlaut nokkra tilsögn hjá kennara í æsku (Nikulási Þórðarsyni).
Stundaði sjóróðra og kennslu á fyrri árum. Kennari í Vestur-Landeyjahreppi 1891—1894. Kennari á Rangárvöllum 1899—1904. Bóndi á Geldingalæk vestri frá 1897 til æviloka. Sýsluskrifari öðru hverju hjá Páli Briem og Magnúsi Torfasyni.