F. á Urðum í Svarfaðardal 6. febr. 1902, d. 15. mars 1952. For.: Sigurhjörtur Jóhannesson (f. 6. febr. 1855, d. 29. jan. 1926) bóndi þar og 2. k. h. Sigríður Friðrika Sigurðardóttir (f. 10. maí 1859, d. 29. apríl 1914) húsmóðir. Faðir Öddu Báru vþm. Hálfbróðir mæðra Gísla Jónssonar vþm. og Hjartar E. Þórarinssonar vþm. K. (30. maí 1925) Sigríður Stefánsdóttir (f. 6. ágúst 1900, d. 23. des. 1974) húsmóðir. For.: Stefán Sigurðsson og k. h. Guðrún Erlendsdóttir. Börn: Adda Bára (1926), Hulda Heiður (1929), Stefán Hilmar (1934).
Gagnfræðapróf Akureyri 1920. Stúdent MR 1924. Guðfræðipróf HÍ 1928.
Kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928—1942. Stundakennari við Samvinnuskólann 1928—1930 og Gagnfræðaskólann í Reykjavík 1928—1933. Vann við ritstjórn og blaðamennsku jafnan eftir 1934.
Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1934—1936. Formaður nefndar til undirbúnings lögum um alþýðutryggingar og endurskoðun framfærslulaga 1935. Formaður útvarpsráðs 1935—1939. Í tryggingaráði 1936—1939 og 1944—1952. Í stjórn KRON frá 1940, formaður frá 1945. Í bæjarstjórn Reykjavíkur og bæjarráði frá 1942 til æviloka. Í mþn. um skólamál 1943—1946. Stórtemplar IOGT 1931—1934.