F. í Reykjavík 15. júní 1853, d. 5. jan. 1924. For.: Jens Sigurðsson (f. 6. júlí 1813, d. 2. nóv. 1872) þfm. og k. h. Ólöf Björnsdóttir (f. 22. febr. 1830, d. 7. des. 1874) húsmóðir. Bróðir Jóns Jenssonar alþm. K. (1. ágúst 1882) Guðrún Sigurðardóttir (f. 20. febr. 1862, d. 19. mars 1941) húsmóðir. For.: Sigurður Jónsson og k. h. Sigríður Brynjólfsdóttir, dóttir Brynjólfs Benedictsens þfm. Börn: Haraldur (1883), Jón (1884), Jens (1886), Jón Sigurður (1887), Brynjólfur (1889), Ólöf (1894), Ólöf (1899).
Stúdentspróf Lsk. 1873. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1876. Framhaldsnám í guðfræði við Hafnarháskóla 1877—1878.
Kennari við barnaskólann í Reykjavík 1873—1876 og 1878—1880. Prestur í Flatey á Breiðafirði 1880—1921. Prófastur í Barðastrandarprófastsdæmi 1881—1902. Póstafgreiðslumaður í Flatey 1914—1921.
Oddviti Flateyjarhrepps mörg ár. Amtsráðsmaður 1901—1907. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1895—1902. Fluttist til Reykjavíkur 1921 og var þar til æviloka.