26.10.1978
Sameinað þing: 9. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

5. mál, iðngarðar

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil eingöngu lýsa eindregnum stuðningi mínum við þá till., sem hér hefur verið lýst, og tel hana mikilvægt spor í þá átt að renna stoðum undir íslenskan iðnað sem ætlað er að taka við verulegum hluta þess mannafla sem kemur á atvinnumarkað hér á landi á næstu árum. Ég vænti þess, að þingið sjái sér fært að hraða afgreiðslu þessa máls og að sem flestir verði til að styðja þessa till.