17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1770)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Það hefur staðið pólitísk deila um hvort landið væri sameign, en það hefur hingað til aldrei staðið pólitísk deila um að auðlindir hafsins væru sameign þjóðarinnar og hefur það margoft verið notað í málflutningi af fulltrúum allra flokka. Ég skil ekki þá menn sem greiða atkv. gegn till. Hver á þá þessa auðlind? spyr ég þessa menn úr því að þeir fást ekki til að greiða till. atkv.? Ég segi já.