19.12.1978
Sameinað þing: 38. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Gunnlaugur Stefánsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf Ólafs Björnssonar útgerðarmanns í Keflavík. Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið, og því mælir kjörbréfanefnd með því að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.