25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Vegna þessara síðustu orða er rétt að það komi fram, að ég hef ekki óskað eftir því við hæstv. forsrh. að hann flytti stefnuræðu, vegna þess að ég, eins og ég hef margtekið fram, tel að ákvæði þing­skapa um stefnuræðu geti ekki átt við svo síðla þings. En þar sem sú skoðun mín hefur verið vefengd er ég, eins og ég sagði áðan, reiðubúinn til að láta greiða atkvæði um það hér á þinginu hvort menn telja þann skilning réttan. Þess vegna mun fara fram atkvgr. um það.