F. í Firði í Mjóafirði 11. febr. 1863, d. 20. júlí 1949. For.: Ólafur Guðmundsson (f. 29. sept. 1830, d. 6. maí 1896) bóndi þar og k. h. Katrín Sveinsdóttir (f. 20. des. 1838, d. 9. okt. 1917) húsmóðir. K. 1. (2. okt. 1888) Kristbjörg Sigurðardóttir (f. 1. mars 1862, d. 1. júní 1895) húsmóðir. For.: Sigurður Sigurðsson og k. h. Guðrún Jónasdóttir. K. 2. (4. sept. 1899) Anna Þorsteinsdóttir (f. 6. maí 1868, d. 5. des. 1929) húsmóðir. For.: Þorsteinn Þórarinsson og k. h. Þórunn Sigríður Pétursdóttir. Börn Sveins og Kristbjargar: Ólafur Hjalti (1889), Katrín (1892). Dóttir Sveins og Önnu: Sesselja (1905).
Nám í lýðháskólunum í Vanheim og Aulestad í Noregi 1881—1882. Gagnfræðapróf Möðruvöllum 1884. Framhaldsnám í Københavns Seminarium 1885—1886.
Kennari í Mjóafirði 1884—1885, 1886—1887 og 1911—1913. Bóndi á Asknesi í Mjóafirði 1887—1899. Verslunarstjóri í Borgarfirði eystra 1899—1901. Bóndi í Firði frá 1901 til æviloka. Umboðsmaður Múlasýslujarða frá 1909.
Aðstoðarmaður við Íslandsdeild Norðurlandasýningar á Englandi vorið 1886. Amtsráðsmaður um skeið. Skip. 1917 í mþn. í vatnamálum (fossanefnd). Kosinn 1918 í fullveldisnefnd.