15.05.1979
Efri deild: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4783 í B-deild Alþingistíðinda. (4042)

130. mál, mæling og skrásetning lóða og landa í lögsagnarumdæmum kaupstaða

Frsm. (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Samgn. hefur fjallað um frv. til l. um mælingu og skrásetningu lóða og landa í lögsagnarumdæmum kaupstaða og skipulögðum svæðum utan kaupstaða og hefur ákveðið að gera það að till. sinni að vísa málinu til ríkisstj. til nánari athugunar.