22.12.1978
Sameinað þing: 41. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)

1. mál, rannsókn landgrunns Íslands

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs einungis til að þakka hv. utanrmn. fyrir afgreiðslu þessa máls og þeirra næstu tveggja sem á dagskrá eru. Ég hygg að alger eining ríki um þessi mál og þess vegna þurfi hér ekki að verða almennar umr., og hét ég hæstv. forseta að beita mér fyrir því sem 1. flm. till. að ekki yrðu hér um málið almennar umr., heldur að þm. allir gætu sameinast um að afgreiða þau á þessum mikla annadegi. Ég endurtek þakkir til n. og hæstv. forseta.