Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Elín Hirst
13. þm. SV, S, ElH
Elín Hirst

   
Einar Oddur Kristjánsson

Einar Oddur Kristjánsson

      F. á Flateyri 26. des. 1942, d. 14. júlí 2007. For.: Kristján Ebenezersson (f. 18. okt. 1897, d. 30. mars 1947) skipstjóri þar og k. h. María Jóhannsdóttir (f. 25. maí 1907) símstöðvarstjóri. K. (7. okt. 1971) Sigrún Gerða Gísladóttir (f. 20. nóv. 1943) hjúkrunarfræðingur. For.: Gísli Þorleifsson og k. h. Brynhildur Pálsdóttir. Börn: Brynhildur (1973), Kristján Torfi (1977), Teitur Björn (1980).
      Nám við MA 1959-1961.
      Skrifstofumaður 1961-1965. Póstafgreiðslumaður 1965-1968. Framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Hjálms hf. 1968-2007. Stjórnarformaður Hjálms hf., Vestfirsks skelfisks hf. og Kambs hf.
      Í hreppsnefnd Flateyrarhrepps 1970-1982. Í stjórn Vinnuveitendafélags Vestfjarða 1974-2007. Í varastjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 1983-1989, í aðalstjórn 1989-1994. Stjórnarformaður Vélbátaútgerðarfélags Ísfirðinga 1984-2007. Í stjórn Icelandic Freezing Plant Ltd. í Grimsby 1987-1989. Í stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva 1981-1996. Formaður Sjálfstæðisfélags Önundarfjarðar 1968-1979. Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Ísafjarðarsýslu 1979-1990. Formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum 1990-1992. Formaður efnahagsnefndar ríkisstjórnarinnar 1988. Formaður Vinnuveitendasambands Íslands 1989-1992. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 1995. Í stjórn Grænlandssjóðs 2001-2004.

      Alþm. Vestf. 1995-2003, alþm. Norðvest. 2003-2007 (Sjálfstfl.).
      Efnahags- og viðskiptanefnd 1995-1999, sjávarútvegsnefnd 1995-1999, umhverfisnefnd 1995-1996, fjárlaganefnd 1999-2007 (varaform. 1999-2007), landbúnaðarnefnd 1999-2005, heilbrigðis- og trygginganefnd 2002-2003, iðnaðarnefnd 2003-2006, félagsmálanefnd 2006-2007, samgöngunefnd 2007.
      Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1999-2004 (form. 2001-2003), Íslandsdeild NATO-þingsins 2004-2007 (form. 2004-2005), Íslandsdeild VES-þingsins 2007.


Síðast breytt 24.10.2008. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur


Raddsýnishorn
Raddsýnishorn (http)





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.