Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Sigurður Ingi Jóhannsson
1. þm. SU, F, SIJ
Sigurður Ingi Jóhannsson

   
Sigurður Einarsson

Sigurður Einarsson

      F. á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð 29. okt. 1898, d. 23. febr. 1967. For.: Einar Sigurðsson (f. 4. okt. 1873, d. 27. des. 1939) bóndi þar og k. h. María Jónsdóttir (f. 20. febr. 1867, d. 10. ágúst 1958) húsmóðir. K. 1. (10. okt. 1925) Guðný Jónsdóttir (f. 17. febr. 1897, d. 7. sept. 1973) hjúkrunarkona og húsmóðir. Þau skildu. For.: Jón Jónsson og k. h. Arndís Þorsteinsdóttir. K. 2. (21. sept. 1944) Pálína Jóhanna (Hanna) Karlsdóttir (f. 6. júlí 1910, d. 15. júlí 1972) kennari og húsmóðir. For.: Karl Krautwürst og Ingibjörg Dósóþeusdóttir. Börn Sigurðar og Guðnýjar: Hjördís Braga (1926), Gunnvör Braga (1927), Sigurður Örn (1930). Sonur Sigurðar og Hönnu: Steinn Hermann (1946). Dóttir Sigurðar og Maríu Mörtu Ásmundsdóttur: Áslaug Kristín (1926).
      Stúdentspróf MR 1922. Guðfræðipróf HÍ 1926. Framhaldsnám við Hafnarháskóla og námsför um Finnland, Þýskaland, Austurríki og Tékkóslóvakíu 1928—1929. Námsför um Svíþjóð, Pólland og Danmörku 1935. Framhaldsnám í Kaupmannahöfn 1936—1937. Námsför um Bretland, Ítalíu, Egyptaland, Líbanon, Sýrland, Jórdaníu, Ísrael og Grikkland 1957.
      Prestur í Flatey á Breiðafirði 1926—1928. Eftirlitsmaður með kennslu í æðri skólum 1929—1930. Kennari við Kennaraskóla Íslands 1930—1937. Fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 1931—1937, fréttastjóri 1937—1941. Dósent í guðfræði við Háskóla Íslands 1937—1944. Skrifstofustjóri í fræðslumálaskrifstofunni 1944—1946. Prestur í Holti undir Eyjafjöllum frá 1946 til æviloka. Kennari og prófdómari við Héraðsskólann í Skógum frá 1949 um árabil.
      Stjórnarformaður Kaupfélags Flateyjar 1927—1928. Formaður Jafnaðarmannafélags Íslands 1931—1934. Í útvarpsráði 1943—1946.

      Landsk. alþm. (Barð.) 1934— 1937 (Alþfl.).

      Afkastamikill rithöfundur, samdi kennslubækur og fræðirit, orti ljóð og sendi frá sér nokkrar ljóðabækur. Íslenskaði mörg erlend skáldrit, skrifaði fjölda greina í innlend og erlend tímarit og blöð.
      Ritstjóri: Nýtt land (1936).

Síðast breytt 20.08.2001. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð frá 1875

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.