18.05.1979
Sameinað þing: 98. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5025 í B-deild Alþingistíðinda. (4350)

255. mál, uppbygging símakerfisins

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Allshn. fékk til meðferðar till. á þskj. 519 frá Jóni Kristjánssyni um auknar framkvæmdir í uppbyggingu símakerfisins. Þar var Alþ. ætlað að fela ríkisstj. að láta athuga áætlanir um uppbyggingu og endurbætur á símakerfinu og það töldum við vera mikilvægt mál, en hins vegar kostar það töluvert. Við töldum rétt að vísa þessari till. til ríkisstj. Undir það skrifa Páll Pétursson, Ellert B. Schram, Vilmundur Gylfason, Bjarnfríður Leósdóttir, Lárus Jónsson, Gunnlaugur Stefánsson og Ólafur Ragnar Grímsson.